Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.2002, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. MAÍ 2002 13
Í ASTRUP Fearnley safninu í
Osló verður opnuð í dag sum-
arsýningin Realitetsfantasier,
sem útleggja má sem draumsýnir
veruleikans. Um er að ræða póst-
módernísk verk sem safnið hefur
keypt á síðast liðnum árum, en
m.a. má finna þar verk eftir lista-
menn á borð við Jeff Koons, Andy
Warhol, Felix Gonzales-Torres,
Louise Lawler, Nan Goldin og
Bruce Nauman. Það er for-
stöðumaður Astrud Fearnley
safnsins, Gunnar Kvaran, sem
valdi verkin á sýninguna.
Astrud Fearnley safnið var
fyrst opnað 1993 og byggist á
safni verka eftir listamenn frá
Noregi og víða annars staðar að,
en verkin eiga það öll sameig-
inlegt að vera unnin á sl. 30 árum.
Í fyrstu var einblínt á verk frá
„Parísarskólanum“ og fígúratífa
list evrópskra listamanna frá 7.
áratugnum, verk frá hinum svo
nefnda „Lundúnaskóla“ frá 8.
áratugnum sem og þýskra ex-
pressjónista frá 9. áratugnum og
verk hins „nýja Lundúnaskóla“
frá 10. áratugnum. Hin síðari ár
hefur athyglinni hins vegar verið
beint að verkum bandarískra
listamanna frá 10. áratugnum og
er nokkurt magn þeirra nú sýnt í
fyrsta skipti í safninu.
Síðari hluti Realitetsfantasier
verður opnaður 6. júlí.
Stjórnunarnám
í tónlist
TÓNLISTARSKÓLARNIR Rytm-
isk Musikkonservatorium í Kaup-
mannahöfn og Jyske Musikkon-
servatorium í Árhúsum munu
með haustinu bjóða upp á nýjung
í tónlistarkennslu – þriggja ára
nám sem ætlað er þeim sem
starfa í bakgrunni tónlistarsköp-
unarinnar, þ.e. stjórnendum,
þeim sem hafa starfa af því að
uppgötva nýtt hæfileikafólk og
þeim sem standa að skipulagn-
ingu tónlistarhátíða svo fátt eitt
sé nefnt. Námið nefnist tónlistar-
stjórnun og er tilraun til að koma
til móts við hæfniskröfur og út-
flutningsmöguleika danskrar
tónlistar. Stjórnunarnámið bygg-
ist m.a. á hagfræði, lögfræði, út-
flutningsfræðum, tónlistarfræði
og -sögu. Ætlunin er að þessi nýja
námsbraut sé í nánu samstarfi við
ólíkar greinar danska tónlist-
argeirans.
Guðdómlegur
innblástur
ROYAL Aca-
demy of Arts í
Lundúnum hýs-
ir nú sýningu á
kínverskum
Búddalíkneskj-
um, sem flest eru um 1.500 ára
gömul. Sýningin nefnist End-
urkoma Búdda, en munirnir sem
hún hefur að geyma fundust við
framkvæmdir á íþróttaleikvelli í
Shandong héraðinu í Kína 1996.
Rúmlega 400 búddalíkneski fund-
ust við uppgröft á svæðinu og
voru flest þeirra um 1.500 ára
gömul. „Að mínu mati er þetta
mikilvægasti fornleifafundur í
Kína sl. 10 ár,“ sagði Hermann
Lutz, sérfræðingur í kínverskri
list við Rietberg safnið í Zürich,
sem skipulagði sýninguna. Aðrir
hlutir sem fundust við uppgröftin
voru flestir frá því um 500 e.kr.,
en þó mátti einnig finna yngri
muni, sem og 12. aldar mynt, sem
bendir til að gripirnir hafi verið
grafnir í jörð rúmum 500 árum
eftir að þeir voru gerðir. Lík-
neskin þykja hafa haldið upp-
runalegum lit sínum betur en al-
mennt þekkist, en munirnir
tengjast allir Hofi hins rísandi
dreka sem áður var þar staðsett.
Draumsýnir
veruleikans
ERLENT
H
ÚS málaranna RE lætur úr
höfn frá Eiðistorgi í dag kl. 14.
