Vísir - 21.09.1981, Síða 22

Vísir - 21.09.1981, Síða 22
22 VfSIR Mánudagur 21. september 1981 ÉÉI mmm WKm mm Wmm fJwmm :>;XvXv app wmm WMwÆm. mannlíí Menn hafa haldið þvi fram, sennilega með réttu, að frjálsræði i kynferðis- málum hafi aukist mjög á Vesturlöndum á undanförnum árum og reyndar er talað um byltingu i þvi sambandi. Mönnum bregður þvi við, þegar frægar persónur lýsa opinberlega yfir bindindissemi i þessum efnum, eins og fram kom i erlendri blaðagrein ekki alls fyrir löngu og hér er vitnað til. Hin skirllfa fyrirsæta, Stefanie Marrian. Ein af eftirsóttustu fyrirsætum Englands, Stefanie Marrian, lýsti þvi þar yfir, að hún hafi hætt öllu kynlifi fyrir fjórum árum og hafi siðan ekki átt elskhuga. A sama vettvangi lýsti Andy Warhol, popplistamaður frá New York, þvi yfir, að hann sjái jafnmikla fegurð i súpupakka og Marilyn Monroe og að hann hafi lifað skirlifi siöastliðin tuttugu ár. Stefaniesegir: — „Fyrir flestar konur i dag er kynlif alveg tilgangslaust, nema með mannin- um sem þær elska, — og bestu mennirnir eru allir kvæntir. Ég er upp Ur þvi vaxin að hoppa upp i rúm með hverjum sem ér. Ég vil eiga gamaldags kærasta, sem færir mér blóm ogbýöur mér Ut að boröa öðru hverju.” Andy heíur þetta um málið að segja: — Ég hef átt ágætan kunningsskap við stUlku i sex ár og við tölumst alltaf viö i sima og ekkert umfram það. Ég bý uppi i bæ og hUn niðri i bæ .svoaðþetta hentar ágætlega. Kynlif er miklu meira spennandi á hvita tjaldinu Andy Warhol, hefur ekki verið með kvenmanni i tuttugu ár. og i bókum en á milli lakanna.” 1 áðurnefndri blaðagrein er þvi haldið fram, að kynlifsbindindi sé nU að breiðast Ut eins og tiskufyr- irbrigði. Þessi „nýbylgja” er þegar hafin i Bandrikjunum og siglir nU hraðbyri yfir til Evrópu undir kjörorðinu: „Ekkert kynlif, takk”. Er þessu likt við mUgsefj- un, likt og þegar hópar fólks taka sig saman um að hætta að reykja. Sálfræðingurinn Gabrielle Brown, frá Kaliforniu hefur tjáð sig um málið og er með tilgátu um það, hvers vegna æ fleiri forðast kynlifið. — „Það má likja þessu við knattspyrnu. Eftir að knattspyrnuvertiðinni lýkur, eru menn orðnir hundleiðir á boltan- um og leikmönnum. Menn hafa einfaldlega fengið of mikið af svo góðu i kynlifinu”, — segir Gabrielle. Og félagsfræðingur einn i Lon- don bætir við: — „Fólk er farið að gera sér grein fyrir, aö kynlif leysir ekki allan vanda, eins og oft hefur verið haldið fram.” Kynlífsbindindi breiöist út Reagan á móður sinni allt að þakka Eldri bróðir Ronalds Reagan Bandarikjaforseta, Neil, hefur sagt frá þvi hversu mikil áhrif móðir þeirra hafði á framtiö þeirra bræðra og það sé ekki sist - uppeldi hennar fyrir aö þakka að Ronald sé oröin það sem hann er. Neil var tveggja ára, er Ronald fæddist, og var móöir hans bUin að lofa honum systur. Þegar litill bróðir birtist, varö Neil svo reiður, að hann neitaði að sjá hann. Móðir þeirra var mjög siöprúð og guðrækin kona, og byrjaöi að siða drengina sina til frá unga aldri. Eitt sinn er þeir voru ný- búnir aö læra að bölva, og æfðu sig óspart, heyrði hUn til þeirra, og tók hUn umsvifalaust niður um þá og hýddi duglega. Neil segist aldrei gleyma þeirri stundu, en siðan þá, hafi hvorugir þeirra notaö slikan munnsöfnuð. Trúrækni sína hafa þeir frá á- hrifum móðurinnar, sem vann mikið fyrir kirkjuna i sókninni, hUn heimsótti meöal annars sjUkrahUs og fangelsi i trUar legum tilgangi. HUn spilaði á mandólin fyrir fangana og söng sálma og bað fyrir þeim. Nelle Reagan, lést fyrir nitján árum, og segir Neil að hUn heföi ekki orðið vitund undrandi, ef hún vissi að sonur hennar væri for- seti Bandarikjanna. HUn hafði þaö oft á orði, aö annar sona hennar yrði mjög háttsettur maður. Frank Sinatra hyggst nú fara i mál viö ameriska ^ vikublaðiö Star. Á forsiöu þess fyr- ir skömmu mátti lesa/ að blaðið heföi tekið einkaviðtal viö leikarann um peninga, konur og ótrygga vini. Frank segist aldrei hafa veitt þessu blaði viðtal og vill nú fá 75 milljónir króna í bætur... Eldri bróðir forsetans. Móðir Reagans.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.