Vísir - 09.05.1981, Page 2

Vísir - 09.05.1981, Page 2
2 VÍSIR % Laugardagur 9. mal 1981 ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPI* Sumar- tungl í vexti 1 dag er 9. mai, 129 dagur árs- ins og sumartungl i vexti. A morgun er Eldaskildagi, sem á6ur fyrr var stór dagur og bund- inn kvfða, þvi þá skiluðu leigulið- ar ,,úr eldunum ', þ.e. þeir af- hentu jarðeigendum það búfé, sem þeim hafði verið skylt að hafa á fóðrum yfir veturinn sem leigugjald. Þau skil eru nú úr sög- unni og önnur komin i staðinn þvi ekki læknar timinn allt á leið sinni, þrátt fyrir allt. Og i tilefni Lokadagsins, sem samkvæmt fornum sið er á mánu- daginn, þ. 11, er hér áminning um hverfulleikann, tákngerð af stundaglasi: Gamaltvín á nýjum belg Heyrt á árshátíö: Áhugakona um ballet: „Hvaða dans er þetta eiginlega sem hann Guð- mundur Jaki er að dansa?”. Eiginmaður að vestan: ,<Þetta er ekki dans, kona góð, þetta er verkalýðs- hreyfingin.” Heyrt í Straumsvík: //Það er nú meira hvað ykkur körlunum er ósýnt um að klæðast smekklega, t.d. hvað varðar liti. Konur kunna tökin á þessu, þær eiga jafnvel til að hafa kjólinn í samræmi við hárið." Forstjórinn: „Já, þú segir nokkuð — þá yrði nú aldeilis tekið eftir okkur sköllóttu!" Á sjötugsafmæli for- sætisráherrans í vetur, sagði kurteis Ijósmyndari: „ Ég vona að ég fái að taka mynd af yður, þegar þér verðið hundrað ára, herra forsætisráðherra." „Já, þvi ekki það, ungi maður," svaraði ráðherr- ann,. „Mér sýnist þér vera svo hraustlegur og sprækur." Emn að austan Þegar þessar teikningar birtust i riissnesku bókmenntatlmariti, fór allt á annan cndann, bréfum rigndi yfir ritstjórn og sumir gengu jafn- vel svo langt aö hafa samband við miðstjórn flokksins. Hvers vegna? Jú, ef teikningarnar eru grand- skoðaðar kemur i ljós að lista- mainirnir hafa gert regin mis- tök. A myndinni „Til stjarnanna” hefur stjarna Daviðs, sjálf Gyð- ingastjarnan óvart komið i stað sovésku stjörnunnar. Sú siðar- nefnda er fimmhyrnd, sú fyrri sexhyrnd. Flokksbundin stjdrn blaðsins hafði ekki fyrr beðist afsökunar og velvildar á þessum voðalegu mistökum, en hin myndin stakk upp kollinum. Myndin sýnir veggspjald, teiknað af listamanni frá Moldaviu, I tilefni 26. flokksþingsins. Umhverfis þetta handtak félag- anna er röð fána rikjanna i so- vésku blokkinni. Þeirra á meðal: fáni JUgóslaviu. Stjórnin i Belgrad mótmælti höstuglega. En nú er búið að ráða sérstakan fulltrúa við timaritið. Hlutverk hans er að ritskoða allar ljósmyndir og teikningar áður en þær birtast! Mr. Rawhide Alltaf heyrast nýjar sögur af' Bandarikjaforseta blessuðum. Sú nýjasta hermir að hann kunni illa loftslaginu i Washington enda vanur notalega veðrinu i Kali- forniu. Og svo er honum illa við þurrt loftið innan dyra i Hvita húsinu, sem þurft hefur að kynda það sem af er fyrsta embættisári forsetans. „Afsakið hvað ég er seinn” á Rreagan að hafa sagt við ráðgjafa sina einn morguninn, ,,ég þurfti nefnilega að bera oliu á andlitið á mér.” Ráðgjafar Bandarikjaforseta hugsa vist sem svo að heimsviðburðirnir ættu að hafa forgang á undan húðvandamálum kvikmynda- leikarans fyrrverandi og kalla hann Mr. Rawhide sin á milli: það mætti útleggjast hvelja á islensku! „Eg vil ekki gera litið úr Abraham Lincoln, en verð þó að segja að faðir minn hefur alla kosti