Morgunblaðið - 29.03.2004, Page 38
38 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
Lalli lánlausi
©LE LOMBARD
KETTIR ERU
HÆTTULEGIR!
GEISP!
EÐA SVO HEF
ÉG HEYRT
GEISP!
ROP!
ÞÚ ERT FARINN AÐ HAFA SLÆM
ÁHRIF Á MEINDÝRIN!
HEY!
HANN ÆTTI AÐ KAUPA SÉR
SINN EIGINN RAKSPÍRA
SJÁÐU! RISASTÓR GEITUNGUR!
HVAR? ÞARNA FYRIR
OFAN
HURÐINA!
FYRIR OFAN HURÐINA?
ÉG SÉ EKKERT!
SÁ STÆRSTI
SEM ÉG HEF
SÉÐ!
ERU
GLERAUGUN
ÞÍN SKÍTUG
EÐA HVAÐ?
ÉG SVER AÐ ÉG SÉ
ENGAN GEITUNG
LALLI
HANN ER
ÞARNA.
BÍDDU BARA
HANN ER ÞARNA.
ALVEG ROSALEGA
STÓR
SÁ HEFUR VERIÐ
STUNGINN ILLA
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í MORGUNBLAÐINU 17. mars
sl. birtir Pétur Jósefsson á Akur-
eyri opið bréf til undirritaðs þar
sem hann staðhæfir að ákvarðanir
um byggingu menningarhúss á Ak-
ureyri hafi verið teknar í reykmett-
uðum bakherbergjum og á engan
hátt kynntar fyrir íbúum bæjarins.
Nú þykir mér tíra á tíkarskottinu!
Ríkisstjórn Íslands ákvað í árs-
byrjun 1999, og kynnti með tals-
verðri flugeldasýningu, að reist
skyldu menningarhús í öllum
landsfjórðungum. Þessum hug-
myndum tók bæjarstjórn Akureyr-
ar fagnandi og hóf strax undirbún-
ingsvinnu fyrir byggingu
menningarhúss á Akureyri og mál-
ið var mikið til umræðu í bæjar-
félaginu á síðasta kjörtímabili.
Í aðdraganda bæjarstjórnar-
kosninga var þetta verkefni mikið
rætt á sérhverjum fundi frambjóð-
enda. Umræðan hefur sem betur
fer haldið áfram og til dæmis má
nefna umræðu í útvarpi og sjón-
varpi, yfir 40 greinar/fundarsam-
þykktir á heimasíðu Akureyrarbæj-
ar (www.akureyri.is) auk ótal
greina í blöðum svo sem í gagna-
safni Morgunblaðsins – sem fast-
eignasalinn skrifar í en virðist því
miður lesa minna.
Umfjöllun um menningarhús á
Akureyri á uppfyllingunni við
Torfunefsbryggju hefur því góðu
heilli verið mikil og ágætlega kynnt
fyrir bæjarbúum, enda er um að
ræða spennandi verkefni í höfuð-
borg hins bjarta norðurs. Hönn-
unarsamkeppni verður væntanlega
auglýst í byrjun næsta mánaðar og
í kjölfar hennar mun þessi hug-
mynd taka á sig einhverja mynd
byggingar.
Skýringar á skrifum fasteigna-
salans eru torfundnar. Helst dettur
mér í hug að maðurinn hafi haft
svona mikið að gera í fasteigna-
viðskiptum undanfarin ár að hann
hafi ekki mátt vera að því að fylgj-
ast með eða taka þátt í umræðu
síðustu 4–5 ára.
Sem betur fer hafa fasteignavið-
skipti á Akureyri verið lífleg und-
anfarin misseri en menn ættu þó
stundum að líta upp úr kaupsamn-
ingunum, hætta að hanga á húni
ímyndaðra reykmettaðra herbergja
og anda þess í stað að sér örlitlu af
sannleika bæjarlífsins. Innan
veggja ráðhúss Akureyrarbæjar
reykir enginn og bærinn er bað-
aður geislum sólar þegar ég set
þessar línur á blað.
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON,
bæjarstjóri á Akureyri.
Sólargeislar
á Akureyri
Frá Kristjáni Þór Júlíussyni:
HÆSTVIRTUR menntamálaráð-
herra, Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir.
Þar sem nú stendur til að koma á
samræmdum stúdentsprófum í
framhaldsskólum langar mig að
koma fram minni skoðun á því máli.
Ég undirrituð er að ljúka námi á
framhaldsskólastigi í vor, en á sama
tíma mun fyrsta samræmda prófið
verða lagt fyrir. Er það íslensku-
kunnátta okkar sem verður könnuð í
þetta skiptið. Nemendum ber ekki
skylda til þess að taka þetta fyrsta
próf og hef ég nú ekki mikinn áhuga
á því og því ákveðið að láta það ógert!
Finnst mér ég tala fyrir munn
margra og ef ekki flestra nemenda
að þetta fyrirkomulag sé frekar til
þess að fæla ungt fólk frá því að ljúka
námi heldur en hitt, þetta er ekki til
neins annars en að gera námið erf-
iðara.
Er ekki verið að bera í bakkafullan
lækinn með því að bæta við prófum?
Alltaf er verið að kvarta yfir of miklu
álagi á börn og unglinga þannig að
það hlýtur að vera alveg út í hött að
fara að bæta við!
Persónulega finnst mér að hæst-
virtur menntamálaráðherra og
menntamálaráðuneytið sem slíkt
ætti að beita sér fyrir einhverjum
öðrum umbótum innan skólakerfis-
ins.
Ég vil ljúka máli mínu með því að
skora á menntamálaráðherra að
setjast niður hinn 3. maí næstkom-
andi og þreyta þetta próf og hugsa
sig nú aðeins betur um hvort þetta sé
eitthvað sem er nauðsynlegt inn í
framhaldsskólana. Er ekki yfirdrifið
nóg að leggja samræmd próf fyrir í
fjórða, sjöunda og tíunda bekk þótt
ekki bætist nú við í framhaldsskól-
um? Er kannski næsta skref sam-
ræmd próf í háskólum landsins?
Með ósk um góðar undirtektir.
ÞÓREY HARPA
ÞORBERGSDÓTTIR,
Breiðabólsstað 2, Gerði,
781 Hornafjörður.
Opið bréf til
menntamála-
ráðherra
Frá Þóreyju Hörpu
Þorbergsdóttur:
DILBERT mbl.is