Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.2001, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.2001, Blaðsíða 8
unnu fyrir sér í fjölleikahúsum 19. aldar. Myndin er í raun sérstæð útgáfa af ástarþrí- hyrningnum klassíska. Michael og Mark Polish vissu strax á tán- ingsaldri að þeir vildu verða kvikmyndagerð- armenn. Michael stundaði nám í faginu og Mark gerðist leikari og handritshöfundur. Twin Falls Idaho er fyrsta afkvæmi þeirra í fullri lengd. Sköpun og sjálfseyðing listmálarans „Jackson Pollock: Er hann fremsti núlifandi listmálari Bandaríkjanna?“ spurði tímaritið Life árið 1949. Margir svöruðu játandi. Hann var þá þegar orðinn þekktur í listalífi New York-borgar og átti eftir að ná enn lengra, brautryðjandi í róttækum myndstíl og varð, að sögn, fyrsti bandaríski abstraktmálarinn, sem Evrópumenn tóku alvarlega. Hann varð fyrsta „stjarna“ bandarískrar málaralistar. En Pollock var flókinn persónuleiki, við- kvæmur og árásargjarn, þráði viðurkenningu en var þjáður af efasemdum og sjálfseyðing- arhvöt, sem ágerðust er á ævi hans og feril leið. Einn fremsti leikari Bandaríkjanna, Ed Harris, valdi ævi Jacksons Pollock sem við- fangsefni fyrsta leikstjórnarverkefnis síns og leikur jafnframt aðalhlutverkið. Fyrir það var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna og einnig leikkonan Marcia Gay Harden, sem fer með hlutverk eiginkonu Pollocks, listmálarans Lee Krasner, og hreppti verðlaunin. Harris hafði velt fyrir sér og rannsakað líf og list Pollocks í meir en áratug áður en hann lét til skarar skríða og gerði myndina. Hann hóf að stunda málaralist sjálfur til að öðlast nægilegt sjálfs- traust til að mála í myndinni og sama gerði Harden. Meðal annarra leikara eru eiginkona Harris, Amy Madigan, sem leikur Peggy Guggenheim, Jennifer Connelly, Bud Cort, John Heard og Val Kilmer. Þrír dagar af kynlífi Foreldrar Waynes Wang í Hong Kong voru svo miklir Hollywoodaðdáendur að þau skírðu hann í höfuðið á John Wayne. Sjálfur var hann snemma staðráðinn í að verða kvikmyndahöf- undur, hélt til náms í fyrirheitnu borginni Hollywood og hugðist láta ætlunarverk sitt rætast þegar hann sneri aftur heim til Hong Kong. Þar voru menn lítt spenntir fyrir „höf- undum“ annars en kung fu-slagsmálamynda. Wang tók þátt í gerð einnar slíkrar, Golden Needles, sem reyndar var bandarísk, og hélt svo aftur vestur um haf. Fyrsta mynd hans þar sem leikstjóri og handritshöfundur var gerð fyrir skiptimynt, gráglettin gamanmynd um asíska leigubílstjóra í San Francisco og hét Chan Is Missing (1981). Hún fékk góða dóma og næst reyndi Wang að færa sig nær miðjunni með spennumyndinni Slam Dance (1987), sem ekki gekk eins vel. Hann komst aftur í form með Eat a Bowl of Tea (1989) en mesti smellur Wangs var The Joy Luck Club (1993) eftir sögu Amy Tan. Wang og rithöf- undurinn Paul Auster stóðu saman að þeim fínu mannlífsstúdíum Smoke og Blue In the Face (1995), en síður gekk með Chinese Box (1997), sem Wang gerði í heimaborg sinni og gerist þegar Kínverjar taka yfir Hong Kong, og dramanu Any Where But Here (1999) með Susan Sarandon. Nýja myndin, Miðja alheimsins eða Center Of the World, sem Kvikmyndahátíð sýnir nú, þykir djarfasta verk Wangs, erótískt drama sem líkt hefur verið við Síðasta tangó í París og Veldi tilfinninganna. Peter Sarsgaard leik- ur ungan og nýríkan tölvusnilling og Molly Parker fatafellu í San Francisco. Við fyrstu kynni kviknar losti og þau ákveða að eyða næstu þremur dögum við kynlífsiðkanir í Las Vegas. Kynlíf verður miðja alheims þeirra, eins og titillinn vísar til. En hvað um tilfinn- ingarnar? Skuldbinding rannsóknarlöggunnar Jerry Black, rannsóknarlögga í Nevada (Jack Nicholson), er að hætta störfum fyrir aldurs sakir. Á síðasta starfsdegi fær hann kveðjugjöf frá félögunum – veiðiferð til Mexíkó – en þegar tilkynnt er um lík 8 ára stúlku í snæviþöktum fjöllum getur Black ekki verið kyrr og fer á staðinn. Það kemur í hans hlut að tilkynna foreldrunum að dóttir þeirra hafi verið myrt og andspænis sorg þeirra og spurningum skuldbindur hann sig til að hafa uppi á morðingjanum. Þannig hefst The Pledge eða Skuldbind- ingin, ný spennumynd, sem hinn þekkti leik- ari Sean Penn hefur leikstýrt og byggir á skáldsögu Friedrichs Dürrenmatt. Þegar Penn las bókina vissi hann strax að hann vildi fá Jack Nicholson í aðalhlutverkið, en þeir höfðu áður unnið saman að mynd Penns, The Crossing Guard. „Það sem heillaði mig við söguna,“ segir Penn, „var að hún er um örlög frekar en rökhyggju. Black tekst eins konar krossferð á hendur, sem gefur lífi hans merk- ingu á ný. Myndin er ekki um morðingjann eða morðin heldur þann sem rannsakar þau.