Vísir - 21.09.1981, Side 9

Vísir - 21.09.1981, Side 9
Hmm ár frá andláti Maos Mánudagur 21. september 1981 Abfaranótt 8. scptembers fyrir nákvæmlega fimm árum sátum viö nokkrir erlendir nemendur i Kina meö kinverskum kunningjum okkar viö „Nafnlausa vatniö” svokallaöa viö Peking háskola. Mánaskiniö endurspeglaöist i kyrrum vatnsfietinum, algjör þögn rikti og trén i kringum vatniö teygöu toppa sina i átt aö tunglinu.Viö lyftum glösum okkar i þögulli skál til mánans og boröuöum mána- kökur aö kinverskum siö. Þarna sátum viö lengi nætur og nutum kyrröarinnar og hlýrrar haustnæturinnar. Ekkert okkar grunaöi aö einmitt á þessari sömu stundu háöi hinn mikli faöir og leiötogi kin- versku þjóöarinnar baráttu viö dauöann. Snemma morguninn eftir var þeirri frétt útvarpaö um gervallt Kinaveldi og siöan heim allan, aöformaöurinn sjálfur, Maó Zedong, heföi látist. „Arftaki Maós” A þessum tima sem liðinn er frá láti Maos hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar breytingar orðið i Kina. Strax eftir lát hans spáði ég þvi eins og flestir aðrir að enginn þáver- andi forystumanna Kina gæti tekið við hlutverki Maos i kin- verskum stjórnmálum og þjóð- lifi. Um tima virtist þessi spá min öfugmæli þar sem Hua Guofeng tók sér svo til alræðis- vald með þvi að láta handtaka hina svokölluðu fjórmenninga. Alls staðar voru hengdar upp myndir af Hua við hliðina á Mao og rekinn var áróður fyrir þvi að hann væri tilnefndur arftaki Maós. Þegar til lengdar lét kom þó i ljós að Hua var ekki búinn jafn ótviræðum leiðtogahæfi- leikum og Mao. Með þvi að ryðja brautina fyrir afturhvarfi frá ofurróttækni timabils menn- ingarbyltingarinnar kippti hann að nokkru undan sér pólitiskum grundvelli sinum vegna þess að Hua komst fyrst og fremst til mannviröinga i menningarbylt- ingunni. Smám saman missti Hua Guofeng meira og meira af áhrifum sinum og völdum. Var hann m.a. annars gagnrýndur fyrir blinda dýrkun á Mao og einstrengingslega vinstriöfga auk þess sem hann var gagn- rýndur fyrir tengsl sin við ofur- róttækni menningarbyltingar- innar. Svo fór að lokum að Hua- neyddist til að segja af sér öllum helstu valdaembættum en aðrir menn hafa tekið við Hu formaður Eins og réttilega hefur komið fram i fréttum er það hinn lág- vaxni en harðgerði leiðtogi Deng Xiaoping (Döng Sjáping) sem einna helst er i forsvari fyrir þá kinverska kommúnista sem hafna menningarbylting- unni og einhliða dýrkun á orðum og athöfnum hins látna for- manns. Hefur það viðhorf að menningarbyltingin hafi verið röng og skaðleg að öllu leyti nú unnið algeran sigur innan Kommúnistaflokks Kina. Deng, sem farinn er að reskj- ast, hefur þrátt fyrir mikil völd sin forðast að taka að sér æðstu embætti rikisins en látið þau eftir öðrum mönnum sem grundvallarlega eru þó sam- mála honum um menningar- byltinguna og skaðsemi hennar. Má þar nefna Wan Li sem lengi hefur verið hægri hönd Dengs i öllu sem hann hefur tekið sér fyrir hendur, Zhao Ziyang, for- sætisráöherralandsins og siöast en ekki sist Hu Yaobang, sem til skamms tima var aðalritari flokksins. en var nýlega gerður að formanni KFK. Löngu áöur en Hu var gerður aðformanni flokksins i stað Hua Guofengs