Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.2001, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. FEBRÚAR 2001 7
kaflaskipti og má segja að þar eigi sér stað
nokkurs konar flæði úr ljóðum nútímaskáld-
anna inn í Passíusálmana. „Aðalinntakið er úr
sálmum í síðari hluta Passíusálmanna, sem
lýsa sjö orðum Krists á krossinum. Þannig
koma fyrir í síðari hluta verksins endurteknir
kaflar þar sem kórinn syngur frásögnina af
krossfestingunni, en einsöngvarinn syngur
orð Krists á krossinum. Á eftir fylgir hljóm-
sveitarkafli sem er eins konar túlkun eða út-
legging. Inn á milli syngur kórinn orðið
„passía“ sem stef og undirstrikar þannig þá
þjáningu sem verið er að fjalla um,“ segir
Hörður en þessa kafla rammar Hafliði inn
með upphafs- og lokaversum Passíusálmanna.
Glíman við eilífðina
Hörður segir glímu nútímamannsins við
hinar eilífu spurningar, efa hans í garð guð-
dómsins, birtast í þeim brotum úr nútímaljóð-
um sem koma fyrir í fyrri hluta tónverksins,
en þar er m.a. að finna línur úr Sálmum á at-
ómöld eftir Matthías Johannessen og Tíman-
um og vatninu eftir Stein Steinarr. „Afstaða
nútímamannsins endurspeglast í þeim sterku
átökum og spennu sem greina má í verkinu.
Þar tel ég að mikið komi frá Hafliða og hans
reynslu,“ segir Hörður og bætir því við að
þessi þáttur verksins gæði það ekki einungis
dýpt heldur einnig ótrúlegri fegurð.
Hörður bendir á að í ljóðabrotum nútíma-
skáldanna myndi hafið eins konar þema, sem
tákni smæð mannsins andspænis guðdómn-
um. Hörður segir hafið einnig lýsa vel þeirri
heildartilfinningu sem verkið veki hjá honum.
„Ég upplifi verkið sem risastórt haf sem
bylgjast í hægum, djúpum hreyfingum, en á
yfirborðinu glitra öll þau ljósbrot sem geta
verið svo stórkostleg í hinu stóra hafi. Hefð-
bundnar óratoríur skiptast venjulega niður í
afmarkaða kafla, en hjá Hafliða rennur hún
saman í einn sjó. Eina kennileitið er orðið
„passía“ sem kemur reglulega fyrir eins og
baujur sem minna okkur á umfjöllunarefni
verksins, sem er þjáningin.“
Hörður segist vera forvitinn að vita hvernig
áheyrendur upplifi verkið við frumflutninginn.
„Ég held að verkið hljóti að snerta menn, jafn-
vel þótt þeir hafi enga reynslu af því að hlusta
á nútímatónlist.“
Að lokum segist hana vona að með þessu
framlagi Hallgrímskirkju til tímamóta
Kristnitökuhátíðarinnar hafi orðið til eitthvað
nýtt og mikilvægt sem muni lifa. Hann bætir
við að þótt framkvæmd verkefnsisins hafi
kannski verið kostnaðarsöm muni flutningur
þess áreiðanlega skila gróða í öðrum skilningi
en þeim sem er í krónum talinn.
Morgunblaðið/Jim SmartMeðlimir í Mótettukórnum á æfingunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hafliði Hallgrímsson hlýðir á tónverkið í fyrsta sinn.
BANDARÍSKA messósópransöngkonan
Mary Nessinger syngur einsöng við frum-
flutning Passíu ópus 28 en Hafliði Hall-
grímsson tónskáld samdi verkið sérstaklega
með hana í huga. Söngkonan hefur á ferli
sínum lagt rækt við að flytja verk eftir nokk-
ur af áhugaverðustu tónskáldum nútímans
og hefur hún á undanförnum árum hlotið
mikið lof gagnrýnenda beggja vegna Atl-
antsála.
Nessinger kom hingað til lands síðastliðinn
miðvikudag og sagði hún fyrstu æfinguna
með kór og hljómsveit í Hallgrímskirkju hafa
gengið vel. „Þetta er gríðarlega fallegt verk
en um leið ólíkt öllu því sem ég hef heyrt áð-
ur. Verkið er uppfullt af fínlegum litbrigðum
en er um leið mjög djúpt. Það kemur líklega
til af því að Hafliði samdi það sérstaklega
fyrir hið sérstaka hljómrými kirkjunnar,“
segir hún.
Nessinger kynntist Hafliða fyrir nokkrum
árum er hún kom fram í Edinborg en þá lét
hann í ljós áhuga á að semja verk með hana í
huga. „Þegar hann fékk það verkefni að
semja verk fyrir Hallgrímskirkju hafði hann
samband við mig og bauð mér að syngja í
verkinu. Ég þáði það og þannig fór þetta af
stað.“ Nokkuð er síðan Mary hóf að æfa sinn
hluta úr verkinu og segir hún þá kafla eina
og sér vera mjög fallega. „En með hljóm-
sveitinni og kórnum er það tíu sinnum fal-
legra,“ segir Nessinger. „Hafliði, sem var
viðstaddur æfinguna, virtist ánægður, enda
hlýtur það að vera ákaflega gefandi að fylgj-
ast með hugarfóstri sínu verða að veruleika.“
Söngkonan segir það hafa verið ánægju-
lega reynslu að koma hingað til lands og æfa
verkið. „Hljómsveitin og kórinn eru frábær
og allir eru mjög vinalegir. Ég held að tón-
leikarnir eigi eftir að verða góðir og hlakka
mjög til þeirra.“
Mary Nessinger stundaði nám við East-
man-skólann hjá Seth McCoy og Jan DeGaet-
ani en einnig hjá Chloe Owen í New York.
Hún hefur lagt mesta áherslu á flutning
kammertónlistar en einnig sungið í óperum
og á tónleikasviði. Nessinger hefur tekið þátt
í ýmsum listahátíðum, komið fram í virtum
tónleikasölum og með fjölda sinfóníu-
hljómsveita. Hún hefur m.a. komið fram með
hinu nýstofnaða Boston Modern Orchestra
Project og hefur farið tónleikaferðir á veg-
um „Musicians from Marlboro“ og „Inter-
national Musician’s Seminar in England“.
MARY NESSINGER MESSÓSÓPRAN SYNGUR EINSÖNG Í PASSÍU ÓPUS 28
„ÓLÍKT ÖLLU ÞVÍ
SEM ÉG HEF HEYRT“
Morgunblaðið/Jim Smart
Bandaríska messósópransöngkonan Mary Nessinger.