Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Síða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. OKTÓBER 2001 Í OKTÓBERMÁNUÐI kom út skáldsagan Austerlitz eftir þýska rithöfundinn W.G. Sebald. Bak- sviðið er hin myrka saga Evrópu á síðustu öld. Þar segir ónefndur sögumaður af kynnum sínum af prófessor í byggingarlistasögu, Jacques Aust- erlitz að nafni. Sögumaðurinn kynntist hon- um fyrst sem námsmanni í Belgíu á 7. ára- tug tuttugustu aldar, og hittir hann eftir langt hlé árið 1997. Segir Austerlitz þá ævisögu sína, sem smám saman hefur rifj- ast upp fyrir honum, allt frá því að honum var komið fyrir fjög- urra ára gömlum hjá breskum fósturforeldrum á tímum gyð- ingaofsóknanna. Foreldra sína, gyðinga frá Prag, sá hann ekki aftur. Í gegnum frásögnina reyn- ir Austerlitz jafnframt að skilja hver hann er og takast á við drauga fortíðar. Rithöfundurinn W.G. Sebald er einna þekktstur fyrir skáldsög- urnar The Emigrants og The Rings of Saturn. Sebald er þýskur gyðingur sem flúði heimaland sitt í síðari heimsstyrjöld. Hann hefur lengst af búið í Norwich í Eng- landi þar sem hann hefur gegnt stöðu prófessors við University of East Anglia. Hugmyndafræði bóhemsins ATHYGLISVERT fræðirit kom út á liðnu sumri sem ber titilinn Bohemians: The Glamorous Out- casts og er eftir breska menning- arfræðiprófessorinn Elizabeth Wilson. Þar fjallar höfundurinn um bóheminn og hugmyndafræði hans í menningarsögulegu sam- hengi. Hún spannar í athugun sinni tímabilið allt frá nítjándu öld, til blómaára þeirrar tutt- ugustu og beinir sjónum að gróskumiðstöðvum bóhemískrar hugmyndafræði allt frá Weimar- lýðveldinu, Lundúnum og París til Greenwich Village í New York. Fyrsta birtingarmynd hins bóhemíska hugarfars var að mati Wilsons sjálfur Byron lávarður, sem ögraði borgaralegum við- horfum og kynferðislegum sið- venjum, jafnframt því sem ævi- skeið hans varð nokkurs konar táknmynd samtvinnunar lífsins og listarinnar. Höfundur segir jafnframt sögu bóhema sögunnar á borð við Baudelaire, Jason Pollock og Caitlin Thomas, grein- ir þversögn bóhemískrar hug- myndafræði og gerir grein fyrir stöðu konunnar á því sviði. Viðburðarík ævi Jones Q HEITIR nýútkomin sjálfsævi- saga tónlistarmannsins Quincy Jones. Hin 68 ára gamla djass- kempa lítur þar aftur til litríks ferils síns sem djasstónlistar- maður, pródúsent, tónskáld og sjónvarpspersóna. Í bókinni fær lesandi innsýn í bakgrunn Quincy, sem ólst upp með fátækri og geðfatlaðri móður í fátækra- hverfum Chicago-borgar, upp- götvun tónlistarhæfileika hans, vinskap og samleik með stjörnum á borð við Dizzy Gillespie, Frank Sinatra, Dinah Washington, Ray Charles. Samstarf hans með Michael Jackson í tengslum við metsöluplötuna „Thriller“ og Steven Spielberg í kvikmynda- bransanum, og ástarsamband hans við Nastössju Kinski. Það er viðburðaríkur æviferill sem les- endur ævisögunnar kynnast, jafn- framt því sem skyggnst er bak við tjöldin í þeim tónlistarheimi sem Quincy hefur starfað í. ERLENDAR BÆKUR MYRK SAGA EVRÓPU Quincy Jones E R LEIFARNAR af lokfjölunum voru losaðar af komu í ljós leifarnar af fótleggjunum, lærleggirnir báðir og efri hluti sköflunganna og einnig nokkrar leifar af handleggjunum, en allar voru leifar þessar svo meyrar að þær urðu ekki teknar upp, hvert bein fyrir sig.“ (Matth- ías Þórðarson um bein Jónasar Hallgrímssonar 1946.) Af og til vekja einstakar greinar í menningar- tímaritum slíka athygli að íslenskir fjölmiðlar segja frá efni þeirra, taka viðtöl við höfundinn og leita jafnvel viðbragða frá öðrum sem til málanna þekkja. Þetta eru ekki endilega bestu greinarnar í viðkomandi tímaritum heldur fyrst og fremst greinar sem henta frásagnarformi fréttarinnar; fjalla um efni sem þorri manna getur tengt sig við og hafa skýra niðurstöðu. Þegar litið er yfir efni helstu menningar- tímarita landsins frá áramótum má þar finna ýms- ar greinar sem virtust vel til þess fallnar að verða fréttaefni. Í vorhefti tímaritsins Sögu er t.a.m. snörp úttekt Margrétar Gestsdóttur á minnkandi vægi sögukennslu í námsefni framhaldsskóla og athyglisverð grein Ingu Dóru Björnsdóttur um hlutverk karlakóra við mótun íslenskrar þjóðern- isvitundar. Hvorug greinin fékk þá athygli sem við mátti búast. Sömu sögu er að segja af skel- eggri Skírnisgrein Birgis Hermannssonar um inn- setningarræðu Ólafs Ragnars Grímssonar og við- brögð þingmanna við henni. Ein niðurstaða Birgis var þó þokkalega sláandi og eftir því fréttvæn: „Forseti Alþingis veit ekki hvað þingræði er.