Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. FEBRÚAR 2001 5 vísi að þeim hugmyndum sem síðar áttu eftir að blómstra í allsérstæða og verulega umdeilda þýðingarkenningu. Áherslan sem lögð er á þekkingu og vitneskju þýðandans og mikilvægi smáatriða er viðvarandi einkenni á hugmynd- um Nabokovs og rúmum tuttugu árum síðar sýndi hann í verki hvernig hann ætlaðist til að þýðendur bæru sig að við störf sín. Þýðing hans á Évgení Ónegin var metnaðarfullt verkefni og það stærsta sem hann nokkru sinni tók sér fyr- ir hendur. Vinnan við Ónegin hófst árið 1945 þegar Nabokov gaf út þrjá kafla í bundnu máli. Segja má að hann hafi verið kominn vel áleiðis þegar þýðingin var gefin út í fjórum bókum og óbundnu máli árið 1964 og að hann hafi síðan lokið vinnunni 1975 þegar endurskoðuð þýð- ingin birtist í enn óbundnara máli. Breytingarnar sem verða á hugmyndum Nabokovs frá því að ritgerðin um þýðingar- listina var skrifuð og þar til hann réðst af fullri alvöru í Ónegin eru róttækar og í raun gagn- gerar hvað eitt atriði varðar. Í ritgerðinni gætir enn þeirrar skoðunar að þýðandanum, eftir að hafa fullnægt ákveðnum skilyrðum, geti lánast þýðingaverkefnið. Þetta viðhorf breytist eftir að Nabokov hefur vinnu sína við Ónegin. „Það er ómögulegt,“ segir hann á ofanverðum sjötta áratugnum, „að þýða Ónegin og halda rímskip- aninni.“ Og ef valið stendur milli „ríms og rök- vísi“ eins og hann orðar það er mikilvægara að koma innihaldinu til skila en bragfræðinni. Lausnin sem Nabokov leggur fram er að lýsa rími og öðrum bragfræðilegum eiginleikum textans í aftanmálsgreinum, ásamt vísunum og félagslegum skírskotunum. Allt annað er les- væn umorðun, paródering og skrumskæling þar sem flatneskjulegt orðgjálfur er látið fylla upp í textann svo að formið haldist. Á þessu gat Nabokov ekki lýst nægilegri fyrirlitningu. Évgení Ónegin Það sem þessi rómaði fagurkeri og stílisti gerði í þýðingu sinni á Púshkín var að fórna fegurð ljóðsins fyrir merkingu textans. Bent hefur verið á að fáir, ef nokkur, hefðu átt að geta verið betur í stakk búnir til að takast á við þýðingu á Púshkin í bundnu máli. Af hverju tekur Nabokov þessa ákvörðun? Á fyrstu blað- síðu fyrsta bindis þýðingarinnar svarar hann spurningunni með því að varpa fram annarri: Hvernig skilgreinir maður orðið „þýðing“? Þetta er retórísk spurning því í næstu máls- grein skiptir hann tilraunum til að skila ljóðum í nýtt tungumál í þrjá flokka: 1) Umorðanir, frjáls útgáfa frumtextans með viðbótum og úr- fellingum til að mæta kröfum formsins, vænt- ingum neytenda og fáfræði þýðandans. Slíkar umorðanir kunna að hljóma vel en það er bara glingur og gabb og skiptir ekki máli. 2) Orðfræðilegar þýðingar. Þar sem orð eru þýdd eftir augljósustu vísun þeirra og í réttri röð. Þetta getur maskína gert undir umsjá málfræðings. 3) Bókstafleg þýðing. Hér er merk- ing frumtextans, eins og hún er skilin í víðu samhengi, færð yfir í annað tungumál með eins mikilli nákvæmni og málfræðilegar og menningarlegar takmarkanir tungumálsins leyfa. Þetta er það eina sem hægt er að kalla þýðingu. Í texta Nabokovs átti Púshkin að skína í gegn, en þýðandinn vera ósýnilegur. Sem er dálítið fyndið vegna þess að í jafnankannalegri þýðingu sem þessari er þýðandinn langt frá því að vera ósýnilegur, les- endur rekast harkalega á hann um leið og lestur hefst – svo ólík er þýð- ingin hefðbundnum