Vísir - 25.06.1981, Blaðsíða 27

Vísir - 25.06.1981, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 25. júni 1981 27 VÍSIR ,,Þú verður að tala við „Þuriði formann”, annað gengur ekki”, sögðu fleiri en einn af þeim sem Vísir ræddi við I Ólafsfirði á dög- unum. Við nánari eftirgrennslan kom i ljós, að „Þuriöur formað- ur” er Sæunn Axelsdóttir, i Ólafs- firði, formaður á Kristjáni ÓF 51. Háseti er Kristján Logi, 16 ára gamall sonur hennar. Hann tók við af Axeli Pétri bróður sinum, sem réri með mömmu sinni i fyrrasumar. Sæunn var i róðri fyrst þegar spurst var fyrir um hana, en „reddari i landi” er eiginmaður hennar, Asgeir Asgeirsson, bæjargjaldkeri. Langaði til að eignast bát „Þetta byrjaði þannig, að strákana langaði til að eignast bát og móðir þeirra lagðist á sveif með þeim”, sagði Asgeir. „Það varð siðan úr að við sömdum við Mótun i Hafnarfirði um smiði á 2.3 tonna trillu, með þvi byggingarlagi sem nefnt er „Færeyingur”. Trillan kom siðan i febrúar 1980. Við byrjuðum að róa á færi i april, þegar timi gafst til, þar til Sæunn og Axel byrjuðu að sækja sjóinn að staðaldri eftir að skólinn var búinn. Sumarafl- inn varð bærilegur og spyrrtum við hann allan sjálf og gerum enn. Svo fór Axel sem skiptinemi til Ástraliu, en þá tók næsti strákur- inn okkar við”, sagöi Ásgeir. Nú var von á Kristjáni ÓF að landi og þvi rétt að drifa sig niður á bryggju til að ná tali af for- manninum: „Það hefur fiskast vel að undanförnu, þar til i dag. Það var bókstaflega ekkert að hafa, sem stafar eflaust af suðaustan áttinni og miklum straumum. Þá gefur fiskurinn sig ekki”, sagði Sæunn. En hvað kemur Sæunni til að sækja sjóinn? „Ég veit ekki hverju ég á að svara þér, ætli þetta sé ekki viss athafnaþrá. Sjómennskan hefur alltaf heillað mig og ég er hvorki sjóveik né sjóhrædd. Það hefur mikið að segja. Nú, þegar strákarnir vildu ólmir fara út i þetta, þá sló ég til”. — Hvernig hafa „trillukarlarn- ir” tekið þér? Það var létt yfir þeim þegar þau komu að landi, þótt hann væri tregur. Sæunn Axelsdóttir, Asgeir Logi og móttökustjórinn Asgeir Asgeirsson. Bátur og áhöfn. Asgeir Logi og Sæunn um borð i Kristjáni. VIsismyndir/G.S. Akureyri. „Þeirhafa tekiö mér alveg ein- staklega vel, ég var strax tekin inn i þeirra samfélag. Ég er sem sagt komin i „trillukarla sam- félagið”, sem er einstakt sam- félag og út af fyrir sig. Þeir hafa verið elskulegir við mig, leið- beina mér frekar en gera grin að mér, ef mér verður eitthvað á”. Afslappandi starf — En er þetta ekki erfitt? „Það má ef til vill segja, að starfið sé likamlega erfitt, en það er lika andlega afslappandi: á- hyggjurnar eru skildar eftir heima i landi. Auk þess hefur þetta gefið mér tækifæri til að kynnast strákunum minum betur, það er svo margt sem kemur upp á sjónum. Mér finnst alveg ótrú- legt hvað sjómennskan hefur þroskað strákana mikið. Hún hefur aukið ábyrgðartilfinningu þeirra. Þeir verða að taka ákvarð- anir með mér einni út á sjó og þeir vita að þeir verða að standa sig. Þetta hefur lika orðið til þess að auka samheldnina hjá okkur, þvi eftir að i land er komið byrjar aðgerðin og þá taka