Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.2002, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.2002, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 11. MAÍ 2002 3 H VERSU löng er leiðin austur til Indlands? Það er auðmælt og hafið yfir ágreining. Hversu vel hefur Indverjum vegnað, síðan þeir tóku sér sjálf- stæði 1947? Um það eru skiptar skoðanir, enda er ekki hægt að leggja neinn einfaldan eða einhlítan mælikvarða á svo margslungið mál. Af þessu dæmi má ráða, hvers vegna raunvísindi eru jafnan einfaldari í með- förum en mannvísindi. Raunvísindamenn mæla fjarlægðir og margt fleira, og yfirleitt er engin ástæða til að efast um aðferðirnar og niðurstöður mælinganna. Félagsvís- indamenn virða mannfélagið fyrir sér frá ýmsum sjónarhornum, vega það og meta, og slíkt mat getur verið margvíslegri óvissu undirorpið. Með öðrum orðum: einfaldar staðreyndir eru hafnar yfir ágreining eða ættu a.m.k. að vera það, en skoðanir – þar á meðal stjórnmálaskoðanir – eru það ekki. Og ætti ekki að koma neinum á óvart. Eigi að síður eru sumar skoðanir hafnar yfir ágreining, ef að er gætt, eða ættu a.m.k. að vera það. Virðing fyrir mannrétt- indum og lýðræði er ekki smekksatriði, heldur fortakslaus krafa í sérhverju siðuðu samfélagi og hafin yfir ágreining. Þó eru aðeins fáein ár síðan lýðræðisþjóðir heims- ins voru miklu fámennari en hinar og áttu í vök að verjast. Þetta hefur gerbreytzt sem betur fer: nú er lýðræði í sókn víðast hvar og einræði á undanhaldi. Samt er fjölmenn- asta landi heims enn í dag stjórnað af mönnum, sem bera litla virðingu fyrir vest- rænu lýðræði og mannréttindum. Af þessu getum við séð, að skoðanir, sem enginn ágreiningur er um á einum stað, geta verið skiptar á öðrum: þetta fer eftir menning- arsvæðum, en það er þó engin afsökun. Kínverjar verða ekki fyllilega hlutgengir í samfélagi siðaðra þjóða, fyrr en þeir semja sig að vestrænni virðingu fyrir mannrétti og lýðræði: hér eru engir afslættir í boði. Tökum annað dæmi. Öllum þykir það sjálfsagt í okkar heimshluta, eða næstum öllum, að fjölkvæni sé óleyfilegt. Samt þurfum við ekki að fara út fyrir okkar eigin menningarheim til Austurlanda nær eða Afríku til að finna fjölkvænissamfélög – nei, okkur dugir að fara á slóðir mormóna í Ut- ah í miðjum Bandaríkjunum. Þar eru sums staðar margar eiginkonur á bak við eldavél- ina á einu og sama heimili; þetta er að vísu ekki löglegt lengur, en var þó látið viðgang- ast þar til nýlega. Sama máli gegnir um sæmdarmorð, sem svo eru nefnd: okkur finnast þau forkastanleg, en samt tíðkast þau ekki aðeins í Pakistan og Kúrdistan og þar um slóðir, heldur einnig sums staðar í Suðaustur-Evrópu – án þess að sjálfsagt sé, að morðingjarnir þurfi að svara til saka. Og tökum eitt dæmi enn, svo að ekkert fari á milli mála: af okkar evrópska sjónarhóli jaðrar byssudýrkun Bandaríkjamanna við brjálæði. Okkur Evrópumönnum finnst það langflestum gersamlega fráleit skipan, og það finnst einnig Japönum og flestum öðr- um Asíumönnum, að nánast hver sem er geti eignazt og átt skammbyssur, sem eru sérhannaðar til að drepa fólk: það er hægt að kaupa slík skotvopn í póstkröfu þar vestra. Meiri hluti Bandaríkjamanna styð- ur þetta fyrirkomulag. Tveir af hverjum þrem fulltrúum á Bandaríkjaþingi eiga byssur heima. Og morðæðið heldur áfram. Byssuvinafélagið stendur með pálmann í höndunum. Og nú langar mig að nefna eitt dæmi enn – af innlendum vettvangi. Það ætti með líku lagi að vera hafið yfir ágreining, eða svo sýnist mér, hversu fráleitt það er að leggja sjöunda part af flatarmáli Reykjavíkur inn- an Elliðaáa undir flugvöll, sem brezki her- inn byggði í stríðinu gegn mótmælum ís- lenzkra yfirvalda og er nú notaður undir innanlandsflug, sem er og hefur ávallt verið rekið með roknatapi. Þetta ætti að vera hafið yfir ágreining af þeirri einföldu ástæðu, að þetta fyrirkomulag er gersam- lega glórulaust: það er allt of dýrt. Ef svæð- ið væri í einkaeign, þá dytti hagsýnum eig- anda ekki í hug að leggja svo dýrt og mikið flæmi í hjarta höfuðborgarinnar undir flug- vallarrekstur. Eigandi, sem gerði slíkt, væri bersýnilega ekki með réttu ráði. En samt er flugvöllurinn kyrr á sínum stað, enda þótt meiri hluti Reykvíkinga, naumur að vísu, hafi í almennri atkvæðagreiðslu lýst sig fylgjandi því, að flugvöllurinn fari. Hvers vegna er flugvöllurinn þarna ennþá eftir öll þessi ár? Og hvers vegna eru stjórnvöld nýbúin að eyða miklu fé – nærri tveim milljörðum króna! – í endurbætur á flugvellinum, þegar fyrir liggur, að völl- urinn á að víkja? Ég fæ engan botn í