Vísir - 09.07.1981, Blaðsíða 1
Líklegt aö sam-
vinna veröl aukln
- segír Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða eftir viðræður islendinga og Luxemborgara
„Ég á ekki von á að niður-
staða viðræðnanna veröi nei-
kvæð þó að hún geti hins vegar
orðið misjafnlega jákvæð. Það
eru margir möguleikar, sem til
greina koma, og ég tel líklegast
að útkoman verði sú að mjög
aukin samvinna verði tekin
upp”, sagði Sigurður Helgason,
forst jori Flugleiða, i samtali við
Vísi um viðræður tslendinga og
Luxemborgarmanna um fram-
tfð Atlantshafsflugsins, sem
fram fóru í gærmorgun.
Aðspurður um það hvort
Flugleiðir hefðu útbúið bráða-
birgðaáætlun, sem nota ætti ef
Luxemborgarmenn neituðu
allri aðstoð, svaraði Sigurður að
svo væri ekki.
„Annars var afstaða Luxem-
borgarmanna i samræmi við
það, sem menn áttu von á, og
meðal þeirra rikti skilningur á
að finna áframhaldandi grund-
völl fyrir Atlantshafsflugiö”,
sagði Sigurður.
A blaðamannafundi, sem við-
ræðuaðilarnir héldu i gær og
nánar er greint frá inni i blað-
inu, var nokkuö rættum skýrslu
þá er bandariskt ráðgjafafyrir-
tæki hefur skilað um framtiö
Atlantshafsflugsins.
„Skýrslan er mjög jákvæð og
gefur greinilega til kynna að fé-
lagið hefur haslað sér völl á
undanförnum árum og er þekkt
nafn innan flugsins”, sagði Sig-
urður Helgason.
Sjá bls. 11
—TT.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J
„Sól, sól.skin á mig, ský, ský burt með þig”, gæti hún veriö aö syngja þessi, sem Ijósmyndari VIsis hitti I læknum I Nauthólsvtk I gær, en þar hefur
margur sleikt sólskiniö undanfarna daga, enda Sunniendingar ekki þurft aðkvarta, þótt idag hafi dregið ský fyrir sólu. —KÞ/Vísm.EÞS
ikeppni
um Miss
Young inter-
national
- S|á vlðlal dagsins
vlð Svövu Johansen
hls. 2
Davið lagði
meirihlutann!
Slórlaxar bls. 13
vanlað hef-
ur aðstððu
til enflur-
hætingar
- Sjá heimsokn á
KristneshæliO
bls. 14-15
Kópavogur hyggst blóða skuldabréf hja Fiárfestingafólaginu:
Milliðn kröna lán á
almennum markaði
býður betrí kjör en bankar og sparísióðir
Bæjarráð Kópavogs hefur
samþykkt að heimila söiu
skuldabréfa á markaði Fjár-
festingafélags islands hf. Féð
skal nota til lagningar siitlags á
götur i Hólmahverfi. Lánin eru
með 5% vöxtum ofan á láns-
kjaravisitölu, en það mun vera
svipuð kjör og Lánasjóður
sveitarfélaga býður, en um 1%
hærri vextir en bankar bjóða.
Það er nýstárleg aðferð
s.veitarfélaga eða bæja að afla
lánsfjár á innlendum verðbréfa-
markaði, þótt lengi hafi tiðkast
að stærri bæir leiti á erlendan
verðbréfamarkað, þegar meiri
háttar framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar.
Karl M. Kristjánsson fjárx
mála- og hagsýslustjóri Kópa-
vogs, sagði i viðtali við frétta-
mann Visis að hann teldi mun-
inn ekki annan en að á innlenda
markaðnum væru lánskjörin
stöðugri. Um kjörin sagðihann:
„Með tilliti til þess, sem gerist á
lánamarkaðnum þykir okkur
þetta alls ekki óeðlilegir
kostir.” „Riki og bæjarfélög eru
meðal traustustu skuldara og
þvieriiklegt að auðvelt verði að
selja slik bréf,” sagði Gunnar
Helgi Hálfdánarson fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingafé-
lagsins, þegar við leituðum álits
hans á hvernig muni ganga að
selja slik bréf, „og þetta er að
auki smáupphæð”.
Hann sagði að annars væri
fátt að segja um þetta nú, þar
sem félaginu hefði ekki borist
formleg beiðni um að selja um-
rædd bréf og útboðsgögn liggi
ekki fyrir. Hinsvegar .sagðist
hann bjartsýnn á að nýtt lif
kynni að færast i verðbréfa-
markaðinn ef önnur bæjarfélög
feta í spor Kópavogs i þessu
efni. —SV