Morgunblaðið - 29.03.2004, Page 45

Morgunblaðið - 29.03.2004, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 45 ÁLFABAKKI kl. 4 og 6. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Frábær gamanmynd frá höfundi Meet the Parents KRINGLAN kl. 8. B.i. 14 ára. Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu! Ekki eiga við hattinn hans. Ekki eiga við hattinn hans. Kötturinn með hattinn Kötturinn með hattinn Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Byggð á hinni sígildu bók sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Hinn frábæri Mike Myers (Austin Powersmyndirnar) fer á kostum í myndinni. Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Byggð á hinni sígildu bók sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Hinn frábæri Mike Myers (Austin Powersmyndirnar) fer á kostum í myndinni. AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8. Ísl texti. „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6 og 8. Ísl texti KEFLAVÍK kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.10. KRINGLAN kl. 6, 8 og 10. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Besta teiknimyndin Frá framleiðendum Fast and theFurious og XXX Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. lli li li i l í l l i Hann mun gera allt til að verða þú!r llt til r ! Rafmagnaður erótískur tryllir Frá framleiðendum “The Fugitive” og“Seven”. B.i. 16 ára Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900 poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is Lokar  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Sleppt til að slátra (Out For a Kill) Spennumynd Bandaríkin 2002. Myndform. VHS (90 mín.) Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: Michael Oblowitz. Aðalleikarar: Steven Seagal, Corey Johnson, Michelle Goh. ÞEIR hafa allir átt sín augnablik á tjaldinu, Chuck Norris, Van Damme, Seagal. Þriðja flokks leikarar en kattliðugir og þrautþjálfaðir í aust- urlenskum bardagaaðferðum sem hinn almenni Vesturlandabúi hefur ekki minnsta áhuga á að vita hvað heita, hvað þá meira. Nýjasta myndin hans Seagal fer líkt og þær næstu á undan, beint á myndbanda/DVD markaðinn. Out For a Kill er nánast samfelld slagsmálaruna þar sem leikurinn berst á milli Kína, Parísar, New York og Austur-Evr- ópu, en tökurnar fóru reyndar fram í Búlgaríu. Seagal leikur fornleifa- fræðing sem er notaður sem dráps- tæki af kínerskum eiturlyfjabarón sem hyggst leggja undir sig eitur- lyfjaumferðina frá heimalandinu. Myndin er eingöngu fyrir lífseig- ustu aðdáendur kappans, sem er ábúðamikill sem fyrr og lætur högg og spakmæli fljúga í allar áttir. „Þegar stigið er á bak tígurs er erfitt að stíga af baki,“ og annað eftir því. Þá vitum við það. Spekin er spörk- unum verri. Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Spörk og spakmæli BAFTA-verðlaunahafinn Scarlett Johansson mun tala inn á teikni- myndina The SpongeBob Square- Pants Movie, sem byggð er á þáttum Nickelodeon- stöðvarinnar. Myndin fjallar um svampinn SpongeBob sem lifir á hafsbotni ásamt gæludýri sínu, sniglinum Gary. Leikkonan unga mun ljá Mindy, dóttur sjáv- arguðsis Neptúnusar, rödd sína í myndinni. Leikarinn Alec Baldwin, sem tilnefndur var til Óskars- verðlauna, mun einnig taka þátt í gerð myndarinnar. En hann mun radda Dennis, vægðarlausan misindismann. Scarlett, sem er einungis 19 ára göm- ul, hlaut BAFTA-verðlaunin fyrir hlut- verk sitt í kvikmyndinni Lost in Translation. Hún var einnig tilnefnd til tveggja Golden Globe-verðlauna fyrir hlutverk sitt í Girl with a Pearl Ear- ring. ... Rökkurmyndaleikkonan Jan Sterling, sem er hvað best þekkt fyrir hlutverk sín í svarthvítum myndum frá fimmta og sjötta áratugnum, er lát- in, 82 ára að aldri. Á meðal þeirra mynda sem hún lék í eru Ace in the Hole og stórlsysamyndin The High and the Migty, en fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd var hún tilnefnd til Ósk- arsverðlauna. „Ég minnist hennar sem konu sem hafði góða kímnigáfu,“ sagði Robert Arthur, sem lék á móti Sterling í Ace in the Hole. „Hún glæddi söguna, sem var að öðru leyti ógeðfelld, kímni. Mér er ógleymanleg setning hennar í myndinni: Ég fer aldrei í kirkju, vegna þess að þá krumpast sokkabuxurnar mínar“ ... Söngvaranum og ójafn- aðarmanninum Bobby Brown var fyr- ir skömmu stungið