Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. FEBRÚAR 2001 Í GEGNUM aldirnar hefur ábyggilega margt verið á sveimi í Krýsuvík, þeim goðmagnaða stað á Reykjanesi sem enn þann dag í dag er kenndur við kynduga hluti og þjóðflokk sem hvergi sér stað í sögu þeirrar þjóðar sem nú byggir land- ið. Ævintýralegustu sagnirnar sem enn lifa þrátt fyrir nokkurt ræktarleysi eru af Krýsum, kristnum gullgerðarmönnum sem áttu sér þar ból fyrir tíma landnáms norrænna manna sem segir af í Landnámu Ara fróða og við tökum sem sjálfsögðum sannindum og lær- um við móðurhné. Hvort sögurnar af Krýsunum í Krýsuvíkinni verði einhvern tíman eitthvað annað en þjóðsögur vitum við ekki að svo komnu máli, en mikið yrði það gaman ef einhver áhugasamur tæki sig til og rannsakaði málið of- an í kjölinn. Sveinn Björnsson listmálari dvaldi löngum stundum í Krýsuvík og myndheimur hans gefur ýmislegt til kynna um handanheima og yfirnáttúrulegar verur á sveimi. Það þarf ekki annað en að horfa á klettana í Krýsuvík, þá koma andlitin í ljós og horfa á okkur af mynd- fletinum með sambland af undrun og eftirvænt- ingu í augum, kannski ofurlítilli ásökun líka. Í Hafnarborg í Hafnarfirði gefst fólki kostur á að kynna sér þennan dulmagnaða myndheim því þar verður í dag opnuð yfirlitssýning á Krýsu- víkurmyndum Sveins Björnssonar en það tíma- bil á ferli málarans spannar svo til allan listferil hans. ,,Við erum að búa til yfirlit yfir listferil Sveins, með því að takmarka hann við Krýsu- víkurmyndir hans,“ segir Erlendur Sveinsson, sonur listamannsins. Hann og bræður hans, Sveinn og Þórður, stofnuðu Sveinssafn fyrir þremur árum, en það stendur að sýningunni í samvinnu við Hafnarborg. ,,Ef við ætluðum okkur að búa til yfirlitssýn- ingu yfir allt æviverkið þyrfti meira að koma til. Þá þyrfti að hafa í huga myndir sem eru í eigu annarra, reyndar eru einnig myndir í eigu ann- arra á þessari sýningu, og skoða þetta í heild sinni til að ná réttu úrvali. Faðir minn hélt aldrei yfirlitssýningu á eigin verkum, það var ein sýn- ing í kringum 1990 sem hann kallaði ,,Gamlar og nýjar myndir“ og var bara svona svipmyndir af gömlu og nýju. Hann sagði alla tíð við okkur synina: ,,Yfirlitssýningu haldið þið þegar ég er dauður.“ Síðasta sýningin hans var á því allra nýjasta sem hann var að gera, þá sýningu hélt hann í Gerðarsafni rétt áður en hann lést. Þetta var ár- ið 1997 og það stóð svo tæpt að í raun og veru tókum við sýninguna niður daginn sem hann andaðist. Það má með sanni segja að hann hafi kvatt með ,,grand finale“.“ Krýsuvíkin varð föður þínum snemma hug- stæð? ,,Hann byrjaði mjög snemma að mála í Krýsuvíkinni, hérna höfum við elstu myndina sem hann málaði þar samkvæmt okkar bestu vitneskju. Það vill nú svo skemmtilega til að hún er af Krýsuvíkurkirkju og hún var sýnd á fyrstu sýningu hans í Listamannaskálanum í Reykja- vík árið 1954. Ég á mér einhverja æskuminn- ingu um það að hafa legið þarna í tjaldi með for- eldrum mínum þetta sumar þegar þessi mynd varð til. Þá hef ég verið svona þriggja til fjög- urra ára gamall. Á myndinni er ennþá uppi- standandi hluti af Krýsuvíkurbænum. Á þess- um vegg hérna er því í rauninni upphafið og endirinn samankominn. Þegar hann lést tókum við ákvörðun um að hann yrði jarðsettur í Krýsuvíkurkirkjugarði og þannig eiginlega lokast hringurinn.“ Þetta er þá fyrsta myndin sem hann sýnir op- inberlega. ,,Þetta er fyrsta Krýsuvíkurmyndin sem hann sýnir en hún er á sýningu með öllu því sem hann hafði fram að færa árið 1954. Hins vegar var hún númer eitt á sýningunni og það er gam- an af því. Síðan gerist það í tengslum við jarð- arförina að kirkjunni er gert til góða, hún er tjörguð og hún er löguð, og heilmikið gert fyrir hana. Ég er að gera kvikmynd um hann og í kvikmyndinni málar hann altaristöflu fyrir kirkjuna og gengur með myndina frá vinnustofu sinni og yfir í kirkjuna og hengir hana upp þar. Myndin endar þar og síðan kemur eilítill eft- irmáli um andlát hans og um jarðarförina og þá fylgir þessi altaristöflumynd honum og hefur síðan hangið uppi í Krýsuvíkurkirkju á sumrin. Hún er tekin niður að hausti og hengd upp að vori við messu. Á þessari ljósmynd, þar sem hann er að ganga með altarismyndina í Krýsu- víkinni sinni, eins og við köllum þessa sýningu, þá er hann að fara með síðustu mynd sína yfir í kirkjuna. Þetta er með öðrum orðum eins konar Alfa og Ómega listferilsins, upphafið og end- irinn.