Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2001, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2001, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. DESEMBER 2001 11 Er hægt að vera staddur fyrir austan sól og sunnan mána? Er hægt að segja eitt- hvað um aðstæður þar, til dæmis hvort þar er dagur eða nótt, vetur eða sumar? SVAR: Svarið er já; það er hægt að gefa þess- um orðum merkingu á skynsamlegan hátt á grundvelli stjörnufræðinnar, og kannski má bæði hafa af því nokkurt gagn og gam- an! Jörðin er kúla eins og kunnugt er og sól- in er á hverjum tíma beint yfir einhverjum tilteknum stað á jörðinni. Gegnum þennan stað má draga „línu“ í norður og suður en línan verður raunar að stórhring sem kallað er, það er að segja hring á yfirborði jarðar sem liggur um þennan stað og um bæði heimskautin (pólana). Þessi hringur skiptir yfirborði jarðar í tvær jafnar hálfkúlur. Eðlilegt er að segja að þeir sem eru á hálf- kúlunni sem er fyrir austan bogann gegnum staðinn séu „fyrir austan sól“ en hinir fyrir vestan hana. Hálfkúlurnar markast á dag- hlið jarðar af þeim stöðum þar sem sólin er í hádegisstað en á næturhliðinni af stöðum þar sem miðnætti er samkvæmt sólartíma. Hver staður á jörðinni er fyrir austan sól í 12 klukkustundir í senn, frá hádegi til miðnættis, en fyrir vestan hana hina 12 tímana. Þetta tengist hins vegar ekki árstíðarskiptum utan hvað málið flækist svolítið á heimskautasvæðunum sumar og vetur. Orðin „fyrir sunnan mána“ má skilgreina á hliðstæðan hátt. Við finnum staðinn sem er beint undir mánanum á tilteknum tíma. Þeir sem eru fyrir sunnan breiddarbaug staðarins eru þá fyrir sunnan mána. Breidd tunglsins getur mest orðið um 28,5 gráður í hvora átt, þannig að þeir sem halda sig fyr- ir sunnan 28,5 gráður suðlægrar breiddar eru þannig alltaf fyrir sunnan mána. Þeir sem eru fyrir norðan 28,5 gráður eru aldrei fyrir sunnan mána enda er hann alltaf fyrir sunnan okkur og fyrir sunnan hvirfilpunkt himins frá okkur séð. Hinir sem búa í hita- beltinu og næsta nágrenni þess eru ýmist fyrir sunnan eða norðan mánann. Þeir sem búa á miðbaug eru til dæmis alltaf sem næst hálfan tunglmánuð sunnan mánans en hinn helminginn norðan hans. Með því að tengja saman þessi tvö atriði hér á undan má sjá hverjir eru á hverjum tíma „fyrir austan sól og sunnan mána“. Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í eðlisfræði. Hvað er kynorka? Kynorka er sú orka sem fylgir kyninu eins og hreyfiorka er orka sem fylgir hreyf- ingu, vatnsorka er orka vatnsins og efna- orka er orka efnanna. Kynorka er skil- greind á sama hátt og önnur orka, sem hæfileikinn til að framkvæma vinnu. Hún er mæld í júlum (J) eða kílóvattstundum (kWh) eins og önnur orka. Kynorka dýra, þar á meðal manna, er mismikil. Vert er að hafa í huga að þessi orka birtist ekki aðeins í tiltölulega nánum samskiptum við hitt kynið eða sama kyn, eftir atvikum, heldur getur hún líka birst í ýmsum öðrum athöfn- um einstaklinganna. Sumir fræðimenn hafa jafnvel gengið svo langt að halda því fram að kynorka birtist í nær öllum athöfnum dýra og manna. Menn greinir á um uppruna kynork- unnar, einkum hjá mönnum. – Sumir segja að hún eigi rætur að rekja til þess