Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.2001, Blaðsíða 14
MAES Howe heitir nýr túbukonserteftir Áskel Másson, sem frum-fluttur verður á tónlistarhátíð íFinnlandi í byrjun ágúst. Hátíðin
heitir ITEC International Tuba and Euph-
oninum Conference, – þetta er alþjóðleg há-
tíð túbúleikara og annarra málmblásara, og
að sögn Áskels Mássonar taka margir af
bestu málmblásurum heimsins þátt í henni.
James Gourlay, breskur túbuleikari, frum-
flytur verkið en það var finnskur túbusnill-
ingur, Harri Lidsle, sem pantaði verkið hjá
Áskeli. Harri Lidsle flytur verkið í Lapp-
landi og víðar á næstu vikum og mánuðum,
með ýmsum hljómsveitum.
Birta í húsinu einu sinni á ári
„Maes Howe eru geysilega merkilegar
fornminjar á Orkneyjum. Þetta er eins konar
grafhýsi, byggt samkvæmt gangi sólar inn í
hól. Inn í hýsið liggja löng göng og þar fyrir
innan er stór steinn, og aðeins einu sinni á
ári, við sólstöður, nær sólin að skína inn
ganginn og lýsa hvelfinguna upp. Þetta er
geysilega nákvæmlega byggt og mjög gam-
alt; eldra en pýramídarnir, og jafnvel talið
vera um fimm þúsund ára. Þetta eru örugg-
lega einar elstu minjar um norræna menn-
ingu sem til eru. Ég var á ferð um Orkn-
eyjar og skoðaði þessar minjar, og það var
stórkostleg upplifun að sjá þetta. Það eru til
leifar af nokkrum viðlíka greftunarhúsum,
en þetta er alveg sérstakt. Greftrunarathafn-
ir einhvers konar tengdust þessum jarð-
hýsum, en fólk var ekki grafið í þeim sjálf-
um. Hins vegar var farið með bein fólks inn í
grafhýsin, þar sem helgisiðir voru viðhafðir.“
Ingigerður er fegurst kvenna
„Á 11. öld hafði þak Maes Howe hrunið,
og víkingar gerðu innreið sína í húsið og
dvöldu þar um hríð. Þeir skrifuðu heilmikið á
veggina; – þetta er sannkallað víkingagraff-
ití, eða veggjakrot; – eins og: Ingigerður er
fegurst kvenna, eða eitthvað slíkt. Allir
veggirnir eru alsettir rúnaletri og í dag eru
þetta einhverjar allra best varðvettu rúnir
sem til eru. Maður þarf næstum því að
skríða á fjórum fótum til að komast inn í
húsið, og við endann á ganginum þegar inn
er komið, þar er steinninn sem lýsist upp
þegar sólarstaða er rétt. Ég varð fyrir mikl-
um áhrifum af þessu og fann sterkt fyrir
okkar norrænu menningararfleifð. Það var
alveg einstök tilfinning að vera þarna. Þetta
með víkingana og rúnirnar hafði líka mjög
sterk áhrif á mig.“ Áskell segir að um tíma
hafi verið talið að fjársjóður væri falinn í
grafhýsinu, en að sá fjársjóður viðist ekki
hafa fundist enn. „Steinarnir sem húsið er
byggt úr, eru svo stórir, að þeir vega upp í
tugi tonna hver. Það hefur þurft að flytja þá
margra kílómetra leið og enginn veit hvernig
forfeður okkar hafa farið að því. Kjarni húss-
ins er byggður úr steini, en allt klætt með
torfi, þannig að utan frá séð lítur þetta út
eins og hver annar hóll eða grasi gróin hæð í
landslaginu, en þó mjög nákvæmlega kringl-
ótt í laginu.