“ Heilaga konan, leiðsögnin ,,Sýningin er hugsuð þannig að við ætlum að gefa fólki tilfinningu fyrir þessum þremur höf- uðstílbrigðum hans, landslagsmálverkinu sem sjávarmyndirnar falla undir, sem hann varð þekktur fyrir í byrjun ferilsins, þar sem hann málar hlutina eins og þeir koma fyrir. Eftir það fer hann til náms í Danmörku, rífur sig upp með fjölskyldu og innritast í Listaháskólann í Kaup- mannahöfn, haustið 1956. Hérna er mynd frá árinu 1958, eftir að hann er snúinn heim á ný og Krýsuvíkin grípur hann fastataki. Út úr klett- unum í Krýsuvík fara síðan að tóna fram andlit, frumstæð, það er pínulítið ógnvekjandi hvernig þau horfa svona beint á okkur. Þessi andlit blasa við í klettunum í Krýsuvík, það er blindur mað- ur sem kemur ekki auga á þessi andlit. Hérna er þessi Indjánaklettur sem við kölluðum alltaf svo, indjánahöfðinginn sjálfur og svo eru hérna fleiri andlit og kannski er það ekki óeðlilegt að þetta fari að sækja á hann þegar hann fer að vera einn innan um þessa kletta þarna niður við vatnið.“ En litirnir eru aðrir, litameðferðin virðist hafa gerbreyst? ,,Já, það er rétt, litirnir taka breytingum. Þessi mynd er í raun dálítið yngri en næsta mynd en við kjósum að raða þeim svona upp því þetta er sama vatn og sama tunglsljós, og síðan eru andlitin komin fram. Þessi heimur, sem er að birtast hér, á eftir að ráða ríkjum næstu þrjá áratugina.“ Þetta er sannarlega dulúðugur og óræður heimur, er þetta liðið fólk sem kemur þarna fram á myndflötinn? Handanheimar, liðið fólk í Krýsuvík? ,,Áreiðanlega í bland, í fyrsta lagi blasir þetta nú við á yfirborðinu, það er nokkuð öruggt. Í annan stað þá fann hann fyrir hlutum. Hann orðaði það þannig að hann fann fyrir leiðsögn, honum fannst einhver standa fyrir aftan sig og fylgjast með sér. Það er ónákvæmt að segja ein- hver, honum fannst það vera kona og þessa konu kallar hann til að byrja með heilaga konu, hann kallar hana ,,hulduna sína“ og síðar meir ,,madonnuna sína“. Að lokum fær hún titilinn „Krýsuvíkurmadonnan“. Sem krakki á Skálum á Langanesi, þar sem hann ólst upp, þakkar hann kalli huldukonunnar það að hann fór sér ekki að voða í þoku. Hann var orðinn villtur og stefndi bara hreinlega að hengifluginu, þá fannst honum vera kallað í sig og hann sneri við og gerði sér grein fyrir því síðar að þetta hefði bjargað lífi hans.“ Það sem ég á við er það að þetta er ákaflega sterk mynd. Það er eins og það séu handan- heimar á myndinni og líka gæti þetta hæglega verið saga íslensku þjóðarinnar, þessar hryggu verur sem þarna standa, sagan í gegnum ald- irnar af örbirgðinni sem ríkti meðal almúga- fólks. Þetta umkomulausa sveitafólk gæti þann- ig staðið fyrir þjóðina á tímum allsleysisins eða hvað? ,,Ég tek undir það vegna þess að hann hefur tilfinningu fyrir því að amma hans ólst upp þarna á Krýsuvíkurbænum til fimm ára aldurs. Morgunblaðið/Kristinn Erlendur Sveinsson við eitt af verkum föður síns, Krýsuvíkurmadonnuna, í Hafnarborg. HULDUKONA OG HAND- ANHEIMAR Í KRÝSUVÍK Yfirlitssýning á Krýsuvíkurmyndum Sveins Björns- sonar listmálara verður opnuð í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag. Krýsuvíkin mín heitir sýningin og er haldin í samvinnu Hafnarborgar og Sveinssafns í tilefni þess að á liðnu ári hefði Sveinn orðið 75 ára gamall. ÞORVARÐUR HJÁLMARSSON skoðaði sýninguna í fylgd Erlendar Sveinssonar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.