Vísir - 21.09.1981, Blaðsíða 6
Jakob Magnússon og Alan Howarth skipa minnstu hljómsveit
sinnar tegundar í veröldinni The Magnetics.
Þeir, vísa veginn aö tónlist framtíöarinnar á plötunni
A Historic Glimpse of the Future.
Ef þú hefur áhuga á að kíkja aðeins inní framtíðina og hlusta
á futurista rokk með sveiflu, þá er plata Magnetics
pottþétt við þitt hæfi
steinarhf
Símar
85055 ofl 85742.
HLJOMOLU í)
Utii) KARNABÆR
r Simi Irá s»upi:r.Oföi 850-T.'
áhöfn biargað
MS Tungufoss sökk í fyrra-
kvöld út af Lands End viö suö-
vesturhorn Englands. Mann-
björg varö og ekki slys á mönn-
um. Ellefu manna áhöfn var á
skipinu. Skipstjóri á skipinu i
þessari ferö var Gunnar Schev-
ing Thorsteinsson.
Skipiö var á leigu hjá erlend-
um aöila og flutti 1900 tonn af
lausu hveiti frá Avon Mouth i
Englandi og var áfangastaöur
Le Havre i Frakklandi. Skipiö
fór frá Avon Mouth klukkan 22 á
föstudagskvöld. Veöur var vont
á þessum slóöum vindur suö-
vestan 10-11 vindstig og þungur
sjór.
Óhappiö varö um klukkan
19:30 eftir islenskum tima.
Skipiö tók skyndilega á sig um
30 gráöu halla, sem jókst siöan.
Þegar siöasta skipverjanum
var bjargaö, var halli skipsins
oröinn um 90 gráöur.
Skipiö sendi út neyöarskeyti
og héldu nokkur skip i átt til
Tungufoss. Ahöfn skipsins lenti i
nokkrum erfiöleikum viö aö
koma út björgunarbátum vegna
hallans og veöurs. Sjö af áhöfn
skipsins var bjargaö um borö i
björgunarbát Ur laridi, en fjör-
um var bjargaö meö þyrlum
breska sjóhersins.
Var áhöfn skipsins komin i
land um tveimur timum eftir aö
óhappiö skeöi. Skipverjarnir sjö
voru fluttir til Pen Zanee, en
hinir til flotastöövarinnar i Cul-
rose Helston. Áhöfn skipsins er
væntanleg til Reykjavikur fyrri
hluta vikunnar. Gert er ráö fyr-
ir, aö sjópróf fari fram I
Reykjavik strax og við veröur
komiö.
MS Tungufoss var byggöur i
Fredrikshavn i Danmörku áriö
1973, en skipiö var keypt til Is-
lands i júli 1974. MS Tungufoss
var 2100 DWT aö stærö.
Skipið var einkum i ýmsum
stórflutningaverkefnum til og
frá Islandi, en það var sérstak-
lega útbúiö fyrir flutninga á kis-
iljárni. Aö þessu sinni var þaö i
leiguverkefnum erlendis milli
verkefna til og frá Islandi. —KS
Biskup islands, herra Sigurbjörn Einarsson, vlgöi fjóra guðfræöikandi-
data til prests I Dómkirkjunni I gærmorgun. Tvær konur voru meöal
hinna nývlgöu presta, Agnes M. Siguröardóttir, sem ráöin hefur veriö
æskulýösfulltrúi þjóökirkjunnar, og Hanna Maria Pétursdóttir, sem
sett hefur veriö sem prestur I Ásaprestakalli, Guöni Þór ólafsson var
vlgöur til farprestaþjónustu I Stykkishólmi og Kristinn Ágúst Friö-
finnsson, sem settur hefur veriö prestur aö Suöureyri viö Súgandafjörö.
Visism. Friöþjófur)
Nýtt „Herrariki” var opnaö i Glæsibæ um helgina. (Visismynd. Friöþjófur)
Opna annaö .Herraríki’
Ný herrafataverslun var opnuö
I Glæsibæ viö Alfheima á laugar-
daginn, „Herrariki” Iönaðar-
deildar SIS, og er þaö önnur
verslunin i Reykjavlk meö þvi
nafni. Sú eldri er á Snorrabraut. I
„Herrariki” fæst aðallega
fatnaöur frá Fataverksmiöjunni
Gefjuni, en að auk allur almenn-
ur karimannafatnaður, auk þess
skór og skyrtivörur. Fatabreyt-
ingarþjónusta er á staðnum og að
sögn forráöamanna verslunar-
innar veröur lagt allt kapp á
skjóta þjónustu.
Verslunarstjóri „Herrarikis” i
Glæsibæ er Skúli Gislason, en
yfirumsjón meö báöum
„Rikjunum” hefur Sverrir Berg-
mann.
Iðnaðardeild SIS keypti hús-
næöi þaö, sem verslunin i Glæsi-
bæ er i, og mun þaö vera fyrsti
hluti Glæsibæjar, sem seldur er,
en svo sem kunnugt er, var allt
húsiö auglýst til sölu a* sinum
tima. her
„Við erum afar óhressir skák-
menn hér á Austurlandi með þá
ráöstöfun stjórnar Skáksam-
bandsins að taka upp nýjar reglur
um skipun liða i 1. deild, sem
þýða, að b-sveit Taflfélags
Reykjavikur fær þar laust sæti,
sem við teljum Skáksamband
Austurlands eiga aö fá”, sagði
Einar Már Sigurðsson, skóla-
stjóri á Fáskrúðsfirði, og
formaöur skáksambandsins
eystra.
„Taflfélagiö Mjölnir i Reykja-
vik hætti viö þátttöku i 1. deild að
þessu sinni, en deildarkeppnin fer
fram á Húsavik um aöra helgi. 1
sliku tilfelli áöur hefur félag, sem
féll siðast áöur niöur úr 1. deild,
veriö flutt upp aftur, en nú ákvað
stjórn St aö flytja upp liðið i 2.
sæti i 2. deild, b-lið TR. Þarna er
breytt um stefnu á stjórnarfundi
St, enda þótt um viökvæmt deilu-
mál sé að ræöa, til margra ára, og
aðalfundur Skáksambands
tslands hafi 1 vor visað tillögu um
að veita b-sveitum fullan rétt til
milliþinganefndar og afgreiðslu
næsta aðalfundar”, sagði Einar
Már. „Sú nefnd á raunar að
fjalla alfarið um reglugerðina um
deildarkeppnina.”
Þess má geta, að samkvæmt
upplýsingum Öttars Felix Hauks-
sonar, stjórnarmanns i St og um-
sjónarmanns deildarkeppninnar,
varð b-sveit TR i sigursæti i 2.
deild þrátt fyrir það. Nú ákvað
stjórn St að færa b-sveit TR upp,
með fjórum atkvæðum gegn einu,
en tveir stjórnarmenn sátu hjá.
Þá má og geta þess, að forseti St.
dr. Ingimar Jónsson, er fjarver-
andi nú um nokkurra mánaða
skeið, og hefur þvi ekki haft af-
skipti af þessu máli nú. HERB
Fram tíðarskref
THE MAGNETICS
Tungufoss sökk undan suðurströnd Engiands:
Ellefu manna
Ágreiningur um skipun 1. deildar í skak:
„B-svell TR troðlð
inn Auslfirðlngum
boiað frá”