“ Sú grein sem mestrar athygli hefur notið birtist í tmm í júlímánuði. Greinin er eftir sr. Ágúst Sig- urðsson frá Möðruvöllum og nefnist „Beinamálið 1946“. Þar fjallar höfundur um dauða Jónasar Hallgrímssonar árið 1845, jarðsetningu hans í Kaupmannahöfn, uppgröft Matthíasar Þórð- arsonar þjóðminjavarðar á jarðneskum leifum skáldsins árið 1946, heimflutning beinanna og þá rekistefnu sem málið tók þegar Sigurjón Pét- ursson á Álafossi ók með kistu með leifum skálds- ins til greftrunar norður á land. Sr. Ágúst var 8 ára þegar þessir atburðir gerðust og varð sjón- arvottur að því þegar Sigurjón kom með kistuna að Möðruvöllum og fór fram á það að faðir hans, séra Sigurður Stefánsson, jarðsyngi beinin. Af því varð þó ekki, kistan var flutt aftur suður nokkrum dögum síðar og grafin í þjóðargrafreitnum á Þing- völlum. Ýmsir hafa fjallað um þetta efni áður, þ. á m. Björn Th. Björnsson sem telur að Matthías hafi grafið upp ranga kistu í Kaupmannahöfn. Sr. Ágúst heldur því hins vegar fram að Matthías hafi flutt a.m.k. hluta réttra beina til Íslands en setur fram þá djörfu kenningu að Sigurjón hafi holað hluta beinanna niður á heimaslóðum skáldsins fyrir norðan áður en kistan var flutt aftur suður. Þessi ályktun – að bein Jónasar séu „í tveimur löndum og þremur jurtagörðum herrans“ – varð fréttaefni um mitt sumar, m.a. í fréttatíma Sjón- varps og síðar tilefni viðtals í Kastljósi við sr. Ágúst. Sú umfjöllun vakti töluverða athygli og kom skýrt í ljós að hér var á ferðinni málefni sem alþjóð manna lætur sig varða. Virtist engu skipta þótt sr. Ágúst færi engin haldbær rök fyrir þeirri kenningu að hluti beina Jónasar hvíli fyrir norðan. Það er út af fyrir sig umhugsunarvert að ís- lenskir fjölmiðlar hafi talið nákvæmlega þetta at- riði fréttnæmast í íslenskum menningartímaritum það sem af er ári. Spurningin er hvort það segi meira um tímaritin eða fjölmiðlana, eða segir það ef til vill mest um menningarlegan áhuga okkar Íslendinga? Á því sviði, eins og mörgum öðrum, hættir okkur til að deila um keisarans skegg. Sjálfur tel ég engu máli skipta hvar meyrar beina- leifar skáldsins eru niðurkomnar. Þær leifar Jón- asar sem einhverju varða eru í öruggri geymslu í bókaskápnum mínum inni í stofu. FJÖLMIÐLAR DEILT UM SKÁLDSINS LEGG Sjálfur tel ég engu máli skipta hvar meyrar beinaleifar skálds- ins eru niðurkomnar. Þær leifar Jónasar sem einhverju varða eru í öruggri geymslu í bóka- skápnum mínum inni í stofu. J Ó N K A R L H E L G A S O N FRÆÐIMENN einsog Jay David Bolter og Marie-Laure Ryan, sem fjallað hafa um bókmenntir á tímum netvæðingar, eru margir hverjir sammála um að um þessar mundir séum við stödd á tímabili aðlögunar. Þetta tímabil, segir Bolter, er sambærilegt við fyrstu daga prentlist- arinnar, þegar prentarar reyndu að líkja eftir útliti handrita. Á sama hátt líkir net- ið enn eftir prentmiðli; fólk hefur ekki gert sér fulla grein fyrir möguleikum þess. En ástralska ljóðskáldið Komninos lýsir því yfir á heimasíðu sinni að ljóð hans sé ekki hægt að prenta. Þau hreyfa sig og iða, tala, hrópa, breytast í sífellu, svo ekki aðeins merking þeirra er aldrei kyrr heldur eru ljóðin sjálf aldrei til friðs og hlaupa um skjáinn. www.kistan.is Ræktunarstöðvar grasagarðsins Sænsku leikhúsi má líkja við fjöl- breyttan grasagarð þar sem svæðisleik- hús og sjálfstæðir leikhópar eru rækt- unarstöðvarnar. Flestir okkar bestu leikstjórar hafa vaxið upp innan sjálf- stæðu leikhópanna. Leikskáldin