ljóðaþýðingum, orðtakið er á köflum stirt og alltaf óskáldlegt. En Nabokov stóð á sama um það og stefndi ekki að ósýnileika sem gerði það að verkum að lesand- inn gleymdi að um þýðingu væri að ræða. Nabokov ákvað að fela sig ekki á bak við les- vænan texta. Hann birtir Púshkin eins ná- kvæmlega og hann telur að hægt sé að gera í öðru tungumáli en rússnesku. Til að svo megi verða skrúfar hann niður í miðluninni, í staðinn fyrir að reyna að miðla öllu ljóðinu, formi og innihaldi, einskorðar hann sig við merkinguna. Á því leikur síðan enginn vafi að þýðingin trufl- ar lesandann með framandi orðnotkun og mál- fari. En hvers vegna ekki, spyr Nabokov? Ónegin á ensku á sér ekkert sjálfstætt líf, slétt og felld umgjörð er blekking. Þetta er rúss- neskt ljóð og ef lesandinn vill raunverulega kynnast því er næsta skref að læra rússnesku. Þýðing Nabokovs er bara stoðgrind, segir hann. Sumir líta á þessi harðneskjulegu orð sem uppgjöf, aðrir sem raunsæi. Nabokov var hins vegar vel meðvitaður um að lesvæna rím- aða þýðingin væri hið ráðandi viðmið hvað ljóðaþýðingar varðar og að með því að nota að- ferðafræðina sem hann hafði kosið sér staðsetti hann verk sitt í hrópandi andstöðu við vænt- ingar flestra lesenda. Þetta olli honum þó ekki nema takmörkuðum áhyggjum, hann var óhræddur við að bjóða hefðinni birginn og svar- aði gagnrýnendum fullum hálsi eins og greinin bráðskemmtilega „Reply to My Critics“ er sýnidæmi um, en hana er að finna í safnritinu Strong Opinions. Vel má velta fyrir sér viðmiðinu sem Nabok- ov mótmælir eins og Ástráður Eysteinsson ger- ir í bókinni Tvímæli. Ástráður spyr hvort ekki sé á ferðinni dulbúin herferð fyrir áferðarslétt- um textum sem í engu stugga við þeirri fag- urfræði og þeim málheimi sem fyrir er þegar læsileiki og „frelsi“ þýð- andans verður gagnrýnislaus forsenda allra þýðinga. Lipur- legar þýðingar sem undir merkjum hins þýðgenga máls eiga á hættu að sneiða fram hjá leiðum sem gætu glætt textann lífi væri glímt við þær, bætir hann við. Hjá Nabokov er markmiðið reyndar ekki að glæða textann lífi. Heldur vill hann styðja við lesand- ann á erfiðri leið inn í annan málheim, en það sem Ástráður kallar viðnám þýðingarinnar, sem leiðir til þess að viss menningarmunur frumtextans og þýðingarmálsins birtist lesend- um, má sjá sem lykilhugtak í Ónegin-þýðingu Nabokovs. Nabokov vill að þýðingin bendi til frumtextans, innganginn endar hann á að segja að hann vonist til að textinn, og ekki síst skýr- ingarnar, verði til þess að lesendur finni hjá sér löngun til þess að læra tungumál Púshkíns og lesa Ónegin aftur, án stoðgrindarinnar. Þetta þýðir að kannski er viðnámið of mikið fyrir al- menna lesendur. Nabokov myndi hins vegar segja að það væru ekki til neinir almennir les- endur og viðnámið væri ekki nægilegt. Eftirköst Ónegins Það er einkennilegt að utan við Lólítu hefur sennilega engin bók Nabokovs vakið jafnhat- rammar deilur og Ónegin-þýðingin. Allir sem einhvers voru megnugir í bandarísku bók- menntalífi tjáðu sig um hana. Margir voru hrifnir en jafnmargir voru það ekki. Ritdeil- urnar milli Edmunds Wilsons og Nabokovs sem spruttu upp í kjölfar þýðingarinnar eru skráðar á spjöld bókmenntasögunnar enda einkar blóðugar. Wilson var á þessum tíma ein- hver virtasti bókmenntafræðingur Bandaríkj- anna og Nabokov sömuleiðis á hátindi frægð- arinnar. Þar fyrir utan höfðu þeir