sem seg- ir í Biblíunni að Guð hvatti mennina til að margfalda kyn sitt og leggja undir sig jörð- ina. Viðleitni manna til þess hófst með syndafallinu eins og kunnugt er og hefur margeflst á síðustu tveimur öldum eða svo. – Aðrir vilja hins vegar rekja kynorkuna til Darwins. Samkvæmt þróunarkenningunni varð tvíkynja æxlun til með þróun af því að hún sé í ýmsu samhengi „hæfari“ en ein- kynja æxlun. Svo mikið er víst að Darwin átti mörg börn. Samanlögð kynorka manna virðist fara sí- vaxandi ef marka má til dæmis látlausa mannfjölgun. Þess vegna gæti kynorkan orð- ið ótakmörkuð auðlind þegar fram líða stundir og mönnum hefur tekist að beisla hana á sífellt fleiri vegu. Fyrir utan notkun hennar til dæmis í bókmenntum og listum felast möguleikarnir meðal annars í því að virkja hreyfiorkuna sem verður til úr kyn- orku á hinum ýmsu stigum aðdráttar og jafnvel líka án þess að nein sérstök aðdrátt- armiðja sé fyrir hendi. Í aldanna rás hefur menn greint mjög á um hagkvæmni kynorkunnar. Þess er vart að vænta að þeim umræðum linni núna þeg- ar hennar er ekki lengur þörf til að fjölga mannkyninu. En sumir hafa jafnvel talið að sjúkdómar og óáran fylgi nýtingu þessarar orkulindar. Óbeisluð útrás hennar er yf- irleitt litin hornauga enda verður því ekki í móti mælt að hún hefur valdið skæðum sjúk- dómum og ýmsum félagslegum vandamálum auk þess sem hún getur dregið úr afköstum á vinnustað. En svo benda ýmsir á að beisl- uð og rétt virkjuð kynorka sé afar hag- kvæm, skapi vellíðan, ýti undir hollar lífs- venjur eins og líkamsrækt, dragi úr óhollum freistingum svo sem sælgætisáti og eigi sinn þátt í ýmsum merkustu verkum mannsand- ans. Umhverfismat á áhrifum kynorku hefur ekki farið fram svo að okkur sé kunnugt. Til þess þyrfti að setja á laggirnar afar öfl- ugan „þverfaglegan“ hóp eins og það er kallað, það er að segja hóp manna úr mörg- um óskyldum fræðigreinum. Gæta þarf að því að bæði kynin eigi jafnmarga fulltrúa í hópnum. Hópurinn þyrfti að huga vel að margháttuðum hálfduldum birting- arformum þessarar orku. Sem dæmi má nefna að auglýsingastofur nútímans kynnu að þurfa að leggja upp laupana ef menn hættu að virkja kynorkuna. – Mengun af völdum kynorku sýnist okkur hins vegar frekar lítil og að hluta auðvelt að ráða niðurlögum hennar með góðum þvotta- vélum. Hér þarf þó að gera þann fyrirvara að sumir vilja tengja stóra og eldsneytisfreka jeppa við kynorku. Þó hefur sú tilgáta einn- ig heyrst að stórir jeppar séu til komnir vegna skorts á kynorku. Umhverfismat leið- ir vonandi í ljós hvað rétt er í þessu en þá verðum við kannski að endurskoða viðhorf okkar til umhverfisáhrifa frá þessari orku- lind. Ritstjórn Vísindavefjarins þótti við hæfi að slá á létta strengi í tilefni af áramótum og er svarið um kynorkuna eftir hana. Spurningin er í flokki svokallaðra föstudagssvara og þau ber að taka mátulega alvarlega. Leiðrétting: Fyrir jól birtist í Lesbókinni svar eftir Árna Björnsson um aðventuljósin þar sem hann sagði að þessi gluggaskreyt- ing hefði ekki slegið í gegn í Svíþjóð eins og hún hefur gert hér á landi. Þetta er ekki alls kostar rétt. Hið rétta mun vera að Svíar voru seinni til en Íslendingar, þar urðu að- ventuljósin ekki vinsæl sem gluggaskreyting fyrr en um 1980. ER HÆGT AÐ VERA FYRIR AUSTAN SÓL OG SUNNAN MÁNA? Vísindavefurinn þakkar lesendum sínum áhuga og stuðning á árinu sem er að líða. Starfið við vef- inn hefur verið ánægjulegt og standa nú vonir til að það geti haldið áfram enn um sinn, jafnvel í nýjum farvegum til viðbótar þeim sem fyrir eru. VÍSINDI sambúðinni við föður hans. Í einu orði sagt: hún lúffaði. „Við fáum ókeypis inn.