Lesbók Morgunblaðsins - 06.04.2002, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 06.04.2002, Side 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. APRÍL 2002 H VE kyrfilega sést okkur ekki yfir það – kannski sem betur fer – að tilvera okkar endanna á milli er samfellt kraftaverk. Og undur. Bara þetta: að efnið skuli geta lifnað og öðlast vitund um sjálft sig og heiminn, náð síðan valdi á tækni til að miðla þessari skynjun til samvera sinna sem meðtaka hana og bregð- ast við henni. Þetta er svo lygilegt og samt svo sjálfsagt að sá yrði settur á mjög sterk meðöl sem færi að vekja máls á því sérstaklega. En á þessum tyllidegi langar mig til að stað- næmast við undrið lestur/skrift. Að það skuli vera hægt með strikum og bogum og bugðum að búa til skynjun sem lesandi nemur, óháð rúmi og tíma. Og þó erum við ekki fyrr búin að falla í stafi yfir kraftaverki orðanna, en það rennur upp fyrir okkur hve afföllin eru ótrúleg. Nærtæk- ast væri að grípa til líkingar við sáðfrumurnar sem milljónum saman leggja af stað í einu sæð- iskasti, en mega sæta því að fara allar í súginn – utan þegar getnaður verður – þá er ein úr allri hersingunni útvalin – hinna bíða þau örlög að farast. Eins er um orðin, langsamlega fæst eiga fyr- ir höndum að fanga athygli lesanda. Þau koma kannski fram á sjónhimnunni sekúndubrot – líkt og vegfarandi í milljónaborg – og síðan ekki söguna meir. Þeim mun stærra er undrið þegar tekst með orðum að smíða far sem ferjar merkingu, hrif og geðshræringar í gegnum öldurót tímans – sækir jafnvel í sig veðrið eftir því sem tímar líða fram. *** Hér langar mig til að skipta um líkingu og fara frá sáðfrumu og eggi yfir í eldflaug sem á í vændum að sigla út í geiminn. Sú óstjórnlega orka sem þarf til að leysa jarðfestar, yfirvinna þyngdarkraft jarðar og hvað þau heita öll þessi tregðulögmál sem vilja halda aftur af því sem ætlar að lyfta sér til flugs. Mér koma í hug greinarnar sem Halldór skrifaði í upphafi síns ferils, á árabilinu 1925– 1927, samhliða vinnunni við Vefarann. Þarna er hún komin kraftbirtingin, fítonið sem þurfti til að leggja til atlögu við þessar kempur sem sækja fram undir merkjum hins auðvitaða: brjóstvitið, heilbrigða skynsemi, hyggindi sem í hag mega koma og sjálfsagt mál. Tökum til að mynda ræðuna sem hann hélt á Íslendingadegi í Kanada, þá 25 ára gamall gestur frá gamla Fróni. Lá ekki beinast við að fara með eitthvað gott eftir Stef- án G (sem þá lá banaleguna) og leggja síðan út af hetjusögu Klettafjallaskáldsins? En hvað gerir Halldór? Hann tekur sig til og fer að boða upplausn hefðbundnustu gilda, set- ur spurningamerki við sjálfan hornstein sam- félagsins, fjölskylduna, konan væri jafnoki mannsins, börnin ættu að alast upp á sérhæfð- um uppeldisstofnunum; nýir tímar yrðu að segja skilið við glórulaust brauðstrit og í stað- inn kæmi samvirkt átak til aukinnar menning- ar – hugmyndir sem orkuðu á viðstadda eins og þegar rafmagnstæki er stungið í samband við of háa spennu, svartur strókur stóð upp af háttvirtum áheyrendum, þetta fólk sem var allt af vilja gert til að sýna hinum unga gesti velvilja, von bráðar var það tek- ið að gretta sig, einn og einn fann sig knúinn til að kalla fram í, á endanum ríkti upplausn og loks lá við borð að viðstaddir legðu hendur á hinn unga ræðumann. Hér var eldflaug að leggja af stað með tilheyrandi fyrir- gangi: skotpallar splundrast, stög hrynja og mökkurinn frá eldsneytinu kaffærir um stund sjálft farið sem sækir í sig veðrið með sívaxandi hraða uns það hverfur út í geiminn þaðan sem það tekur að senda upplýsingar um alheiminn. Köllun sína orðar Halldór í bréfi til Jóns Sveinssonar, Nonna, árið 1925, en tilefnið voru tilmæli hins aldna skáld- klerks um að æskumaðurinn Halldór gætti þess að ofbjóða ekki lesendum. Halldór svarar: „Ég þakka þér firir þín góðu ráð, en ekki líst mér nú samt í alla staði vel á þau og verður þú að firirgefa það. Einkum hef ég mjög litla tilhneigingu í þá átt að haga mér eftir óskum og smekk públikkums; til þess álít ég kall rithöfundarins sé of heil- agt. Rithöfundurinn