Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Síða 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. FEBRÚAR 2001
náttúrufyrirbæri og fyrir þær sakir dregið
að sér athygli og á 18. öld voru þær rann-
sakaðar sem hugsanlega ein af helstu auðs-
uppsprettum landsins.
Einn kafli í Ferðabókinni fjallar um öl-
keldur á Snæfellsnesi en þær bæta héraðinu
upp þann missir að hafa ekki heitt vatn að
áliti höfundar bókarinnar. En hvað er öl-
kelda? Skilgreiningin í Ferðabókinni er sú
að ölkeldur eru „uppsprettur sem eru auð-
ugar af málmsöltum og með bragðmiklu
vatni“. Þessi skilgreining dugar alveg enn í
dag en í raun er hún miklu flóknari eins og
fram kemur í grein Stefáns Arnórssonar
prófessors í bókinni Eldur er í norðri.
Í Íslenskri orðabók segir um ölkeldur
„lind með köldu vatni sem ólgar af kolsýru
líkt og það sjóði“. Ölkelda er vatnsupp-
spretta þar sem vatnið er blandað koldíoxíði
sem kemur úr kviku í iðrum jarðar. Þær
finnast víða um land, heitar og kaldar, en
einkum þar sem gosbelti er undir og úti um
allan heim eru ölkeldur og sumar mjög
þekktar sem heilsulindir. Þessi tengsl eru
svo náin að í Íslenskri samheitaorðabók er
samheitið fyrir ölkeldu, heilsulind.
Rauðamelsölkelda
Þekktasta ölkelda landsins er sennilega
Rauðamelsölkelda en líklegt er að átt sé við
hana í Konungsskuggsjá þar sem fjallað er
um Hítardalsölkeldu. Þar er sagt að vatnið
úr henni sé jafnkraftmikið og sterkt öl
þannig að menn geti orðið drukknir. Öl var
Þ
AÐ er mikils vert að fá góða
læknishjálp þegar sjúkdóm
ber að höndum en betra er þó
að halda heilsunni og þurfa
aldrei að sjá framan í lækn-
inn,“ sagði Guðmundur
Björnsson landlæknir í al-
mennum fyrirlestri sem hann
flutti á annan dag jóla fyrir 100 árum. En
hvað gerði fólk fyrr á tímum til að halda
heilsunni? Á 18. öld jókst áhugi á heilbrigð-
ismálum meðal upplýstra manna og eitt af
því sem þeir töldu mikilvægt var að njóta
óspilltra afurða náttúrunnar eins og til
dæmis ávaxta og vatns, en vatn er ekki bara
vatn.
Í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna
Pálssonar segir að á Íslandi séu sex teg-
undir af drykkjarvatni. Það eru jökulvatn,
mýravatn, bergvatn, uppsprettu- og lind-
arvatn, kaldavermsl og hveravatn. Jökul-
vatn er ekki drukkið nema í neyð enda varla
hæft til neyslu. Mýravatn kemur úr brunn-
um sem eru grafnir og í botnin sest gulur
ryðleir en ofan á bláleit skán. Þetta vatn er
barkandi á bragðið og veldur aldrei neinum
óþægindum. Bergvatn er samheiti yfir ár-
og lækjarvatn og það er ætíð kalt, tært,
heilnæmt og algerlega bragðlaust. Upp-
sprettu- og lindarvatn er eftirsóttast því það
er léttara, kaldara og tærara. Kaldavermsl
er ennþá kaldara og tærara en uppsprettu-
vatnið. Það er einnig heilnæmara og meira
hressandi en allar aðrar bragðlausar vatns-
tegundir og það frýs ekki á vetrum. (Heyrt
hef ég þá sögu að á stríðsárunum hafi
bandarískir hermenn frétt af kaldavermsli
og náð sér í vatn á brúsa. Síðan hafi þeir
hellt því á bílvélar sem nokkurs konar frost-
lög en það virkaði auðvitað ekki og vélarnar
sprungu í næsta frosti.) Hveravatn er víða
notað til drykkjar þar sem það er lykt-
arlaust og auðveldara er að ná því en öðru
vatni. Þegar það hefur kólnað er það kæl-
andi svalt og bragðgott og þótt það sé lykt
af vatninu þá er það oftast bragðlaust. Sagt
er að menn kenni aldrei lasleika eða óþæg-
inda af hveravatni.
Ölkelduvatn var ekki talið meðal þessara
vatnstegunda enda hafði það sérstaka eig-
inleika. Ölkeldur hafa jafnan þótt merkilegt
talið einn mikilvægasti drykkur samfélags-
ins til forna en því miður er litlar líkur á að
menn hafi getað orðið ölvaðir af vatninu úr
keldunni. Þrátt fyrir það segir í Ferðabók-
inni að hún sé „vissulega mesta og besta á
öllu landinu“. Dæmi voru einnig um að ef
menn drukku mikið af ölkelduvatni á fast-
andi maga þá gátu þeir orðið ringlaðir og
getur það einnig skýrt nafngiftina. Ölkeld-
urnar á Snæfellsnesi sem greint er frá í
Ferðabók Eggerts og Bjarna voru átta en
sex þeirra voru rannsakaðar eftir kúnst-
arinnar reglum (sjá töflu 1).
