Vísir - 25.06.1981, Side 5
Fimmtudagur 25. júni 1981
VÍSIR
Ra|ai Kklegastur
enirmaður Banl-Saflr
- en kosningar hafa veriö ákveönar 24. iúlí
Forsætisráðherra irana
Moliammcd Ali Rajai, er talinn
liklegastur eftirmaður Bani-Sadr
i forsetastólinn, en ákveðið hefur
verið, að iranir gangi að kjör-
boröinu þann 24. júli og kjósi nýj-
an forseta.
Rajai er tæplega fimmtugur og
fyrrverandi stærðfræðikennari.
Hann var einlægur andstæðingur
Reza Phalavi, fyrrum Iranskeis-
ara, enda sat hann oft inni og
sætti pyndingum, meðan sá fór
með völdin.
t blaðaviðtali i Iran i gær var
haft eftir Rajai: „Ef fólkið vill
mig, mun ég ekki skorast undan
embætti forsetans.” Rajai varð
forsætisráðherra á siðastliðnu ári
eða rétt um þann mund og striðið
við Irak hófst. Hann var þvi einn
helsti samstarfsmaður Bani-
Sadr.
Með völdin nú i tran fara þeir
Rajai, Rafsanjani þingforseti og
Behesti, forsetihæstaréttar.en sá
siðastnefndi er sagður valda-
mesti maður trans i dag, hann
hefur þó lýst þvi yfir, að hann
mundi ekki bjóða sig fram til for-
seta.
Þá var skyrt frá þvi í Teheran,
að niu menn, þar af ein kona,
hefðu verið tekin af lifi af aftöku-
sveit i gær. Þar á meðal voru fjór-
ir bahaiar, en þeir sæta nú aukn-
um ofsóknum i tran. Allir voru
þeir sakaðir um njósnir i þágu
tsraels. Hinir, sem liflátnir voru,
voru stuðningsmenn Bani-Sadr.
Ekkert hefur enn spurst til for-
setans fyrrverandi, þrátt fyrir
Behesti er nú talinn valdamesti
maður trans, þótt Rajai veröi ilk-
legastur eftirmaður Bani-Sadr.
yfirlýsingu yfirvalda um, aö þeir
væru á hælum hans og mundu ná
honum á hverri stundu.
Leon Spinks fyrrverandi heims-
meistari i hnefaleikum, er ákærð-
ur fyrir aðhafa haft byssu i fórum
sinum án tilskilinna ieyfa.
Spinks kemur
fyrir rétl
Leon Spinks, fyrrverandi
heimsmeistari i hnefaleikum,
kemur fyrir rétt i dag, ákæröur
fyrir að bera byssu án tilskilinna
leyfa.
Hinn 27 ára gamli Spinks var
handtekinn i siðustu viku, er lög-
reglumaður fann byssu i bil hans,
aðeins sex dögum eftir að hann
beið ósigur fyrir Larry Holmes i
hnefaleikakeppni, þarsem Spinks
reyndi árangurslaust að endur-
heimta titilinn.
1 janúar siðastliðnum bar
Spinks upp kæru til lögreglunnar i
Detroit þess efnis að hann hefði
verið rændur. Fékkst ekkert út úr
þvi, en talið er að Spinks hafi
fengið sér byssu upp frá þvi.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra israels, sagði i gærkvöldi,
að israelar myndu eyðileggja,
hvaða gjöreyðingarvopn sem
væri, sem óvinir israels ætluðu
sér að framleiða.
„011 slik vopn, sem ætluð eru
gegn Israelum, veröa eyðilögð
áður en eitthvað hlýst af þeim”,
sagði Begin.
Rænt og skllað
Tólf ára gamalli stúlku, dóttur
fyrrverandi embættismanns frá
Saudi-Arabiu, sem rænt var i
Lundúnum á þriðjudag, var skil-
að aftur i gær og var hún heil á
húfi.
Ræningjarnir kröfðust á annað
hundrað þúsund punda fyíir
stúlkuna, Reem Al-Harathi, dótt-
ur Mushur Al-Harathi, hershöfð-
ingja. Stúlkunni var rænt ásamt
bilstjóra fjölskyldunnar þegar sá
siðar nefndi var að aka henni til
skóla.
