Vísir - 25.06.1981, Qupperneq 20
20
4Qni«5ANS
't r * <* i i » ■*
Ír,í*T
ilwold
ROMMILEIK-
10 A NORO-
URLANDI
„Það er liklega tiltölulega
þægilegt að ferðast með þetta
leikrit úl á land, fámennt starfslið
og minna umstang f kring um það
en mörg önnur leikrit. En með til-
liti til ferðarinnar þurfti að hanna
ný leiktjöld og annan búnað."
Þetta sagði Guðmundur Páls-
son i samtali við Visi en hann er
fararstjóri sex manna hóps úr
Leikfélagi Reykjavikur sem mun
ferðast um Norðurland i sumar
með bandariska verðlaunaleik-
ritið ROMMl. Fyrsta sýningin i
ferðinni i sumar, sem er árlegur
viðburður LR, verður fimmtu-
dagskvöldið 25. júni á Akureyri.
Eins og kunnugt er fara þau
Sigriður Hagalin og Gisli Hall-
dórsson með hlutverkin tvö ileikn-
um. Leikritið var frumsýnt fyrir
rúmu ári og hefur verið sýnt 70
sinnum i Iðnó i vetur og sex sinn-
um i nágrannabyggðum Reykja-
vikur nú i vor. Það heíur hlotið
einróma lof gagnrýnenda og af-
burðasamleikur Sigriðar og Gisla
vakið mikla hrifningu leikhús-
gesta.
I leikritinu Rommi greinir frá
samskiptum tveggja einstaklinga
á elliheimili sem stytta sér stund-
ir við spilamennsku. I fyrstu ræð-
ast þau við i glettni um sambýlis-
fólkið, skiptast á almennum at-
hugasemdum um atburði liðandi
stundar og gefa hvort öðru skýr-
ingu á þvi, hversvegna þau eru á
elliheimilinu. Leikritið er gaman-
samt á yfirborðinu og kitlar hlát-
urtaugarnar, en þegar á leikinn
liður afhjúpa persónurnar sig
hvor fyrir annarri og alvarlegri
undirtónar verksins verða ljósir.
„Nei”, sagði Sigriður Hagalin
aðspurð um það hvort enginn leiði
væri farinn að gera vart við sig
eftir 76 sýningar. „Hver sýning
þarfnast svo mikillar einbeiting-
ar að þaö er engin hætta á þvi að
manni fari að leiðast nærri þvi
strax”.
„Svo kryddar það heldur betur
starfið að ferðast með leikritið út
á land”, bætti Gisli við. „Það
ánægjulegasta við þessar leik-
ferðir er að hitta alla þessa
áhugaleikara úti á landi, þvi leik-
húslif landsbyggðarinnar er með
eindæmum.”
•Höfundur Rommis er D.L. Co-
burn. Hann er fæddur i Baltimore
i Bandarikjunum 1938. Leikritið
var fyrst sýnt 1976, en tveimur
árum siðar hóf það frægðargöngu
sina og hefur núna verið leikið i
flestum stórborgum á Vestur-
löndum. Höfundurinn hlaut
Pulitzer-verðlaunin 1978 fyrir
verkið, sem var valið besta leik-
ritið það ár.
Eftir sýninguha á Akureyri
verður haldið i Mývatnssveit og
siðan er ráðgert að sýna það á
Húsavik, Dalvik, Ölafsfirði,
Siglufirði, Hofsósi, Sauðárkróki, i
Miðgarði i Skagafirði, á Blöndu-
ósi, Skagaströnd, Hvammstanga
og Logalandi i Borgarfirði.
—HPH.
Sigriður Hagalin og Gisli Halldórsson i hlutverkum sinum I ROMMl.
SönghátiO á Akureyri:
Stærsti
kör norð-
an helða
A sunnudaginn, 28. júni, verður
mikil hátið á Akureyri i tilefni
kristniboðsársins.
Hátiðin hefst kl.ll með guðs-
þjónustu i Akureyrarkirkju. Þar
prédikar vigslubiskup sr. Pétur
Sigurgeirsson, en sr. Birgir Snæ-
björnsson ásamt próföstum Hóla-
stiftis annast altarisþjónustuna.
Prestar alls stiftisins ganga i
prósesiu til kirkju. Kórar Akur-
eyrar- og Lögmannshliðarsókna
leiða sönginn.
Sönghátið verður i íþrótta-
skemmunni á Akureyri klukkan
4. Þar munu nær allir kirkjukórar
á Norðurlandi syngja, — bæði
sameiginlega og einnig munu
kórar úr hverju prófastsdæmi
syngja tvö lög hver. Alls munu
kórfélagar verða um 450-500, og
er þetta fjölmennasti kór, sem
sungið hefur norðan heiðar.
Strengjasveit Tónlistaskólans á
Akureyri annast undirleik. 1 upp-
hafi sönghátiðarinnar mun Éyþór
Stefánsson tónskáld flytja ávarp.
Sigrún Eldjárn
sýnlr telkningar
Laugardaginn 27. júni næst-
komandi kl.15,00 opnar Sigrún
Eldjárn sýningu á teikningum og
grafik i Rauða húsinu á Akureyri.
