Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.2001, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.2001, Blaðsíða 7
ar mjög sérkennileg en nokkrum klukkustund- um eftir slysið taldi hann sig geta fullyrt að lok- un flugbrauta vegna breytinga og önnur atriði sem snerta flugmálastjórn hefðu ekki átt neinn þátt í orsök slyssins. Að þessu sögðu leit flug- málastjóri svo á að honum bæri engin skylda til að svara spurningum sem brunnu á fjölmiðla- mönnum og almenningi. Þegar aðstandendur leyfðu sér að efast um að vinnubrögðin við rannsóknina væru nógu nákvæm voru yfirlýs- ingar yfirvalda svo hrokafullar og yfirlætisleg- ar að þær voru greinilega til þess eins ætlaðar að þagga niður í aðstandendum í eitt skipti fyr- ir öll. Flestir hefðu gefist upp fyrir ofureflinu við svo búið en sem betur fer fyrir okkur hin bjuggu þessir einstaklingar yfir því hugrekki og þreki sem þarf til að leita réttar látinna ást- vina sinna í þessu þjóðfélagi. Flugmálastjóra virtist ekkert heilagt í þess- ari krossferð sinni og hann veigraði sér ekki við því að gefa í skyn að aðstandendur væru í and- legu ójafnvægi og þess vegna ekki mark á þeim takandi þegar faðir eins drengsins sem lést, Friðrik Þór Guðmundsson blaðamaður, birti vel rökstuddar efasemdir sínar um rannsókn- ina á prenti. Formaður rannsóknarnefndar flugslysa greip til svipaðs óþverrabragðs og flugmálastjóri þegar hann ýjaði að því í bréfi til samgöngunefndar Alþingis að pólitísk tengsl ákveðinna aðstandenda við Samfylkinguna og pólitískt hagsmunapot væru undirrót fyrir- spurnar Lúðvíks Bergvinssonar þingmanns í samgöngunefnd. Mig minnir reyndar að for- maður flugslysanefndar hafi síðar sent sam- göngunefnd einhvers konar afsökunarbeiðni vegna þessara aðdróttana en ég minnist þess ekki að formaðurinn, flugmálastjóri eða sam- gönguráðherra sjálfur, yfirmaður flugmála á Íslandi, hafi nokkurn tíma beðið aðstandendur afsökunar. Að geta ekki brotið odd af oflæti sínu og gengist við eigin mistökum með reisn er móðgun við aðstandendur og þjóðina alla. Það er óþolandi að kjarkmikið og duglegt fólk neyðist hvað eftir annað til að leggja mann- orð sitt að veði á erfiðustu augnablikum lífs síns, og steypa sér jafnframt í skuldir, til að tryggja að satt og rétt sé sagt frá því sem í raun og veru gerðist. Skipað gæti ég Ég skammast mín fyrir að að láta mér lynda stjórnkerfi þar sem heilu stofnanirnar ráðast af alefli gegn þeim einstaklingum sem leyfa sér að spyrja nærgöngulla spurninga. Ég skamm- ast mín fyrir að þegja og samþykkja þannig að svona traðk á mannfólki viðgangist á tuttug- ustu og fyrstu öldinni í svokölluðu lýðræðisríki. Og umfram allt skammast ég mín fyrir að sýna ekki meðbræðrum mínum samstöðu í verki. Það er ekki til nein sóttkví sem heldur þessu hrokafulla andrúmslofti í skefjum. Enda hefur það fengið að grasséra svo lengi að enginn veit- ir því orðið eftirtekt. Sá sem verður fyrir barðinu á einhverjum hrokagikknum er vís til þess að sýna sjálfur hroka í samskiptum sínum við næsta mann. Þjóðkirkjan íslenska féll til dæmis í þann fúla pytt í fyrra þrátt fyrir að umburðarlyndi sé megininntakið í boðskap kristninnar. Það var auk þess undarlegt að guðsmennirnir skyldu ekki skynja samhljóminn í orðum sínum og orðum Davíðs Oddssonar sem nokkru fyrr