allir i fjöl- skyldunni til hendinni. Ég er þvi ákveðin i að halda áfram”, sagði Sæunn Axelsdóttir. G.S./Akureyri. ÚTRULEGT HVAfi SJÓMENNSK AN ÞROSKAR STRAKANA” - Rætt við sæunni Axelsdottur. sem rær asamt 16 ára svni sinum á trillu trá ólafsfirði Hárgreiðslustofan 'mXðSötaXð Óðinsgötu 2 — Sími 22138 Þú færð permanentið hjá okkur Smurbrauðstofan BJÖRTMHMIM Njólsgötu 49 — Simi 15105 EKKERT VERKFALL HJÁ FORSETUM Það hefur verib mikið aö gera hjá forsetum veraldarinnar að undanförnu, einsog stundum áð- ur. Brésneff, forseti Sovétríkj- anna og útibúa þeirra víða um veröld, allt frá Afganistan að Grettisgötu 3, boðaði enn nýja allsherjar friöar- og afvopnun- arsókn á dögunum. Er þetta ekki i fyrsta sinn sem friðelska forsetans kemur i ljós i þessum válynda heimi styrjalda og vig- búnaðar, þótt klikur á Norður- löndum hafi enn litið framhjá honum við veitingu friöarverö- launanna, sem kennd eru við Nóbel. Mitterrand, nýkjörinn forseti Frakklands, hefur sett á lagg- irnar stjórn með kommúnistum innanborðs og hafði hann þó þingstyrk til að halda þeim ut- angarðs. Það vakti ekki sist at-, hygli, að kommúnisti skyldi setjast i stól heilbrigðisráð- herra, en sú staöreynd verður vonandi til þess, að menn hætti að vera meö dylgjur og rógburð um, að Svavari Gestssyni heföi verið nær að hunskast heim til að aðstoða Ragnar við að veita læknum 40% kauphækkun, eins- og hann er búinn að núna. Dvöl Svavars í Frakklandi er ber- sýnilega nokkurs virði og ekki er vist, að launahækkunin til læknanna hefði farið mikiö yfir 40%, þótt hann hefði verið heima lika. Þriðji forsetinn, Baní Sadr, hefur hins vegar ekki verið á feröinni ofanjarðar siðasta mánuðinn, minnugur þess, að skjóti hann upp kollinum þá muni Alkali dómprófastur sak- sóknara, eða hvað hann nú heit- ir, kollegi Þórðar Björnssonar i iran, ekki vera lengi að skjóta kollinn niður aftur. Bani Sadr sat löngum áður við fótskör Kómenis erkiklerks meðan hann húkti sem meinlaus sér- vitringur á fleti í Paris. Þeir þekkja þvi hvor annan sæmi- lega og iransforsetinn veit, að hann á ekki griðastað í kirkju klerks eftir að einu sinni var fokið i skjólin. Hershöfðingjarn- ir sem þjónuðu Palevi keisara forðum, ákváðu að láta bylting- una hafa sinn gang og beita hernum ekki gegn kórönum klerksins. Hann mat þetta mik- ils og lét skjóta þá flesta i um- bunarskyni við fyrsta hentuga tækifærið. Af fjórba fyrirmanninum hef- ur Svarthöföi ekki annab frétt en að siðan hann fékkst upp úr fossinum i Eliiðaánum, hafi Sig- urjón gert fátt annað en að halda islensku læknastéttinni uppi I veisluhöldum, en til þess hefur hún haft góðan tima i verkfallinu. Fimmti forsetinn hefur heim- sótt Dali og Strandamenn og veriö vel tekiö. Hefur hann þeg- iö góöar gjafir, gróðursett tré á hverjum stað einsog í postulins- garðinum i Kaupmannahöfn. Strák gerbi hún að jarli og þakk- aði Dalamönnum það sérstak- lega i ræðu, að þeir skyldu vera til. Ekki er vitað hverju Dala- menn svöruðu, en Þingeyingar heföu sjálfsagt við slikt tækifæri sagt, að það væri ekkert að þakka. Svarthöfði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.