Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2002, Side 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. FEBRÚAR 2002
Morgunkul af hafi, merlar dögg á stráum
mjúklát vermir glóey bæði land og sjó.
Er í blænum ilmur frá blómunum smáum
blíður vindur þíðir úr fjöllunum snjó.
Þrastakvak í runni, ljóðin syngur lóa
lifna grös úr moldu og angar hvert blóm.
Sunna tekur völdin, gyllir grund og móa
glaður syngur fossinn minn nýjum róm.
Töfrandi er vorið, tekur hug minn fanginn
tendrar vonarkenndir, gleði bjarta finn.
Blika sólargeislar um kaldan klettadranginn
klæða hann í glitskærasta búninginn.
Skógarhríslur vænar í skini sólar glitra
skrýðist möttli iðgrænum foldarból.
Morgundýrð á heiði, daggartárin titra,
tíbrá yfir sænum, lambagras á hól.
HELGI SELJAN
Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.
ÞANKAR UM VOR
Á ÞORRA