Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson hefur sent
borgarstjóranum í Reykjavík bréf þar sem
hann óskar eftir formlegum viðræðum við borg-
aryfirvöld um framtíð Fríkirkjuvegar 11, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Segir Björgólfur að sér sé annt um minningu
langafa síns, Thors Jensen, sem lét reisa húsið.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu um helgina
eru uppi áform um að Reykjavíkurborg selji
húsið við Fríkirkjuveg 11, en það hýsir nú skrif-
stofur Íþrótta- og tómstundaráðs (ÍTR). Vísar
Björgólfur til þess að langafi hans hafi byggt
húsið og jafnframt verið meðhöfundur teikn-
inga af því en þar bjó Thor Jensen í rúm 30 ár.
Björgólfur Thor Björgólfsson er
langafabarn Thors Jensen. Móðir
Björgólfs, Margrét Þóra Hallgrímsson,
er dóttir Margrétar Þorbjargar Thors
Hallgrímsson, dóttur Thors Jensen og
Margrétar Þorbjargar Kristjánsdótt-
ur.
Thor Jensen lét byggja húsið við
Fríkirkjuveg 11 á árunum 1907–8, en
hann seldi það samtökum bindindis-
manna árið 1939. Í minningum Thors Jensen
segir meðal annars um húsið: „Vatnslögn var í
húsinu, og var það algert nýmæli í Reykjavík.
Ég lét grafa og sprengja djúpan brunn og múra
hann innan. Úr brunninum var vatninu
dælt í geymi í kjallaranum, en þaðan
fór það með þrýstidælu í vatnsæðakerfi
hússins.“ Seinna segir: „Ég fór að
hugsa um, að hin stóru húsakynni gætu
kannske orðið húsmóðurinni óþarflega
erfið. Ég skrifaði henni einu sinni hálf-
gert afsökunarbréf út af þessu og bætti
því við, að svo færu börnin kannske öll
frá okkur, þegar tímar liðu, og þá sæt-
um við tvö ein eftir í þessu stóra húsi. „Það er
eins og vant er,“ sagði ég í bréfinu, „stórhug-
urinn hefir hlaupið með mig, en þú hjálpar mér
gegnum þetta eins og allt annað.““
Björgólfur Thor Björgólfsson ritar borgarstjóra bréf vegna Fríkirkjuvegar 11
Óskar eftir formlegum við-
ræðum um framtíð hússins
ELDUR kviknaði í bíl vestan við Kúagerði
á Reykjanesbraut um klukkan tvö í gær.
Bíllinn var á ferð þegar eldurinn kom upp
og var ökumaður einn í bílnum. Að sögn
ökumannsins blossaði eldurinn upp undan
mælaborðinu, en hann hafði sótt bílinn úr
viðgerð daginn áður. Ökumanninum tókst
að forða sér út úr bílnum og slasaðist ekki.
Þegar slökkvilið kom á vettvang var bíll-
inn alelda, en vel gekk að slökkva eldinn.
Nokkrar tafir urðu á umferð um Reykja-
nesbrautina meðan slökkviliðið var að
störfum.
Morgunblaðið/Páll Bergmann
Eldur í bíl á
Reykjanesbraut
SUÐVESTURHORN landsins breytti svo
sannarlega um svip upp úr hádegi í gær
þegar skyndilega skall á með mikilli snjó-
komu og éljagangi. Breyttist auð jörðin í
vetrarríki á örskömmum tíma þegar
snemmkomið páskahret reið yfir í Þing-
vallasveit og víðar með tilheyrandi snjó-
komu.
Féð hafði þó úr nógu að moða þar sem
búið var að setja heybagga út á tún en
ágætt líka að vita af skjólinu í fjárhús-
unum.
Í dag er spáð hlýnandi veðri á suðvest-
urhorninu, en þó er ljóst að veturinn hef-
ur ekki enn sleppt klónum að fullu af
landinu bláa.
Morgunblaðið/ÞÖK
Snögg veðrabrigði
á suðvesturhorninu
ALVARLEGT umferðarslys varð nálægt
Vatnsfellsvirkjun vestan við Þórisvatn á svo-
kölluðum Veiðivatna- eða Jökulheimavegi um
hálfþrjúleytið í gær. Ökumaður jeppa missti
stjórn á honum í vatnsrás á vegarkantinum á
leið niður allbratta brekku, með þeim afleið-
ingum að afturhjólin brotnuðu undan bílnum,
sem valt á veginum.
Tveir voru í bílnum. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar flutti ökumanninn á Landspítalann í
Fossvogi, en hann er talinn alvarlega slas-
aður. Farþeginn, sem er aðstandandi öku-
mannsins, fylgdi honum á sjúkrahúsið, en
slapp sjálfur við alvarleg meiðsl. Báðir voru í
bílbeltum. Að sögn læknis á slysadeild sjúkra-
hússins er líðan hins slasaða stöðug og er
hann til rannsóknar. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar er snjór yfir öllu á svæðinu
og hálka á vegum. Jeppinn er gjörónýtur.
