Vísir - 25.06.1981, Blaðsíða 7

Vísir - 25.06.1981, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 25. júni 1.9gl vtsm • HANNES EYVINDSSON, RAGNAR ÓLAFSSÖN og GEIR SVANSSON... léku mjög vel. Stórgóður árangur íslendinga á Evrópumótinu t goltt á St. Andrews I Skotlandi Svíar slóðu udd og Klðppuðu íslénfl- ingum Ibf í lúla... - eltlr að landsilðsmenn okkar hötðu halnað 19. sætl ettir fyrrl dag höggleiksins — Strákarnir voru hreint stór- kostlegir — þeir léku mjög vel hér á hinum fræga St. Andrews-golf- velli, sagöi Kjartan L. Pálsson, landsliöseinvaldur I golfi, eftir fyrsta dag Evrópukeppninnar i Skotlandi. lslendingar vöktu geysilega athygli, þvi aö lands- liösmennirnir skutu mörgum frægum golfþjóöum ref fyrir rass á fyrri degi höggleiksins — voru i 9. sæti af 19 þjóöum og aöeins 3 höggum frá þvi aö vera i áttunda sæti. Þaö átti enginn von á þessum árangri Islendinganna. Þess má geta til gamans, aö þegar is- lenska landsliöiö gekk inn i mat- salinn eftir keppnina, þá stóöu Sviar upp og klöppuöu þeim lof i lófa — þaö er ekki á hverjum degi, sem Sviar klappa fyrir Is- lendingum. Evrópukeppnin byrjaöi i gær og voru þá leiknar fyrstu 18 holurnar af 36, en seinni 18 holurnar veröa leiknar i dag. Fyrirkomulagiö er siöan þannig, aö 8 fyrstu þjóöirn- ar komast i A-RIÐILL og 8 næstu i B-RIÐILL og þrjár þær siöustu i C-RIÐILL. Eins og staöan er i dag, þá eru Islendingar aöeins þremur höggum frá A-riöli. — Þaö er mjög létt yfir strákun- um og þeir eru ákveönir aö gera allt sitt besta i dag, en spurningin er — tekst þeim aö tryggja sér sæti i A-riöli? sagöi Kjartan L. Pálsson. Þær þjóðir sem eru fyrir ofan Island eftir fyrri daginn, eru: — Irland (364 högg), Wales (365), Frakkland (367), England (369), Sviþjóö (373), Skotland (373), V-Þýskaland (375), Spánn 377) og Island — 379 högg. Þess má geta aö Danir eru 7 höggum á eftir Islendingum, Ital- ir 8 höggum, Norömenn 10 högg- um og Finnar 21 höggi. — SOS Keflvikingar til Selfoss Selfyssingar fá Keflvíkinga I heimsókn i kvöld i 2. deildar- keppninni i knattspyrnu. Leikur þeirra hefst kl. 20. • ÓLAFUR BJÖRNSSON. Ólafur fékk að sjá rauða spjaldið... Ólafur Björnsson, fyrirliöi Breiöabliks, getur ekki leikiö meö Blikunum gegn Eyjamönn- um — hann fékk aö sjá rauöa spjaldiö hjá Óla Ólsen, dómara, sem dæmdi leik Breiöabliks og KA. óli haföi gefiö Ólafi gult spjald, áöur en hann sýndi hon- um þaö rauöa. Ólafur fékk aö sjá rauöa spjaldiö, eftir aö hann haföi spyrnt i knöttinn, þegar Óli dæmdi aukaspyrnu á Breiöablik. Vignir Baldursson hjá Breiða- bliki fékk aö sjá gula spjaldið og á hann nú yfir höföi sér eins leiks keppnisbann, þar sem hann hefur fengið aö sjá ,,það gula” þrisvar i sumar. — SOS Úlfur tíi Sloke... Ritchie Berker, aöstoöar- framkvæmdastjóri Wolves, var i gærkvöldi ráöinn fram- kvæmdastjóri Stoke i staöinn fyrir Alan Durban, sem fór til Sunderland. Þá var John McHall, aðstoö- arframkvæmdastjóri Bolton, ráöinn sem framkvæmdastjóri félagsins i staöinn fyrir Stan Andersen, sem var rekinn frá félaginu fyrir stuttu. —SOS Garðar selli mel ð Akureyrl - lyftí 133 kg. í snðrun í „Skemmunni” Glæsilegl hjá Hannesi Lyftingakappinn efnilegi frá Akureyri, Garöar Gfslason setti tslandsmet unglinga i gær- kvöldi i „Skemmunni”, þegai hann snaraöi 133 kg i 100 kg flokki. Birgir Þór Borgþórsson úr KR átti eldra mctiö. — ,,Ég mun bæta þetta met á næst- unni”, sagöi Garöar, eftir aí hann haföi sett þaö. Garöar jafnhattaöi 165 kg og þaö geröi einnig tviburabróöir J hans Gylfi og settu þeir þar með J báðir Akureyrarmet. Gylfi » snaraöi aftur á móti 