Vísir - 20.07.1981, Page 14
VÍSIR
Mánudagur 20. iúli 1981
Það er lallegt við Laxá. Hér reynir Ilelga Baldursdóttir á Hólmavaði.
- Vfsir heimsækir veiðimenn við
Laxá í Aðaldal og ræðlr við
Kristján á Hðlmavaði
Það var verið að ræða lax-
veiði við hringborðið á „Terl-
unni” á Akureyri. Laxveiði-
mennirnir ræddu um „ána” eins
og meiriháttar persónu, án þess
að tilgreina frekar hvað hún
heitir. „HUn gaf ekki mikið i
gær”, — „Það er ekki von, það
er svo djöfull kalt” — „Já, hUn
hefur veriðheldurtreg I sumar”
— „Hafa þeir fatgið eitthvað á
efri svæðunum”, — sögðu þeir.
Árni Njálsson, sem þjálfar
Þörsara I sumar, hlustaði með
andakt á samræðurnar, en loks
stóðst hann ekki mátið og
spurði: „Með leyfi, um hvaða
helvi'tis á eruð þið alltaf að
tala?”
Laxveiðimennimirlitu á Arna
I forundran. Það varð stutt
þögn, eins og menn væru að
Ihuga hvernig ætti nU að með-
höndla svona menn. Loks sagði
ólafur Stefánsson eins og af
vorkunnsemi: „Hvaða á? Þekk-
irðu ekki ána maður, þessa einu
og sönnu, Laxá I Aðaldal.
Sú „eina og sanna”
heimsótt
Vísirheimsóttiþessa „einu og
sönnu” í si'ðustu viku. Þá var
,,bændadigur”því landeigendur
með ánni voru að veiðum.
Þegar ég var að veiða með Ottó
vini minum Pálssyni I Laxá I
fyrra, þá sagði Ottó mér að það
kæmi ekki að sök, þótt við fengj-
um ekkert á efri svæðunum, þvi
við fengjum þó örugglega
marga á neðsta svæðinu slðasta
daginn. Þaö brást að vísu, en ég
bjargaði málinu með þvi að
kaupa 16 punda lax af Kristjáni
veiðimanni Jóhannessyni, sem
alltaf fær flsk, þar sem á annað
borð er fiskur.
Hvað um það, ég staulaðist
niður klettinn við neðsta svæðið,
en nil hafði ég ekki önnur tæki til
veiðaen myndavélina. Þar hitti
ég fyrir Kristján Benediktsson,
bónda á Hólmavaði. Ósjálfrátt
fékk ég vatn I munninn þegar ég
hitti Kristján. — einfaldlega
vegna þess að hann reykti fyrir
mig laxinn semég fékk við Laxá
— (þó ég hafi þurft að kaupa
’ann). Kristján er þekktur fyrir
að reykja lax svo bragð sé að,
enda þekktur meðal laxveiði-
manna.
Kristján var að veiðum ásamt
eiginkonunni, Helgu Baldurs-
dóttur, og syninum Benedikt.
Helga var bdin að krækja i' tvo,
en Kristján hafði engan fengið
þóttfiskinn sé. Einar, Kristln og
Kristján I Hjararholti, ásamt
Agnari Kristjánssyni I Norður-
hlið, höfðu fengið 3 og bættu við
2 eftir að ég fór. Laxarnir feng-
ust Ur Kistukvísl og Stóra fossi.
Tínum þá upp á flóðinu
„Þetta er steindautt nUna,
hann stekkur ekki einusinni.En
við ti'num þá upp þegar fellur
að, það kemur ganga með flóð-
inu”, sagði Kristján.
Laxarnir sem voru komnir á
land voru allir fremur smáir.
Kristján vigtaði þá með aug-
unumog sagði þá vera 3-7 pund,
alls ekki meira. Taldi hann lik-
legt að þetta væri fiskur. sem
hefði verið á leið upp I Reykja-
dalsá í gegn um Vestmanns-
vatn. Það þyrfti nefnilega
granna fiska i' það ferðalag.
„HUn”, þessi „eina sanna”,
hefur verið heldur treg I sumar.
Kristján var spurður um ástæð-
una.
„Ég hef alltaf verið svolftið
hræddur um að mikil afföll hafi
orðið af þeim seiðum, sem
sleppt var i ána 1979. Þetta
byggi ég á þvi', að mikil flóð
urðu I ánni stuttu eftir að seið-
unum var sleppt. Þessi seiði
áttu að skila sér I fyrrasumar
sem 5-10punda laxar, en þá sást
varla sU stærð. 1 sumar ættu
þessi seiði að skila sér sem stór-
laxar, en þeir eru ekki komnir
enn i neinum mæli. Það er hins
vegar of snemmt að örvænta
Alla vega lofar smálaxinn núna
góðu fyrir næsta sumar. Það er
fiskur i ánni, en það liggur mis-
jafnlega á laxinum. Hann tekur
ekki nema stundum. Ætli við
verðum ekki að kenna kuld-
anum um, til að hafa þó ein-
hvern sökudólg”, sagði
Kristján.
Kristján er þekktur fyrir að
vera fiskinn, þótt engan fengi
hann laxinn þennan daginn. Ég
spurði hann i' hverju galdurinn
væri fólginn?
„Manni er það nú ekki þakk-
andi, þó maöur sé kannski fisk-
inn, fæddur og uppalinn á ár-
bakkanum”, sagði Kristján og
vikli sem minnst Ur þessu gera.
Hann taldi aðalatriðið að þekkja
ána og vita hvar ’ann tekur.
Það var furðulegt að enginn lax skyldi bita á hjá Kristjáni á Hólma- Þaö var gott að fá sér hressingu I kuldanum, Kristin Hrönn Ginarsdóttir, Helga Baldursdóttir, Benedikt
vaði eins og hann var einbeittur viö veiöina. Kristjánsson, Kristján Einarsson og Agnar Kristjánsson.