hafði snuprað biskup í bréfi vegna þess að einn af þjónum kirkjunnar hafði birt smásögu í Les- bók Morgunblaðsins sem mátti skilja sem skopstælingu á gagnagrunnsmálinu. En eins og menn muna hafði forsætisráðherra áður sent forseta hæstaréttar ákúrur í pósti vegna kvótadómsins í Valdimarsmálinu svokallaða. Kirkjan sem til skamms tíma naut að ófyr- irsynju einna mestrar friðhelgi allra stofnana landsins stóðst sem sagt ekki mátið og brást við minnsta mótlæti með því að segja skjól- stæðingum sínum til syndanna. Og syndin í þessu tilviki var sú að almenningur var ekki sáttur við tveggja daga kristnitökuhátíð sem haldin var með ærnum tilkostnaði á Þingvöll- um í fyrrasumar. Þátttaka í hátíðarhöldunum var svo lítil að embættismenn kirkjunnar urðu fyrir sárum vonbrigðum og upphófu snimm- endis mikla leit að blóraböggli þar sem að þessu sinni var ekki hægt að skella skuldinni á veðrið. Og landsfeður og biskupar beindu spjótum sínum og böglum að fjölmiðlum og nokkrum ófyrirleitnum en að öðru leyti óskil- greindum einstaklingum sem skrifuðu í blöð og töluðu í útvarp og sjónvarp. Gagnrýnin á þjóðkirkjuna beindist helst að því að þessi stórkostlegu hátíðaráform skyldu ekki miðuð við þátttöku almennings í kirkju- starfi eða kirkjusókn og síðan bentu sumir á að ef til vill hefði mátt verja þeim fjármunum bet- ur sem fóru í þessa fásóttu upphafningarhátíð. Undir þessu þóttust kirkjumenn ekki geta setið þegjandi og biskupinn yfir Íslandi ásakaði fjölmiðla um að grafa undan kirkjunni með nei- kvæðum áróðri. En það vildi svo illa til að ein- mitt í þessu tilfelli voru fjölmiðlar klárlega ekk- ert að ýkja og aðeins að sinna þeirri skyldu sinni að endurspegla skoðanir fólksins í land- inu. Sá sem næstur reið fram á ritvöllinn, gamli biskupinn sem þjóðin hafði hér um bil tek- mannsbarn að ef grunnurinn er skakkur þá verður öll byggingin skökk. Blekkingarvefurinn Á sama tíma og breytingar á lífsskilyrðum og lífsháttum almennings hafa verið gífurlegar hafa breytingar á kosningalögunum verið sárafáar og vægast sagt íhaldssamar. Þess vegna er sorglegt fylgjast með því að öll lýð- ræðisumræða og lýðræðisþróun skuli byrja og enda á Alþingi Íslendinga. Og þegar hagsmun- ir peningavaldsins og einstakra stjórnmála- flokka eru jafn óaðskiljanlegir og raun ber vitni í okkar litla samfélagi verður myndin af ís- lensku lýðræði beinlínis óhugnanleg. Þingið virðist í huga almennings vera upp- spretta stjórnmála á Íslandi. Þangað mæna all- ir og bíða gapandi eftir sinni pólitísku graut- arslettu. En þar er ekkert á seyði og mun ekki verða að öllu óbreyttu. Að bíða eftir svoleiðis undri má líkja við biðina endalausu eftir Godot eða einhverjum álíka óljósum sauði. Þingið er sjálf rót vandamálsins, það virkar eins og blekkingarmeðal á lýðinn og eftir því sem ég veit best lætur enginn heilvita maður sér detta það í hug nú til dags að bíða eftir því að brenni- vínið lækni alkóhólistann. Það breytist ekkert í flokkunum eða á þinginu nema stjórnmála- mennirnir finni fyrir alvöru þrýstingi frá fólk- inu í landinu. Síðan er það sameiningartáknið svokallaða, embætti forseta Íslands. Einhverra hluta vegna hafa vonsviknir vinstrimenn vanið sig á það síðustu áratugina að líta á forsetaembættið sem nokkurs konar sárabætur fyrir stjórnleys- ið og flokkasukkið. Að sumu leyti er hægt að hafa samúð með því sjónarmiði. Í forsetakosn- ingum eru línurnar skýrari en í öðrum kosn- ingum. Þar eru færri í framboði, hver maður hefur heilt atkvæði og sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði sigrar örugglega. Forseta- kosningar voru til skamms tíma eini vettvang- urinn þar sem vinstrimenn gátu sýnt það og sannað, fyrir sjálfum sér og öðrum, hvers þeir eru megnugir ef þeir standa saman. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að embætti forseta Íslands er formlega séð valdalaus virðingar- staða. Það er því lítil huggun harmi gegn að hafa á Bessastöðum félagshyggjusinnaðan for- seta og þéttir í rauninni aðeins þá suddamóðu sem byrgir vinstrimönnum sýn. Það breytir engu þótt menn hafi í umræðum undanfarinna ára stundum reynt að auka á vægi embættisins með því að benda á að forset- inn geti neitað að skrifa undir lög og þar með haft úrslitavald í erfiðum málum sem mundu hafa veruleg áhrif á þjóðarhag. Sá varnagli er enn sem komið er óskýr í meira lagi og gæti þess vegna alveg eins reynst ryðgaður ef á þyrfti að halda. Enda er erfitt, eftir þennan harða pólitíska vetur, að ímynda sér þær stjórnsýslulegu hamfarir sem mundu leiða til þess að umræddur nagli yrði dreginn út, skoð- aður og skrapaður. Ísland í dag Hverjir hagnast svo helst á þessu hentifána- húllumhæi vinstrimanna? Hverjir sitja langoft- ast í ríkisstjórn landsins? Hverjir áttu mestan þátt í að móta þetta 19. aldar stjórnkerfi sem við búum við og minnir með hverjum degi sem bætist við forsætisráðherratíð Davíðs Odds- sonar meir á einræði en lýðræði? Opinberir starfsmenn og fleiri verkamenn kannast við orðalagið réttindi og skyldur. Þeir vita að skyldum þeirra við stofnanir og fyr- irtæki sem þeir vinna fyrir fylgja ýmis félags- leg réttindi. En þeir sem reka ríkisbáknið hafa aldrei vanist því að hugsa þannig. Þar á bæ er valdahroki fornra yfirstétta enn í hávegum hafður og ríkisstjórnin og þeir embættismenn sem undir hana heyra líta á þegnana sem þjóna og vilja helst að sjálf skilgreinum við okkur í hlutverki þiggjenda á sem flestum sviðum, launþega, styrkþega og bótaþega. Og þorri al- mennings hefur lært það af biturri reynslu ör- fárra einstaklinga og félagasamtaka sem háð hafa erfiða baráttu fyrir sjálfsögðum borgara- legum réttindum að slík stríð eru dæmd til að tapast. Stundum hitta þessir baráttumenn í mark en þá er sjálft markið dæmt rangstætt og í framhaldinu er það fært til á vellinum, helst út í horn svo enginn skori þar framar. Það eina sem menn nenna enn að heimta er frelsi til að þurfa ekki að taka tillit til annarra manna enda fellur svoleiðis gaspur vel að skoðunum þeirra sem stjórna um þessar mundir, með þeim skil- yrðum samt að þeir frjálsu séu fáir og helst út- valdir. Utanríkisstefna íslenskra stjórnvalda hefur aldrei verið mótuð. Við höfum kosið að standa til hliðar við alþjóðasamfélagið og taka afstöðu í hverju máli fyrir sig og vera bara með ef við græðum eitthvað á því en annars ekki. Við eig- um það því miður til að hunsa alþjóðlegar skuldbindingar vegna þess að okkur finnst það sjálfsagt mál að við högnumst alltaf einhliða og fórnum aldrei neinu. Þessi undanþáguárátta er Akkilesarhæll okkar Íslendinga og á eftir að koma okkur í koll þegar minnst