Sigrún stundaði nám við Mynd-
lista- og handiðaskóla Islands á
árunum ’74-’77, auk þess sem hún
dvaldi i Póllandi um hrið við nám.
Hún hefur haldið nokkrar einka-
sýningar og tekið þátt i samsýn-
ingum hér heima og viða um lönd.
Sýningin stendur til sunnudagsins
5. júli og er opin frá kl. 15-21 alla
daga.
örlítið
um höf-
undinn
Þýski rithöfundurinn
og leikarinn Curt Goetz
fæddist i Mainz 1888.
Hann byrjaði leikferil
sihn i Rostock 1907, lék
siðan i Niirnberg og Ber-
lin til 1922. Goetz kom
upp ferðaleikflokki i
samvinnu við konu sina
Valerie von Martens, og
þau léku oft saman. Auk
þess að skrifa leikrit,
samdi Goetz einnig
kvikmyndahandrit og
lék i kvikmyndum,
þeirri fyrstu árið 1915.
Leikiitið „Ingeborg” er eitt af
lyrstu leikritum hans. Það var
frumsýnt 1922, en siöar bættist við
fjöldi leikrita, sem bæði hafa
verið leikin á sviði og i útvarpi.
Endurminningar Goetz komu út
1960 ög það sama ár lést hann i
nágrenni It. Gallen i Sviss. Auk
„Ingeborgar” hafa eftirtalin leik-.
rit Goetz verið flutt i útvarpinu,
„Hundur á heilanum” 1960, „Erf-
ingjar i vanda” 1962, „Haust” og
„Hokus Pokus” 1963, „Dr. med.
Job Pratorius” og „Fugl i hendi”
1964 og „Einn spör til jarðar”
1969.
Gisli Alfreðsson, leikstjóri og
þýðandi
ÚTVARP
KLUKKAN
20.30
Að þessu sinni verður flutt leik-
ritið „Ingeborg” eftir þýska rit-
höfundinn Curt Goctz. Leikstjóri
og þýðandi er GIsli Alfreðsson.
Leikritið fjallar um Ingeborg
sem er ung og lifsglöð kona, gift
auöugum manni og býr að þvi er
virðist i farsælu hjónabandi, þó
Rúrik Haraldsson
Helga Bachmann,
Helgi Skúlason
frænku hennar finnist hún ekki
kunna að meta það sem skyldi.
Ungur maður með þvi undar-
lega nafni Peter Peter kemur i
heimsókn og verður að sjálfsögðu
snortinn af yndisþokka Ingeborg-
ar, en það kemur i ljós að til þess
Guðrún Stephensen
liggja eðlilegar ástæður...
Með hlutverkin fara Helga
Bachmann, Helgi Skúlason, Rúr-
ik Haraldsson, Guðrún Stephen-
sen og Árni Tryggvason. Flutn-
ingur leiksins tekur um eina og
hálfa klukkustund. Leikritið var
áður flutt i útvarpi árið 1968.
Arni Tryggvason.
JNGEBORQ
IING OG LÍFSGLÖÐ K0NA
\ útvarp }
Fimmtudagur
| 12.00 Dagskráin. Tónleikar. |
Tilkynningar.
• 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- ■
lregnir. Tilkynningar. Tón- ■
leikar.
I 14.00 t't i bláinn Siguröur I
I Sigurðarson og Orn Peter- I
I sen stjórna þætti um leröa- I
I lög og útilif innanlands og I
| leika létt lög. |
j 15.10 Miðdegissagan. j
j 15.40 Tilkynnmgar. Tonleikar. j
j 16.00 Fréttir. Dagskra. 16.15 |
j Veðuríregnir.
| 16.20 Sfðdegistónleikar
j 17.20 Litli barnatiniinn.
j 17.40 Tónleikar. Tilkynnmgar. |
j 18.45 Veðuríregnir. Dagskrá |
| kvöldsins.
• 19.00 Fréttir. 'l’ilkynníngar. •
J 19.35 Daglegt ntál. Helgi J. j
J Halldórsson flytur þáttinn. J
J 19.40 A vettvangi
J 20.05 Pianóleikur i útvarpssal •
Hólmfriður Siguröardottir I
I leikur pianóverk eftir I
I Joseph Haydn, Frédéric |
I Chopin og Olivier Messiaen. |
I 20.30 Ingeborg.Leikrit eítir j
I Curt Goetz. Þýöandi og leik- j
stjóri: Gisli Alíreðsson. |
I Leikendur: Guðrun |
j Stephensen, Helga Bach- j
•j mann, Rúrik Haraldsson, |
j Helgi Skúlason og Arni •
j Tryggvason. lAöur útv. .
1968).
22.00 Smárakvartettinn á
Akureyri syngur
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Orð kvöldsins
22.35 Þjark á þingi. Halldór
Halldórsson velur ur hljóð-
ritunum lrá Alþingi siöast-
liðinn vetur. Greint veröur
lrá umræðum milli deildar-
forseta og einstakra þing-
manna um þaö hvort taka
eigi tiltekið mál á dagskrá
og uni vinnuálag á þing-
menn.
23.00 Kvöldtónleikar
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.