“ Um hlutverk sitt segir Jack Nicholson: „Jerry vill í raun og veru ekki hætta störfum og þegar hann stendur frammi fyrir þessum hryllilega glæp og tilfinningum þeirra sem eftir lifa getur hann það ekki. Mjög margt af því sem hann gerir þjónar tvíþættum tilgangi – í þeirra þágu og í eigin þágu. Þetta gerir myndina að óvenjulegum löggutrylli.“ Kona á barmi taugaáfalls Sé The Pledge óvenjulegur krimmi frá Hollywood er The Deep End eða Kviksyndi það frá óháða bandaríska geiranum. Höfund- ar hennar, Scott McGehee og David Siegel, vöktu athygli fyrir átta árum fyrir furðuverk- ið Suture, eins konar krimma um sjálfsímynd- ir, þar sem aðalpersónan, grunaður um föð- Miðja alheimsins: Erótískir dagar í Las Vegas. Chuck og Buck: Æskuvinir uxu og stöðnuðu. Sálumessa draums: Martröð úr helvíti fíknarinnar. Svalir og galnir: Hversdagsmenn syngja gegn náttúruöflunum. Stormasamt brúðkaup: Nútíminn slæst við fornar, indverskar hefðir. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. NÓVEMBER 2001 TVÍBURARNIR Michael og Mark Polish, höfundar Twin Falls Idaho eða Síamstvíbur- arnir, hafa frá barnæsku safnað úrklippum og lækn- isfræðilegum gögn- um um síamstvíbura og náði sú tómstunda- iðja hámarki þegar þeir byrjuðu rannsóknarvinnu fyrir handritsgerðina. Tíðni síamstvíburafæðinga er einn á móti 50.000 til 80.000. Síamstvíburar verða til þegar egg svokallaðra eineggja tvíbura hættir klofnun í miðjum klíðum en fóstrin halda áfram að þroskast. Enginn veit hvers vegna þetta gerist en Polishbræður segjast telja það hafa orðið algengara á síðustu áratugum. Ef samtengdir tvíburar lifa af fæðingu eiga þeir að öðru jöfnu ekki langa ævi fyrir höndum. Chang og Eng urðu hins vegar 63 ára, höfðu báðir kvænst og eignast samtals 22 börn. Tveir fyrir einn „ÞAÐ var á haustdegi í Berlevåg og ég var að taka þar bíómynd mína Þegar myrkrið líður hjá,“ segir Knut Erik Jen- sen leikstjóri um kveikjuna að Svalir og galnir. „Napur vindur úr norðvestri blés snjónum lárétt yfir götur þorpsins. Ég var á leið á tónleika í félagsmiðstöðinni; þar myndi ég heyra karlakór Berlevåg syngja. Frá fyrsta tóni var ég bergnum- inn. Hér, á hjara veraldar, stóð hópur manna og söng, alvarlega, þróttmikið og ástríðuþrungið. Rúnum rist andlit, sem staðið höfðu af sér ólgusjói og ískalda storma, baðað sig í miðnætursólinni og virt fyrir sér ógnvekjandi kyrrð hafsins, milduðust öll við að mæta tónlistinni og ljóðunum. Í kórnum höfðu þessir menn leitað athvarfs frá hversdagsbaslinu og fundið það í ástarsöngvum, sálmum og kröftugum mörsum – Söng Berlevågs.“ Athvarf söngsins TÖKUR á sakamálamynd Seans Penns, The Pledge, fóru fram að vetrarlagi í Bresku Kólumbíu í Kan- ada, en þar eð myndin ger- ist á einu og hálfu ári þurftu kvikmyndagerðar- mennirnir að setja vor, sumar og haust á svið í vetrarríkinu. Veðurfarið var óútreiknanlegt og krafðist mikils sveigjanleika við tökurnar. Að kvöldi var undirbúin vetrarsena en þeg- ar átti að taka hana morguninn eftir hafði regnið skolað snjónum burt. Þá varð að flytja tökulið og leikara tuttugu kílómetra upp í fjöllin í brunakulda og með engum fyrirvara. Þetta gæti minnt á íslenska kvik- myndagerð. Á árstíðaveiðum „EITT uppgötvaði ég um list Jacksons Pollocks,“ segir Ed Harris, leik- stjóri og aðalleikari í Pollock, „atriði sem sjálf- sagt allir listfræðinemar þekkja en var opinberun fyrir mig, og það var að hann trúði á og lifði eftir þessari setningu: „Ég nota ekki tilviljanir vegna þess að ég af- neita tilviljunum.“ Það er ógerlegt að nálgast verk Pollocks nema hver dráttur, hver litur, hver sletta og hvert korn hafi ákveðinn og afmarkaðan tilgang.“ Engar tilviljanir ÞEGAR Ken Loach hélt til Los Angeles að gera Brauð og rósir um réttinn til að stofna verkalýðsfélög lenti hann sjálfur í útistöð- um við verkalýðsfélög. „Ég sá bæði góðu hliðina á verkalýðsfélögum og einnig þá verstu, sem kemur í ljós þegar þau verða lokuð gildi með múrum umhverfis sig. Kvikmyndatökur í Los Angeles eru ofur- seldar reglugerðum og skriffinnsku. Stundum neyddumst við til að vera óþekk og brjóta reglurnar svo lítið bar á. Það er svolítið skemmtilegt að brjóta reglur, eins og að verða óþekki strákurinn í kennslu- stofunni á ný.“ Óþekki Ken DRAMATÍK OG RÓMANTÍK, PÓLI- TÍK, ERÓTÍK OG...

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.