er spámaður vorra tíma, hann er sá sem hefur köllun til þess að tala til fólksins firir munn Jehóva, en ekki Witzmach- er í varietéi (grínari í uppistandi, innskot PG), sem sækist eftir lófaklappi fjöldans. Ég get ekki varist þess að álikta að það væri andlegt lauslæti, að ég ekki taki dípra í árinni, að gera sér far um að rita þannig sem helst mundi kitla eiru fólksins; en sé rithöfundurinn ekki maður til að neiða públikum til að hlusta á sig sem sagt nolens-volens (nauðugt viljugt)… þá má hann sjálfum sér um kenna og ætti að velja sér eitthvert annað lífsstarf. Hefur nokkurntíma verið uppi ritsnillingur í heiminum sem spurði um smekk og óskir lesendanna “ Og viðbrögð hinnar útvöldu þjóðar voru í samræmi við það. Við getum gengið úr skugga um það í hirslum Þjóðarbókhlöðunnar sem geymir gulnuð blöð og tímarit sem eitt sinn voru ný. Hér er til dæmis grein í Verði, viku- blaði íhaldsmanna, 6. apríl 1929. Höfundurinn skrifar úr nokkurri fjarlægð frá höfuðborginni, gæti verið bóndi, og gat ekki orða bundist eftir að hafa lesið ádrepu Halldórs um þrifnað á Ís- landi þar sem höfundurinn hafði m.a. viljað skipta út prestastéttinni í staðinn fyrir salern- isskálar á sérhvern sveitabæ: Bréfritarinn skrifar: „Mjer, sem hefi verið orðlagður prestahatari, blöskrar svo, að jeg á naumast nokkur orð til að lýsa viðbjóði mínum á slíkum rithætti. Hvaða þörf er á því, að gera svona upp reikning prestanna, þótt haldið sje fram þörf á salernum?“ En Halldór svaraði fullum hálsi með því að Íslendingar kynnu ekki að lesa: „Frá því ég var um fermíngu og byrjaði að skrifa, hef ég stans- laust verið ofsóttur af fólki sem kann ekki að lesa…“ skrifar hann um líkt leyti og átti þá við að mönnum hætti til að taka bókstaflega full- yrðingum sem væri ætlað að koma hlutunum á hreyfingu, ná inn úr vaðmáli vanans, peysuföt- um forpokunarinnar, siggi sinnuleysins… *** Með þeim árangri að það er spurning að hve miklu leyti við sem nú erum á dögum erum hug- arburður Halldórs Laxness. Hann er hnotubrjóturinn sem braut 20. öld- ina til mergjar og gerði okkur innmat hennar ætan. Og eins og hnotubrjótur er hann tví- arma, annars vegar Kiljan og hins vegar Lax- ness. Kiljan á meðan skurnin var brotin, Lax- ness þegar kjarninn var kominn í ljós. Sjálf baráttumálin eru mörg hver svo löngu komin í höfn að átak þarf til að láta sér skiljast að þau hafi ekki alltaf verið sjálfsagðir hlutir: rafvæðing, salerni, bjartar og góðar vistarver- ur, bækur, tónlist, útivera… Það væri efnileg- ur vindmylluriddari sem færi að berjast undir þessum vígorðum nú. Er þá ekki lengur neitt til að keppa að, hafa óskir okkar allar ræst? Að vísu ekki, einungis verður æ flóknara að koma orðum að þeim. Sú dægurmálabarátta sem nú fer fram á Vest- urlöndum snýst ekki lengur um magn heldur gæði. Í því sambandi er við hæfi að minnast þess að enn hefur ekki verið orðuð fram- sæknari stefnuskrá umhverfisvernd- ar á Íslandi en sú sem Halldór samdi árið 1970 og kallaði „Hernaðinn gegn landinu“. Og dulmögnuð er trúar- játning sem hann leggur í munn Jóni Prímusi í Kristni- haldi undir jökli, sem jafnframt var kveðja Halldórs til skáldsög- unnar,: „Sá sem ekki lifir í skáldskap, lifir ekki af hér á jörðinni,“ segir þar. Það hlýtur að vera keppikefli allra sem unna höfundarverki Halldórs Kiljan Laxness að það haldi áfram að vera lifandi skáldskapur en sæti aldrei þeim örlögum að daga uppi sem hillufylli af fagurbók- menntum. Ávarp flutt við opnun á sýn- ingu helgaðri Hall- dóri Laxness í Þjóðarbókhlöðu 23. mars sl. Halldór Laxness árið 1928, ári eftir að hann hélt alræmda ræðu á Íslendingadegi í Kanada. E F T I R P É T U R G U N N A R S S O N Höfundur er rithöfundur. „Hér var eldflaug að leggja af stað með tilheyrandi fyrirgangi: skotpallar splundrast, stög hrynja og mökk- urinn frá eldsneytinu kaffærir um stund sjálft farið sem sækir í sig veðrið með sívaxandi hraða uns það hverfur út í geiminn þaðan sem það tekur að senda upplýsingar um alheiminn.“ KRAFT- BIRTING HALLDÓRS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.