Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.2001, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. FEBRÚAR 2001
MYNDIR SEM SEGJA
MEIRA EN ÞÚSUND ORÐ
Um þessar mundir stendur yfir í
Gerðarsafni – Listasafni Kópa-
vogs sýning Blaðaljósmynd-
arafélags Íslands á úrvali ljós-
mynda frá síðasta ári.
Aldamótaárið er þar gert upp.
Myndirnar sem hér birtast voru
valdar þær bestu í sínum
efnisflokki af þriggja manna
dómnefnd. Alls er að finna 150
myndir á sýningunni en 35
ljósmyndarar sendu inn
rúmlega sex hundruð myndir
og var þátttakan með mesta
móti hingað til.
Morgunblaðið/Þorkell
Fréttamynd ársins: Á sorg-
arstundu, minningarathöfn um
Einar Örn Birgis. Dómnefndin
segir myndina í senn nærgöngula
og tillitssama og koma ein-
staklega vel til skila þeim tilfinn-
ingum sem bærast með syrgj-
endum.
Morgunblaðið/Þorkell
Skoplegasta myndin: Or-
aníumenn og Ian Paisley.
Dómnefnd segir þetta
grátbroslega ljósmynd
frá Norður-Írlandi sem
jafnframt er full af háði
sem endurspegli öm-
urlegt ástand.
Ljósmynd/Ari Magg
Tískumynd ársins: Reykjavík collection. Dómnefndin telur
myndina óvanalega og um leið úthugsaða, þar sem íslensk nátt-
úra er notuð án þess að verða yfirþyrmandi. Með henni þykir
sleginn nýr og tær hljómur í íslenskri tískuljósmyndun.
Ljósmynd/Ari Magg
Portrett ársins: Síungur töffari suður með sjó. „Heiðarleg ljós-
mynd full af dulmagnaðri birtu,“ segir dómnefnd sem telur mynd-
ina koma vel til skila hinum síunga töffara, Rúnari Júlíussyni,
dægurtónlistarmanninum gamalreynda af Suðurnesjum.
Ljósmynd/Ari Magg
Mynd ársins: Baldur. „Feiknalega grípandi ljósmynd, kraft-
mikil og óræð. Myndin vekur fjölda spurninga um tilveru
mannsins og vegferð hans. Hún hefur auk þess til að bera
einstaklega fallega birtu og ljóðræna myndbyggingu.“