Vísir - 01.07.1981, Qupperneq 16
16
MiOvikudagur X. júlí 1981
MEÐISCARGOTII.
AMSTERDAM
Glaðvær borg
með fjölbreytt mannlíf
og miðstöð lista
Lægsta flugfargjaldið
Frá Kr. 2.098.-báðarleiði
AMSTERDAM
ISCARGO
Félag, sem Iryggir samkeppni i llugi!
SKRIFSTOFA: AUSTURSTR/ETI 3, S 12125 og 10542.
Einhell
vandaöar vörur
LÓÐBYSSA
Með mnbyggðu Ijósi.
Hitnarsamstundis.
Skeljungsbúðin
Suöurlandsbraut 4
si'mi 38125
Haldsölubirgöir: Skeljungur hf
Smávörudeild
81722
simi
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
BÍLARYÐVÖRNHf
Skeifunni 17
a 81390
lesendur hafa orðið
Hvaða tilgangi á betta gerræði að pjðna?
Vinkonur hiringdu:
„Við erum hér tvær vinkonur,
og okkur langar til að lýsa yfir
megnri óánægju með að loka
eigi verslunum á laugardögum.
Við skiljum raunar ekki hvaða
tilgangi þetta gerræði á að
þjóna. Hér er aðeins verið að
ráðast gegn almenningi og
hagsmunir fólksins eru alger-
lega fyrir borð bornir. Það er
verið að refsa þeim kaupmönn-
um, sem vilja bjóða upp á góða
þjónustu, og vilja gera við-
skiptavinum sinum, sem hæst
undir höfði. Við tvær viljum
skora áborgaryfirvöldað gripa i
taumana hið fyrsta. Hinn al-
menni ibúi i borginni á þá kröfu
á hendur fulltrúa sinna.”
HVM MEfl ERLENDU FERÐAMENNINA?
F. J. hringdi: laugardögum til að versla, þvi að á að loka öllu á laugardögum og með alla erlendu ferðamennina?
„Ég bý i Keflavik og hef ávallt það er eini dagurinn, sem við það með lögregluvaldi. Ekki geta Mér finnst þessar laugardagslok-
farið til höfuðborgarinnar á hjónin getum farið saman. En nú allir hlaupið til á kvöldin. Og hvað anir vera reginhneyksli.”
Mlkll óánægja með
laugardagsiokunina
Frá lesendasíðunni:
Lesendasiðan vill koma þvi á
framfæri að margir hafa orðið
til þess að hringja og láta i ljós
óánægju sina með aðgerðir gegn
þeimkaupmönnum i Reykjavik,
sem hafa haft verslanir sinar
opnar á laugardögum. Þvi
miður er ekki unnt að birta allar
athugasemdirnar en þar sem
þær eru svo til allar samhljóða
verða þessar tvær raddir, sem
nú birtast, að skoðast, sem full-
trúar þessa stóra hóps. Við
hvetjum lesendur samt sem áð-
ur að hafa samband við okkur
og láta skoðanir sinar i ljós.
. Nu keyrol um ðverbak:
Ibrðllabáltur varð
ao auglýslngabættl
íþróttamaður skrifar
„Það er vægast sagt stór-
furðulegt hvað main, sem sjá
um sjónvarpsþætti, leyfa sér að
bjóða landsmönnum upp á.
„Trimmþættir og auglýsinga-
þættir” Jóns B. Stefánssonar og
nú Sverris Friðþjófssonar, sem
hafa verið kallaðir iþróttaþætt-
ir, hafa alltaf komið á óvart
fyrir lélegheit. Það keyrði þó
um þverbak sl. mánudagskvöld,
þegar Sverrir bauð upp á aug-
lýsingaþátt um Iþróttamiðstöð-
ina á Selfossi, sem félagi hans
Jón B. Stefánsson, stjórnar og
þá var einnig auglýst upp hesta-
mót og getraunastarfssemi i
sambandi við þau, þar sem
möinum gefst kostur á að spá
um hvort að Gustur, Ropi eða
Víxill verða fyrstir i þessu eða
hinu hlaupinu.