varir. Það er mál til þess komið að við hættum að skýla okk- ur bak við ramakveinið um það hversu fá við séum og smá og sýnum ábyrgð í alþjóðamálum. Ýmis þjóðþrifamál eins og hugsanlegar við- ræður um aðildarumsókn að Evrópusamband- inu – takið eftir orðalaginu: hugsanlegar við- ræður um aðildarumsókn – fást varla rædd af nokkurri alvöru vegna þess að formaður stærsta stjórnmálaflokks landsins, forsætis- ráðherrann, neitar að ræða þau og hefur lagt sig í framkróka við að drepa niður umræðuna með því að staglast á sömu setningunni í tíu ár: þessi mál eru einfaldlega ekki til umræðu. Ein öflugasta leið valdhafa til að þagga niður í þegnunum er einmitt sú að draga úr vægi um- ræðunnar með því að standa utan við hana og gefa þannig í skyn að „þetta kjaftæði“ sé með öllu tilgangslaust. Í mínum huga er það kúgun að reyna með þögn, hroka eða öðrum meðulum að koma í veg fyrir að almenningur, hópar eða fjölmiðlar taki hvaða mál sem er til umræðu. Það ætti að vera fagnaðarefni stjórnvalda í lýð- ræðislegu þjóðfélagi að almenningur sé vak- andi yfir hlutskipti sínu og hlutverk sömu stjórnvalda að hvetja til frjálsra skoðanaskipta. Stóru málin sem snerta undirstöður velferð- ar og siðferðis þjóðarinnar eru aldrei borin beint undir okkur Íslendinga og eins og ég hef þegar rakið dregur innbyggða skekkjan í kosn- ingalögunum svo úr möguleikum kjósenda til að hafa óbein áhrif á þróun mála að þvílíkt húmbúkk getur varla talist marktækt. Réttlæti stigbreytist ekki Tvö dæmi um slík stórmál. Fyrst er það fisk- veiðistjórnkerfið! Æ! – hlýt ég að hrópa upp eins og Sigfús Daðason í ljóðinu um Jafet á Efstabæ. Fiskveiðistjórnkerfið! Þessi fram- haldshrollvekja sem heldur þjóðinni allri í helj- argreipum. Þetta lénsskipulag sem var tekið upp samhliða þeim góðu áformum að koma í veg fyrir stjórnlausa veiði á Íslandsmiðum fyr- ir tæplega tuttugu árum. Þetta lénsveldi sem fékk að spretta upp í skjóli stjórnarráðsins á síðasta áratug tuttugustu aldarinnar. Það voru margir ósáttir við þá aðferð að út- hluta kvótanum á einstök skip og útgerðir al- veg frá upphafi þótt enginn hafi getað ímyndað sér þá ævintýralegu keðjuverkun sem fylgdi í kjölfarið. Það er hins vegar langt síðan rang- lætið sem fylgir kvótakerfinu fór að misbjóða okkur og þá bættum við nýrri nafnbót í annars ósnobbaðan orðaforða íslenskunnar og fórum að kalla þessa nútíma lénsdrottna sægreifa. Og við viljum að sameign okkar, fiskinum í sjón- um, verði ráðstafað öðruvísi. Við viljum réttlátt fiskveiðistjórnkerfi. Ekki réttlátara kerfi eins og ræðumenn ríkisstjórnarinnar mundu ef- laust orða það – við vitum að orðið réttlæti stig- breytist ekki. Við, það erum ég og sá meirihluti landsmanna sem í skoðanakönnunum segist vilja að þeir sem sækja í auðlindina borgi okkur hinum sanngjarnt afnotagjald. Við viljum veiði- leyfagjald, höfum viljað það lengi og okkur vex fiskur um hrygg í hvert sinn sem minnst er á kvótabraskið. En ríkisstjórn Davíðs Oddsson- ar lætur skoðun okkar sem vind um eyru þjóta þótt sumir ráðherrar haldi enn að þeir geti blekkt þjóðina með því að tala óljóst og segja eins og illa máli farnir spámenn að þeir boði meiri sátt um sjávarútvegsmálin. Þegar menn eru ekki sáttir eru þeir ósáttir – ekki soldið sáttir. Og virðingarleysið sem ríkisvaldið sýnir