Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.2002, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. MAÍ 2002
LAUGAR, VESTFIRÐIR, 1991: Frá upphafi þriðja áratugarins. Hér höfum við heita pott-
inn við danssalinn sem ég lýsti í síðustu grein þessa flokks.* Hann stendur fyrir notalegt
augnablik sem er engu öðru líkt í sögu íslenskrar byggingarlistar. Eins og sjá má býr pott-
urinn yfir sérstæðum ljóðrænum eiginleikum. En ég ætla einnig að lýsa honum, því svo ein-
stakir hlutir snerta mann og eru kveikjan að ógleymanlegri upplifun. Hugsið ykkur lítið
herbergi, svona tvisvar sinnum þrjá metra, með glugga og útsýni yfir grasi gróna hlíð. Ekk-
ert sérstakt útsýni í sjálfu sér en þegar vætan glæðir það lífi – svo hagarnir renna saman í
skynrænt skýjað litaspil – umbreytist það í spegil hugans þar sem maður liggur þar í mak-
indum. Hugsið ykkur flísalagt gólf og yfir því kyrran spegil vatns. Maður fer að þessum
heita potti í gegnum upphækkaðar dyr á vegg sundlaugarinnar við hliðina. Og síðan stígur
maður niður, beint ofan í vatnið og inn í munúðarfullan og draumkenndan heim friðsældar.
*Sjá Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands), Lesbók, 27. apríl 2002.
Þetta er fjórði hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 1991, og texta, 2002, Roni Horn.