Nokkuð var um óhöpp víða um land í gær.
Um eittleytið fór jeppi út af veginum og valt í
Biskupstungum á móts við bæinn Vatnsleysu.
Enginn slasaðist en bíllinn var fjarlægður
með dráttarbíl. Þá varð annar útafakstur og
velta í Kömbum um hálftvöleytið. Þar fór bet-
ur en á horfist þar sem enginn slasaðist en bif-
reiðina þurfti að fjarlægja með dráttarbíl.
Einnig varð útafakstur og velta við Þrengsla-
vegamótin í Svínahrauni. Þar sluppu ökumað-
ur og farþegi með skrekkinn en bíll þeirra var
fjarlægður með dráttarbíl. Að sögn varðstjóra
hjá lögreglunni á Selfossi er orsök slysanna
rakin til hálku og krapa.
Bílveltur á Norðurlandi
Bíll fór út af þjóðvegi eitt á Hrútafjarð-
arhálsi í Húnavatnssýslu um fjögurleytið og
valt. Tveir voru í bílnum og fór lögregla með
farþegann til skoðunar hjá lækni á Hvamms-
tanga. Meiðslin eru þó ekki talin alvarleg. Bíll-
inn mun töluvert skemmdur. Sól og blíða var
þegar óhappið henti og engin hálka á veg-
inum. Einnig valt bíll fyrir sunnan Brú í
Hrútafirði um sexleytið. Minniháttar meiðsl
urðu á fólki. Þá missti bílstjóri stjórn á bíl sín-
um í lausamöl á veginum við bæinn Breið í
Lýtingsstaðahreppi. Að sögn varðstjóra hjá
lögreglunni á Sauðárkróki slasaðist enginn.
Alvarlegt
umferðarslys
við Vatns-
fellsvirkjun
Víða vandræði vegna
hálku á vegum
DR. SIGURÐUR Rúnar Sæmundsson, barnatann-
læknir og sérfræðingur í samfélagstannlækningum,
gagnrýnir að endurgreiðsla Tryggingastofnunar til
foreldra vegna tannlækninga barna hafi lækkað veru-
lega á undanförnum árum. Vaxandi hópur foreldra
hefur ekki efni á að veita börnum sínum grundvallar-
tannlæknaþjónustu, að sögn hans.
Sigurður lagði fram tölur um minnkandi útgjöld TR
til tannlækninga barna á málþingi Tannlæknafélags
Íslands sl. laugardag þar sem m.a. kom fram að endur-
greiðsla vegna skoðunar og flúormeðferðar nam á nú-
virði 9.211 krónum árið 1990 en nemur 3.308 krónum í
dag, og hefur minnkað um 64%. Endurgreiðsla TR
vegna hjúpunar barnajaxls nam 2.657 kr. árið 1990 en í
dag 1.373 kr. og hefur minnkað um 48%. Endur-
greiðsla vegna röntgenmyndatöku nam 1.217 kr. árið
1990 en í dag 735 kr.
Tannheilsa barna fer æ meira
eftir tekjum foreldranna
Sigurður Rúnar segir í samtali við Morgunblaðið að
minnkandi kostnaðarþátttaka hins opinbera í vörnum
gegn tannskemmdum endurspeglist í versnandi tann-
heilsu hjá mörgum börnum og tannheilsa barna fari æ
meira eftir tekjum foreldranna.
Hann segir að íslenska tannheilbrigðiskerfið hafi
þróast frá því að vera samhjálparkerfi eins og á Norð-
urlöndunum yfir í að vera sjálfshjálparkerfi, líkt því
bandaríska, sem hann hafi kynnst er hann stundaði
nám í barnatannlækningum þar í landi. Sem barna-
tannlæknir sjái hann að margir hafi ekki fjárhagsleg
tök á að kaupa tannlæknaþjónustu fyrir börnin sín.
Greiðslur hafa
minnkað um
allt að 64%
RÍKISKAUP munu á næstunni auglýsa ramma-
samningsútboð á stöðluðum tölvuhugbúnaði fyrir
ráðuneyti og stofnanir ríkisins. Að sögn Júlíusar S.
Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa, er um viðamikið
útboð að ræða sem hefur þegar verið auglýst á Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Júlíus segir um að ræða útboð á Windows-stýri-
kerfinu, Linux-kerfinu, skrifstofuhugbúnaði o.fl.
Einnig kemur til skoðunar að afla tilboða í svo-
nefndan opinn hugbúnað (Open Source Software).
Í frétt á vefsíðu Ríkiskaupa segir að um gríðarlega
umfangsmikið hugbúnaðarútboð sé að ræða. Skiptist
það í þrjá meginflokka hugbúnaðar sem eru stýri-
kerfi fyrir einmenningstölvur, skrifstofuhugbúnað
(Office Software) og stýrikerfi fyrir miðlara eða net-
þjóna. Óskað verður eftir tilboðum í kaup og leigu af-
notaréttar hugbúnaðarins svo og reglulega þjónustu
og viðhald.
Undirbúa um-
fangsmikið hug-
búnaðarútboð
♦♦♦