Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.2002, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.2002, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. JANÚAR 2002 9 ersveit Reykjavíkur. Það er mér ávallt sérstakt gleðiefni að vera hér og spila. Ég kem hingað aft- ur í apríl og stjórna þá Sinfóníuhljómsveitinni, Óperukórnum og þremur einsöngvurum í órat- oríunni The Dream of Gerontius eftir Elgar, en það er stórkostlegt verk, djúpt og tilfinn- ingaþrungið.“ Fer til Rússlands þegar mikið liggur við Þau voru mörg árin sem Vladimir Ashkenazy gat ekki heimsótt föðurland sitt af pólitískum ástæðum. Á tónleikaferð í London árið 1963 ákváðu hann og Þórunn eiginkona hans að snúa ekki aftur til Sovétríkjanna, heldur setjast að á Vesturlöndum. Þá þegar var Ashkenazy talinn einn mesti píanósnillingur heims. Það var ekki fyrr en í nóvember árið 1989 að hann gat snúið aftur til Rússlands. Rúmur aldarfjórðungur var þá liðinn frá því hann yfirgaf landið. Ashkenazy segir að í dag fari hann ekki oft heim til Rúss- lands, hann finni sig ekkert sérstaklega knúinn til þess. „Ég fer þangað stöku sinnum, en það er ekki í forgangi hjá mér. Þó gæti ég heldur ekki hugsað mér að vanrækja það alveg. Ég er auðvitað Rússi og mér finnst það skylda mín að fara þangað þeg- ar mikið liggur við. En það er ekki mjög örvandi að vera í Rússlandi. Það var ekki mjög örvandi að vera þar á tímum kommúnismans af augljósum ástæðum, en ég get ekki sagt að það sé tilhlökk- unarefni að koma þangað og vera þar. Saga Rúss- lands á síðustu tímum er mikil sorgarsaga, þótt það eigi reyndar einnig við um önnur tímabil í sögu þjóðarinnar. Það væri hægt að skrifa marg- ar bækur um það. En saga síðustu aldar hefur valdið miklum hörmungum og hefur haft mjög neikvæð áhrif á þjóðina, tvö stríð og svo komm- únisminn sem eyðilagði bæði uppbyggingu þjóð- arinnar og margt af besta fólkinu sem hún ól, fólk sem hafði skapandi hug og aðrar hugmyndir. Þessu fólki var fyrirkomið fyrst. Kommúnistarnir eyddu líka þeim einstaklingum úr eigin liði sem höfðu víðari sýn og djarfari hugsun, vegna þess að kerfið sjálft gat ekki umborið þá. Allt sem ekki var í sama fari og yfirvöldum þóknaðist, var eyði- lagt; sjálfseyðingin varð þannig hluti af kerfinu sjálfu. Þannig var grafið undan því besta í fari þjóðarinnar í meir en sjötíu ár. Gorbatsjov og fé- lagar hans sáu að þjóðin var komin í bæði andlegt og veraldlegt gjaldþrot og þeim fannst þeir þurfa að gera eitthvað. Þeir vissu bara ekki hvað; – eng- inn vissi það. Þeim tókst að koma sovétkerfinu fyrir og og vonuðust til að geta opnað landið fyrir lýðræði í anda hins frjálsa heims. Þetta hefur ennþá ekki tekist, og það er ekki hægt að gera þetta á nokkrum árum. Hugarfar þjóðarinnar er bara ekki tilbúið. Þó má segja að mikil von sé til staðar í Rússlandi. En þegar landið var að opnast fyrir frelsi, voru margir sem brugðust við með því að nota það í eigin tilgangi, til að maka krókinn eins og hægt var í einskærri græðgi. Þannig var frelsið líka misskilið. Þó getur maður vel skilið að þetta skuli hafa gerst eins og þjóðin var búin að vera lengi bæld og kúguð. Þetta var skiljanlegt, en um leið var ekki hægt að láta það viðgangast. Viðhorf mitt til lífsins er að búast ekki við meiru en raunhæft er, gera sitt besta og umfram allt að vona að hlutirnir geti breyst.