Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Qupperneq 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. OKTÓBER 2001
C
HELSEA-hverfið er á vest-
anverðri Manhattan-eyju,
ofan við Greenwich Village
og neðan hverfis sem nefnt
hefur verið Eldhús helvítis.
Fyrstu galleríin röðuðu sér
upp frá 20. stræti, á milli 10.
og 11. breiðgötu, sem leiðir
að Hudson-ánni. Í sumar reyndust galleríin
vera orðin 170 en óhætt er að bæta einum tug
við þá tölu með haustinu þegar aðalvertíð gall-
eríanna hefst og inn á völlinn geysa nýir leigu-
liðar í þessu sannkallaða listmaraþoni New
York-borgar.
Chelsea hafði verið í niðurníðslu árum saman
en er óðum að taka á sig gróskufulla mynd. Inn-
ar í hverfinu, á milli 7. og 9. breiðgötu hefur orðið
til nýtt hverfi þar sem samkynhneigðir eru í
meirihluta en þeir höfðu fyrir löngu sprengt ut-
an af sér bönd borgarþorpsins Greenwich Vill-
age. Samhliða því hefur fjöldi nýrra veitinga-
staða, bara og verslana skotið upp kollinum.
Það var fyrir um sex árum að eigendur gall-
ería í SoHo-hverfi tóku að hrekjast úr húsnæði
sínu vegna síhækkandi leigu. Þróunin, sem fór
hægt af stað, náði svo fullum þunga fyrir um
tveimur árum. Fyrr í sumar bárust þær fregnir
að listamaðurinn Jeff Koons hefði gefist upp
fyrir kröfum leigusala síns í SoHo og flutt
vinnustofu sína til Chelsea. Þar með virtust ör-
lög gamla listamannahverfisins endanlega inn-
sigluð. Eða hvað staðfestir umskiptin betur en
það að listamaður, sem hefur átt mörg sölu-
hæstu verk samtímamyndlistar hjá alþjóðleg-
um uppboðsfyrirtækjum síðustu misseri, skuli
hrekjast á brott undan himinhárri leigu?
Spornað gegn verslun
Áður fyrr voru vöruskemmur og hvers kyns
iðnaðarverksmiðjur einkennandi fyrir vestur-
hluta Chelsea. Þar var að finna listaverka-
geymslur safna, vinnustofur listamanna, næt-
urklúbba og geymsluhúsnæði leigubíla og
sendibíla og þess háttar starfsemi sem reyndar
setur enn sterkan svip á hverfið.
Neðar í hverfinu, frá 14. að 11. stræti, hefur
lengi verið aðsetur kjötvinnslu í borginni og
stigmögnun lyktarinnar sem þaðan berst er
ágætur mælikvarði á hitastigið úti fyrir.
Illa brenndir af fyrri reynslu festu frum-
kvöðlar galleríhalds í Chelsea kaup á vöru-
skemmum og einsettu sér að reyna að halda
hverfinu „hreinu“ af rekstri tískufata- og hús-
gagnaverslana eins og þeirra sem urðu til þess
að hrekja þá burt úr SoHo.
Var jafnvel gripið til þess að setja sérstakt
ákvæði inn í kaupsamninga galleríhaldara þar
sem sala eða leiga á húsnæði til verslunarrekst-
urs var bönnuð.
Gallerístarfsemin í Chelsea nær nú yfir
svæði allt neðan frá endamörkum Greenwich
Village, upp að 30. stræti og rúmlega það og út
að bökkum Hudsonár, um þrjár húslengjur.
Galleríin standa þétt í þessum húsalengjum
og í nokkrum tilfellum eru tugir gallería í sömu
byggingunni. Erfitt er að gera svo umfangs-
mikilli starfsemi skil í einni blaðagrein og því sá
kostur tekinn að segja einungis frá nokkrum
elstu og þekktustu listhúsunum og sýningarsöl-
um Chelsea að svo stöddu.
