Vísir - 01.07.1981, Side 14
14
MiOvikudagur 1. júli 1981
VlSIR
„EG VAR VINARIK FYRIR
EN NÚ BÝ EG VIÐ VINAAUÐ
- segir tfigdis Finnbogadótlir forseti fslands
Eitt ár er nú liðið siðan fslend-
ingar völdu Vigdisi Finnboga-
dóttur forseta lýðveldisins en hún
tók viö embættinu þann 1. ágúst
eða mánuði eftir forsetakosning-
arnar. 1 tilefni þessa spjallaði
blaðamaður VIsis við Vigdisi og
spurði hana hvernig siðastliðið ár
heföi verið fyrir hana.
„Þegar svo stórt er spurt verð-
ur vist fátt um svör. En vist er að
sá tfmi, sem ég hef gegnt for-
setaembættinu, hefur verið mjög
reynslurikur og ég hef stöðugt
verið að læra eitthvað nýtt, hvern
einasta dag. Mér hefur iðulega
liðið eins og i gamla daga þegar
próf-spenningurinn tók að gera
vart viðsig. Það er nefnilega ekki
hægt aö gera neinn hlut vel ef
manni er sama um hvernig fer”,
sagöi Vigdis.
Aðspurð um það hvað væri
eftirminnilegastfrá árinu svaraði
forsetinn að þar væri allt jafn
eftirminnilegt og erfitt væri að
taka eitt umfram annað.
„Hinn sólriki morgunn fyrir
réttu ári liður mér að sjálfsögðu
aldrei úr minni. Þá er heimsókn
mintilDanmerkur mér ofarlega i
•huga og sérstaklega sú hlýja, sem
streymdiá móti okkur gestunum,
Það var söguleg stund fyrir réttu
veldisins. Hún tók slðan formlega
ári þegar Vigdisi Finnbogadóttur var fagnað, sem fjóröa forseta lýð-
viö embættinu 1. ágúst.
þar i landi. Mér fannst verulega
gott að finna hvernig vináttu-
tengsl þjóðanna styrktust og allt,
sem mörgum hefur stundum ver-
ið óljúft að nefna um fortiðina,
fyrndist. Nýliðin heimsókn min i
Dali og á Strandir var stórkostleg
og ekki má gleyma öllum þeim
vinum, sem ég hef eignast, bæði
þar og annarsstaðar. Ég var
vinarik fyrir en nú bý ég við mik-
inn vinaauð”.
Þá sagði Vigdis að forsetaem-
bættið hefði komið sér á óvart að
þvi leyti að það væri mun viða-
meira en hún hafði gert sér i
hugalund.
„Ég gekk þó að þessu starfi án
þess að hafa gert mér neina mynd
af þvi og ég hef reynt að ganga að
hverju verkefni fyrir sig og leysa
það eftir bestu kostum”.
Starfið kvað Vigdis hafa verið
mjög annasamt og margt er á
döfinni.
„Ég fer aftur út á land i byrjun
júli og verð viðstödd Landsmót
ungmennafélaganna á Akureyri
þann 10. júli. Þá langar mig til að
nota tækifæriö og hitta fólk að
máli. 1 lok mánaðarins hef ég
þegið boð um að vera viðstödd
brúðkaup Karls Bretaprins en við
þekkjumst persónulega má segja
frá þvi er hann kom hingað að
veiða i fyrrasumar. Og þann 20.
október fer ég siðan i opinbera
heimsókn til Noregs. Þannig er
nóg að starfa og ég vona að okkur
öllum farnist vel á þessu ári og
um alla framtið”, sagði Vigdis
Finnbogadóttir, forseti Islands,
að lokum.
—TT
SÁÁ flytur i nýtt húsnæöi:
„TRYGGIR RETUR STARF SAM-
TAKANNA OG SJALFSTÆÐI”
- segir Björgóllur Guðmunflsson lormaður SÁA
Samtök áhugalólks um áfengis-
vandamálið (SAA) hefur tekið i
notkun nýtt húsnæði fyrir hluta af
starfi sinu, i Siðumúla 3-5. Sam-
tökin eiga þetta húsnæði, sem er
öll cfri hæð hússins.
Af þessu tileíni var haldin mikil
veisla i hinum nýju húsakynnum.
