Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2001, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. DESEMBER 2001 13
Þ
RIÐJI í jólum og lífið heldur áfram
sinn vanagang. Margir komnir til
vinnu eftir langþráð frí um jólahá-
tíðina; – líka tónlistarfólkið, sem lík-
lega hefur margt hvert verið í vinnu
um jólin til þess að gera þau sem
hátíðlegust fyrir okkur hin sem
hvorki syngjum né spilum. Í Hall-
grímskirkju er allt á fullu, tónlistin hljómar út á
torg og skammdegisferðamenn sem vilja skoða
kirkjuna eru vinsamlega beðnir að koma aftur síð-
ar. Með það hverfa þeir aftur út í skafrenninginn
og súpa hveljur þegar kuldaboli skvettir sér í
fangið á þeim. Þeim sem náðarsamlegast fá að
kíkja inn fyrir hlýnar brátt – heitir hljómar frá
fiðlum og englahorni kæfa hrollinn fljótt. Hljóm-
sveitin situr í norðurenda skipsins, en sætin í
kirkjunni vísa til
suðurs, en þegar
blaðamaður og tón-
skáld leggja saman
krafta sína reynist
auðvelt að kúpla
sætisbakinu í rétta
átt. Þá setjumst við
niður og hlustum.
Barn er oss fætt
er heiti nýrrar jóla-
óratoríu sem verður
frumflutt í Hall-
grímskirkju á morg-
un. Tónskáldið er
sætisfélagainn á
bekknum, John
Speight, en þetta er
jafnframt fyrsta jólaóratorían sem samin er af ís-
lensku tónskáldi. Það verða kórar Hallgríms-
kirkju, Schola cantorum og Mótettukórinn sem
syngja með einsöngvurunum Elínu Ósk Óskars-
dóttur, Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, Garðari
Thor Cortes og Benedikt Ingólfssyni og kamm-
ersveit kirkjunnar. Konsertmeistari er Una
Sveinbjarnardóttir en stjórnandi Hörður Áskels-
son. Þetta er fyrsta æfing hljómsveitarinnar, en
æfingin mun standa í allan dag og fram á kvöld og
kórar og einsöngvarar bætast við eftir því sem
stjórnandinn, Hörður Áskelsson, hefur skipulagt.
Hörður var á dögunum tilnefndur til Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem besti flytjandi síðasta
árs fyrir listastarf í Hallgrímskirkju og geisladisk-
ur eins kóra hans, Schola cantorum, var einnig til-
nefndur sem einn af bestu geisladiskum ársins.
Þar er reyndar að finna stórt kórverk eftir John
Speight og enn annað verk tónskáldsins var til-
nefnt til sömu verðlauna sem tónverk ársins.
Þetta hefur verið viðburðaríkt ár hjá John
Speight. Nýlega voru sönglög eftir hann flutt á
tónlistarhátíð í Búlgaríu; þriðja sinfónía hans var
frumflutt á árinu; nýtt verk eftir hann var einnig
frumflutt á Akureyri fyrir jól, og í nóvember hlaut
hann verðlaun í samkeppni Karlakórs Reykjavík-
ur um ný kórverk.
En hvað með þetta stóra verk, Barn er oss fætt?
Þegar hljómsveitin er búin að æfa fyrsta þátt
verksins bregður stjórnandinn á pásu, og við tón-
skáldið getum sest niður til að spjalla.
„Fyrsta æfing er alltaf svolítið stressandi, en
það gengur bara svo vel núna, engin stór vanda-
mál, – bara smáræði sem betur fer. En þú spyrð
um þetta verk. Ég er búinn að búa hér í tæp þrjá-
tíu ár. Það er alltaf verið að flytja verk Bachs og
Händels á þessum tíma en aldrei neitt íslenskt.
Mér fannst einfaldlega að það vantaði slíkt verk.
Ég er búinn að vera með þetta í huga mér í nokkur
ár, en það er erfitt að fá svona stór verk flutt, því
það kostar svo mikið. Ég ræddi þessa hugmynd
við Hörð, og hann sagðist til í hvað sem er, og við
fórum að vinna að þessu.“ Það liggur margra mán-
aða vinna að baki stóru verki sem þessu. John
Speight starfar sem tónlistarkennari en semur á
morgnana áður en kennsla hefst og eftir vinnu ef
með þarf. Það hljómar einhvern veginn hjákátlega
að tala um að tónverk séu samin eftir vinnu, eða í
hjáverkum þegar um svo afkastamikið tónskáld er
að ræða, og tónskáldið hlær þegar það orð er
nefnt; – en þannig er nú samt raunveruleiki flestra
þeirra sem við þetta fást.
„Ég er hrifinn af drama“
Ég segi tónskáldinu að fyrstu hughrif mín af því
sem heyrðist frá hljómsveitinni séu að þetta sé fal-
legt verk og spyr hvort hann setjist niður með það
í huga að semja eitthvað fallegt. „Nei, nei, nei, nei,
– ég geri það aldrei; – það er eitthvað sem kemur.