Í áhöfn þessa flaggskips ís-
lenska málverksins eru Bragi
Ásgeirsson, Elías B. Hall-
dórsson, Erla Axelsdóttir,
Guðmundur Ármann, Jónas
Viðar, Kjartan Guðjónsson,
Kristinn G. Jóhannsson, Pétur Gautur og skip-
stjórarnir tveir, Einar Hákonarson og Óli G. Jó-
hannsson.
„Þessi hópur er fyrst og fremst samskipa
vegna þess að við erum öll málarar,“ segir Einar,
þar sem hann stendur á þilfarinu. „Þetta er fólk
sem við Óli höfum valið með okkur. Fólk á ólíkum
aldri og úr ýmsum áttum. Okkur fannst við hæfi
að kalla þetta vorsýningu vegna þess að hér verð-
ur hreiður málaralistarinnar á Íslandi. Ég vil
ekki ganga svo langt að kalla þetta vorið í ís-
lenskri myndlist en hér munu hlutirnir gerast.
Vittu til!“
„Málarar eiga í engin hús að venda, það hefur
ekkert breyst,“ segir Óli, Akureyringurinn sem
kominn er að útgerðinni með Einari í stað Hauks
Dórs, sem fluttur er utan til Danmerkur. „Hér er
stefnt að því að efla málverkið og láta það njóta
þess sem því ber, þannig að ég lét ekki segja mér
það tvisvar þegar Einar bauð mér pláss. Við er-
um með ólíkan bakgrunn, ólíka upplifun í mál-
verkinu, en nú leggjumst við á eitt og fléttum
reynslu okkar saman.“
Miklir fordómar
Að dómi Óla er þörfin fyrir flaggskip á borð við
Hús málaranna afar brýn. „Fordómarnir gagn-
vart málverkinu eru alveg svakalegir, ekki síst
hérna fyrir sunnan. Það er ekki litið við málurum,
hvað þá ef þeir eru utan af landi. Málarinn er
mínus og utanbæjarmaðurinn er annar mínus.
Það sem menn átta sig ekki á er aftur á móti að
tveir mínusar gera plús. Þess vegna er ég hér.“
Erla Axelsdóttir, háseti, tekur nú til máls og
lýsir ánægju sinni með það að vera til sjós með
tvímenningunum. „Þetta eru eldhugar, eins og
þú heyrir. Það er einkennandi fyrir þessa menn
að þeir láta ekki bugast. Bjartsýni þeirra er bráð-
smitandi.“
Liður í starfseminni verður að gefa ungum og
upprennandi málurum tækifæri til að láta ljós
sitt skína. „Í júní verður hjá okkur nýr málari,
Ari Svavarsson frá Akureyri, sem gengið hefur
með verk sín milli Heródesar og Pílatusar, án
árangurs. Þetta er málari sem sópar að,“ segir
Óli og Einar bætir við að plássi hafi meira og
minna verið úthlutað til áramóta.
„Þetta er ekkert einkamál okkar Einars. Við
höfum hlustað á fólkið sem er að mála og Hús
málaranna nýtur stuðnings og velvilja listmálara
á Íslandi í stórum hópum. Það á hljómgrunn. Nú
er það okkar að vinna úr því,“ segir Óli.
Túrinn er styrktur af matarlist.is og vin.is.
Segir Einar það tímanna tákn. „Við gerum út á
styrktaraðila. Það er heiðarlegra en að sitja rakir
í Þjóðleikhúskjallaranum og væla í öðrum lista-
mönnum sem valist hafa í úthlutunarnefndir. Það
sem ég á við er að styrkir til listamanna eru ójafn
leikur. Sumir fá ekkert, aðrir fá heilt ár á starfs-
launum. Og sömu aðilar fá þar að auki úthlutað
starfslaunum ár eftir ár. Þetta hlýtur að skekkja
samkeppnisstöðuna. Það segir sig sjálft.“
Og hann heldur áfram: „Ef styrkja á frjálsar
listir á að gera það gegnum skattakerfið, eins og
gert er í Bandaríkjunum og víðar. Þar fá fyr-
irtæki sem leggja fé til lista skattafrádrátt og eru
þannig hvött til dáða. Auðvitað á að vera sam-
starf milli atvinnulífs og lista.“
Listasagan fölsuð
Og það er víðar pottur brotinn að áliti Einars.