til að bera til að geta orðið einn af merkustu forsetum Bandarikjanna.” Haft eftir elsta syni Ronald Reagans Banda- rikjaforseta! ,, Þjóðmenmngarlegt andvaraleysí” Okkur hefur borist i hendur úr- klippa úr blaði þeirra Vestur- tslendinga, þar sem Haraldur rit- stjóri Bessason skrifar um bók dr. Hallgrims Helgasonar, „tslenskar tónmenntir, kvæða- lög, forsaga þeirra, bygging og flutningsháttur”. Haraldur segir þessa bók „ugglaust vera eitt af merkustu ritum sem gefin voru út á tslandi siðastliðið ár.” Þá vitnar Haraldur Bessason til bókarinnar, þar sem segir: „Við Islendingar höfum löngum verið hreyknir af fornbókmennt- um okkar. Þar hefir skerfur okkar til samfélags þjóðanna verið viðurkenndur. En menning er fjölstrengja harpa og tjóar litt að knýja aðeins einn þeirra'. Strengur tónmennta hefir of lengi legið i þagnargildi. Afleiðing er þjóðmenningarlegt andvaraleysi, skeytingarleysi um þjóðleg verð- mæti og þar af leiðandi skortur á menningarlegri sjálfstæðis- stefnu, sem m.a. kemur fram i gagnrýnislausri upptöku lánslaga eftir ýmsa erlenda höfunda, undir yfirskini tónsettra islenskra önd- vegisljóða. Þannig deyr út ekta þjóðlegur, lifandi arfur. Upp risa undir fölsku flaggi „islensk” alþýðulög og mörgum tslendingi hefur orðið hált á þvi að kynna erlendis þessa söngvategund undir nafni tslands.” Um þessa tilvitnun segir rit- stjóri Lögbergs-Heimskringlu: „Þetta er þörf áminning og mættum við hér vestra lesa hana vandlega og leggja okkur hana á Dr. Hallgrimur Helgason. minni. Oft hefur undirritaður sönglað tóna sem hann hélt i ein- feldni sinni að væru ramm- islenskir. Siðar kom annar og traustari sannleikur i ljós og var slikt ekki litið áfall.” Með þessari úrklippu fylgja kærar kveðjur en þær eru efa- laust sendar i þeim grun, að fleiri en Vestur-lslendingar þurfi á á- minningunni að halda. Sá I miðið er rostungur, séður með augum forfeðra okkar. Hyllingar Tveimur kanadiskum visinda- mönnum, Lehn og Schroeder við háskólann i Manitoba, létu sér detta i hug að kanna hvernig stæði á sögusögnum um sjávar- skrimsli fyrr á öldum, sbr. mynd- ir þær sem vikingar höfðu i stafni skipa sinna. Kanadamennirnir komust að þeirri niðurstöðu, að hér væri hvorki um hjátrú né lygar að ræða, vikingarnir sáu i raun og veru kynjaskepnur. Skýringuna er að finna i hillingum. Um er að ræða speglun á milli hlýrra og kaldra loftlaga. Venjulega kólna lögin niður á við, þannig að efstu lögin eru kaldari en þau neðstu. Verði óvenju kalt uppstreymi yf- ir vatnsfleti, myndast hillingar svo aö tiltölulegar smáar skepnur á borð við rostunga eða seli teygjast þar til þær sýnast risa- dýr. Þetta er aðeins sýnilegt sé á- horfandinn sjálfur staddur ekki hærra en 2 metrum fyrir ofan vatnsborðið. Vikingarnir voru einitt undir þvi lágmarki i skip- um sinum og þvi trúðu þeir aðeins eigin augum þegar þeir skreyttu skip sin þessum furöuskepnum. ■ ÚR AFMÆLISDAGABÓKINNl „Þú ert óvenju vel og traustlega gerður, bæði andlega og likamlega. Þrek þitt er með fádæm- um og þú virðist búa yfir ótæmandi orkulindum innra með þér. Þú vinn- ur ætið af kappi og hefur nautn af vinnunni. Sam- kvæmislif er þér að skapi og þú hefur með- fædda hæfni til að skemmta fólki.” Jóhannes Nordal, bankastjóri f. 11. mai.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.