Sagt er að vatnið í Rauðamelsölkeldu sé
tærara, bragðmeira og léttara en í öðrum
ölkeldum auk þess sem það hafi „þægilegan
súrkeim“ og þess vegna sé það góður
„svala- og hressingardrykkur“.
Ölkeldan við bæinn Ölkeldu er einnig vel
þekkt en það fékk þá einkunn að það væri
„dálítið beiskt og væmið á bragðið… og
barkandi í eðli sínu“ eins og ölkelduvatn er-
lendis. Á Fróðárheiði var ölkelda sem ferða-
menn sóttu gjarnan í enda vatnið svalandi
og hressandi án þess að valda nokkrum
óþægindum. Það var mun bragðbetra en úr
Ölkeldu. Í Ósakotsölkeldu við Búðaós var
vatnið mjólkurlitað og bragðmikið án þess
að hafa óþægilegan keim enda var töluvert
sótt í hana og mönnum varð gott af. Ólafs-
víkurdalsölkelda var lítið sótt enda úr leið
og vatnslítil en vatnið var bragðgott og
hressandi. Af öðrum ölkeldum segir fátt
enda var önnur þurr en hin fannst ekki en
þó gerðu þeir tilraunir með vatn úr Eið-
isölkeldu. Tilraunir sem voru gerðar fólust í
Mynd/Freydís Kristjánsdóttir
Ölkeldan við bæinn Ölkeldu er vel þekkt en það fékk þá einkunn að það væri „dálítið beiskt og væmið á bragðið… og barkandi í eðli sínu“, eins og
ölkelduvatn erlendis.
„Í bók Olaus Magnus
segir að á Íslandi séu
uppsprettur með fersku
vatni sem líkist þunnu
öli og skapi það íbúum
ánægju og heilbrigðan
smekk. Ölkelduvatn á
auðvitað ekkert skylt
við öl og hvernig
nafnið er tilkomið er
óvíst en hugsanlegt er
að það tengist því
hvernig það freyðir.“
DYGGÐIR
VATNANNA
ÖLKELDUR OG
HEILSULINDIR
E F T I R Ó L A F Í S B E R G
Tilraunir Eggerts og Bjarna
Nöfn efna sem sett voru út í ölkelduvatn ásamt nöfnum til að staðsetja ölkeldurnar. Greint er frá
hvaða litabreytingum vatnið tók við blöndun. 0 merkir að það hafi ekki komið nein svörun.
Tilraunir Aaskovs og Webers
Nöfn efna sem sett voru út í ölkelduvatn ásamt nöfnum til að staðsetja ölkeldurnar. Greint er frá hvaða litabreytingum vatnið tók við blöndun en
stundum gerðist það strax en í öðrum tilfellum daginn eftir. Ferlið var greint nákvæmlega sem og litabreytingar en hér er ekki gerður munur á held-
ur einungis nefndur sá litur sem kom á vatnið að hluta eða öllu leyti á meðan á rannsókninni stóð. 0 merkir að það hafi ekki komið nein svörun eða
að prófun hafi ekki verið gerð.
Efni pottaska fjólu- salmíak- saltpéturs- blekberja- járn-
Nafn seyði spíritus sýra duft vitríól
Ölkelda hvítt grænt hvítt ólga rauðbrúnt gult
Fróðárheiði 0 0 0 0 rauðbrúnt gult
Ósakot 0 rauðleitt 0 0 0 dökkt
Ólafsvík 0 rósrautt 0 0 brúnleitt gult
Eiði 0 grænleitt 0 0 svart 0
Rauðamelur 0 0 0 0 brúnleitt 0
Bjarnarnes 0 0 0 0 rauðleitt 0
Efni Silfur Kvika- Vínsteins- Fjólu- Blekberja- Blóð- Salmíak- Blý- Salt- Brenni-
Nafn silfur olía seyði duft lútur spíritus sykur pétur steinn
Ölkelda hvítt gult hvítt grænt grænt hvítt hvítt hvítt hvítt grátt
Fróðárheiði hvítt rauðgult hvítt grænt/blátt grænt hvítt hvítt hvítt hvítt grátt
Ósakot 0 0 0 blátt/grænt 0 0 0 hvítt 0 grátt
Rauðamelur hvítt 0 blátt kampavín* hvítt 0 grátt
Skógarnes hvítt gult 0 grænt blátt blátt ólífa* hvítt 0 grátt
* Litur á kampavíni og ólífuolíu var ekki skilgreindur á hefðbundinn litaskala.