“ Pútín góður kostur fyrir Rússa Ashkenazy segir það lítið sem hann einn geti gert. Hann heldur tónleika í Rússlandi stöku sinnum, og segist þá nota tækifærið til að segja meiningu sína um ástandið þar. „Ég held þó að Pútín sé góður maður til að leiða þjóðina úr þessum vanda. Af þeim mönnum sem komu til greina til að gegna hans embætti held ég að hann hafi verið meðal þeirra bestu. Honum er stundum legið á hálsi fyrir að hafa ver- ið meðlimur í leynilögreglunni KGB, en mér finnst það ekki skipta nokkru máli. Ég held að það þýði engan veginn að hann hafi einhvern hug á að snúa þróuninni við; alls ekki. Ég sé það frek- ar þannig, að vera hans hjá KGB hafi hjálpað til við að gera hann að sterkri persónu. Ef þér hefur vegnað vel innan KGB þýðir það það, að þú hlýt- ur að hafa staðið þig vel, verið rökvís í hugsun og skarpskyggn. Ef þessir eiginleikar eru færðir yf- ir á starf hans í dag, þá sér maður hvað þeir eru bráðnauðsynlegir þar, og ég trúi því að hann sé sá maður sem getur fært þessa þjóð fram á við og skapað afl í kringum sig sem hjálpar honum við það. Ímyndaðu þér bara þetta starf að vera for- seti þessarar stóru og örvæntingarfullu þjóðar. Reyndar eru þetta margar ólíkar þjóðir og hags- munaárekstrar víða, og enn meir að segja margar milljónir manna sem þrá ekkert heitar en að snúa til baka til kommúnismans. Það þarf stöðugt að vera að sefa ágreining og átök milli þjóðarbrota, þjóðfélagshópa og hagsmunahópa og koma með nýjar lausnir og horfa fram á við. Þetta er nánast óvinnandi vegur fyrir nokkurn mann og hver veit hvort Pútín takist þetta. Það er engin manneskja svo fullkomin að geta tekist á við þetta vanda- laust, en ég held að Pútín geti gert jákvæða hluti betur en aðrir.“ Fjölskyldan leikur saman á píanó Það var tilviljun að komu Þórunnar og Vladim- irs Ashkenazy hingað til lands bar upp á sama tíma og sonur þeirra Vovka var að spila með ís- lenskum tónlistarmönnum. Vovka sagði frá því í viðtali við blaðið að þeir feðgar hefðu verið að hljóðrita saman nokkur verk eftir Rakhmaninov leikin fjórhent á píanó, en einnig að Þórunn hefði leikið með þeim í verkum Rakhmaninovs fyrir sex hendur á eitt píanó. Þórunn var sjálf afburða píanóleikari og var einmitt við píanónám í Moskvu þegar þau Ashkenazy kynntust. Hún kaus þó að leggja píanóið til hliðar til að sinna stórum barnahópi og til að starfa með manni sín- um að hans frægðarferli. „Þórunn er ótrúlega hæfileikarík manneskja. Hún man í dag öll verk sem hún hefur spilað og getur spilað þau fullkomlega. Þó að ég hafi reynd- ar spilað fleiri verk um dagana gæti ég þetta ekki. Þessi geisladiskur með tónlist eftir Rakhmaninov verður skemmtilegur. Þar eru tvö stutt verk sem hann samdi fyrir sex hendur. Sennilega hefur hann einmitt samið verkið fyrir sjálfan sig, eig- inkonuna og vin sinn, ég er þó ekki alveg viss. Þarna verða líka verkin sem við Vovka leikum saman, en uppistaðan á disknum eru stærri verk, umritanir sem Rakhmaninov gerði á öðrum verk- um. Það var mjög gaman að spila þetta.