Vísir - 21.04.1981, Síða 5
VÍSIR
Þriöjudagur 21. april 1981. Fiom 5
ÆTLAR AÐ
SVELTA SIG
TIL BANA
Þrír af þingmönnum Irska lýö-
veldisins heimsóttu um páskana
IRA-fangann, Bobby Sands, I
fangeisi á N-írlandi. Telja þeir
hann ekki eiga nema viku ólifaða,
en Sands segist staöráöinn I aö
svelta sig til bana i tilraun sinni
til aö knýja fram viöurkenningu á
þvi, aö dæmdir hryðjuverkamenn
á N-trlandi séu pólitlskir fangar.
Sands, sem afplánar 14 ára
fangelsi fyrir aö hafa skotvopn
undir höndum, hefur svelt sig I 52'
daga. — Fyrr I þessum mánuöi
kusu kaþólskir kjósendur kjör-
dæmis á landamærum Noröur- og
Suöur-lrlands hann til þingsætis á
breska þinginu. Sands tók engan
þátt I kosningabaráttunni sjálfur,
þvl aö hann sat I fangelsinu og var
þá byrjaður hungurverkfalliö.
Bernadette Devlin og fleiri tóku
upp baráttuna fyrir hann á með-
an.
Þingmennirnir þrir, sem heim-
sóttu hann, sögöust mundu leita
viöræöna viö Margaret Thatcher
forsætisráöherra til þess aö fá
fram umbætur I aöbúnaöi I
fangelsum á Noröur-írlandi. Þeir
sögöust einnig ætla aö reyna aö fá
mannréttindaráö Evrópu til þess
aö beita sér I málinu.
Páskaróstur (
Londonderry
Tveir Irskir unglingar létu llfiö,
þegar þeir lentu fyrir breskum
herjeppa I Londonderry á páska-
dagskvöld. Lögreglan segir, aö
þetta hafi gerst eftir aö hermenn-
irnir höföu veriö grýttir og varp-
að var aö þeim benslnsprengjum.
Fylgdi uppþotið I kjölfar „lýö-
veldisgöngunnar”, sem farin var
i Londonderry eins og viöa
annarsstaöar á N-lrlandi til þess
aö minnast páskauppreisnar
Dublinarbúa gegn breskum yfir-
ráöum 1916.
1 Belfast handtók lögreglan
nokkur ungmenni, sem ráöist
höföu á lögreglustöð og látið
grjóthriöina dynja á henni.
Herjeppaslysiö er I frekari
rannsókn.
I
Tsuguru-sund, þar sem geislun mældist i sjónum eftir leka úrgangsvatns úr kjarnorkuven.
Geisiamengun frá
japðnsku kjarnorkuveri
56 manns urðu fyrir geislun,
þegar geislavirkt úrgangsvatn
lak úr kjarnorkuveri i vesturhluta
Japans.
Fyrirtækið, sem rekur orku-
verið við Tsuruga, segir, aö
ekki sé aö fullu komiö I ljós,
hversu alvarleg geislaeitrun
þessa fólks sé!
ENN EITT BLÖKKU-
BARN MYRT í ATLANTA
Llk af 15 ára gömlum blökku-
pilti fannst I ánni sunnan við At-
lanta á páskadag. Er hann 24.
blökkubarniö, sem látiö hefur llf-
iö meö voveiflegum hætti siöasta
21 mánuð I Atlanta-borg I Ge-
orgiu.
Þessi piltur hvarf 2. mars og enn lausum hala I borginni, þrátt
leikur grunur á þvi, aö hann sé fyrir umfangsmikla rannsókn og
fórnardýr morðingja, sem leikur leit lögreglunnar.
Þessar fréttir berast i kjölfar
tilkynningar japanskra yfirvalda
um, að rannsakaö skuli, hvi orku-
verið hefði ekki tilkynnt geisla-
leka, sem varð i þvi 8. mars.
Þessi viðburður hefur orðið til
þess.aðyfirvöld hafa fyrirskipað
gaumgæfilega athugun á öryggi
allra kjarnorkuvera Japans, 22.
talsins.