Ég held þó að flest tónskáld reyni að skapa eitt-
hvað sem þeim þykir fallegt. Smekkur okkar er
bara misjafn. En í þessu tilfelli fannst mér að ég
þyrfti að velja tónmál sem væri ekki fráhrindandi,
ég vildi hafa verkið þannig að það yrði auðvelt að
hlusta á það. Ég var mjög heppinn að fá Benedikt
Ingólfsson með mér í að velja textann. Hann er
gamall söngnemandi minn, og var í guðfræðinámi
þegar ég byrjaði á verkinu en hefur svo aftur snú-
ið sér að söngnum. Hann valdi biblíutextana fyrir
mig og tónlistin er auðvitað innblásin af þeim. Það
er gífurlega mikið drama í þessum textum og þeir
eru oft myndrænir og gaman að semja við þá. Það
var alltaf sagt í Englandi að djöfullinn fengi alltaf
bestu lögin, en ég bæti því við að drottinn hafi
bestu textana. Ég hef unnið mikið við leikhús og
er hrifinn af drama þannig að þetta passar mér
vel.“
„Ég er bara ekki svoleiðis tónskáld“
John Speight segir að tímabilið frá því að verki
er lokið og þar til það öðlast líf í höndum tónlistar-
mannanna sé alltaf svolítið skrítið og stundum erf-
itt. „Ég veit þó alltaf fyrirfram hvernig verkið
mun hljóma og það er aðallega gaman að sjá fleira
fólk taka þátt í þessu með manni, ekki síst þegar
það hefur gaman af því sem ég er að gera. Þetta
finnst mér vera mjög mikið atriði. Fólk á að hafa
gaman af músík. Ég er ekki að tala um að fólk eigi
að hoppa og skoppa yfir þessu; – en eins og Shake-
speare, – þá er þetta alvarlegt en skemmtilegt.
Eins og þú veist er tónlistin mín engin tilrauna-
tónlist – ég sem bara ekki þannig verk og hef aldr-
ei gert. Ég hef alltaf reynt að skrifa á blaðið það
sem ég get ímyndað mér, og það sem ég heyri inní
mér. Oft notfæri ég mér þó tilraunir sem aðrir
hafa gert. Það er alveg nauðsynlegt hafa tónskáld
sem gera tilraunir, það geta komið góðir hlutir út
úr því – en ég er bara ekki svoleiðis tónskáld. Ég
hef oft farið á nútímatónlistarhátíðir þar sem mað-
ur hlustar kannski á þrenna tónleika á dag. Það
getur verið hrein erfiðisvinna. En það er líka mjög
örvandi og maður getur fengið ýmiss konar hug-
myndir að vinna úr, og það geri ég oft.“
„Kórarnir hérna hafa
þennan enska hljóm“
John Speight segir ákveðið já, þegar hann er
spurður að því hvort hann hafi strax haft kórana í
Hallgrímskirkju í huga þegar hann byrjaði að
semja jólaóratoríuna. „Ég ólst upp við enska kór-
hefð, þar sem kórar hafa mjög ákveðinn kórhljóm,
eða sánd. Mér finnst kórarnir hérna hafa þennan
enska hljóm, þótt Hörður sé menntaður í Þýska-
landi. Það er mjög gott að vinna með Herði því að
við erum algjörlega sammála um hvernig kór á að
hljóma og það var gott þegar ég var að semja
verkið að hafa það á hreinu.“ Jólaóratoría Johns
Speight er ekki eins og gömlu verkin, þar sem
skiptast á söngles og aríur. Formið er þrískipt
eins og sinfónía; – verkið er í þremur þáttum, sá
fyrsti er Ákall – Huggun, annar þátturinn er Fyr-
irheit – Fæðing Krists og lokaþátturinn er
Fagnaðarerindið. Texti fyrsta þáttarins er sóttur í
130. Davíðssálm, Úr djúpinu ákalla ég þig, drott-
inn og úr jólasálminum gamla, Nú kemur heims-
ins hjálparráð, sem finna má í ýmsum myndum
allt frá því um 1300. Í fyrsta kaflanum er hlutur
kóranna áberandi.
Annar hluti verksins er byggður á textum úr
spádómsbókum og sálmalaginu Af himnum ofan
boðskap ber. Kórarnir eru enn í öndvegi en vægi
einsöngsraddanna eykst.
Þriðji hluti verksins er byggður á jólaguðspjalli
Lúkasar. Einsöngsraddirnar eru í forgrunni.
Sópraninn syngur lofsöng Maríu, Magnificat, við
undirleik strengjakvartetts og ensks horns, en
kórarnir eru í hlutverkum engla og hirða.