„Lítum á Listasafn Íslands. Það er óskaplega
skrýtið að opinber stofnun sem skráir listasögu
landsins skuli komast upp með að falsa þá sögu
meira og minna á síðasta hluta liðinnar aldar,
einkum forstöðumenn upp á síðkastið. Ef við tök-
um tímabilið frá 1960 til 2000 þá urðu til tveir
vængir í íslenskri myndlist, annars vegar SÚM-
hópurinn og hins vegar hópur sem fór hina fíg-
úratífu leið. Síðarnefnda hópinn, sem var síst
minni, hefur Listasafn Íslands þurrkað út á einu
bretti. Þegar haldin er yfirlitssýning á íslenskri
myndlist á tuttugustu öld leyfa menn sér að
sleppa heilli kynslóð málara. Þarna er allt fram
að Karli Kvaran en sagan byrjar svo ekki aftur
fyrr en með Helga Þorgils. Allt þar á milli er ekki
til. Ég spyr forsvarsmenn safnsins beint út:
Hvernig stendur á þessu? Menn komast ekki
endalaust upp með að svara ekki fyrir þetta. Nú
er komið að þessum gungum, og þú mátt alveg
nota það orð, að standa fyrir máli sínu.“
Óli segir marga íslenska málara upplifa sig
sem utangarðsmenn. „Ég hugsaði þannig lengi.
Það var ekki fyrr en ég fór að beina kröftum mín-
um niður til Evrópu að ég komst að raun um að
maður er ekkert utangarðs í heiminum. Mér hef-
ur verið mjög vel tekið í Danmörku og víðar. Það
hvetur mann til dáða. Það er hins vegar mjög
merkilegt að Danir vita ekkert um íslenskt mál-
verk enda hefur ekkert komið frá Íslandi und-
anfarna tvo áratugi nema hugmyndalist. Það er á
sama tíma og málverkið blómstrar um alla Evr-
ópu og í Bandaríkjunum.“
Hann bætir við að Hús málaranna hafi tekið
upp samband við sýningarsali í Þýskalandi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Færeyjum og vonir standi til
að þar með sé opnað fyrir streymi málara, inn og
út úr landinu.
Hús málaranna RE leggst að bryggju síðasta
dag maímánaðar. Sýningin er opin fimmtudaga
til sunnudaga milli kl. 14 og 18.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá vorsýningunni í skipsrúmi Húss málaranna.
MÁLAÐ Á MIÐUNUM
Málverkið er eins og fiskiskipið, sígilt og framsækið.
Og þótt aflabrögð séu misjöfn láta menn ekki deigan
síga. ORRI PÁLL ORMARSSON var á eyrinni þegar
skipað var út í Hús málaranna RE.
orri@mbl.is
LEIKHÓPURINN Perlan í Reykjavík fagnar sumri með dans- og leik-
sýningu í Iðnó á morgun, sunnudag og hefst sýningin kl. 15.
Í Perlunni eru 13 manns og koma allir fram í Perlu-sumri.
Perlu-sumar samanstendur af 6 atriðum þ.e. þrem dansatriðum og
þrem leikatriðum sem eru full af gleði og glettni. Dansstjórn annast
Lára Stefánsdóttir og leikstjórn Sigríður Eyþórsdóttir sem er jafn-
framt umsjónarmaður leikhópsins Perlunnar.
Kynnir er Stefán Karl Stefánsson leikari. Einnig verður myndlist-
arsýning með myndum frá Listasmiðju Lóu, Fullorðinsfræðslu fatl-
aðra, Eistlandi og Finnlandi.
Með sól í sinni og sumar í hjarta býður Perlan áhorfendur vel-
komna á Perlu-sumar í Iðnó. Aðgöngumiðasala verður frá kl. 13–15 í
dag og frá kl. 13 við innganginn sýningardaginn. Miðaverð er 1.000
kr.
Morgunblaðið/Kristinn
Leikhópurinn Perlan.
Perlu-sumar í Iðnó