Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.2001, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.2001, Blaðsíða 9
S M Á S A G A E F T I R K A R E L Š A P E K F RAMAN við hellinn var allt kyrrt og hljótt. Strax í morgunsárið höfðu karlmennirnir lagt af stað með spjótin á lofti og haldið upp í ásana þar sem menn höfðu orð- ið varir við dádýrahjörð; kon- urnar voru hins vegar úti í skógi að tína ber, skrækróma köll þeirra og hávært mas barst einungis við og við að eyrum. Flest börnin voru að busla nið- ur í ánni – og hver nennti svo sem að vera að skipta sér nokkuð af þessum líka krímugu, óþekku krakkaormum? Gamli hellisbúinn, hann Jói, blundaði rótt í þessari óvenjulegu kyrrð og hlýju skini októbersólarinnar. Reyndar hraut hann og það blístraði og hvein í nösunum á honum þegar hann andaði frá sér. Samt lét hann eins og hann væri alls ekki sofandi heldur þóttist vera að halda vörð þarna um helli ættbálksins, lést hafa með höndum yfirstjórn hans eins og sæmir öldr- uðum höfðingja. Hún gamla frú Jóa breiddi úr hráum bjarn- arfeldi og hófst nú handa við að skafa holdros- ann með beittum tinnusteini. Það þurfti að vanda vel til þessa verks, skafa þetta spönn fyrir spönn – en ekki eins og þessi stelpa stóð að verki, hugsaði gamla frú Jóa allt í einu. Ja, letihaugurinn sá arna gerði þetta allt ein- hvern veginn með hangandi hendi og stökk svo bara burt til þess að fara að faðma að sér börnin og ærslast með þeim. – Skinn sem þannig er farið með, hugsaði hún, á ekki eftir að endast neitt! Því er nú verr og miður að þær verka skinnin annaðhvort svona harð- skafalega eða láta þau bara rotna! En ég ætla svo sem ekki að fara að skipta mér neitt af þessu, úr því að sonur minn segir henni það ekki sjálfur. Satt best að segja þá kann stúlk- an sú ekkert að hirða um fallega muni né heldur að gæta þeirra. Og hérna hefur verið stungið gat á feldinn á miðjum hryggnum! Ja, þvílíkt og annað eins, hugsaði gamla frúin í senn undrandi og hneyksluð. Hvaða erkiklaufi skyldi nú hafa stungið í hrygginn á þessum birni? Ja hérna, þetta eyðileggur bara allan feldinn! Aldrei hefði minn karl gert neitt þessu líkt. Hann miðaði þó alltaf eins og vera ber á hálsinn og hitti þar líka. „Æi nú,“ sagði Jói gamli geispandi upp úr eins manns hljóði og nuddaði augun. „Eru þeir ekki ennþá komnir aftur?“ „Nei, vitanlega ekki,“ rumdi í gömlu frúnni. „Þú verður að bíða.“ „Tja,“ sagði gamli maðurinn andvarpandi og deplaði augunum syfjulega. „Vitanlega ekki,“ var hún að segja sú gamla. „Nú jæja, jæja allt í lagi. En hvar eru þá konurnar?“ „Á ég kannski að fara að leita að þeim?“ hreytti gamla frúin út úr sér. „þú veist, að þær eru að væflast um þarna einhvers staðar –“ „Æi jæja,“ sagði Jói og geispaði. „Þær eru víst að flækjast um einhvers staðar, í staðinn fyrir – í staðinn fyrir að vera að gera hitt eða þetta. O jæja, jæja.“ * * * Það varð þögn. Gamla frú Jóa skóf holdros- ann í gríð og erg og var í senn einbeitt og reiðileg á svip. „Ég skal segja þér eitt,“ sagði Jói, hann ók sér svolítið og klóraði sér hugsandi á bakinu, „þú átt eftir að sjá, að þeir koma heldur ekki með neitt í þetta skiptið. Það er svo sem ekki von: með þessum algjörlega gjörónýtu spjóts- oddum úr beini sem þeir eru komnir með. Samt er ég alltaf að segja við hann son okkar: „Líttu á, ekkert bein er nógu hart og nægi- lega sterkt til þess að hægt sé að nota það í spjót!