Hið geislavirka úrvangsvatn
orkuversins rann út i sjó og
venjubundin geislamæling i síö-
ustu viku leiddi i ljós geislun i
sjónum og botngróðri allt að 700
metra frá verinu. Kom I ljós aö
krani reyndist opinn, sem mæli-
ljós i stjórnborði sýndu lokaðan.
BANDARISKUR
KAFBÁTUR I ÁREKSTRI
Bandariski flotinn hefur viður-
kennt skaðabótaskyldu sina
vegna áreksturs bandarisks
kjarnorkukafbáts og japansks
flutningaskips fyrr i þesum
mánuði.
Áreksturinn varð 9. april i
Kinahafi og tók kafbáturinn ekki
þátt i að bjarga neinum af 13
manna áhöfn Nihe Maru, sem
sökk eftir áreksturinn. Mennirnir
komust þó i bátana og var
bjargað siðar, en skipstjórans og
eins hásetanna er ennþá saknað.
NÝTT HEIFTARSTRRD
BRAUST OT I S-
LlBANON UM PÁSKA
Hatrömm stórskotahrið rauf
páskafriðinn i Suður-Libanon i
gær, þegar hægrisinna Libanir
beindu skotum sinum að
Nabatiyeh, þar sem skæruliðar
Palestinuaraba og vinstrisinna
Libanir eiga sér öflugt yigi.
Orrustuflugvélar frá Israel
blönduöu sér I orrahriðina með
loftárásum á stöðvar Palestinu-
araba, og segja ráðamenn i
Israel, að þeir vilji sýna hægri-
sinnum stuöning i baráttunni viö
Palestinuaraba.
Palestinuskæruliðar svöruðu
eldflaugaárásá byggð ból handan
israelsku landamæranna.
Þaö er talið, að milli 20 og 30
manns hafi látið lifið i stórskota-
hriðinni á páskadag og annan i
páskum. Vitað er um að minnsta
kosti 70 særða.
Um leið bárust fréttir af þvi, að
átök hefðu blossað upp að nýju
milli herskárra falangista og sýr-
lenskra hermanna i Beirút á
páskadag, en þau f jöruðu út iheð
kvöldinu og mátti heita friður þar
i gær.
Átökin i Suður-LIbanon hófust,
þegar foringi og óbreyttur liðs-
maður úr liði hægrisinna voru
skotnir til bana af Palestínu-
skæruliðum, þar sem þeir voru að
gera jarðsprengjur, óvirkar, sem
skæruliðar höföu komið fyrir.
Hófu hægrisinnar heiftarlega
stórskotahrið á hafnarbæinn
Sldon. 1 þeirri orrahriö fórust
sextán manns og rúmlega 30
særöust.
Bætt haf naraðstaða
Auldð geYmslurými
Hafskip hf. tekur um þessar mundir í notkun fyrsta áfanga af þremur að nýrri hafnar- og
vörugeymsluaðstöðu í Austurhöfninni. Breytingar nú eru þessar:
1. í Tollstöðvarbyggingu og Hafnarhúsi er vöruafgreiðsla fyrir vörur frá Norður-
sjávarhöfnum og höfnum á Bretlandi. Einnig fyrir vörur frá U. S. A. og Kanada.
I Tollstöðvarbyggingu er einnig miðstöð allrar vöruafgreiðslu í Austurhöfninni.
2. I A skála er móttaka á vörum sem fara eiga á hafnir við Norðursjó, Bretlandi
svo og U. S. A. og Kanada.
Vöruafgreiðslan við Grandagarð þjónar áfram vöruflutningum til og frá
Skandinavíu og höfnum við Eystrasalt. Vöruafgreiðslusvæðið við Njarð-
argötu (Tívolí) mun einnig þjóna áfram um sinn.
Síðar verða svo teknar í notkrrn vöruafgreiðslur í Faxaskála I og II.
Munu þær breytingar verða kynntar þegar nær dregur.
Tilgangur Hafskips hf. með þessmn breytingum er að stórbæta
afgreiðsluskipulag sem og vörumeðferð, og auka þar með þjón-
ustu við viðskiptamenn félagsins.
HAFSKIP HF.
Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu, Sími 21160