“ Óþreyju gætti í bjartri barnsröddinni. „Nú?“ „Myndin er um akfeita mömmu. Hún heitir meira að segja Big fat Mama. Allir krakkar sem koma með feita mömmu fá ókeypis inn. Og sá sem kemur með feitustu mömmuna fær 50.000 króna inneign í Íslandsbanka.“ Katrínu sundlaði. „Álfur minn, ég get ekki ...“ „Þú getur víst. Allavega hefur þú gott af hreyfingu.“ Svar hans hljóðaði hæðið en svo sljákkaði í rómnum. „Krakkinn sem vinnur fær auðvitað að eiga peningana. Ekki mamman. Þú skilur.“ „Ég skil,“ svaraði hún í uppgjafartón. „Vita- skuld skil ég, en ...“ „Æ, mamma, ekkert EN. Ég er eini strák- urinn í bekknum sem á ekki snjóbretti og þú ert alveg nógu feit til að sigra.“ Hún draup höfði, hugsi um stund. Nægilega lengi til að ímynda sér gleði sonar síns ef hann eignaðist snjóbretti. „Með einu skilyrði.“ „Hverju?“ „Að þú munir framvegis eftir því að slökkva á Popptíví áður en þú æðir út. Ég er dauðþreytt á gaulinu og á orðið erfitt með gang.“ „Getur þú ekki einu sinni gengið að sjónvarp- inu ...“ tautaði Álfur en þagnaði er honum varð litið á andlit móður sinnar. „Ókei. Ég lofa því. Slökkva alltaf á Popptíví. Eigum við þá að koma?“ Smán Fyrir utan kvikmyndahúsið mátti sjá röð af sælum börnum sem studdu feitar, hreyfihaml- aðar mæður sínar að innganginum. Sumar mömmurnar hlógu dillandi hlátri og góndu spenntar á skiltið með áletruninni: Ert þú feit- asta mamma á Íslandi? Aðrar líktust lömbum á leið til slátrunar; ekki saklausum heldur lífsleiðum lömbum. Katrín tilheyrði síðari hópnum. Þær forðuðust að horfa á hvor aðra meðan börnin sperrtu sig roggin; þau höfðu svo oft blygðast sín fyrir vaxtarlag mæðra sinna og nú gátu þau hreykt sér af því. Hreyknin skein af smágerðum andlitunum og lagleg lítil stúlka þandi út magann, hallaði höfðinu aftur og gekk með látbragði offitusjúklings upp og niður tröppurnar, skríkjandi af kæti. Hin börnin hlógu. Í myrkum salnum hríslaðist spenna um loftið og krakkarnir hlógu enn, grönn og kvik við hlið mæðranna, iðuðu í sætunum líkt og lífsglaðir kettlingar. Kraðak kvenna, dætra og sona belgdu sig út af poppi, súkkulaði, lakkrís og gosi. Svo hófst myndin. Þau horfðu á digra, miðaldra konu setjast á klósett og hafa svo svakalegar og illa lyktandi hægðir að óeinkennisklæddi lögregluþjónninn sem var í felum bak við sturtuhengið féll nánast í yfirlið. Álfur skellihló en Katrín mændi stjörf á tjaldið. Hana verkjaði í gagnaugun. Hún var aðþrengd í sætinu sem var hannað fyrir mun fíngerðari manneskjur. Hún var dofin. Eitt sinn var Katrín lítil stúlka í köflóttum buxum, rauðri prjónapeysu og lakkskóm sem veifaði fánanum 17. júní og heiðraði Ásgeir for- seta ásamt foreldrum sínum, öðrum börnum og foreldrum þeirra, ömmum og öfum, systkinum, frændum og frænkum. Þá voru þau svo hreykin af ungu en