Hjáverkin drjúg
Æfingin heldur áfram og tónskáldið opnar
raddskrána sína til að fylgjast með. Heima bíða
hans fleiri verk í smíðum; barnasöngleikur fyrir
Kór nýbúa, lagaflokkur fyrir Jónas Ingimundar-
son við ljóð Þorsteins frá Hamri, bæði verkin sam-
in eftir pöntun, og svo sellókonsert sem verður
vonandi leikinn áður en langt um líður. Þau eru
drjúg hjáverkin hjá John Speight. Með ómi af
nýrri jólaóratoríu er Hallgrímskirkja kvödd og
svei mér ef tónlistin hefur ekki betur en fjúkið
þegar út er komið. Kannski það verði komið logn á
morgun kl. 17, þegar jólaóratorían Barn er oss
fætt eftir John Speight verður frumflutt.
„FÓLK Á AÐ HAFA
GAMAN AF TÓNLIST“
Morgunblaðið/Þorkell
Kórar Hallgrímskirkju, hljómsveit, stjórnandinn Hörður Áskelsson og einsöngvararnir Elín Ósk
Óskarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Garðar Thor Cortes og Benedikt Ingólfsson.
John Speight
„Djöfullinn á bestu lögin en
drottinn besta orðið,“ segir
John Speight. Í Hallgríms-
kirkju er verið að æfa nýja
jólaóratoríu eftir hann.
BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR
leit inn á æfingu og átti
intermezzo með tónskáld-
inu sem sagði m.a. frá
dramatík í Biblíunni og
enskum kórhljómi.
begga@mbl.is
ÞINGKOSNINGARNAR sem
fram fóru í Danmörku í haust
koma til með að hafa nokkrar
breytingar í för með sér á
menningararfleið Dana, en nýi
menningarmálaráðherrann
Brian Mikkelsen hefur látið sitt
fyrsta verk vera að koma á fót
stofnun sem hefur umsjón með
menningararfi landsins. Að
sögn dagblaðsins Berlingske
Tidende munu í kjölfarið vera
lagðar niður fjöldi minni stofn-
ana, á borð við fornleifastofnun
ríkisins, safnanefnd ríkisins og
fornritastofnun ríkisins, sem áð-
ur sáu um þessa málaflokka.
Að sögn Mikkelsen er þessari
nýju stofnun ætlað að sinna
ofangreindum málaflokkum,
sem og verndun og viðhaldi
herragarða, halla og dysja
landsins. „Það verða gerðar var-
færnislegar breytingar á fjölda
hluta. Það er búið að vera alltof
mikið um reglugerðir og stjórn-
un smáatriða. Nú er sviðið í
heild sinni hins vegar komið
undir einn hatt,“ sagði Mikkel-
sen, og kvaðst vona að þverfag-
leg samvinna milli ólíkra mála-
flokka og danskra safna muni í
kjölfarið aukast.
Það vakti mikið umtal og
gagnrýni er umsjón með dysjum
landsins var flutt frá danska
þjóðminjasafninu til umhverf-
isráðuneytisins fyrir einum 20
árum. Safnið hefur frá þeim
tíma starfað með ráðuneytinu
að verndun dysjanna. Þrír
starfsmenn umhverfismálaráðu-
neytisins, sem höfðu með þenn-
an málaflokk að gera, verða frá
áramótum starfsmenn menning-
ararfleifar stofnunarinnar og
því útlit fyrir að þær breytingar
hafi að nokkru gengið til baka.
Erótískar freskur í Pompeii
EIN fimmtán ár eru nú liðin frá
því að uppgröftur við Pompeii-
rústirnar á Ítalíu leiddi í ljós
erótískar freskur við baðhús í
borginni. Almenningur getur
frá 19. janúar á næsta ári virt
freskurnar fyrir sér, en eftir ít-
arlegan uppgröft, viðgerðir og
rannsóknarvinnu verða þær nú
þáttur af sýningarahluta
Pompeii.
„Ég hafði ekki hugmynd um
hvað þær væru að gera þarna,“
sagði fornleifafræðingurinn
Luciana Jacobelli sem á heið-
urinn að fund freskanna. Alls
eru erótísku freskurnar átta
talsins, en þær hafa verið mál-
aðar í sterkum gylltum, græn-
um og rauðum litum.
Ekki eru fornleifafræðingar
sammála um hlutverk þeirra og
telur prófessor Pietro Giovanni
Guzzo, sem hefur umsjón með
uppgreftrinum, að þær séu aug-
lýsingar fyrir kynlífsþjónustu
sem boðið hafi verið upp á á efri
hæðum baðhússins. Jacobelli er
þessu hins vegar fullkomlega
ósammála og segir myndirnar
eiga að vekja kátínu frekar en
losta. Rómverjar hafi litið á kyn-
líf sem athöfn sem einkenndist
af vissri árásarhneigð og því
hafi myndirnar aldrei talist ann-
að en fyndnar.
Guðinn Mars er á einni
af freskunum.
Menningar-
arfur undir
einn hatt
Reuters
ERLENT