Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.2001, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. NÓVEMBER 2001
H
IÐ óhlutbundna málverk
mun setja mark sitt á inn-
viði Listasafnsins á Akur-
eyri næstu vikur, en í dag
kl. 15 verður opnuð í safn-
inu stærsta einkasýning
Óla G. Jóhannsson fram til
þessa. Þar sýnir hann 37
myndir í mið- og austursal safnsins, en í vest-
ursal safnsins er haldin hliðarsýning á völdum
verkum eftir Kristján Davíðsson í eigu Lista-
safns Reykjavíkur.
Óli segir það ánægjulegt að Kristján Dav-
íðsson hafi viljað fylgja þessari einkasýningu
sinni úr hlaði með þessum hætti, enda um að
ræða listamann af þeirri kynslóð afstraktmál-
ara á Íslandi sem hann hefur litið mjög til.
„Hugmyndin um hið alþekjandi málverk er
líklega nokkuð sem ég deili með Kristjáni, auk
þess sem það hittist svo skemmtilega á að
hann er borgarlistamaður Reykjavíkur, með-
an ég er bæjarlistamaður á Akureyri.“ Óli seg-
ist hafa sýnt með Kristjáni fyrir mörgum ár-
um og var það í Gallerí Háhóli sem Óli rak á
þeim tíma. „Á þessum sýningum voru einnig
listamenn eins og Kjartan Guðjónsson, Jó-
hannes Geir, Eiríkur Smith og Alfreð Flóki, og
eru þau kynni sem ég átti af þessum mönnum
nokkuð sem hefur verið mér mikilvægt vega-
nesti. Þessir menn hafa sýnt mér velvilja og
hvatningu. Það eitt að fylgjast með þeim og
vinnubrögðum þeirra hefur fyllt mig
ákveðnum faglegum metnaði,“ segir hann.
Málverkið tekur völdin
Einkasýning Óla er haldin í tengslum við áð-
urnefnda útnefningu hans sem bæjarlistamað-
ur á Akureyri en í tengslum við sýninguna hef-
ur Listasafnið á Akureyri gefið út litprentaða
sýningarskrá sem Aðalsteinn Ingólfsson og
Hannes Sigurðsson listfræðingar hafa ritað
greinar í. Myndirnar á sýningunni eru allar
mjög nýjar og segir Óli að líklegast megi
greina talsverðan mun milli myndanna á sýn-
ingunni og þess sem hann var að vinna í síð-
asta sumar, enda gangi hann enn lengra en
fyrr í að brjóta upp myndflöt verkanna.
Óli hefur unnið markvisst með afstraktmál-
verkið á síðustu árum, og segist hann smám
saman hafa fundið sig í því myndformi. Í
fyrstu sótti hann þó viðfangsefni mynda sinna
til nánasta umhverfis. „Ég málaði smábáta-
höfnina, fiskveiðar á Pollinum, hús og tilfall-
andi hluti,“ segir Óli. „En eftir því sem árin
liðu tóku menn upp á því að fara að taka til í
kringum sig og með því hurfu þeir hlutir sem
intresseruðu mig. Þá fór ég að leita meira inn í
sjálfan mig, og vinna á þann máta sem ég hef
fengist við undanfarin sjö til átta ár. Það má
kannski skilja málverkin sem ég er að sýna nú
sem nokkurs konar minningarbrot, þar sem
kveikjan er minning eða skynjun á landinu og
umhverfinu og eftir það tekur málverkið sjálft
völdin.“
Nýr heimur
Óli er að miklu leyti sjálfmenntaður á sviði
myndlistar, og helgaði hann sig fyrst málverk-
inu eftir að börnin voru vaxin úr grasi. Hafði
hann þá m.a. sótt sjóinn til
margra ára og segir hann að slys
sem hann varð fyrir norður í
Barentshafi hafi átt sinn þátt í
þeirri ákvörðun hans, að snúa
sér alfarið að málverkinu. „Ég
lenti í sjónum og fór illa við það í
öxl og hálsi, og varð fyrir því
skömmu síðar að fá vægt hjarta-
áfall. Svona atburðir fá mann til
að hugsa ráð sitt, og þá ákvað ég
að nú skyldi ég verja þeim tíma
sem ég átti eftir til að helga mig
því sem ég hafði í raun alla tíð
stefnt að,“ segir hann.
Óli hefur unnið af mikilli elju
að myndlistinni síðustu átta árin
og segist hann nú vera að upp-
skera árangur þeirrar vinnu.
Hann hefur undanfarin tvö ár
haft fastan umboðsmann hjá
galleríum í Danmörku og segir
hann það samstarf hafa gengið
mjög vel. „Verkum mínum hefur
verið ákaflega vel tekið í Dan-
mörku, og má ef til vill tengja
það hinni sterku hefð afstrakt
expressjónisma sem Danir eiga.
Það að kynnast listheiminum í
Danmörku hefur styrkt mig enn-
fremur í því sem ég er að gera,
ekki aðeins vegna þess hversu
móttækilegur hann er fyrir af-
straktmálverkinu, heldur er um-
hverfið þar almennt svo hvetj-
andi í garð listastarfsemi, bæði
hvað varðar opinberan stuðning
og þátttöku atvinnulífsins. Þetta
er alveg nýr heimur fyrir mér,“
segir Óli.
