Vísir - 09.05.1981, Blaðsíða 5

Vísir - 09.05.1981, Blaðsíða 5
Laugardagur 9. maf 1981 vtsm drottningu og kóng? er Jakob Möller. Hann var bankaritari Landsbankans og rit- stjóri i Reykjavik, varð fram- kvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavikur 1937. Þá átti hann sæti á Alþingi 1919 til 1945 með smáhléum og var meðal annars fjármálaráðherra og siðar fjár- mála- og dómsmálaráðherra á þeim tima. Gosinn er Jón Þorláksson, verkfræðingur. Hann var meðal annars landsverkfræðingur og rak byggingavöruverslun i félagi við Óskar Norðmann. Hann sat á þingi 1921-’34 og var fjármála- ráðherra og forsætisráðherra um skeið. Þá var hann formaður Ihaldsflokksins og siðar Sjálf- stæðisflokksins. Hann gegndi og starfi borgarstjóra i Reykjavik frá ’33 til æviloka. Tíglaþrenning- in - Jóhannes, Jón og Hriflu-Jónas Köngurinn i efri röðinni á hægri siðunnier Jóhannes Jóhannesson, lögfræðingur. Hann var sýslu- maður á árunum 1894 til 1918, lengst af i Norður-Múlasýslu. Hann varð bæjarfógeti i Reykja- vik ’ 18 og átti sæti á Alþingi 1900 til 1931 með smáhléum. Drottningin við hliðina á honum er Jón Magnússon, lögfræðingur. Hann var sýslumaður i Vest- mannaeyjum, siðar lands- höfðingjaritari og enn siðar skrif- stofustjóri i dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu. Hann sat á þingi 1902 til 1926 með smáhléum, var meðal annars forsætis-, dóms-, kirkju- og kennslumálaráðherra um skeið. Gosinn er svo Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann var kennari og siðar skólastjóri Samvinnuskólans, þegar hann var stofnaður. Hann átti sæti á Alþingi 1922 til ’49, vai meðal annars dóms- og kirkju- málaráðherra og formaður F'ramsóknarflokksins 1934 til ’44. Laufaþrenn- ingin - Klemens, Magnús og Ólafur Friðriksson Kóngurinn i röðinni fyrir neðan er Klemenz Jónsson, lög- fræðingur. Hann var meðal ann- ars sýslumaður i Eyjafjarðar- sýslu og bæjarfógeti á Akureyri, var settur amtmaður i norður- og austuramtinu og var landritari, þar til það embætti var lagt niður 1917. Hann sat á þingi 1892 til 1904 og svo aftur 1923 til ’27 og var meðal annars atvinnu- og sam- göngumálaráðherra og fjármála- ráðherra um tima. Drottningin við hliðina á honum er Magnús Kristjánsson. Hann nam beykisiðn og rak meðal ann- ars verslun og sjávarútgerð á Akureyri. Forstjóri Lands- verslunarinnar varð hann 1918 og rak þá jafnframt útgerð i Reykja- vik. Hann sat á þingi á árunum 1905 til ’28 með smáhléum þó. Fjármálaráðherra varð hann ’27 og gegndi þvi embætti til æviloka. Og gosinn er Ólafur Friðriks- son. Hann var forgöngumaður um stofnun Alþýðuflokksins og Al- þýðusambandsins á sinum tima og ritstjóri Alþýðublaðsins um skeið. Hann ritaði mikið um ævina og auk stjórnmálagreina skrifaði hann skáldsögur og fékkst i tómstundum við náttúru- fræðiathuganir og gróðurtilraun- ir. Einna þekktastur er hann þó kannski fyrir afskipti sin af rúss- neska drengnum, sem hér var 1921 á hans vegum og öll lætin urðu út af. Eða vita aðrir betur? —KÞ Jóhannes 1866-1950 Jóhannesson/ Jón Magnússori/ 1859-1926 Jónas Jónsson 1885-1968 frá Hriflu/ Klemenz 1930 Jónsson/ 1862- Magnús Kristjánsson/ 1928 1862- ólafur 1964. Friðriksson/ 1886- \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.