Vísir


Vísir - 20.07.1981, Qupperneq 12

Vísir - 20.07.1981, Qupperneq 12
12 Mánudagur 20. júli 1981 VÍSLR Matseðill heimillslns „Yfir sumartimann reyni ég að eyða sem minnstum tima yfir pottunum" segir Hallfriður Konráðsddttir matseðilsmóðir vjkunnar. og þar fvrir utan hús- móðir i Garðabæ, við blaða- mann Visis. ,,K völdmaturinn er aðalmáltíð dagsins, svo hádeg- ismatinn ætla ég ekki að tíunda hér, hann samanstendur oftast nær af skvri, jögúrt.brauði og þess háttar mat". Og Hallfriður bætir við „Sama er að segja um eftirmat- inn. hann er ekki á boðstólum dags daglega, nema i formi nvrra ávaxta. Stöku sinnum um helgar bætum við þó við nokkr- um sætum kaloríum. Og góð kaka með sunnudagskaffinu er velþegin”. Þá skulum viðbyrja á að líta á hvaðverður á kvöldverðarborð- inu hjá Hallfriði og fjölskyldu i kvöld. — ÞG. Mánudagur Heilsteikt bleikja Kartöflur Nytt grænmeti Ný bleikja 1—2 stk (eftir stærð. Velhreinsuð bleikja, krydduð með „seasoned salt”, sitrónu- pipar og si'trónusafa, bæði inn i fiskinn sem að utan. Sett i álpappir sem er lokað. Bakað við 200 gr. hita i ca. 15 miniítur. Þá er pakkinn opnaður og fisk- urinn látinn grillast það sem eftir er ti'mans f um það bil 15-20 minútur til viðbótar. Fer eftir þykkt fisksins. Kartöflur og nýtt grænmeti haft með. í>riiSiudasíur Spaghetti-kjöt Heilhveiti snittubrauð Uppskrift: 500 g nautahakk 1-2 laukar h'til dós tómatar (með safa) htil dós sveppir (eða nýir þegar fást) 1 græn paprika 2 msk tómatkraftur Kryddað með grófmöluðum pipar, hvi'tlaukssalti, oregano og paprikudufti. Borið fram með spaghettiog volgu heilveiti snittubrauði. 11 allfriður Konráðsdótúr matseðilsmóðir vikunnar. Midvikudagur Ýsa i ofni Soðnar kartöflur Brætt smjör með hvitlaukssalti Hrásalat Ný ýsuflök, roðflett og krydd- uð með salti, dilli og dálitlum pipar (ným.) Sett i eldfast sm jörsmurt fat. Sýrðum rjóma smurt ofan á. Bakað i ofni við 180 gr. i ca. 30 minútur. Nýr graslaukur klipptur ofan á (eflir bökun) Soðnar kartöflur og brætt smjör með hvitlauks- salti borið fram með. Einnig hrásalat. Fimmtudagur Kótelettur i karry Hrisgrjón Uppskrift: 10 lambakótelettur 3 græn epli 1/2 laukar karry 3 dl. rjómi Smjör brætt á pönnu með karry. Kóteletturnar ^kryddað- ar með salti og pipar. Brúnaðar og settar i' eldfast smurt fat. Epli og laukur fremur smátt skorið, brúnað létt i karry- smjöri, rjómanum bætt Uti og þessu hellt yfir kóteletturnar. Setti 180 gr. heitan ofn i um það bil 30 minútur. Fyrstu 20 minút- urnar með áipappir yfir. Gott er að hafa soðin hris- grjón með þessum rétti. Föstudagur Kjötbuðingur Hrærðar kartöflur Nýtt grænmeti Uppskrift: 600 g nýtt kjötfars, sett i smjörsmurt jólakökuform. ör- litið af raspi stráð yfir svo og nokkrum smjörklipum. Bakað i ofni við ca 200 gr. hita i 30-40 minutur. Faugardagur Útigrillaðir hamborgarar Bakaðar kartöflur Hrásalat Sósur úr sýrðum rjóma (1 hamborgarana er notað nautahakk og það kryddað eftir smekk hvers og eins) Eftirmatur — Islenskur Camembert ostur handa full- orðnum, i'spinnar handa krökk- unum. Einfalt, gott og afslapp- að. Sunnudagur Velveiddur nýr lax Velveiddur þýðir hér hjá okkur, lax veiddur af eiginmanninum Nýr lax mátulega soðinn er ætíð góður. Meðlætið er þetta hefðbundna . Kartöflur, sitrónu- bátar, nýtt grænmeti og smjör. Eftirmatur: Bláber með rjóma. Og þá er komið að vinsælu sunnudagskökunni: Marcipankaka 4 egg 200 g sykur 200 g marcipan 1 pakki suðusúkkulaði (lOOg) Egg og sykur hrært vel sam- an. Maricipan mulið úti. Aht hrært i hrærivél. Bakað við 200 gr. í 40 mi'nUtur. Kakan tekin vel volg Ur forminu. Brætt súkku- laði sett yfir. Gott að bera is- kaldan þeyttan rjóma með. Litir: Hvítt, svart, grátt, blátt, rautt, vínrautt, Khaki-grænt, army-grænt, beige Stærðir: 34-37 Verð kr. 350,00 Sendum í póstkröfu MOCNS ÞINGHOLTSSTRÆTI 1 Mjólkurfræðingar