Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2001, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2001, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. DESEMBER 2001 V ALA Óla heitir íslensk myndlistarkona búsett í listamannabænum Santa Fe í Bandaríkjunum. Hún stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla Ís- lands og Bournemouth & Poole College of Arts & Crafts í Englandi og vann um nokkurra ára skeið við grafíska hönnun hér á landi, eða þar til hún fór til Bandaríkjanna haustið 1994. Þegar þangað kom kvaddi Vala grafíska hönnun og tók til við að mála portrettmyndir. Mynd- ir hennar hafa vakið mikla eft- irtekt fyrir vönduð vinnubrögð og nákvæmni, og hún er jafnan bókuð marga mánuði fram í tímann. Portrettmyndirnar málar hún með samstarfsmanni sínum, bandaríska myndlistar- manninum William Alan Shirl- ey. „Við myndum fólkið,“ segir Vala, „og ég fer með ljósmynd- irnar með mér heim í stúdíó og mála þær þar. Ljósmyndunum er púslað saman, þannig að ég mála kannski andlit eftir einni mynd og handlegg eftir annarri. Við málum með olíu á striga; þetta er gífurlega tímafrek vinna, og við skilum myndunum ekki af okkur fyrr en átta mánuðum eftir að við byrjum.“ Við- skiptavinir Völu eru flestir efnafólk, læknar, forstjórar, viðskiptajöfrar og framámenn í bandarísku samfélagi, og hvert portrett kostar á bilinu 10 - 40.000 dali, eða frá einni, og upp í fjórar milljónir króna. „Listamenn hafa skapað þetta andlit“ En Vala Óla málar ekki bara portrett fyr- ir þá sem vilja eiga myndir af sér og sínum nánustu. Hún málar ýmiss konar verk, og í heimsókn sinni hér á landi fyrr í mán- uðinum sýndi hún okkur myndir af því sem hún kallar mikilvægasta andlitið. „Þetta eru litlir orginalar sem ég hef verið að dunda við. Ég hef mikið verið að hugsa um það hvort eitthvert eitt andlit sé mikilvægara en önnur, og þá kom þetta andlit Jesú Krists upp í huga mér. Útlitið á honum hefur verið mótað af listamönnum eingöngu. Það veit enginn hvernig hann leit út, en listamenn eiga þetta útlit. Þess vegna fannst mér spennandi að sjá hver útkoman yrði ef ég reyndi að mála hann. Ég spyr mig stundum að því hvað hafi mótað þessa mynd, og hvað það er sem veldur því að sum andlit ná sterkt til manns en önnur ekki. Ég man eft- ir biblíumyndunum sem maður fékk í sunnudagaskólanum í gamladaga, og líka eftir því þegar ég sat í dómkirkjunni og horfði á Jesúmyndina á altaristöflunni. Ætli það sé ekki samsafn af ýmsum ólíkum Jesú- myndum sem leiddu til þessarar útkomu hjá mér. Ég reyndi að draga það fram sem mér þótti vænt um í þessu andliti“ Sigurbjörn biskup horfir á Upprisuna Vala sýnir okkur líka ljósmynd af tveggja metra háu olíumálverki, sem líkist helst alt- aristöflu. Myndin heitir Upp- risan, og þar sést fjöldi manns horfa upp til Jesú Krists í upp- risunni. „Hvelfingin í bak- grunni myndarinnar er úr byggingu í San Francisco, en hóllinn eða hæðin sem krossinn stendur á, er hér í Santa Fe, en hann er kallaður Kross písl- arvottanna. Einu sinni á ári gengur fólkið í bænum upp á þessa hæð með kertaljós. Þar eru prestar úr mismunandi trúarsamfélögum sem messa, og það er mikil stemmning yfir þessu. Um 1600 voru spænskir munkar myrtir á þessum stað, en þá réðu Spánverjar ríkjum hér í Santa Fe, en krossinn var reistur til minningar um þann atburð. Í mannfjöldanum sem horfir á Krist hef ég laumað inn portretti af mér og William, sem vinnur með mér, en svo setti ég Sigurbjörn Einarsson biskup á myndina líka með bibl- íuna sína. Ástæðan fyrir því er sú, að þegar ég var lítil þá var hann fyrir mér andlit kirkjunnar, hann kom alltaf á skjáinn á mestu hátíðum kristninnar.“ „Hef gaman af því að mála hörund“ Vala hefur mikinn áhuga á málverkum gömlu meistaranna, og hún segist geta eytt mörgum tímum fyrir framan verk þeirra, sérstaklega Rembrandts. „Það er ómetan- legt að horfa á þessi verk og læra af þeim. Það lá við að þessi kunnátta týndist, en það eru að koma fram núna myndlistarmenn sem leita í þessa upphaflegu kunnáttu. Sjálf hef ég mjög gaman af því að mála hörund, það er uppáhaldið mitt, og ég stúdera mikið hvernig á að fá líf í hörund á mynd. Maður þarf að vita hvernig bláæðarnar koma í gegn og margt, margt fleira; það eru mikil litbrigði í húðinni.“ En það er fleira sem Vala hefur numið af gömlu meisturunum. Upprisumyndin er í anda chiaroscuro stíls- ins sem málarar eins og Caravaggio og Rembrandt voru þekktir fyrir, þar sem mál- arinn reynir að fanga skörp blæbrigði birtu og skugga. Vala hefur nú búið í Santa Fe í sjö ár, en segist gjarnan vildu geta eytt meiri tíma á Íslandi. Meðan verkefnin ytra eru þó svo ærin gæti þó orðið bið á því. „GET HORFT TÍM- UNUM SAMAN Á VERK GÖMLU MEISTARANNA“ Upprisan. Olía á striga, 2,14 x 1,22m. Vala Óla málar myndir af efnafólki, en líka mikilvæga andlitið Vala Óla listmálari. Morgunblaðið/Golli Portrett af Anitu Milan. Olía á striga 1,68x1,22m. Sjálf hef ég mjög gaman af því að mála hörund, það er uppáhaldið mitt, og ég stúdera mikið hvernig á að fá líf í hörund á mynd. Maður þarf að vita hvernig bláæðarnar koma í gegn og margt, margt fleira; það eru mikil litbrigði í húðinni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.