Vísir - 09.05.1981, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 9. mal 1981
vism
feiöir og fetöctncKa
Rætt við Kjartan Lárusson, forstjóra Ferdaskrifstofu ríkisins:
„Stórauknar
upplýsingar til
íslendinga um
feróir innanlands”
,,ViI) erum búnir að skipu-
ieggja hópferðir um landið með
svipuöu sniði og I fyrrasumar og
ennfremur ætlum við að
auövelda tslendingum enn frek-
ar að ferðast með útlendingum
um landið. Samkvæmt reynsiu
undanfarinna þriggja ára
virðist það vera mjög vinsælt að
fara með útlendingum, kynnast
fóiki frá öðrum löndum og oft
skapast þar kunningsskapur og
vinátta sem ekki slitnar þegar
ferðinni lýkur”, sagði Kjartan
Lárusson, forstjóri Ferðaskrif-
stofu rfkisins I samtali við
Ferðasiðuna.
„Við höfum ýmsar nýjungar á
prjónunum sem auka enn þá
möguleika sem tslendingar
hafa til að ferðast um eigið land,
en þaö er of snemmt að fara
náið út i það núna. Ég get nefnt
að ætlunin er að stórauka fram-
boö á upplýsingum til al-
mennings. Ferðaskrifstofan
veröur opin alla daga vikunnar
og þangaö geta allir komið og
fengiö upplýsingar um lengri
eða skemmri ferðir. Þessi þjón-
usta stendur einnig þeim til
boða sem eru að fara á einkabil-
um sinum. Þeir geta komiö til
okkar, til dæmis á laugardags-
eða sunnudagsmorgna ef
helgarferð er I bigerð og fengið
upplýsingar um ferðamöguleika
og hvað býðst á hverjum staö.
Við höfum hér sérmenntað fólk
til að gefa þessar upplýsingar
og erum meö þessu að auðvelda
landanum ferðalög um eigið
land”, sagði Kjartan ennfrem-
ur.
t hópferöum Ferðaskrifstofu
rikisins um landið er yfirleitt
gist á hótelum, Edduhótelum
sem öðrum og er reynt að halda
verðinu sem mest niðri. Hægt er
aö fara I dagsferðir frá Reykja-
vik, til dæmis að Gullfossi og
Geysi og finnst mörgum þægi-
legt og ódýrara að skilja einka-
bflinn eftir heima og skjótast i
svona hópferðir með leiðsögu-
mönnum. Þá veröur hægt að
fara i 10 daga hringferöir um
landið I hópferöum Ferðaskrif-
stofunnar I sumar, á þeim tima
sem öllum hentar, þvi slikar
ferðir verða 40-50. Auk þess
verða styttri sérferöir til ein-
stakra landshluta. Nákvæma
ferðaæaætlun og verð er hægt aö
fá upp úr miöjum mai.
Fleiri erlendir ferða-
menn
Kjartan Lárusson sagði enn-
fremur, að betra útlit væri nú
hvaö varðar komur erlendra
ferðamanna til landsins en var á
sama tima I fyrra. Hins vegar
væri þetta sá mánuöur sem
menn afpöntuðu mest sinar
feröir ef þeir ætluöu á annað
borö að hætta viö, og þaö væri
ekki hægt aö treysta alfarið á
allar pantanir fyrr en ferða-
maðurinn væri kominn til lands-
ins og farið hefði verið ofan i
budduna hans!
Hann sagði að á siöustu 10 ár-
um hefði orðiö mikil breyting á
ferðatilhögun útlendinga sem
sæktu okkur heim. Ferðirnar
væru nú meira og minna skipu-
lagðar áður en þeir kæmu til
Kjartan Lárusson forstjóri.
landsins svo aö segja frá fyrsta
til siöasta dags. Dvaiartiminn
væri yfirleitt um hálfur
mánuður og allur timinn skipu-
lagður fyrirfram nema einn eða
tveir dagar. Reynslan sýndi
hins vegar, aö farþegar sem
panta seint Islandsferð fyrir
sumarið skiluðu sér siöur, ef illa
voraði I Evrópu. Þá væri frekar
farið i sól og bliöu til annarra
landa.
„Það er talsverð aukning I
bókunum frá þvi I fyrra, sem
var lélegt ár að þessu leyti, en
það er raunar ekki fyrr en um
næstu mánaðamót sem það
kemur I ljós hvort þær vonir
sem viö gerum okkur, standast.