127.5 kg. I Þetta skeöi i vinarbæjakeppni I Akureyrar og Lahti i Finnlandi. I Úrslit keppninnar liggja ekki | fyrir fyrr en i dag, þegar búið j er aö reikna út stigin. SK/SOS j ! lék aðeins á einu höggi yflr pari st. Andrews lslands meistarinn llannes Eyvindsson náöi stórgóöum árangri á fyrsta degi Evrópu- mótsins i golfi á St. Andrews — hann lék 18 holurnar á 73 höggum, sem er aöeins einu höggi yfir pari. Hannes lék af miklu öryggi. Hannes Eyvindsson...........73 Ragnar Ólafsson.............74 Geir Svansson...............77 ■Hart darist i 3. deildarkeppninni- Sigurður Pétursson.........77 Björgvin Þorsteinsson......78 Óskar Sæmundsson...........80 Arangur fimm bestu manna er talinn i höggleiknum. Geir og Siguröur uröu fyrir þvi óhappi aö slá einu sinni út af braut. Björgvin var 2 yfir pari, þegar fjórar holur voru eftir, en þá var heppnin ekki með honum. —SOS Bloðlausir Vikingar áttu í erfiðleikum... - degar deir léku á Grundarfirði. dar sem deir mðrðu sigur 3:2 Leikmenn Víkings frá Ólafsvik áttu i miklum erfiöleikum meö ungustrákana frá Grundarfiröi á Grundafiröi i gærkvöldi, þar sem þeir náöu aö merja sigur 3:2. Leikmenn Vikings náöu sér aldrei á strik i leiknum og vildu þeir kenna þvi um, aö þeir gáfu allir blóð daginn áður, þegar bill frá Blóöbankanum kom til Ólafsvik- ur. Jónas Kristófersson skoraði 2 mörg fyrir Vfking og PéturFinns- son skoraði það þriöja með þrumuskoti af 30 m færi. Þeir Þorsteinn Böövarsson og Asgeir Ragnarsson (16 ára) skoruðu mörk Grundfirðinga. Mark As- geirs var stórglæsilegt — þrumu- fleygur, sem hafnaði undir þver- slánni á marki Vikings. Léttir skotinn á bólakaf Leikmenn Njarðvikur áttu ekki i erfiðleikum með Létti íra Reykjavik — unnu stórsigur (7:0) á Njarðvikurvellinum. Þórður Karlsson skoraði þrennu fyrir heimamenn og þá skoraði Jón Halldórsson 2 mörk og hann átti siðan eitt — pressaði mark- vörð Léttis, þannig að hann sló knöttinn i eigið mark. Haukur Jó- hannssonskoraði siðan eitt mark. ÓSKAR JÓHANNESSON ... skoraði bæði mörk Stjörnunnar gegn 1R — 2:1. ÍR-ingar voru fyrr tilaðskora, þegar ólafur Jensson skoraði með góðu skoti af 35 m færi. Óskar jafnaði siöan meö skalla — l:l,og sigurmarkið skor- aði hann, eftir að hafa „stolið” knettinum frá Bjarna Gunnars- isyni, markveröi IR. Óskar náöi knettinum, þegar Bjarni sló hann niður, þegar hann hugðist sparka út. Viðir skoraði 5 mörk Viðismenn úr Garði skoruðu enn einu sinni 5 mörk i leik, þegar þeir lögðu Þór frá Þorlákshöfn að velli (5:2) á Þorlákshöfn. Guö- mundur Jens Knútsson (2), Klemens Sæmundsson, Daniel Einarsson og Jónatan lngimars- son skoruðu mörk Viöis, en Ei- rlkur Jónsson, leikmaöurinn knái, og Hólmar Sigþórsson, skoruðu mörk Þórs. Enn tapar Leiftur.... Leikmenn Leifturs, sem hafa ekki unnið leik á heimavelli i 3. deildarkeppninni siðan 1979, máttu þola tap fyrir Tindastóli — 0:3. Nýliðinn Þröstur Geirsson, sem lék áður með Hofsósi, skor- aði 2 mörk fyrir Tindastól og Sig- urjón Magnússonbætti þvi þriöja við. Siglfirðingar góðir á grasi.... Leikmenn Siglufjarðar, sem eiga malarvöll sem heimavöll, kunnu svo sannarlega vel við sig á grasvellinum á Arskógsströnd, þar sem þeir lögðu Reyni að velli 6:2. ivar Geirsson skoraði mark l'yrir þá fljótlega i leiknum og við það „small allt saman” hjá Sigl- i'irðingum. Þorgeir Reynisson skoraði 3 mörk og Björn Ingi- marsson (vitaspyrna) og ólafur Þ. ólafsson bættu tveimur við. ólafur skoraöi með glæsiskalla — af 10 m færi. Jens Sigurösson og Guðmundur Hermannsson skor- uöu mörk Reynis. — SOS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.