Vísir - 09.07.1981, Side 12
VÍSIR
!?__________________ VloMM Fimmtudagur 9. júlí 1981
Sömu
sama
magn
Áhrlf slðustu hækkunar landbúnaðarvara::
Viö búðarborðiö tæmist budda húsmóöurinnar. Napur raunveruleiki er tóm
budda og raunverulegri fyrir neytendur en allar tölur skráöar á stofnunum af
sérfræöingum.
500 fleirl krúnur
greiðir sex manna ijnlsKylda í Hafnarfirði
Fyrir mjóik, smjör, rjóma, skyr, ost og jógúrt greiöir sex manna fjölskylda krónur 1.534.50 á mánuöi
eftir 1. júni hækkunina.
Þær eru orðnar svimandi
háar upphæðirnar sem við
greiðum orðið fyrir nauð-
þurftir eins og mat og
ískyggilega stór hluti mán-
aðarlaunanna fara í mat-
arkaup. Enda eru raddir
þeirra sem sjá um matar-
innkaup til heimilanna
orðnar háværar í þjóðfé-
laginu. Varla koma svo
tveir saman að hið háa
verðlag á þessum nauð-
þurftum beri ekki á góma.
Og fólk spyr, er það orðinn
munaður á Islandi í dag að
nærast?
Eftir siöustu hækkun landbún-
aðarvara 1. júni sl., þegar mjólk-
in hækkaði um 23.7% og kartöflur
og smjör um 30% er von aö fólk
spyrji. 1 leiðara Visis þ. 1. júni
sl., er fjallað um hækkun land-
búnaöarafuröa og buddu husmóö-
urinnar og þar segir meöal ann-
ars: — Húsmóðurina varðar ekk-
ert um útreikninga i Seðlabanka
eða Þjóðhagsstofnun. Hún bein-
linis hlær að visitölufölsunum.
Það sem húsmóöirin skilur er
matarreikningurinn, verðbólgan i
buddunni, þegar krónurnar end-
ast ekki lengur til nauðþurJta. Svo
einfalt er þaö. Þegar allt kemur
til alls, þá er það buddan sem
mælir verðbólguna og frammi-
stööu stjórnmálamannanna.
Napur raunveruleiki
Þaö eru orð að sönnu að það sé
buddan sem mæli verðbólguna.
Við vitum hvað i hana kemur og
hve fljótt hún tæmist. Napur
raunveruleiki er tóm budda og
raunverulegri fyrir neytendur en
allar tölur skráðar á stofnunum
af sérfræðingum. Eftir þessa sið-
ustu hækkun landbúnaöarvara,
settist húsmóðir ein i Hafnarfirði
niður einn sunnudagsmorgun og
skráði á blað raunhæft dæmi sem
sannarlega snertir buddu heimil-
isins. Þessi hafnfirska húsmóöir
vinnur úti hálfan daginn og sér
hún um matarinnkaup fyrir sex
manna fjölskyldu. Vikulega fær
hún greidd sin laun, sem hún fer
með beint af vinnustaö á föstu-
dögum úti næstu verslun og þar
tæmist buddan. Einn föstudaginn
fékk hún tieyring til baka af
vikulaununum.
Neysla: Einn mánuð
Húsmóðirin tekur niu vöruteg-
undir sem hækkuðu i júnibyrjun
og áætlar neyslu þeirra i einn
mánuð. Reiknar hún til dæmis
með aö sex manna fjölskyldan
hennar neyti 120 litra mjólkur, 3
kg af osti og 10 kg af skyri yfir
mánuðinn. Á eftirfarandi töflu
sjáum við verö á hverri vöruteg-
und fyrir og eftir hækkunina.
Heildarmismunur nemur krónum
510.20 (51.020,- gkr.) og alls greið-
ir hún fyrir þessar vörur krónur
2.860.27 (286.027,- gkr.) mánaöar-
lega. Þetta eru aðeins niu vöru-
tegundir og þá er allt annað eftir
sem telja má lika til nauðþurfta.
Húsmóðirin i Hafnarfirði lét okk-
ur einnig i té nokkrar tölur yfir
heildarmatarkaup frá áramótum
og sem dæmi skal þess getið að i
matarkaup til heimilisins fyrir
mafmánuð greiddi hún alls krón-
ur 3.640.00.
Þegar við litum á meðfylgjandi
töflu, sjáum við að þessi sex
manna fjölskylda kaupir sextiu
litlar jógúrtdósir á mánuði. Jóg-
úrt er talin holl og góö fæða og
ætti varla að teljast sérstakur
munaður að hafa jógúrt á morg-
unverðarborðinu. En húsmóðirin
okkar i Hafnarfirði kaupir ,,að-
eins” sextiu dósir af jógúrt yfir
mánuðinn, en vildi gjarnan kaupa
sex dósir á dag, sem gera 180 dós-
ir yfir mánuðinn, og þá hvorki
meira né minna en 918.00 krónur.
Er nema von að fólk spyrji, hvort
það sé munaður að nærast á holl-
um og góðum mat?
— ÞG
Vörutegund: Neysla á mán. Verð fyrir og eftjr Mism. Innkaup á mán
f. sex m. fj. 1. |uni
Mjólk 120 lítrar á kr. 5.60= 672.00
// 4.45 = 534.00 138.00 672.00
Smjör 4 kíló á // 63.30= 253.20
// . 49.00= 196.00 57.20 253.20
Rjómi 4 pelar á // 9.75 = 39.00
// 7.95 = 31.80 7.20 39.00
Skyr 10 kíló á // 9.15 = 91.50
// 7.25 = 72.50 19.00 91.50
Ostur 3 kfló á // 57.60= 172.80
// 46.25 = 138.75 34.05 172.80
Kindakjöt 15 kiló á // 35.35 = 530.25
// 30.30 = 454.50 75.75 530.25
Nautakjöt 10 kíló á // 77.80= 778.00
// 66.90= 669.00 109.00 778.00
Kartöflur 4 kíló á // 4.38 = 17.52 4.00
// 3.38 = 13.52 17.52
Jógúrt 60 box á // 5.10= 306.00
// 4.00= 240.00 66.00 306.00
Kr. 510.20 Kr. 2.860.27(5)
A þessari töflu sjáum við verð á niu vörutegundum fyrir og eftir hækknmina 1. júni og hvaða áhrif hækkunin hefur á búreikning sex manna
fjölskyldunnar I Hafnarfirði.