Túban nær stemmningunni
í Maes Howe
Mér fannst, þegar ég fór löngu síðar að
hugsa um þetta, að túban væri kjörið hljóð-
færi til að lýsa þeim áhrifum sem ég varð
fyrir þarna. Í verkinu nota ég stef sem
margir þekkja við kvæði Egils Skallagríms-
sonar, Það mælti mín móðir, og á því stefi
byggi ég verkið.“ Maes Howe er ekki eina
verkið sem Áskell hefur samið undir þeim
sterku áhrifum sem hann varð fyrir í graf-
hýsinu á Orkneyjum. „Ég samdi túbu-ein-
leiksverkið Boreas eða Norðanvindinn upp
úr Maes Howe konsertinum. Það var frum-
flutt í Ástralíu í fyrra og hefur þegar verið
flutt víða um heim.
Það verður einnig flutt á þessari hátíð í
Finnlandi þar sem Maes Howe konsertinn
verður frumfluttur.“
Mikilvægur samningur í Sviss
Áskell Másson á annað erindi til Finn-
lands en eingöngu það að fylgjast með flutn-
ingi verka sinna á tónlistarhátíðinni í Lahti.
Þar hittir hann fulltrúa frá útgáfufyrirtæk-
inu BIM í Sviss, og lögð verða drög að nýj-
um útgáfusamningi Áskels við fyrirtækið.
Skömmu síðar fer Áskell til Sviss til að und-
irrita samningana.
„Þeir hafa þegar gefið Boreas út og gefa
út Maes Howe og einnig Canto Nordico, sem
Christian Lindberg lék hér á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveitinni í vor. Þetta verða
verk fyrir málmblásturshljóðfæri en einnig
stærri sinfónísk verk auk einleiksverka.
Þarna er um að ræða á annan tug tónverka
sem eiga að koma út á næstu árum. Ég er að
sjálfsögðu mjög spenntur að hitta þá hjá
BIM, því hér er mikið í húfi fyrir mig. Þetta
er einstaklega vönduð útgáfa, ein sú besta
sem ég hef séð, allur frágangur mjög ná-
kvæmur og fallegur.“
Nýr fiðlukonsert fyrir Sigrúnu
Áskell hefur verið með samninga við út-
gáfufyrirtæki í Bandaríkjunum, en hann hef-
ur sagt einum þeirra upp og hyggst flytja
þau verk sín yfir til Evrópu. Hluti þeirra fer
væntanlega til BIM útgáfunnar, en sumt
hugsanlega til þýsks útgáfufyrirtækis, sem
sérhæfir sig í slagverkstónlist. Áskell Más-
son er með mörg járn í eldinum, og á síðustu
misserum hefur hann samið nokkur stór
verk auk þeirra sem hér hafa verið nefnd.
Fiðlukonsert, saminn fyrir Sigrúnu Eðvalds-
dóttur, er nýtt verk sem bíður frumflutn-
ings, en í vor flytur Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands fyrsta þáttinn úr stórri sinfóníu
Áskels, Sinfonia Trilogia undir stjórn Petris
Sakaris. Það er fyrsti þáttur verksins, Hyr.
Þátturinn er tæplega hálftíma langur; og
saminn fyrir meir en hundrað manna sinfón-
íuhljómsveit.
Túbukonsert eftir Áskel Másson frumfluttur í Finnlandi og gefinn út í Sviss
„Fann sterkt fyrir
norrænni menning-
ararfleifð okkar“
Morgunblaðið/Golli
Áskell Másson tónskáld.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 28. JÚLÍ 2001
THE CUMBRIA Youth Orchestra, Æsku-
hljómsveit Kúmbríu frá Norðvesturhluta
Englands, leikur á Sumarkvöldi við orgelið á
sunnudagskvöld kl. 20. Þetta er fyrsta heim-
sókn hljómsveitarinnar til Íslands. Stærsta
verkið á efnisskrá hljómsveitarinnar verður
Orgelsinfónía nr. 3 eftir Camille Saint-Saëns,
en einleikari með hljómsveitinni verður ung
íslensk tónlistarkona, Lára Bryndís Eggerts-
dóttir. Önnur verk á tónleikunum eru Org-
elsónata eftir Edward Elgar í hljómsveit-
arútsetningu Gordons Jacobs og Geysir eftir
Jón Leifs, sem hljómsveitin er að leika í
fyrsta sinn. Gestastjórnandi á tónleikunum er
Timothy Redmond, en aðalhljómsveitarstjóri
er Noel Bertram.