þetta mál nema með því að bera það saman við byssubrjálæðið í Bandaríkjunum og aðra sambærilega vitfirringu. Staðsetning Reykjavíkurflugvallar er sprottin af land- lægu virðingarleysi fyrir verðmætum. Menn hegða sér hópum saman eins og þeim finnist það engu skipta, hvað hlutirnir kosta. Málið er samt ekki alveg svo einfalt. Þeir, sem hagnast á núverandi staðsetn- ingu flugvallarins, leggja kostnaðinn á aðra og kæra sig kollótta um afleiðingarnar. Hagsmunir þeirra, sem vilja hafa völlinn kyrran á sínum stað, hafa fengið að ráða ferðinni, af því að hagsmunir okkar hinna eru dreifðari, þótt við séum miklu fleiri: flestir þeirra, sem myndu hagnast mest á flutningi flugvallarins, eru reyndar ófæddir enn. Við, sem berum kostnaðinn, erum ann- ars vegar þau okkar, sem gætu búið í hjarta borgarinnar í stað þess að búa áfram í út- hverfum, af því að þar eru íbúðirnar, og hins vegar þau okkar, sem búa nú þegar í miðborginni, en líðum fyrir fámennið þar og fábreytnina. Það segir sig sjálft, hversu borgin væri miklu líflegri, ef tugir þúsunda byggju á flugvallarsvæðinu á einum bezta stað borgarlandsins: þá gæti Reykjavík orðið gönguborg frekar en bílaborg, og þá fyrst gæti hún orðið glæsiborg á heimsvísu – og ekki hálfgildings borg, eins og Hannes Pétursson lýsir henni í Íslandskvæði sínu: ,,Hér stendur rótum í gleði og sorg mitt sveitamannslíf, mín hálfgildings hugsun í hálfgildings borg.“ Eftir því sem Ísland opnast og gömul þröngsýni víkur fyrir víðri útsýn til um- heimsins, þá munu þessar séríslenzku lausnir eins og flugvöllur á stóru flæmi í hjarta höfuðborgarinnar hörfa smám sam- an undan nútímalegri hugsunarhætti. Þá munu valdsmenn eins og þeir, sem vilja endilega hafa flugvöllinn kyrran á sínum stað til ársins 2016 ef ekki um aldur og ei- lífð, færast í önnur störf, sem eiga betur við þá. Þetta hefur verið að gerast smám sam- an í hundrað ár, en of hægt. Það er dýrt að bíða, ef biðin þjónar engum skynsamlegum tilgangi. Þegar ég var að alast upp, var alltaf að kvikna í húsum, af því að fólk reykti í rúm- inu. Yfirvöldin sáu samhengið og settu svo- hljóðandi auglýsingu í blöðin: ,,Reykjum ekki í rúminu.“ Eldsvoðunum fækkaði smátt og smátt. Auglýsingin var ekki svona: ,,Reykjum ekki í rúminu eftir 2016.“ REYKJUM EKKI Í RÚMINU EFTIR 2016 RABB Þ O R V A L D U R G Y L F A S O N GUNNAR DAL ÞÍN NÓTT ER MEÐ ÖÐRUM STJÖRNUM Þín nótt er með öðrum stjörnum. Um lognkyrra tjörn laufvindur fer. Kallað er á þig og komið að kveðjustundinni er. Dimman, þögnin og djúpið og blöðin þín mjúk sem bærast svo hljótt, liljan mín hvíta sem lokast í nótt. Orð ein og hendur sig hefja, bænir til guðs úr brjósti manns. Stíga upp í stjörnuhimin og snerta þar andlit hans. Úr heimi sem ekki er okkar æðra ljós skín en auga mitt sér, liljan mín hvíta sem hverfur í nótt frá mér. Úr lindunum djúpu leitar ást guðs til þín yfir öll höf. Hún ferjar þig yfir fljótið og færir þér lífið að gjöf. Og söngnum sem eyrað ei nemur þér andar í brjóst. Dreymi þig rótt, liljan mín hvíta sem opnast á ný í nótt. Höfundur er skáld. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 1 8 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R EFNI Graham Swift er fimmti rithöfundurinn sem Fríða Björk Ingvarsdóttir ræðir við í viðtalsflokki þeim sem birst hefur í Lesbók undanfarnar vik- ur. Hann er einn þeirra höfunda er reis upp úr miklu blómaskeiði breskrar skáldsagna- gerðar í upphafi níunda áratugarins og hef- ur notið sívaxandi virðingar á undaförnum árum. Swift ræðir m.a. um mikilvægi þess að hafa trú á skáldskapnum sem skáldskap, en ekki sem raunveruleika í dulargervi. Salka Valka er nýtt dansverk eftir Auði Bjarnadóttur danshöfund og Úlfar Inga Haraldsson tón- skáld sem Íslenski dansflokkurinn frum- sýnir við opnun Listahátíðar í dag. Ragna Sara Jónsdóttir ræddi við höfundana. Hollendingurinn fljúgandi óperan fræga eftir Richard Wagner verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þetta er eitt viðamesta verkefnið á dagskrá Listahá- tíðar sem sett er í dag. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við nokkra þeirra listamanna sem standa að sýningunni. Átta íslenskir myndlistarmenn eru fulltrúar ólíkra listforma á sýningunni Mynd – íslensk samtímalist sem opnuð er í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi á morg- un í tilefni Listahátíðar. FORSÍÐUMYNDIN er af Hlín Diego Hjálmarsdóttur og Trey Gillen í dansverkinu Sölku Völku sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í dag. Ljósmyndari: Ásdís.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.