verið nánir vinir um áratuga skeið, sem gerði deilurnar enn safaríkari því hvorugur hikaði við persónulegar aðdróttanir. Anthony Burgess, sem lýst hafði hrifningu sinni á þýðingu Nabokovs, sagði að þegar þessir risar fóru að takast á hefðu minni spámenn eins og hann sjálfur flýtt sér í skjól. Það var náttúrlega enginn sérstakur endi bundinn á deilurnar umhverfis Ónegin, skoð- anir eru skiptar enn þann dag í dag, en vinskap Nabokovs og Wilsons lauk þarna. En það var ekki bara þýðingin sem lenti á milli tannanna á fólki. Í rauninni var þýðingin ekki nema brot af útgáfunni. Skýringarnar fylltu þrjú bindi, þýðingin aðeins hið fyrsta af fjórum. Almennt viðhorf Nabokovs eins og það birtist þarna virðist hafa farið í taugarnar á mörgum. Enda þótt hann hafi að flestu leyti haft ströngustu fræðikröfur að leiðarljósi kenn- ir margra grasa í viðbótarbindunum. Þær eru ítarlegasta rannsókn sem unnin hefur verið á söguljóði Púshkín, samstaða er um þessa skoð- un meðal rússneskufræðinga, en öðrum þræði er persóna Nabokovs sjálfs nokkuð fyrirferð- armikil á köflum. Hann hikar ekki við að gera stólpagrín að virtum rithöfundum sem honum mislíka af einhverjum sökum, hann tætti í sundur fyrri þýðingar á ljóðinu, tengdi það eig- in æskuminningum og dró enga dul á fyrirlitn- ingu sína á Sovétríkjunum. Svona mætti lengi telja. Þetta eykur enn við skilgreiningarvand- ann umhverfis Nabokov því það er ekki vaninn að fræðimenn hegði sér á þennan hátt, séu svona frjálslegir í fasi og fórni virðulegri fjar- lægð fyrir persónulegar samræður við lesend- ur. Þó tók Nabokov stöðu sína sem fræðimaður afar alvarlega og stundaði að auki náttúruvís- indi af kappi og má til dæmis nefna að fiðrild- ategund sem hann uppgötvaði var skírð eftir honum. Truflaða ljóðskýrandann Charles Kinbote, aðalsöguhetju skáldsögunnar Pale Fire sem Nabokov hafði í smíðum meðan á þýð- ingarvinnunni stóð, má því að mörgu leyti sjá sem brenglaða spegilmynd þýðandans Nabok- ovs. Síðan deila menn bara um hversu brengluð spegilmyndin sé í raun. Heimildir: Ástráður Eysteinsson. Tvímæli. Þýðingar og bók- menntir. Bókmenntafræðistofnun. Háskólaútgáf- an. Reykjavík 1996. Boyd, Brian: Vladimir Nabokov: The American Ye- ars. Princeton University Press, New Jersey 1991. Nabokov, Vladimir. „The Art of Translation“. Lect- ures on Russian Literature. Harcourt Brace. New York 1981. Nabokov, Vladimir. Eugene Onegin. A Novel in Verse by Alexander Pushkin, vol. 1. Routledge & Keagen Paul. London 1964. Nabokov, Vladimir. “Problems of Translation: Onegin in English". Theories of Translation. Ritstj. Rainer Schulte og John Biguenet. Chicago Uni- versity Press. Chicago 1992. Nabokov, Vladimir. Speak, Memory. An Autobio- graphy Revisited. Vintage International. New York 1989 (fyrsta útgáfa 1967). Nabokov, Vladimir. Strong Opinions. Vintage Int- ernational. New York 1990 (fyrsta útgáfa 1973). Pitman, Robert. Encounter. Febrúar 1959. Nabokov á forsíðu Newsweek árið 1962. Tilefnið er útgáfa Pale Fire en augljóst er á hvaða skáldsögu frægð hans byggist þar sem vísað er til hans sem „skapara Lólítu“. Höfundur er bókmenntafræðingur. Höfundurinn við störf. Évgení Ónegin eftir Alexander Púshkínvar gefin út í fjórum bindum í þýðinguNabokovs árið 1964. Útgáfan vaktimiklar deilur enda óhefðbundinni að-ferð beitt við þýðinguna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.