Stúlkan og bilstjórinn fundust
svo i gær, bæði heil á húfi. i bil
ekki langt frá heimili, hers-
höðingjans i Lundúnum. Ræn-
ingjarnir hafa ekki fundist.
Upp kemst um stðrkostlegt
heróínsmygl í Bandaríkjunum
Sautján menn, Bandarikja-
menn, Sikileyjarbúar og Sýrlend-
ingar, hafa verið ákærðir fyrir
stórkostlegt heróinsmygl i
Bandarikjunum. Er hér um að
ræða skipulagðan eiturlyfjahring
milli Sikileyjar og New York og
er góssið taliö i milljónum doll-
ara.
Smygl þetta hefur staöið árum
saman, en það var fyrst fyrir um
ári, að lögreglan komst á snoðir
um eiturlyfjahringinn, sem svo
leiddi til handtöku höfuðpaursins,
Riccardo Cefalu, 54 ára gamals
Skileyings, sem er bandariskur
rikisborgari.
Cefalu hefur búið i Bandarikj-
unum árum saman og stundað
smyglið næstum jafnlengi. Hann
hafði fjölskyldu sina með i spilinu
og vinur hans Francesco Mafara
sá um málin á Sikiley.
Mesta sekt íyrir eiturlyfja-
smygl i Bandarikjunum er 15 ára
fangelsi og við það bætast háar
fiársektir.
Páfi að ná sér
Jóhannes Páll páfi er á bata-
vegi, þótt enn sé hann sjúkur.
Læknar hans segja, að veirusýk-
inguna.sem hann þjáist af megi
liklega rekja til blóðgjafarinnar,
sem hann fékk i kjölfar skotáras-
arinnar 13. mai siðastliðinn.
Læknar páfans segja, að veiru-
sjúkdómur þessi geti valdið lifr-
arveiki og gulu og geti leikið fólk
mjög illa. 1 tilfelli páfa sé hins
vegar um mjög væga sýkingu að
ræða.
Áætlað var að páfi færi i heim-
sókn til Lourd i Frakklandi i
næsta mánuði en þeirri ferð hefur
veriðfrestað. Þá er og fyrirhuguð
ferð til Spánar i október, en að öll-
um likindum verður ekkert af
þeirri heimsókn heldur.
Francois Mitterrand, FraKkiandsforseti:
VONA AB FRAKKAR FYLKI
SÉR UM STJðRNINA
F"rancois Mitterrand, Frakk-
landsforseti, hélt I gær fyrsta
fund hinnar nýju rikisstjórnar.
Hann sagði, að hann vonaðist til
að Frakkar fylktu sér um stjórn-
ina og stefnu hennar, en nú i
fyrsta sinn i 34 ár eiga kommún-
istar sæti I stjórninni.
Viðbrögð manna vegna aðildar
kommúnista að frönsku stjórn-
inni hafa verið mismunandi.
Bandarikjamenn hafa þungar
áhyggjur, en George Bush, vara-
forseti Bandarikjanna, er nú
staddur i Frakklandi og átti fund
með Mitterrand eftir rikisstjórn-
arfundinn, þar sem hann lýsti yfir
áhyggjum sinum. 1 Sovétrikjun-
um var stjórnarmyndunarinnar
getið, en athugasemdalaust.
Þá hafa Evrópuþjóðirnar flest-
ar slegið þessu upp. Haft var eftir
þýskum embættismanni, að skip-
an kommúnista i stjórninni hefði
verið það sem allir áttu von á, en
ekkert reiðarslag, auk þess sem
„Vona aö Frakkar fylki sér um
stjórnina og stefnu hennar.”
kommúnistarnir færu ekki með
nein veigamikil embætti i stjórn-
inni heldur hefðu með höndum
minniháttar innanrikismál.
Smyglhringurinn hafði starfað árum saman, þar til upp komst.
Reiðhjól frá Englandi
10 gíra
Dekk: 27x11 1/4
Meö Ijósum, vatnsbrúsa,
táklemmum og fljótlos-
andi
útbúnaði á gjöröum.
Varahluta- og
viðgerðaþjónusta
Árs ábyrgð
l/erslunin
414RKIÐ
Suðurlandsbraut 30 — Sími 35320