hafa einnig fengið sín fyrstu tækifæri með slíkum hópum og haft þar svigrúm til að þroska hæfileika sína. Lars Ring leiklistargagnrýnandi Svenska Dagbladet Tungumál skáldskaparins á undanhaldi Írski rithöfundurinn Michael Collins sagði frá því hvernig tölvuöldin er að ræna tungumálið af litbrigðum sínum og fjölbreytileika. Samskipti fólks á net- inu miðast við hröð orðaskipti á tungu- máli sem er eins einfalt og mögulegt er. Collins lýsti áhyggjum af því að oft óræða tungumál skáldskaparins ætti undir högg að sækja gagnvart stutt- aralegum og hitmiðuðu skilaboðum sem nútímalesendur tölvusendinga ættu að venjast. Soila Lehtonen ritstj. Finnskra bók- menntatíðinda 3/2001 Morgunblaðið/Ásdís Segðu það upphátt. TÍMABIL AÐLÖGUNAR ITónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins sem hlust-aði á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveitanna Botnleðju og Quarashi á fimmtu- dagskvöldið spurði eftirfarandi spurningar í lok umfjöllunar sinnar um tónleikana í blaðinu í gær: „Voru tónleikar kvöldsins tilkomnir vegna einlægr- ar leitar að nýrri fegurð, nýjum tónlistarflötum, nýj- um lausnum? Eða bara af því að þetta er svo „snið- ugt“?“ IIÞessi spurning gagnrýnandans snýst kannskiþegar öllu er á botninn hvolft um eðli og kjarna listsköpunar. Hvernig verður list til? Hvað er það sem kemur ferli sköpunarinnar af stað? Og hvað er það sem ræður útkomunni? IIIÞað er ekki óeðlilegt að sköpun listaverks hefjistmeð því að skaparinn, listamaðurinn, fái hug- mynd að því sem hann vill tjá, sýna, segja eða gera. Framvinda sköpunarinnar hlýtur að ráðast og mót- ast af þessum hugmyndum. Efni og aðferðir hljóta að miðast við það að útkoman verði sönn hugmynd- inni um verkið. Það má deila um það hvort hug- myndin sjálf eða ferlið við að skapa úr henni verk séu það sem við köllum list, en í það minnsta er það sem eftir stendur, – verkið sjálft, minnisvarði bæði um hugmynd og sköpun og þar holdgerist það sem við köllum listaverk. IVÞegar tveir koma saman til að skapa list, hlýt-ur að liggja að baki enn meiri vinna. Þar hlýt- ur að þurfa að takast á um hugmyndir og úrvinnslu þeirra; – hugmyndir geta bætt hvor aðra upp, eða dregið úr eftir aðstæðum. Ef slík vinna fer fram af heilindum getur útkoman þrátt fyrir allt orðið að heilsteyptu verki. Annars er hætta á að hún verði bastarður. VÞað má spyrja hver hugmyndin hafi verið aðbaki þeirrar listar sem hljómsveitirnar Quar- ashi og Botnleðja sköpuðu með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrrakvöld. Fjölmörg dæmi eru um að and- stæður í tónlist hafi verið leiddar saman til sköp- unar á einhverju nýju. Í þessu tilfelli virðist svo sem að gert hafi verið ráð fyrir því að Sinfóníuhljóm- sveitin yrði einungis þátttakandi í listflutningi Botnleðju og Quarashi, en ekki annað afl listsköp- unarinnar. Það er fullgilt markmið út af fyrir sig. VIÞað mætti hins vegar spyrja hvort ekki hefðiverið meira virði að gefa ungu mönnunum og Sinfóníuhljómsveitinni tækifæri til meiri raunveru- legrar samvinnu. Það hefði ef til vill orðið áhuga- verðara hefði Botnleðju og Quarashi verið gefið tækifæri til að kynna sér betur heim sinfónískrar tónlistar og þá möguleika sem sinfóníuhljómsveit býr yfir, þannig að þeir hefðu sjálfir getað nýtt sér þann efnivið að eigin vilja og hvötum í sína tónlist. Þetta hefði tekið lengri tíma og kostað meiri pen- inga, en þá hefði útkoman líka orðið mun áhuga- verðari. VIIHlutskipti þeirra sem útsettu verk Botnleðjuog Quarashi fyrir Sinfóníuhljómsveitina hef- ur varla verið öfundsvert. Þeirra verk hlýtur reynd- ar að hafa verið mjög erfitt. Þeirra hlutverk var að tengja saman tvo heima, sem virðast ekki hafa að fyrra bragði séð nauðsyn á því eða haft til þess löng- un. Það er vissulega „sniðugt“ að stefna saman and- stæðum af þessu tagi. En ef listræn þörf býr ekki að baki má búast við að lengi þurfi að leita að list- rænni útkomu. NEÐANMÁLS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.