þróttmiklu lýðveldinu. Sérstaklega ömmurnar og afarnir. Katrín mundi síðar að föðuramma hennar hafði ætíð tárast á þjóðhá- tíðardaginn og bakað pönnukökur í tilefni há- tíðarinnar, ljósar og dísætar pönnukökur sem runnu mjúklega ofan í magann með kaldri mjólk. Á unglingsaldri hlustaði Katrín á Jesus Crist Superstar, kyssti kauðslega skólafélaga sína, tók reyk ofan í sig og stundi amen, jós svívirð- ingaaustri yfir sóknarprestinn og fékk ekki að fermast. Stráksleg og fyndin með brosandi augu sem státuðu af hrekkjalómaglampa. Greind, uppátektarsöm og íhugul; fullkomlega laus við hvers konar undirlægjuhátt. Í galla- buxum, hvítri lopapeysu og þykkbotna leður- skóm með ljósar krullur, íbyggið augnaráð og þrýstnar varir sem teygðust gjarna í ósvífið glott. Þannig útlítandi kynntist hún Þór. Flottasta stráknum í skólanum að mati stelpnanna því hann var með dökkblá augu, skjannahvítar tennur og stæltan líkama; yfirvegaðasta að mati strákanna því hann duldi almennt áhuga- leysi og grunna skilningsþörf með þegjanda- hætti. Þór var kurteis og diplómatískur í um- gengni; vildi vel en hver vill það ekki? Síðar meir andlegur niðurrifsseggur. Dóni í einrúmi og grimmur í einfeldningsskap sínum. Þau byrjuðu saman kvöldið sem stúdents- prófinu var fagnað. Katrín neitaði að setja upp húfu, hún var mótfallin einkennistáknum. Þór bar sína stoltur. Í háskóla róaðist hún og grúfði sig yfir bæk- ur, ljóðaskilgreiningar, greinar eftir mismun- andi fræðinga á Íslendingasögunum, Strind- berg jafnt sem Flaubert, gömlu þjóðskáldin og beatkynslóðina. Um sinn. Síðar vék áhuginn fyrir morgunógleði, hormónasveiflum og flóknu, krefjandi sambúðarmynstrinu við barnsföðurinn. Hún hætti námi og sneri sér að húsmóður- shlutverkinu. Þór tók hinsvegar próf og út- skrifaðist sem búfræðingur. Og þau giftust. Hann kaus hátíðlega giftingu í kirkju en á þeim tíma bjó Katrín enn yfir viðnámi svo vígslan átti sér stað hjá Sýslumanninum í Reykjavík. „Skyldi hún á munúð hyggja!“ hafði föður- amman mælt þegar Þór mætti í fyrsta skipti í lýðveldispönnukökurnar með sonardóttur hennar. Munúðin náði hámarki fyrsta mánuð sambands þeirra. Smám saman umbreyttist hún í mýgrút af basli, þrætum og áhyggjum. Eftirsjá Í anddyri kvikmyndahússins stóð gríðarstór vigt í skærum litum, bleikum, neongrænum, appelsínugulum. Í hléinu stóðu konurnar í langri og áberandi breiðri röð til að láta vigta sig. Katrín var síðust til að stíga á vigtina. Hún lokaði augunum meðan áhyggjulaus fegurðar- drottning, sérlega rík af kvenlegum eðlisþátt- um, brosti léttúðug og leit á tölurnar áður en hún kunngerði niðurstöðuna, óþægilega við- kunnanlegri röddu sem minnti á róandi tón klínikdömu meðan tannlæknirinn borar ein- beittur í skemmdina. Innan skamms lágu úrslitin ljós fyrir. Mæð- ur og afkvæmi þögðu þunnu hljóði og góndu á glaðbeittan markaðsstjóra kvikmyndahússins. Sá skælbrosti til markaðsmannsins frá bank- anum sem rétti honum miða með nafni sigur- vegarans. Festuleg karlmannsröddin glumdi yfir söfnuðinn: „Feitasta mamma á Íslandi er ... Dröfn Guðnadóttir. Gefum henni gott klapp!!!