segjast eiga á hættu að fá I hendur efni sem lltiö á skylt við almennilega mjólk. Mjóikurfræðingar segja: Viljum ógjarnan liggja undir ámæli Okkur sem vinnum daglega við meðhöndlun mjólkur, er mjög mikilvægt að reglugerð um mjólk og mjólkurvörur sé þannig úr garði gerð, að hún tryggi að góða og holla matvöru sé hægt að vinna Ur þeirri mjólk sem okkur berst i hendur. Bæði er það metnaðar- mál hvers einasta fagmanns að láta aðeins frá sér fara fýrsta flokks afurð og einnig berum við, bæði sem einstaklingar og stétt, siðferðilega ábyrgð á þeim mjólkurafurðum sem á mark- aðnum eru og viljum ógjarnan liggja undirámælivegna rangrar meðhöndlunar á þeim stigum framleiðslu og geymslu mjólkur, sem við höfum engin áhrif á. Svo segiri greinargerð er okkur hefur borist frá Mjólkurfræðinga- félagi tslands og er þetta undir- ritað af formanni félagsins Sig- urði Runólfssyni. Fram kemur i greinargerð þessari að forsaga mjólkur- málsins á rætur sinar að rekja til ársins 1978. Mjólkursamlögin brotið reglugerð eftir þörfum 1 nóvember það ár óskaði Heil- brigðiseftirlit rikisins eftir þvi við Mjólkurfræðingafélagið að það tilnefndi samráðsaðila vegna endurskoðunar á reglugerð nr. 269/1973 um mjólk og mjólkur- vörur, sem þá var i undirbúningi. Félagið varð við þessum til- mælum og var Jóhannes Gunn- arsson mjólkurfræðingur til- nefndur fulltrúi félagsins. Jaf- framt sendi félagið Heilbrigðis- eftirliti rikisins rökstuddar breytingartillögur við áðurnefnda reglugerð. Að mati félagsins var endurskoðun orðin timabær, meðal annars var nauösynlegt að herða og auka allar gæðakröfur, einnig er löngu ljóst að mjólkur- samlögin hafa nú um langan tima farið mjög frjálslega með reglu- gerð 269/1973 og brotið hana eftir þörfum. Tillögur mjó lkur- fræðinga hundsaðar Að mati Mjólkurfræðingafélags Islands (M.F.F.l.) væri það ástand sem nú rikir varðandi geymsluþol mjólkurafuröa allt annað ef meira tillit hefði verið tekið til tillagna félagsins og ef starfað væri eftir þeim tihögum nú i dag. Benda má einnig á, að nú þegar starfa mjólkursamlögin eftir væntanlegri mjólkurreglu- gerð i' mörgum veigamiklum atriðum, þó svo að hún hafi ekki verið staðfest af ráðherra. En það hafði komið fljótlega i ljós þegar hafist var handa um endurskoð- unina hér um árið að nær ekkert tillit var tekið til tillagna M.F.F.I., heldur réðu forráða- menn mjólkursamlaganna nær alveg ferðinni. Til að firra félagið frekari ábyrgð af væntanlegri mjólkurreglugerð, ákvað aðal- fundur M.F.F.t., sem haldinn var i april 1979 samhljóða að draga fuiltrúa sinn út úr áðurnefndri nefnd. Aldur mjólkur ágrein- ingur En hverjar voru forsendur þess að félagið vildi ekki eiga frekari aðild að endurskoðun mjólkur- reglugerðarinnar? Fjögur ágreiningsatriði voru innan nefndarinnar. a) Aldur mjólkurinnar þegar hún berst mjólkursamlagi. b) Hvort verðfella á mjólk, sem inniheldur pencilin. c) Hvort leyfa eigi, að mjölk frá framleiðanda falli i annan flokk einu sinni i mánuði án verðfellingar. d) Hvort leyfð skuli forhitun mjólkur. Bent var á, að nú ætti að fallast á i reglugerð að mjólk sem berst mjólkurstöð mætti vera allt að 78 klst. gömul i stað 65 klst. i núgild- andi reglugerð. Félagið féllst á þetta vegna núverandi fyrir- komulags mjólkurflutninga, en lagði áherslu a, að þar með væri gengið eins langt og mögulegt var. Jafnframt var bent á þá oftrú sem farið hefur i vöxt með til- komu mjólkurtanka og rafkæl- ingar hjá bændum. Mjólk getur verið ósúr eftir svo langan tima, en þar með er ekki sagt að hún sé óskemmd og við sem eigum að vinna úr þessu mannamat, eigum á hættu aö fá i hendur efni, sem litið á skylt við almennilega mjólk. Astandið unanfarnar vikur hefur sýnt, að varnaðarorð þessi áttu rétt á sér og meira en það. U ms jón: Þórunn Gestsdóttir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.