„Þegar ég var að skipuleggja efnisskrána
fyrir tónleikaferðina vildi ég gjarnan hafa
verk eftir íslenskt tónskáld á henni, ef þess
væri nokkur kostur,“ segir Noel Bertram.
„Ég þekkti ekkert til tónlistar Jóns Leifs þar
til ég var viðstaddur flutning á Baldri þegar
ég var í Reykjavík í ágúst á síðasta ári. Ég
varð mjög hrifinn af því og ákvað að kynna
mér tónlist hans nánar. Í samráði við Tim-
othy Redmond ákváðum við að flytja Geysi.
Það er mikilúðugt tónaljóð sem í tónum lýsir
ógurlegum öflum náttúrunnar. Það var sam-
ið árið 1961 en ekki flutt fyrr en 1984, 12 ár-
um eftir lát tónskáldsins. Sónata fyrir orgel
eftir Elgar var samin árið 1895 fyrir Hugh
Blair, organista dómkirkjunnar í Worcester.
Þó að sinfónísk uppbygging og greinileg
þematísk þróun verksins sé sniðin að hljóm-
sveitarútgáfu liðu um 50 ár áður en umboðs-
menn British and Continental Music fólu
Gordon Jacob að gera hana. Árið 1946 var
hljómsveitarútgáfan flutt af BBC sinfón-
íuhljómsveitinni undir stjórn sir Adrian
Boults. Eftir þann flutning glötuðust nót-
urnar. Ef ekki hefði komið til óbilandi áhugi
organistans Keiths Bests hefði þessi stór-
fenglega umritun glatast að eilífu. Hann vissi
að þessi útgáfa var til og árið 1984 tókst hon-
um að hafa upp á henni. Orgelsinfónían er
þriðja og jafnframt best þekkta sinfónía
Saint-Saëns. Hún var samin árið 1886 og er
tileinkuð minningu Franz Liszts sem lést í
Bayreuth það ár. Sinfónía sem er í tveimur
þáttum ber hina venjulegu uppbyggingu
fjögurra þátta sinfóníu. Innkoma orgelsins í
lokaþættinum er dramatísk og þar er það í
aðalhlutverki,“ segir Noel Bertram.
Hljómsveit sem gerir kröfur
Cumbria Youth Orchestra, Æsku-
hljómsveit Kúmbríu var stofnuð árið 1974 í
þeim tilgangi að veita besta unga tónlist-
arfólki héraðsins tækifæri til að vinna undir
stjórn atvinnustjórnanda og með efnisskrá
sem gerir meiri kröfur til hljómsveitarinnar
en hljómsveitir tónlistarskólanna hafa mögu-
leika á að bjóða uppá. Hljómsveitin hittist
fimm helgar á ári til æfinga auk þess sem far-
ið er í æfingabúðir í páskafríum.
Lára Bryndís Eggertsdóttir hefur frá unga
aldri hrærst í tónlist. Vorið 1998 lauk hún
áttunda stigi í píanóleik frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og í vor lauk hún kant-
orsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með
hæstu einkunn sem gefin hefur verið á loka-
prófi í orgelleik. Þá hefur hún einnig lokið
sjötta stigi í söng og fjórða stigi í fiðluleik.
Lára hefur í mörg ár sungið í og verið undir-
leikari með kórunum í Langholtskirkju.
Gestastjórnandinn, Timothy Redmond,
stundaði nám við háskólann í Manchester og
við Royal Northern College of Music, þar sem
hann kenndi einnig hljómsveitarstjórn. Hann
hefur stjórnað tónleikum með þekktum
hljómsveitum á borð við Sinfóníuhljómsveit
Lundúna og BBC Fílharmóníuna; unnið með
Opera North og English Touring Opera og
tekið þátt í master-námskeiðum hjá leiðandi
stjórnendum eins og Pierre Boulez og Yan
Pascal Tortelier.
Morgunblaðið/Jim Smart
Cumbria Youth Orchestra leikur á Sumarkvöldi við orgelið.
„Vildi gjarnan
hafa íslenskt verk
á efnisskránni“