var hann i raun og veru orðinn valdamesti maður Kina næst á eftir Deng Xiaop- ing. Ahrif hans á stefnumótun KFK að undanförnu verða meira aö segja að teljast meiri en áhrif Dengs enda er Hu for- maöur flokksins og býr yfir Kínverja enn maóistar A miðstjórnarfundi KFK sem haldinn var i byrjun júli siöast- liöins var gerð samþykkt um sögu Kommúnistaflokks Kina. 1 henni var, eins og komið hefur fram i fjölmiðlum, Mao gagn- rýndur fyrir að hafa borið höfuöábyrgðina á menningar- byltingunni og ýmsum mistök- um KFK siðustu tvo áratugina. Það virðisthins vegar hafa farið fram hjá fjölmiðlum að i þessari sömu ályktun er lögö mikil áhersla á að hætta verði gagn- rýni á Mao að öðru leyti og leggja beri höfuðáhersluna nú og um ófyrirsjánlega framtið á nám i verkum Maos um leið og byltingarsinnaðar starfsað- feröir Maós á fyrri hluta starfs- ferils hans verði að hafa i heiðri. Hér er ekki eingöngu um mála- miðlun við „maosinnana” i Kina að ræða eins og haldið hefur verið fram á Vesturlönd- um heidur endurspeglar þetta stef nu og skoðanir Hu Yaobangs, sem einmitt var kosinn for- maður flokksins á þessum fundi i leynilegri atkvæöagreiðslu. Bæði i samþykkt flokksins um flokkssöguna og eins i ræöu hins nýja formanns flokksins er miklu meiri áhersla lögö á grundvallarlegt réttmæti kenn- inga Maós og byltingarsinnað inntak þeirra en á mistök hans. Alhliða mat Kinverja nú á hinum látna formanni sinum, á kostum hans og göllum, bylt- ingarsinnuðu framlagi hans annars vegar og mistökum hans hins vegar, er einstakt i sögu kommúniskrar hreyfingar. Hingaö til hefur verið vægast sagt sterk tilhneyging til þess hjá þeim, sem kenna sig við kommúnisma að búa sér til úr látnum leiðtogum hreyfingar- innar annað hvort hálfguði eða djölfla i mannsmynd. Þrátt fyrir miklar breytingar á sviði stjórnmála og efnahags- mála frá láti Maos i Kina er þvi ekki hægt að neita að Kinverjar hampa enn kenningum Maos. Þeir eru enn maoistar þó svo að innihald maöismans hjá þeim hafi breyst töluvert á þessum árum. Nemendur frá tslandi, Finnlandi og Sviþjóð viö Pekingháskóla standa við krans, sem nemendur frá Norðurlöndum gerðu tii að minnast Maós Zedong. neöanmals Kagnar Baidursson skrifar grein i tilefni þess, að fimm ár eru nú liðin siðan Maöformaður var allur og fjallar um þá, sem siðanhafa farið með æðstu völd i Kina. margfalt meira starfsþreki en Deng. Það er ekki nokkur vafi á þvi að Hu Yaobang er harðlinu- kommúnisti og andstaða hans við menningarbyltinguna er fyrst og fremst sprottin af þvi að hann álitur hana hafa verið andsósialiska i eðli sinu, hún hafi byggt á huglægu mati á kin- versku þjóðfélagi og ekki verið leidd af meðvitaðri sósialiskri fræðikenningu, heldur af hug- spekilegum stjórnleysis- dramórum vöfðum i dularklæði byltingarsinnaðs orðavaðals. Að öllu jöfnu er Hu Yaobang mjög varkár en ákveðinn stjórnmálamaður sem forðast pólitiska og fræðilega kollhnisa og hundakúnstir þær sem Deng Xiaoping hefur stundum látið sjá tU sin. Með þvi að staða Hu Yaobangs hefur eflst i leiðsögn flokksinshefurmáttgreina nýja vinstri sveiflu i kinverskum stjórnmálum. Maó formaður

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.