skoðunum og rétti almennings ríður ekki við einteyming. Ein óskiljanlegasta aðgerð seinni tíma var sú ákvörðun að skrásetja alla lands- byggðina í gagnagrunn á heilbrigðissviði án þess að leita að minnsta kosti eftir samþykki lifenda. Það er alkunna að heilsufarsupplýsing- ar snerta flest viðkvæmustu svið mannlífsins og til skamms tíma gaf almenningur sérfræð- ingum slíkar upplýsingar um líf sitt og heilsu í trausti þess að fullkominn trúnaður ríkti þeirra á milli. Maður hefði því ætlað að ábyrgir vís- indamenn og umboðsmenn almennings, stjórn- málamennirnir, mundu virða sjálfsákvörðunar- rétt einstaklinganna og sýna sérstaka aðgát í umfjöllun og afgreiðslu þessa vandmeðfarna máls. En því var ekki að heilsa. Niðurstaða málsins var ekki síst undarleg í ljósi þess að fyrirtækið var með eindæmum vinsælt og mikill meirihluti landsmanna var fús til að veita því aðgang að upplýsingum um einkamál sín ef eftir því hefði verið leitað. Ég veit að mitt samþykki hefði verið auðfengið hefði einhver haft fyrir því að spyrja um álit mitt. En ég vil ekki láta vaða yfir mig og þess vegna varð ég að sækja sérstakt eyðublað til landlæknis til að tilkynna íslenskum stjórn- völdum að ég vildi ekki að trúnaðarupplýsingar um sjálfa mig yrðu seldar einkafyrirtæki á al- þjóðamarkaði að mér forspurðri. Ég skil ekki enn af hverju þessi leið var valin og það getur í rauninni ekkert skýrt þennan látlausa yfirgang nema kannski það að valdhaf- ar séu einfaldlega vanastir því að ráðskast með okkur eins og þeim sýnist án þess að við látum það koma okkur við. Áhættan sem fylgdi því að leita eftir upplýstu samþykki almennings var sama og engin og hefði hugsanlega skilað sér í aukinni ábyrgðartilfinningu almennings gagn- vart verkefninu og samkennd með fyrirtækinu. Sjálfri finnst mér ákveðin þversögn í því fólgin að vilja hvorki upplýsa lýðinn né eiga yf- irhöfuð nokkuð saman við hann að sælda en ætla samt að lækna hann af öllum mögulegum og ómögulegum líkamlegum kvillum. Viljum við rækta svoleiðis fólk og innleiða svoleiðis hugarfar? Má ég þá frekar biðja um barnalegu spekina sem stóð í stundaskránni minni í gamla daga – heilbrigð sál í hraustum líkama! Smithættan Lítilsvirðingin sem ríkisvaldið sýnir þegnum sínum ítrekað með slíkri og þvílíkri framkomu verður síðan að meini sem breiðist út á þjóð- arsálinni. Ef þeir háttsettu gefa hvað eftir ann- að frat í okkur eru talsverðar líkur á því að þeir lægra settu api það eftir eins og dæmin sanna. Ég er viss um fleiri en ég eru furðu lostnir yf- ir skammarlegri framkomu flugmálayfirvalda í garð aðstandenda þeirra sem létu lífið af völd- um flugslyssins hræðilega í Skerjafirði í fyrra. Á því ári sem liðið er frá slysinu hafa flugmála- yfirvöld sýnt þvílíkan þvergirðingshátt og óbil- girni í öllu því sem málið varðar að þeim hefur tekist það ótrúlega – að slá sífellt eigin met í ruddaskap og heigulshætti. Fyrstu viðbrögð flugmálastjóra voru reynd- Morgunblaðið/Jim Smart rá lýðveldisstofnun skipt sér upp í aragrúa þrýstihópa og nú í byrjun nýrrar aldar er svo komið að hér á aðeins hafðar til skrauts á yfirborðinu – undir niðri ríkir lobbíisminn einn og óheflaður.“  LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 11. ÁGÚST 2001 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.