1. Gagosian, 555 W. 24. stræti
Gallerírisinn Larry Gagosian flutti starfsemi
sína á síðasta ári frá því sem teljast myndi til-
tölulega hæverskt gallerí í SoHo á mælikvarða
hinnar nýju risavöxnu vöruskemmu vestast á
24. stræti. Gagosian rekur jafnframt gallerí í
Los Angeles og Lundúnum og í haust bætist
enn eitt galleríið við á Madison-breiðgötu í New
York. Réttnefni gallerísins í Chelsea væri sýn-
ingarhöll og er óneitanlega mikill safnabragur
á húsnæðinu sem nú hefur verið skipt upp í ótal
sali.
Galleríið leggur nokkra áherslu á málverkið
og meðal vel þekktra listamanna sem þar eru
kynntir má nefna Ed Ruscha og Andy Warhol,
málarana Cy Twombly, Philip Taaffe, David
Salle, Francesco Clemente, Cecily Brown og
vídeó-og gjörningrlistamanninn Vanessu Bee-
croft, Gilbert og George, Walter de Maria,
Douglas Gordon, Anselm Kiefer og Frank
Stella.
Fyrsta sýning gallerísins var á verki mynd-
höggvarans Richard Serra. Voru mörg hundr-
uð tonna fleygar úr ryðrauðu stáli hífðir ofan í
skemmuna með miklum tilkostnaði og áhrifin
voru mögnuð. Í kjölfarið fylgdi víðamikil sýning
á nýjum verkum breska listamannsins Dam-
iens Hirsts – sýning sem vakti mikla athygli og
umtal í borginni.
Fyrsta sýning haustsins hjá Gagosian verður
á verkum Serra, og opnar hún um miðjan októ-
ber.
2. Mary Boone, 541 W. 24. stræti
Það er við hæfi að nágranni Gagosians í
Chelsea skuli vera Mary Boone. Boone skapaði
sér fyrst nafn með listamönnum nýja málverks-
ins á 9. áratugnum. Auk nýja sýningarýmisins í
Chelsea rekur hún áfram gamla galleríið sitt við
5. breiðgötu og 57. stræti. Þar um slóðir starfa
enn nokkur ábúðarmikil gallerí, en það er til
marks um mikilvægi nýja hverfisins til að ná til
listunnenda og kaupenda að sífellt fleiri kjósa að
opna útibú í Chelsea. Meðal listamanna á vegum
Boone eru málararnir Ross Bleckner, Eric
Fischl, Bill Jensen og nýliðinn Damien Loeb auk
Tom Sachs og Barböru Kruger.
3. Luhring Augustine, 531 W. 24. stræti
Skilgreint áhugasvið gallerísins eru verk sam-
tímalistamanna frá Bandaríkjunum, Evrópu og
Japan, frá málverkum og teikningum til skúlpt-
úra, vídeólistar og ljósmyndaverka. Á meðal
þeirra sem sýnt hafa hjá galleríinu eru Gregory
Crewdson, Rachel Whiteread, Pipilotti Rist,
Paul McCarthy, Janine Antoni, Janet Cardiff,
Gunther Forg, Gerhard Richter, Christopher
Wool og Yasumasa Morimura en nýjar sjálfs-
myndir listamannsins verða á fyrstu sýningu
haustsins, frá 8. september til 6. október.
4. Andrea Rosen, 525 W. 24. stræti
Sýningar gallerísins eru alla jafna fremur
Morgunblaðið/Hulda Stefánsdóttir
Úr einum af stóru sölum sýningarhallar Gagosian á 24. götu. Verkið er eftir málarann James Rosenquist og á stærð við kvikmyndatjald. Hefur verið athyglisvert að fylgjast með því hvernig lista-
menn hafa tekist á við umfangsmeiri sýnirými í Chelsea með ört stækkandi verkum í hvaða miðil sem er.
ÖLL VÖTN RENNA
TIL CHELSEA
Langflest listgalleríanna í New York eru nú í Chelsea-
hverfinu á Manhattan. HULDA STEFÁNSDÓTTIR
segir frá þróun sem hófst fyrir um sex árum en nú
eru hátt á annað hundrað listgallerí starfrækt í
hverfinu og fjölgar enn.