Var sagt frá iþróttavið-
burðum helgarinnar I þættin-
um? — Nei, svo sannarlega
ekki. Allur timinn fór i að aug-
lýsa upp íþróttamiðstöðina á
Selfossi. Ekki var sagt orð um
Norðurlandamót fatlaðra i
Vestmannaeyjum eða sagt frá
Unglingameistaramótinu i
golfi.
ÞeirJónB. og Sverrir ættuað
taka iþróttaþætti Bjarna Felix-
sonar til fyrirmyndar. Bjarni
vinnur sina þætti vel. Hann seg-
ir frá þvf sem er að ske hverju
sinni, en er ekki með aug-
lýsingastarfssemi i þáttum sin-
um, um íþróttamiðstöð Jóns B.
Stefánssonar á Selfossi eða
knattspyrnuskóla Vikings
(Sverris Friðþjöfssonar).
Þáttur Sverris á mánudags-
kvöldið var fyrir neðan allar
hellur.”
«
Af hverju eru
geðsjúkiingar
úlskrlfaðir af
sjúkrahúsum án
bess að batl
náist?
Aðstandandi skrifar:
„Um leið og ég vil þakka Visi
fyrir framlag sitt á ári fatlaðra
til þeirra verst settu, sem eru
geðsjúklingar, með birtingu á
greininni um geðveika manninn
iHraunbænum, sem virðist búa
við verri skilyrði en húsdýrin
okkar og meiri óhamingju en
venjulegt fólk getur imyndað
sér, vil ég benda á að það eru til
geðsjúklingar, sem búa við enn
verri skilyrði en þetta, þ.e. eiga
hvergi höfði sinu aö halla. Fyrir
þeim veröur nú varla þverfótaö
imiöbæ Reykjavíkur. Afhverju
er þetta fólk sifellt útskrifað af
sjúkrahúsunum án þess að
raunverulegur bati náist? Er
verra að eyða ævinni á sjúkra-
húsi, að einhverju leyti, en sem
rekald haft aö háði og spotti á
götunni? Hvortkysuheilbrigðis-
yfirvöld og geðhjúkrunarfölk ef
það einn góðan veðurdag yröi
þeim sjúkdómi að bráð, sem
gerir fólk ósjálfrátt gerða
sinna?”
Bréfntara finnst bankastjórarnir ekki standa sig i stykkinu og geri „bröskurum” of hátt undir höfði á
kostnað þeirra lægra launuðu. Skyldu þessir Hafnfirðingar hafa fengið „jáið” langþráða?
Ber öonkum ekki skylda tii að sinna háum sem lagum?
Bankar ættu að skammast sín”
•»
V.S. skrifar:
„Nýlega fór ungur maður i
einn aðalbankann i Reykjavfk
og ætlaði að fá vaxtaaukalán.
Maður þessi, sem stendur i i-
búðakaupum, þurfti mjög á
láninu að halda þrátt fyrir að
þau séu sannarlega okurlán,
alla vega gefa vextirnir það til
kynna. Maöurinn vinnur hjá
stcrfnun, sem greiðir allt hans
kaup i gegnum bankann, og þar
hefur hann unnið i sex eða sjö
ár. I bankanum spurði banka-
stjórinn hvort maðurinn hefði
einhver viðskipti við bankann
og hann svaraði þvi til að hann
fengi jú allt sitt kaup greitt um
hann. Það fannst stjóranum
hins vegar litilvæg viðskipti og
manninum var neitaö um
vaxtaaukalánið, sem eins og
allir vita og ég sagði áður er
langt frá þvi aö vera góögerðar-
lán. Ég spyr: hefur bankastjóri
leyfi til að neita þessum manni
um lán, þótt hann sé láglauna-
maður, og fái „aöeins” kaup sitt
greitt i gegnum bankann? Eru
engin takmörk fyrir þvi, hversu
oft þeir, sem eru þurfandi eru
reknirá dyrá meðan braskarar
vaða út og inn i bankann með
milljónatugi? Ég spyr: eru
bankarnirkomnir með þvingan-
irá fólk, ber þeim ekki skylda til
að sinna almennum viðskipta-
vinum, háum sem lágum? Ég
bara spyr.”
Bréfritari er óánægður með frammistöðu Sverris Friðþjófssonar,
annars umsjónarmanns iþróttaþátta sjónvarpsins, og vist er að
Sverrir er ekki aö tala við „iþróttamann” á þessari mynd.