Vísir - 22.10.1981, Blaðsíða 5
/
Jaruzelski virðist ætia aö herða tökin i Póllandi.
Pðlland:
Stjórnvðld
herða tðkin
Bann við þvi, að fólk safnist
saman á almanna færi, tók gildi i
Wroclaw-héraði i suðvestur Pól-
landi i gær, eftir óeirðir, sem þar
brutust út.
Félagar i Einingu tóku
þátt i þeim óeirðum, að sögn
fréttastofunnar PAP.
Slikt bann hefur ekki verið sett i
Póllandi frá þvi að uppreisn
óháðu verkalýðsfélaganna hófst
sumarið 1980. Bann þetta kemur i
kjölfar harðari afstöðu lögreglu-
yfirvalda gegn þvi, sem pólsk
stjórnvöld kalla rikisfjandsam-
legar aðgerðir.
Moon neitar
Séra Moon, yfirniaður og stofn-
andi Sameiningarkirkjunnar,
sem reyndar er betur þekkt sem
Moonistahreyfingin, kom til New
York i gærkvöldi, en þar hefjast
fljótlega réttarhöld yfir honum.
Moon er sakaður um fjármála-
brall og gróf skattsvik.
Moon mun i dag svara sakargift-
um i réttarsal, og á eftir ætlar
hann að flytja ræðu á stuðnings-
mannafundi, en meðlimir i Moon-
istahreyfingunni i
Bandarikjunum eru um 30 þúsund
talsins. Á fundinum ætlar Moon
að visa öllum sakargiftum á bug.
Moonistahreyfingin er heldur
illa séð i Bandarikjunum og er
hreyfingin sökuð um að heilaþvo
unglinga og breyta þeim þannig i
Moon-ista, sem öllu fórna fyrir
kirkju sina og þó sérstaklega séra
Moon. Fulltrúar Sameiningar-
kirkjunnar neita öllum slikum
sakargiftum.
Fulltrúar Moonista sögðu á
blaðamannafundi i gær, að
réttarhöldin væru ekkert annað
en trúarlegar ofsóknir. Heil brú
væri ekki til i ásökunum á hendur
séra Moon, ekki vottur af sönn-
unum væri fyrir hendi.
Séra Moon er frá Kóreu, en
hann hefur átt lögheimili i Banda-
rikjunum frá þvi árið 1971.
Borgarskæru-
liði handtekinn
l New York
Ein af fáum konum, sem kom-
ist hafa á topp tiu listann hjá al-
rikislögreglunni bandarisku
(FBI) hefur nú verið handtekin,
eftir mikinn skotbardaga, þar
sem öryggisvörður og tveir lög-
reglumenn voru skotnir til bana.
Katherine Boudin.sem nú er 38
ára gömul, komst fyrir ellefu ár-
um á lista yfir þá tiu afbrota-
menn, sem FBI hefði mestan hug
á að góma. Þá komst hún undan
eftir mikla sprengingu, er varð i
sprengiefnaverksmiðju róttæks
hóps, er hún starfaði með.
Hópur þessi hafði þá á stefnu-
skránni að koma hinu kapitalíska
skipulagi i Bandarikjunum á knó.
og liður i þeirri baráttu var að
koma fyrir sprengjum, helst i
opinberum byggingum.
Katherine Boudin var svo
handtekin i vikunni, þegar lög-
reglan stöðvaði fjóra bankaræn-
ingja i New York. Ekki tókst þó
að stöðva ræningjana fyrr en þrir
menn-lágu i valnum, eins og fyrr
segir.
Það eina, sem austur-þýsku fjöl-
skyldurnar tvær tóku með sér á
flóttanum, var þessi brúða
tveggja ára gömlu stúlkunnar.
FIMM A
TVEGGJA
MANNA
KAJAK
VFIR
EYSTRA-
SALTIR
Fimm Austur-Þjóðvi rjar flúðu til Danmerkur á sunnudaginn mel
þvi aö sigla yfir Eystra ialtið i tveimur kajökum. Þetta voru tvenn ung
hjón og stúlkubarn 2 '/2árs gamalt.
Siglingin yfir Eystrasaltið tók
þau fjórtán tima og lentu þau i
mestu hrakningum vegna veðurs,
að þvi ónefndu, aðannarkajakinn
valt, þegar þau áttu drjúgan spöl
eftir til eyjarinnar Mön, sem er
suðaustur af Sjálandi. Urðu þau
aö kúldrast fimm i tveggja
manna kajaknum það sem eftir
var leiðarinnar.
Fimmmenningarnir voru að
sögn aðframkomnir, er þeir komu
i land á Mön, en jafníramt hæst-
ánægðir með velheppnaöan
flótta.
t þessum kajak sigldu fimm manns yfir Eystrasaltið I leiöindaveðri