í steininn en hann skuldaði meðlag með tveimur börn- um sínum. Börnin sem eru 12 og 14 ára gömul átti hann með Kim Ward. Brown var þó leystur úr haldi eftir að hann féllst á að greiða með- lagið. Hann hafði þá einungis dvalið í fangelsinu í sólarhring. Dómarinn í málinu skipaði honum að stofna sjóð handa börnum sínum til að tryggja menntun þeirra. Brown, sem er gift- ur söngkonunni Whitney Houston, þarf að auki að kaupa líftryggingu sem renna mun til barna hans. Þetta er í annað skiptið á þessu ári sem Brown er settur í fangelsi. Í fyrra skiptið hafði hann unnið það til saka að brjóta skilorð. Brown mun að öllum líkindum þurfa að heimsækja fangelsið aftur en hann er ákærður fyrir líkamsárás eftir að hafa slegið til konu sinnar. Ákæran verður tekin fyrir hinn 5. maí nk. FÓLK Ífréttum NÝVERIÐ völdu Bretar bestu gamanþáttaröðina í könnun sem fram fór á vegum BBC-sjónvarpsstöðv- arinnar. Gamanþáttaröðin Only Fools and Horses hafnaði þar í efsta sæti en úrslitin voru tilkynnt í beinni útsendingu af þáttastjórnandanum Jonathan Ross. Þátttakendur voru fyrst beðnir um að velja uppá- haldsþætti sína úr úrvali hundrað þátta, því næst var kosið á milli þeirra tíu þátta sem hlutu flest atkvæði úr forvalinu. Only Fools and Horses sló við gamanþáttum á borð við Blackadder og the Vicar of Dibley en þátt- urinn hlaut 342.426 atkvæði. Blackadder, sem lenti í öðru sæti, hlaut 282.106 atkvæði. Only Fools and Horses, sem er hugarsmíð Johns Sullivan, birtist fyrst í sjónvarpi árið 1981. Í þáttunum segir af tveimur bræðrum, Del boy og Rodney Trotter, sem búa í félagslegu íbúðagettói í London og dreymir stöðugt um að verða milljónamæringar. Nú, þegar þátturinn hefur lokið göngu sinni, birtast enn sérstakir jólaþættir og njóta þeir mikilla vinsælda hjá fjöl- skyldum í Bretlandi en talið er að þriðjungur Breta horfi á þáttinn. Leikarinn David Jason, sem leikur Del boy, sagði eft- ir að úrslit lágu fyrir: „Ég er ánægður með að eitthvað sem gaf mér einhver ánægjulegustu augnablik ævi minnar veiti öðru fólki ánægju.“ Höfundur þáttanna, John Sullivan, var að vonum ánægður með úrslitin. Hann sagði að það eina sem fékk hann til þess að skrifa þættina árið 1981 var sú vitn- eskja að árið 2004 yrði haldin samkeppni um bestu gamanþáttaröðina í Bretlandi. Í henni vildi hann vinna sigur. Bretar velja bestu gamanþáttaröðina Del boy og Rodney Trotter vekja mikla kátínu. SÖNGVARINN Jan Berry, annar helmingur poppdúettsins Jan & Dean, er látinn, 62 ára að aldri. Berry fékk hjartaáfall þegar hann var staddur á heimili sínu í Los Ang- eles en hann hafði átt við veikindi að stríða frá árinu 1966, en þá lenti hann í bílslysi sem varð þess valdandi að hann var lamaður í eitt ár. Jan & Dean nutu mikilli vinsælda á sjöunda áratugnum og náðu að koma sjö lögum á topp tíu lista bandaríska vinsældalistans. Þegar þeir nutu hvað mestra vinsælda vinguðust þeir við Brian Wilson úr Beach Boys. Hljómsveitirnar spiluðu á þessu tímabili reglulega inn á plöt- ur hvor annarrar án vitundar útgef- enda sinna. Velgengni Jan & Dean var á enda þegar Berry lenti í hinu alvarlega bílslysi árið 1966. Piltarnir komu saman árið 1972, en endurkoma þeirra vakti ekki mikla athygli. Berry gerði sína fyrstu sólóplötu árið 1997, en í mars það sama ár fóru fram síðustu tónleikar Jan & Dean. Mark Moore, ævisöguritari Berr- ys, heldur því fram að Berry hafi ávallt verið hinn skapandi kraftur í dúóinu. Hann bendir einnig á að Berry hafi haft mikil áhrif á Brian Wilson lagahöfund Beach Boys. Reuters Jan Berry og Dean Torrence. Myndin er frá árinu 1959. Berry úr Jan & Dean er látinn FJÖLDI fólks mætti á opnun sýningar mynd- listarmannsins Birgis Andréssonar í i8 í liðinni viku. Þar má sjá raunsæjar blýantsteikningar af ólg- andi sjó og textaverk þar sem útliti hesta er lýst nákvæmlega. Ennfremur eru til sýnis gamlar og grófkornóttar eft- irmyndir af ljósmyndum af kappreiðum og lit- skrúðug lítil málverk eft- ir listamanninn. Sam- tímis sýningunni í i8 er sýning á verkum Birgis í galleríi Niels Stærk í Kaupmannahöfn. Sýning Birgis Andréssonar í i8 Elín Pálmadóttir, Birgir Andrésson og Finnur Arnar ræða saman. Svanhildur Konráðsdóttir og Signý Páls- dóttir virða fyrir sér verk Birgis. Ólgandi sjór og textaverk Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.