“ Nú, jafnvel kona eins og þú hlýtur þó að vita, að hvorki bein né horn hefur til að bera nægilegan... – hérna... hérna höggkraft. Maður hittir kannski í bein með því, og bein vinnur nú einu sinni ekki á beini eða hvað heldur þú? Það gefur jú auga leið. En aftur á móti spjótsoddur úr steini, sjáðu til ... – nú auðvitað krefst hann meiri vinnu, – en svo eft- irá að hyggja þvílíkur gripur sem úr honum verður! Og hvað heldurðu að sonur okkar hafi svo sagt?“ „Já,“ sagði frú Jóa full beiskju, „það er ekki lengur hægt að segja þeim neitt til núorðið.“ „Mig langar heldur ekkert til að segja þeim neitt fyrir verkum,“ sagði gamli maðurinn afundinn. „En þeir vilja ekki einu sinni hlusta á ráðleggingu! Í gær fann ég þessa líka prýði- legu tinnusteinsflöguna undir klettinum þarna yfirfrá. Það þurfti rétt aðeins að laga til brúnirnar til þess að skerpa þær ofurlítið og þá væri þetta líka orðinn fínasti spjótsoddur, alveg hreinasta afbragð. Nú, ég kom með hann heim og sýndi syni okkar hann. „Sjáðu, hérna er steinn handa þér eða hvað?“ „það er nú það,“ svaraði hann þá, „en hvað á ég svo að gera við hann, pabbi?“ „Nú, hvað er þetta, það er þó hægt að gera spjótsodd úr honum,“ sagði ég. „Vitleysa, pabbi,“ sagði hann, „hver held- urðu að sé svo sem að eyða tíma í að höggva hann til og skerpa? Sjáðu nú til, við erum með heilu hrúgurnar af þessu drasli inni í hellinum og það er ekki til nokkurs nýtt! Þeir tolla ekki við skaftið, sama hvernig maður reynir að ríg- binda þá við, svo hvað er þá hægt að gera við þá?“ Nei, þetta eru allt saman letingjar upp til hópa!“ æpti gamli maðurinn reiðilega. „Enginn nennir orðið að telgja almennilega til tinnustein, þannig er það nú. Þeir vilja bara hafa það náðugt. Nú, auðvitað tekur það enga stund að búa til spjótsodd úr beini, en hann brotnar líka strax. En það gerir nú ekkert til, segir hann sonur okkar, þá er bara að búa til annan og það er allt og sumt. Nú jæja, má vera, en hvar endar þetta svo? Nýjan spjóts- odd kannski aðra hverja mínútu! Hver hefur nokkurn tíma heyrt þvílíkt og annað eins, segðu mér það! Góður spjótsoddur úr tinnu- steini entist aftur á móti venjulega bæði vel og lengi. En ég segi nú ekki annað en það: bíðum bara við! Einn góðan veðurdag verða þeir víst fegnir að taka aftur upp okkar góðu og traustu vopn úr steini! Það er þess vegna sem ég tek þau til handargagns og held þeim alltaf til haga þegar ég finn þau: gamlar örvar og hamra og hnífa úr tinnusteini, – og hann kallar þetta bara drasl!“ Gamli maðurinn náði vart andanum af ein- skærri hryggð og bræði. „Þú veist líka,“ sagði frú Jóa í því skyni að fá hann til að hugsa um eitthvað annað, „að þessu er alveg eins varið með skinnin. „Móð- ir,“ segir þessi stúlka við mig, „af hverju í ósköpunum ertu að skafa þetta svona, það er svo mikil fyrirhöfn! Þú ættir frekar að reyna að súta skinnið með ösku, þá leggur að minnsta kosti ekki svona mikinn fnyk af því.„ „Þú ætlar víst að fara að kenna mér eða hvað?“ æpti gamla frúin að tengdadóttur sinni sem þó var hvergi nærri. „En ég veit nú mínu viti! Húðir hafa alltaf verið skafnar og þvílík skinn sem gerð voru hér áður fyrr! En auðvit- að, ef þetta kostar of mikla fyrirhöfn – það er þess vegna sem þau eru alltaf að finna upp á einhverju nýju og prófa það. – Að súta húðir með ösku, ja, ekki nema það þó! Hver hefur nokkurn tíma heyrt þvílíka fásinnu?“ „Þarna sérðu,“ sagði Jói geispandi. „Þeim finnast víst okkar aðferðir við að gera hlutina ekki nógu góðar. Ó nei! Þeir segja líka að vopn úr steini fari svo illa í hendi. Nú, það er vissulega satt, við vorum ekki að hugsa svo ýkja mikið um þægilegheitin! En nú á dögum – æ, æi, elsku besti, gættu þess nú bara að hrufla ekki á þér aumingja litlu hendurnar þínar! Ja, ég spyr þig því, hvar endar þetta svo allt saman? Líttu á börnin nú á dögum. „Láttu þau bara eiga sig, afi,“ segir tengda- dóttir okkar, „leyfðu þeim að ólmast.