Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.2002, Side 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 11. MAÍ 2002
Í
FYRSTA sinn á Íslandi er verk eftir
Halldór Laxness fært í dansgerð en til-
efnið er 100 ára afmæli skáldsins.
„Okkur datt í hug hvort það gæti
ekki verið skemmtileg tilbreyting að
leyfa fólki að sjá verk Laxness í nýrri
mynd. Verkum Halldórs Laxness hefur
aldrei verið sinnt af danslistinni hér-
lendis, nú gafst tækifæri og við gripum það,“
segir Katrín Hall til útskýringar.
Salka Valka er klukkustundar langt dans-
verk eftir danshöfundinn og leikstjórann Auði
Bjarnadóttur. Dansgerðin er samin af Auði í
samvinnu við Guðrúnu Vilmundardóttur, list-
rænan ráðunaut, tónlistin er eftir Úlfar Inga
Haraldsson, sviðsmynd eftir Sigurjón Jó-
hannsson, búningar eftir Sigrúnu Úlfarsdóttur
og lýsing eftir Elfar Bjarnason.
Salka nútímans
„Salka Valka Íslenska dansflokksins er
tímalaus og okkar verkefni er að finna Sölku
nútímans. Okkar Salka er ekki „sauðskinns
Salka“ og verkið er ekki nákvæm útfærsla af
bókinni heldur er það lauslega byggt á sög-
unni. Skáldverkið Salka Valka býður upp á
stórkostlegar persónur til að skapa dansverk.
Þegar ég hugsaði um verk Laxness fannst mér
þetta nærtækasta sagan til að byggja dans-
verk á, en hún hafði mikil áhrif á mig þegar ég
las hana á sínum tíma,“ segir Katrín.
Katrín leitaði til Auðar Bjarnadóttur til að
sjá um útfærsluna.
„Mér fannst kominn tími til að við hjá Dans-
flokknum fengjum að njóta starfskrafta Auðar.
Hún hefur ekki starfað með flokknum í minni
tíð sem listdansstjóri. Hún hefur traustan bak-
grunn sem danshöfundur og leikstjóri, sem
stenst vel þær kröfur sem gerðar eru til þess
sem setur upp þetta verk. Einnig finnst mér
gaman, og við erum stolt af, að bera á borð al-
íslenskt verk þar sem allir aðstandendur eru
íslenskir. Dans, búningar, leikmynd, tónlist og
ljós, er allt hannað af íslenskum listamönnum.
Þetta verk er algerlega íslensk frumsköpun,“
segir Katrín.
Persónur bókarinnar
í aðalhlutverki
Auður Bjarnadóttir segir að sér hafi strax
þótt krefjandi og spennandi verkefni að setja
Sölku Völku upp í dansgerð. Krefjandi vegna
þess hve sagan er þekkt og hvernig eigi að
gera svo stóru verki til hæfis á sviði. „Ég ákvað
fljótlega að draga fram persónur verksins og
sambönd þeirra, fremur en að leggja áherslu á
þjóðfélagsumgjörðina og pólitíska ádeilu sög-
unnar. Ef umhverfið hefði verið annað, ég
hefði til dæmis haft þrjátíu manna dansflokk
til umráða, þá hefði ég eflaust lagt meiri
áherslu á það síðarnefnda. En ég ákvað að
leggja áherslu á persónurnar: Sölku og fólkið
sem hefur mest áhrif á hana. Sambönd þess
eru stórkostleg – ást, hatur og dauði – það er
endalaus dramatík í þessu verki sem auðvelt er
að vinna upp úr. Salka er ótrúlega sterk kona
og kvenhetja mikil svo mér fannst spennandi
að skoða hvernig hún mótast af fólkinu sem
stendur henni næst. Það má segja að verkið
byggist að mestu leyti á sambandi hennar við
móður sína, Arnald og Steinþór,“ segir Auður.
Fjórar persónur bera verkið uppi, þau Salka
sem dönsuð er af Hlín Diego Hjálmarsdóttur,
Sigurlína móðir Sölku sem dönsuð er af Láru
Stefánsdóttur, Arnaldur, dansaður af Guð-
KOMINN TÍMI Á LAX-
NESS OG DANSLISTINA
Morgunblaðið/Ásdís
Salka og Arnaldur eru dönsuð af tveimur ungum íslenskum dönsurum; Hlín Diego Hjálmarsdóttur og Guðmundi Elíasi Knudsen.
„Salka Valka var ótrúlega sterk kona og mikil kvenhetja,“ segir Auður Bjarnadóttir. Kraftur
hennar leynir sér ekki í meðförum Hlínar Diego Hjálmarsdóttur.
Auður Bjarnadóttir, danshöfundur Sölku Völku, og Katrín Hall, listdansstjóri
Íslenska dansflokksins, höfðu í nógu að snúast á æfingu í vikunni.
„Okkur fannst kominn
tími til að danslistin sinnti
Halldóri Laxness,“ segir
Katrín Hall, listdansstjóri
Íslenska dansflokksins,
um tilurð dansverksins
Sölku Völku sem frumsýnt
verður á stóra sviði Borg-
arleikhússins í dag. Katr-
ín og Auður Bjarnadóttir,
danshöfundur Sölku
Völku, sögðu RÖGNU
SÖRU JÓNSDÓTTUR
frá tilurð verksins.
„Ég ákvað fljótlega
að draga fram per-
sónur verksins og
sambönd þeirra,
fremur en að leggja
áherslu á þjóðfélags-
umgjörðina og póli-
tíska ádeilu sögunn-
ar. Ef umhverfið
hefði verið annað, ég
hefði til dæmis haft
þrjátíu manna dans-
flokk til umráða, þá
hefði ég eflaust lagt
meiri áherslu á það
síðarnefnda.“
Auður
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir Sölku Völku í Borgarleikhúsinu í dag