“ Lófatakið hljóðaði dræmt en Dröfn þessi líktist aldeilis ekki lífsþreyttu lambi á leið til slátrunnar. Fremur virtist hún hafa fengið ósk- arsverðlaunin, nóbelsverðlaunin og fálkaorð- una á einu bretti. Hún kyssti dóttur sína hreyk- in, horfði með drambi á aðra bíógesti og sveif í öllu sínu veldi til markaðsmannanna sem stóðu sperrilegir við hlið ungfrú Ísland.is. Í blindri sigurvímu hristi hún sig og skók og faðmaði dóttur sína meðan flassljós blaðaljós- myndaranna böðuðu þær; hana vantaði aðeins kampavín til að hella yfir tjásulegt hárið. Gott- erí kom í stað freyðandi veiga og mesta húll- umhæinu var ekki fyrr lokið en hún stormaði að sælgætissölunni til að kaupa súkkulaðistykki og stórt pepsíglas. Hinar mæðurnar voru ekki eins glaðar að sjá. Nokkrar störðu á útjaskaða skó sína og af svip flestra að dæma iðruðust þær að hafa mætt í keppnina. Á hverjum degi fylltist hver og ein skömm vegna holdafarsins og eftir keppnina kom í ljós að sálarétandi skömmin var réttmæt; feitar voru þær með sanni en samt ekki nógu feitar til að vinna 50.000 krónur handa barninu sínu. Konurnar horfðu biðjandi í augu afkvæma sinna sem endurspegluðu ásjónu þeirra, sakleysislegir speglar sem hvísl- uðu blákalt: Þú ert hallærisleg, afskræmd – til- gangslaus byrði. Þó fann Katrín til eftirsjár af öðrum meiði. Hún gleymdi syni sínum um stund og horfði á Ungfrú Ísland.is sem dreifði auglýsinga- bæklingum frá snyrtistofum, undirfatabúðum, líkamsræktarstöðvum og heildsölum sem fluttu inn snyrtivörur. Hún rétti mæðrum og dætrum bæklingana, skreytta myndum af ungum fyr- irsætum og stílaða á fermingarstúlkur jafnt sem eldri kynsystur. Í sömu andrá leiftruðu hugsanir Katrínar. Því laust í huga hennar að „í denn“ þótti ekkert púkalegra en að vera feg- urðardrottning, nema ef vera skyldi að gifta sig með pompi og prakt í fullum brúðarskrúða hjá presti. Tilgangslaust hefði verið að auglýsa Wonderbra á þeim tíma því ungu konurnar kveiktu í brjóstahöldurum. Þær leyfðu brjóst- unum að vera frjálsum undir ódýrum bómull- arbolum og fengu sér þykkspanga gleraugu til að sjá betur. Sætur keimur af svita þótti eft- irsóknarverðari en þung ilmavatnsangan og spjall um stjórnmál áhugaverðara en vanga- veltur um kaloríur. Engri heilvita stelpu datt í hug að fara í naglasnyrtingu, hárgreiðslu eða húðhreinsun. Slíkt gerðu aðeins ráðsettar, teknar og ríkar konur. Líkt og horaða herfan, móðir Þórs. Skrukkan sú fagnaði ákaft þegar hann kvæntist í annað sinn, ópersónulegri tískugyðju sem brosti kalt en sagði fátt. Brúðkaupið var glæsilegt og fjölmennt og brúðurin geislaði af fegurð; athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju, fyrirmyndin amerísk. Álfur var brúðarsveinn og á meðan Katrín klæddi hann upp fyrir at- höfnina hvarflaði að henni hvort smásmugulegt skoðanaleysi Þórs hefði borið sigurorð af áköf- um hugsjónum hennar. Eftir allt saman. Fleira en tíðarandinn hafði breyst. Hún hafði breyst með árunum og var allt önnur mann- eskja í dag. Katrín skynjaði þá staðreynd með- an hugarleiftrið sjatnaði og hún laut að Álfi til að biðja hann fyrirgefningar á því að hafa ekki sigrað. Katrín neyddist til að kyngja staðreynd- inni þegar hún stundi hrelld: „Ekki segja pabba þínum frá keppninni. Hann hlær.“ Höfundur er rithöfundur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.