Þá sagði Björgólfur Guömunds-
son formaður samtakanna m.a.
að þetta væri nýr áfangi i starfi
samtakanna og mundi tryggja
starf þeirra og^sjálfstæði. „Þvi
betri aöstaða, þeim mun betri
árangur,” sagði Björgólíur. Hann
sagði einnig að næsti áfangi væri
aö byggja sjúkrastöð og væru
þegar fengin vilyröi borgaryfir-
valda fyrir lóð i Selásnum eða
öðrum heppilegum stað. Strax og
lóðamálin eru frágengin verður
hafist handa um bygginguna.
Þá vék hann að samstarfi SAA
og Afengisvarnadeildar Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavikur-
borgar, sem hefur tekið hluta
húsnæðisins á leigu, og lauk
miklu lofsorði á það. I sama
streng tóku talsmenn deildarinn-
ar, svo og Adda Bára Sigíúsdóttir
formaður Heilsuverndarráðs
Reykjavikur. Bar öllum saman
um að árangur þess samstarfs
væri i einu orði sagt stórkostleg-
ur.
Samtökin voru stofnuð 1. okt.
1977 og telja nú um 9000 félaga,
viða um land. Tilgangur þeirra er
að vinna gegn áfengisvandamál-
inu meö fræðslu og fyrirbyggj-
andi aðferðum og að vinna að
endurhæfingu hinna sjúku. Einn-
ig að útrýma hindurvitnum, van-
þekkingu, og fordómum á vanda-
málinu.
SÁÁ starfrækir:
Ráðgefandi þjónustu að Siðu-
Þá varhaldin mikil veisla.Séöyfirhluta veislusalarins.
múla 3-5, þar sem ráðgjafar eru
til viðtals daglega kl. 9-17, simi
82399. Sjúkrastöð fyrir 30
alkóhólista að Silungapolli. Hún
tók til starfa 7. des. 1977.
Endurhæfingarheimili fyrir 30
manns að Sogni i ölfusi, tók til
starfa 14. ágúst 1978.
Endurhæfingarheimili að
Staðarfelli i Dölum, fyrir 20
manns. Það tók til starfa 29. nóv.
1980.
Fjölskyldudeild, i samvinnu viö
ÁHR, sem fyrr var nefnd, og er til
húsa i Siðumúla 3-5. Þar eru hald-
in kvöldnámskeið fyrir aðstand-
endur alkóhólista.
Fræðsla og fyrirbyggjandi
störf. Ráðgjafar eru sendir i
skóla, á vinnustaði og á félags-
fundi, eftir óskum.
Fjöldi starfsmanna hjá SÁA er
nú um 40. Björgólfur ságði að
frekar væru valdir starfsmenn,
sem þekkja vandamálið af eigin
raun og sú stefna hefði sýnt sig að
vera rétt.
Kvöldsimaþjónusta er einn af
mikilsverðustu þáttum starfs
samtakanna og benda forystu-
menn þeirra fólki á að færa sima-
númerið 81515 inn á minnisblað
simaskrárinnar. Þar er reynt að
leiðbeina alkóhólistum og að-
standendum þeirra og hafa um
1200 manns notfært sér þessa
þjónustu á siðasta ári.
-SV
Þessi röbbuöu við blaðamenn, rétt áður en veislan hófst. Frá vinstri:
Eggert Magnússon, úr framkvæmdastjórn SAÁ, Hendrik Berndsen, úr
framkvæmdastjórn SAA, Björgólfur Guðmundsson formaður SAA, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri SAA, Adda Bára Sigfús-
dóttir, formaöur Heiibrigðisráðs Reykjavikur, Gisli Teitsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsuverndarstöövar Reykjavikurborgar, Sigrlður
Þorsteinsdóttir, deildarstjóri ÁHR og Sæmundur Guðvinsson úr fram-
kvæmdastjórn SAA.
Vlða er mjög fallegt i Amsterdam, en borg
eru geng skipum.
Töluverður húsnæðisskortur er I Amsterda
lágið að finna lausn við þvi, þeir búa þá
hundrað manns búa við þennan kost, en ma
rennandi vatns.
Naéturllf Amsterdamborgar er I meira laj
hverju götuhorni. En auðvitað gerir engin
fast verð áður en þeir byrja, aðrir láta ve
eins og þessi....
... en enn aðrir láta kylfu raöa Kasii, setja b:
til vorkunnsemi vegfarenda.
Aöeins tekur um þrjá klukkutfma að aka la
mynd frá Eindhoven i suðurhluta landsin