“ Ashken- azy segir að talsvert hafi dregið úr geisla- diskaútgáfu á síðustu árum vegna kreppunnar í heiminum, þar sem mörg fyrirtæki hafi þurft að draga úr starfsemi sinni. Hann er þó að undirbúa geisladisk með einleik sínum fyrir Decca útgáf- una, og nokkra hljómsveitardiska, bæði með Tékknesku fílharmóníusveitinni og hljómsveit- inni Fílharmóníu í London. Það er japanskt út- gáfufyrirtæki, Exton, sem gefur diskana út, en Ashkenazy segir þetta lítið en mjög öflugt og áhugasamt fyrirtæki og mjög stórhuga þrátt fyr- ir almennan samdrátt í útgáfu. Ashkenazy hefur fylgst vel með umræðunni um byggingu tónlistarhúss, enda hefur hann sjálfur verið einn ötulustu talsmanna þess að slíkt hús yrði byggt. Til hans hefur verið leitað með ýmislegt er byggingu slíks húss varðar, þar á meðal hefur hann getað bent á mjög færa sér- fræðinga á sviði hljómburðar. „Ég hef heyrt af því að nú séu uppi raddir um að salur Tónlistar- hússins verði fjölnota, það er, að bæði verði hægt að halda sinfóníska tónleika þar, en einnig að sýna óperur og fleira. Ég held að þetta sé alls ekki slæm hugmynd, en þá þyrfti eflaust að breyta þeim hugmyndum sem fyrir eru; ópera þarfnast til dæmis augljóslega annars konar að- stöðu. En hvað hljómburðinn varðar er þetta auðvitað flóknara, en alveg mögulegt. Það er vandamál sem hægt er að leysa. Það er þó mik- ilvægt að leita til hæfustu sérfræðinga á alþjóð- legum vettvangi, fólks með reynslu af þessu. Það þýðir ekkert að fá til þess fólk sem heldur að það geti leyst þetta og með takmarkaða reynslu. Þið munið ekki sjá eftir því að vanda vel til þessa verks. Það er engin ástæða til að hafna því að húsið geti verið vettvangur bæði hljómsveit- arleiks og óperuflutnings, og það gæti reynst ódýrara fyrir þjóðina þegar upp er staðið. Gerið þetta bara vel. Ég get nefnt Avery Fisher salinn í Lincoln Center í New York. Þegar húsið var opn- að aftur eftir endurbyggingu árið 1962 reyndist hljómburðurinn mjög slæmur, vegna þess að til hans hafði ekki mátt kosta miklu. Þetta olli auð- vitað miklu uppnámi í New York og yfir öll Bandaríkin. Fólk spurði hvers vegna byggt hefði verið svo dýrt hús, sem hljómaði illa eftir allt saman. Það var farið út í margar og miklar end- urbætur á salnum til að bæta hljómburðinn. Húsinu var lokað nokkrum sinnum, en ekkert gekk. Það var svo ekki fyrr en Avery Fisher, sem salurinn er nefndur eftir, gaf stórfé, nokkrar milljónir Bandaríkjadala, til mjög viðamikilla endurbóta. Þegar þeim lauk var ástandið heldur ekki nógu gott og síðan hafa verið gerðar enn nokkrar endurbætur á salnum til að laga hljóm- burðinn. Þú getur ímyndað þér hvort þetta hafi ekki verið dýrara þegar upp var staðið, heldur en ef vel hefði verið vandað til verksins til að byrja með. Ég er ekki að segja að það eigi ekki að gæta hófs í kostnaði slíkra bygginga. En það getur verið eftirsjá í því að velja ekki það besta og vandaðasta strax eins og í þessu tilfelli. Þess vegna bind ég vonir við að hvað sem þið gerið í Tónlistarhúsi, gerið þið það þá vel.“ RVANDI AÐ VERA Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson begga@mbl.is „Þórunn er ótrúlega hæfileikarík mann- eskja, hún man í dag öll verk sem hún hefur spilað og getur spilað þau fullkomlega.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.