“ Nú, gott og vel, en hvað verður svo úr þeim þegar þau eru vaxin úr grasi?“ „Ef þetta bara gerði þau ekki svona rudda- leg,“ kveinaði gamla frúin. „Sannleikurinn er sá, að þau eru einfaldlega illa uppalin!“ „Það er allt þessari nútímauppfræðslu þeirra að kenna,“ lýsti Jói gamli yfir. „Og verði mér á að segja eitt og eitt orð við son okkar, þá segir hann bara: „Pabbi, þú skilur þetta ekki. Það eru breyttir tímar, þetta eru allt önnur viðhorf núna, aðrir tímar. Til dæm- is,“ segir hann, „eru þessi vopn úr beini svo sem ekki neitt lokatakmark! Einhvern tíma kemur að því að menn muni uppgötva betra efni –“ Á þessu sérðu, að þetta nær orðið ekki nokkuri átt! Rétt eins og nokkur maður hafi nokkurn tíma rekist á harðara efni en stein, tré eða bein! Nú, jafnvel fávís kona eins og þú hlýtur þó að játa,að – ... að hérna – ... að það er bara algjörlega út í hött!“ Frú Jóa lét hendurnar falla í skaut sér. „Ja, hamingjan sæla. Hvaðan í ósköpunum skyldu þeir svo fá þessar fáránlegu hugmyndir sín- ar?“ „Þeir segja,að þetta sé nýjasta tíska,“ muldraði tannlausa gamalmennið. „Ég skal segja þér, að þarna fyrir handan – það er um það bil fjögurra daga ferð héðan – hefur nýr þjóðflokkur tekið sér bólfestu, heill skari af útlendingum, og drengurinn okkar segir, að þannig standi þeir að verki. Þú sérð því, að ungu mennirnir okkar hafa alla þessa vitleysu beint frá þeim, þessi vopn með beinoddum og líka allt hitt. Þeir hafa jafnvel --- já, þeir eru jafnvel farnir að kaupa þetta dót af þeim,“ æpti hann reiðilega, „og það fyrir okkar vönd- uðu húðir! Eins og nokkuð gott hafi nokkurn tíma komið frá útlendingum. Aldrei að hafa neitt saman að sælda við útlendan óþjóðalýð, það er nú einu sinni sá lærdómur sem við höf- um tekið í arf frá okkar forfeðrum: komi mað- ur auga á útlending, skal ráðist á hann og hausinn á honum umsvifalaust mölbrotinn. Þetta hefur alltaf verið föst regla: engar frek- ari vangaveltur, bara að drepa hann. „Nei, ekkert þessu líkt, pabbi,“ segir sonur okkar, „tímarnir hafa breyst, við erum farnir að hafa vöruskipti við þá.“ Vöruskipti! Ef ég drep mann og hirði það sem hann á, þá kemst ég yfir fjármuni hans og læt ekkert í staðinn fyrir þá – hvers vegna þá að standa í vöru- skiptum? „Nei, nei, pabbi,“ segir sonur okkar, „þá er verið að borga með mannslífum og það er mjög miður að þurfa að sóa þeim.“ Þarna geturðu séð: þeir segja,að það sé bein sóun á mannslífum. Þannig eru þessi nútímaviðhorf,“ urraði gamli maðurinn fullur ógeðs: „Þeir eru bleyður og ekkert annað! Og hvernig á svo allt þetta fólk að fá nóg að éta ef þeir drepa ekki lengur hver annan, ja, segðu mér það? Nú, það hefur þegar sýnt sig að alltaf er að verða minna og minna um elg. Það er svo sem allt í lagi að vilja ekki vera að sóa mannslífum; en þeir halda engar hefðir lengur í heiðri, bera enga virðingu fyrir forfeðrum sínum og foreldrum. Það er allt að fara fjandans til!“ hrópaði Jói gamli með miklum ofsa. „Hérna um daginn sá ég einn af þessum oflátungum vera að klína leir á vegginn í hellinum og sá þóttist með því vera að líkja eftir vísundi. Ég gaf honum vel útilátinn löðrung en sonur okk- ar sagði: „Láttu hann í friði, vísundurinn lítur út eins og hann sé alveg sprelllifandi!