En ég er bjartsýnn, maöur
hefur ekki leyfi til annars I öllu
þessu svartsýnisrausi sem hér
heyrist”, sagði Kjartan Lárus-
son.
Farsedlar frá
SMART
gilda i lofti,
ládi og legi
Þrir stórir og þekktir
flutningaaðilar á Norðurlönd-
um, SAS, Rikisjárnbrautirnar
og norska flugfélagið
Braathens SAFE, hafa undirrit-
að samkomulag um sameigin-
legt tölvukerfi til að tengja sam-
an feröaskrifstofur og fleiri
innan ferðaþjónustunnar á
Norðurlöndum.
Þessir þrir aðilar ætla aö
kaupa tvö þúsund tölvustöövar
frá Svenska Philips AB og kosta
herlegheitin 60 milljónir
sænskra króna eða sem svarar
12 milljónum dollara. Þetta
tölvukerfi verður kallað
SMART, sem er skammstöfun
fyrir Scandinavian Multi
Access Reservations for Travel
Agents.
SMART mun kynna nýja gerö
farseöla sem gilda I lofti, járn-
brautum, skipum og áætlunar-
bflum á Norðurlöndum auk þess
sem þeir verða teknir gildir á
bflaleigum og viö hótelpantanir.
Óþarfi er aö taka fram, að þetta
kerfi nær ekki til tslands.
Ódyrt flug til Lux
og þar bidur bdlinn
Feröaskrifstofurnar bjóða æ
betri þjónustu með hverju árinu
sem Ilður þeim er kjósa að ferð-
ast utan á eigin vegum en ekki I
hópferðum, en vilja engu að
slður skipuleggja ferð sina.
Vmis konar afslátt er hægt að fá
gegnum ferðaskrifstofurnar og
þær hafa á að skipa kunnáttu-
fólki sem getur skipulagt ein-
staklingsferðir á hagkvæman
máta.
Svo dæmi séu tekin má nefna,
að úrval býður I sumar ein-
staklingsferðir til Luxemborgar
alla fimmtudaga á hagkvæmu
veröi og er bllaleigubill innifal-
inn. Vikuferö fyrir manninn,
þegar tveir eru saman um bil,
kostar aðeins 2.600 krónur. Inni- I
falið er flugfar til og frá Lux og
bifreiö til afnota án takmark-
ana. Aukavika kostar 500 krón-
ur á mann. Ef fjórir eru saman |
um bil kostar vikan 2.550 á
mann og aukavika 475 krónur. I
Afslátturerfyrir börn.
Það skal skýrt tekiö fram aö
gisting er ekki innifalin i veröi, |
en Úrval bókar gistingu fyrir þá
sem þess óska. Frá Luxemborg
er örstutt til Frakklands,
Þýskalands og annarra
Miö-Evrópulanda. Vegir vel
merktir og auövelt að verða sér |
úti um ódýra gistingu I bæjum
og þorpum. Auk þess er hægt að
gista á góðum og vel útbúnum
tjaldstæöum.
Það ku ekki vera amalegt aö tylla sér niður þarna I garðinum og slaka á frá amstri dagsins.
Fimm milljónir
ferdamanna
gistu i Miinchen
Þessi kinverski turn er ekki i
Asíu, heldur er hann að finna I
hjarta Evrópu, Mönchen, nánar
tiltekið f Enska garðinum þar I
borg.
Ibúar Miinchen eru afar
hrifnir af þvi að sitja I þessum
fallega garði með stóra krús af
öli og spjalla saman. Þá eru
ferðamenn ekki siður tiðir gest-
ir I garðinum yfir sumariö, en til
Munchen kemur mikill fjöldi
ferðamanna á hverju ári.
Sem dæmi má nefna, að á
siðasta ári náði tala ferða-
manna, sem gistu I borginni,
fimm milljónum og var þá lang-
þráöu marki náð. Samkvæmt
opinberum tölum gistu 1.6
milljónir Þjóðverja og tæplega
milljón útlendingar að meðal-
tali tvær nætur I borginni á
siðasta ári. Flestir erlendu
feröamannanna komu frá
Bandarikjunum eða 245 þúsund,
frá ítallu komu 85 þúsund,
Austurriki 79 þúsund, Bretlandi
68 þúsund og 62 þúsund feröa-
menn komu frá Frakklandi.