Umboðsaðili Óla er Galleri
Toros í Óðinsvéum en áður var
hann hjá Galleri Marius Vrontos
og sýndi m.a. á þeirra vegum á
listakaupstefnunni Copenhagen
Art 2000. Hann mun einnig taka
þátt í kaupstefnunni næsta sum-
ar, auk fleiri sýningarverkefna.
„Ég er með bókaðar sýningar á
ýmsum stöðum í Danmörku allt
næsta ár, og mun ég hafa í nógu
að snúast við sýningahald í Dan-
mörku og Evrópu næstu fjögur
árin. Nú er svo komið að ég get valið úr sýn-
ingartilboðum og eru því mjög spennandi
tímar framundan. Á sama tíma er umhverfið í
mínum heimabæ alltaf að verða jákvæðara.
Það er mikið að gerast í myndlist á Akureyri
og allt á réttri leið hér heima,“ segir Óli að lok-
um.
Óli G. Jóhannsson: „Föstudagur með feigðartaut“, 2001.
Akrýl á striga, 90 x 90 cm.
„MÁLVERKIN
MÍN ERU MINN-
INGABROT“
Óli G. Jóhannsson myndlistarmaður sér fram á bjarta
tíð í myndlistinni, en verk hans hafa hlotið góðar við-
tökur í dönskum myndlistarheimi. Í dag opnar Óli
stóra einkasýningu í Listasafninu á Akureyri og ræddi
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR við hann af því tilefni.
heida@mbl.is
Óli G. Jóhannsson: „Á svona degi“, 2001. Akrýl á striga,
145 x 145 cm.
SÝNING á völdum verkum eftir Kristján Dav-
íðsson verður haldin í Listasafninu á Akureyri,
samhliða einkasýningu Óla G. Jóhannssonar.
Verður hún einnig opnuð í dag. Sex olíuverk eft-
ir Kristján verða sýnd í vestursal safnsins og er
þar um að ræða úrval verka í eigu Listasafns
Reykjavíkur, frá ólíkum tímum í ferli lista-
mannsins.
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Lista-
safnsins á Akureyri, segir að efnt hafi verið til
sýningarinnar af nokkrum ástæðum. „Óhætt er
að telja Kristján Davíðsson til eins af okkar
helstu myndlistarmönnum á sviði afstrakt ex-
pressionisma. Verk hans hafa hins vegar aldrei
verið sýnd í listasafninu hér og þótti okkur sýn-
ing Óla mjög gott tilefni til að fara þess á leit við
Kristján að úr því yrði bætt.“
Hannes segir að tekinn hafi verið sá póll í
hæðina að sýna úrval verka frá ferli Kristjáns
og hafi Listasafn Reykjavíkur góðfúslega lánað
myndir úr sinni eigu til sýningarinnar. „Um er
að ræða sex olíumyndir eftir Kristján frá tíma-
bilinu 1967 til 1995 og er þannig leitast við að
gefa safngestum hér á Akureyri dálitla nasasjón
af þróun listferils Kristjáns, en eitt af hans sér-
kennum er hversu heilstæður hann hefur verið í
afstraktlistinni í gegnum árin,“ segir Hannes.
Sýningarnar á verkum Óla G. Jóhannssonar
og Kristjáns Davíðssonar í Listasafninu á Ak-
ureyri standa til 15. desember.
VALIN
VERK EFTIR
KRISTJÁN
DAVÍÐS-
SON
Kristján Davíðsson: „Án titils“, 1991. Olía á striga, 200 x 180 cm.
LESBÓK Morgunblaðsins, Hugvísindastofn-
un og Þýðingasetur Háskóla Íslands efna til
ljóðaþýðingasamkeppni sem er öllum opin en í
henni verða veitt vegleg verðlaun fyrir íslensk-
ar þýðingar á erlendum ljóðum og þýðingu ís-
lensks ljóðs á erlenda tungu.
Samkeppnin
er haldin í tilefni
af alþjóðlegri
ráðstefnu um
ljóðaþýðingar
sem fram fer hér
á landi dagana
14. til 16. desem-
ber nk. á vegum Hugvísindastofnunar og Þýð-
ingaseturs Háskóla Íslands. Verðlaun í sam-
keppninni verða afhent á lokahátíð ráð-
stefnunnar 16. desember og verðlaunaljóðin
birt í Lesbók.
Skilafrestur er 5. desember. Skila skal þýð-
ingum ásamt frumtextum til Lesbókar Morg-
unblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík,
merkt Ljóðaþýðingasamkeppni. Höfundar
skulu merkja þýðingarnar með dulnefni en láta
nafn sitt fylgja í lokuðu umslagi merktu dul-
nefninu.
Í dómnefnd samkeppninnar sitja Kristján
Árnason, dósent við Háskóla Íslands, skáld og
þýðandi, Sigurður Pálsson, skáld og þýðandi,
og Þröstur Helgason, umsjónarmaður Lesbók-
ar.
LJÓÐA-
ÞÝÐINGA-
SAM-
KEPPNI