“ Nei,þetta tekur nú orðið út yfir allan þjófa- bálk! Þvílík og önnur eins tímasóun. Ef þú hefur ekki nóg að gera, piltur minn, þá höggðu til tinnustein frekar en að vera að mála vísunda á vegginn! Til hvers að vera með slíka endemis vitleysu?“ Frú Jóa kipraði hörkulega saman varirnar. „Ef það væri nú bara vísundur,“ læddi hún út- úr sér eftir nokkurt hik. „Hvað áttu við?“ spurði gamlinginn. „O, svo sem ekki neitt,“ sagði frú Jóa og fór undan í flæmingi, „æ, ég skammast mín fyrir að vera að tala um það ... Nú, jæja, ef þú endi- lega vilt vita það,“ sagði hún svo og tók skyndilega rögg á sig, „núna í morgun fann ég ... inni í hellinum ... hluta af vísundatönn. Hún var skorin þannig út að hún líktist ... að hún var eins og nakin kona, með brjóst og allt saman.“ „Ha, þú segir ekki!“ sagði gamli maðurinn furðu lostinn. „Og hver var það sem skar hana út?“ Frú Jóa yppti öxlum með hneykslissvip. „Hver veit? Ég býst við að það sé einn af þessum unglingum. Ég kastaði henni í eldinn, en – þvílík brjóst sem hún var með! Sveiatt- an!“ „Þetta getur ekki gengið svona lengur,“ sagði Jói gamli og honum var mikið niðri fyr- ir. „Þetta er allt að verða svo siðspillt! Þú veist, að þetta stafar allt saman af því að þeir eru alltaf að skera út alls konar hluti úr beini! Aldrei hefði okkur dottið í hug að gera neitt svona siðlaust, af því að við gátum heldur ekki búið til neitt svona lagað úr tinnusteini. En þetta hefst svo upp úr því! Allt sprottið af þessum uppgötvunum sem þeir eru sífellt að stæra sig af! Þeir þurfa alltaf að vera að finna einhvern fjandann upp, alltaf að fitja upp á einhverju nýju, þar til þeir eru búnir að eyði- leggja allt, já ,rústa allt. Og taktu eftir því sem ég segi!“ hrópaði hellisbúinn Jói af spá- mannlegu innsæi, „þetta á ekki eftir að vara mikið lengur!“ Halldór Vilhjálmsson þýddi. HREINASTI HEIMS- ÓSÓMI „Þeir þurfa alltaf að vera að finna einhvern fjandann upp, alltaf að fitja upp á einhverju nýju, þar til þeir eru búnir að eyðileggja allt, já , rústa allt.“ C LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 31. MARS 2001 9 Tékkneski rithöfundurinn Karel Capek (lesist tsjapek) var fæddur árið 1890. Rithöfundaferil sinn hóf hann í sam- vinnu við bróður sinn, Josef, og sömdu þeir í fyrstu nokkur verk í félagi. Brátt tók Karel þó forystuna sem sjálfstæður og frumlegur höfundur. Hann fékkst einkum við að semja leikrit með ofur hvassri þjóð- félagsádeilu að ívafi þótt þau verk væru jafnframt færð í búning leikandi gáska og gamansemi. Helstu einkenni á skáldskap hans, auk ádeilunnar, er útópía á tækni- sviðinu, þótt furðulegar líffræðilegar vangaveltur séu einnig áberandi þáttur í skáldskap hans. Karel Capek öðlaðist heimsfrægð með útvarpsleikritinu R.U.R. (= Rossoms Universal Roboter ), en það er ein samfelld háðsádeila á hið vélvædda samfélag nútímans. Í kjölfarið kom svo skáldsagan fræga „Stríðið við salamöndr- urnar“, hugvitsamleg útópía með smell- inni háðsádeilu á staðlaða flatneskju í nú- tíma vélmenningu. þess má og geta, að höfundurinn myndskreytti gjarnan sjálf- ur bækur sínar. Önnur vel þekkt verk Capeks eru m.a. „Krakatit“, hreinræktuð útópísk skáldsaga og þá má nefna þrjú samstæð skáldverk eða trílógíu með heimspekilegri uppistöðu: „Hordubal“, „Loftsteinn“ og „Hversdagslíf“. Eitt af síðustu ritverkum hans var þriggja binda viðtalsbók „Samtöl við Masaryk“ en það verk skipar alveg sérstakan sess í hugum Tékka. Karel Capek varð ekki langlífur, hann andaðist sumarið 1938, tæplega fimmtugur að aldri. Um höfundinn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.