Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.2002, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JÚLÍ 2002 15
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is: Magnús Sig-
urðsson. Til 20.7.
Gallerí Reykjavík: Stuttsýning Katr-
ínar S. Ágústsdóttur. Til 17.7.
Gerðarsafn: Úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur. Til 28.7.
Hafnarborg: Aðalsalur: David Alex-
ander. Sverrissalur: Distill, sjö lista-
menn. Til 22.7.
Hallgrímskirkja: Húbert Nói. Til
29.8.
i8, Klapparstíg 33: Sabine Funke,
Ragna Róbertsdóttir og Beate Ter-
floth. Undir stiganum: Frosti Frið-
riksson. Til 17.8.
Listasafn Akureyrar: Akureyri í
myndlist II. Samsýning 23 lista-
manna frá Akureyri. Til 21.7.
Listasafn ASÍ: Valgerður Hauksdótt-
ir og Kate Leonard. Til 28.7.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið
laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Listin meðal fólksins. Til 31.
des.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Íslensk samtímalist. Til 11.8.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hin
hreinu form.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Grófar-
húsi: Blaðaljósmyndir. Til 1.9.
Mokkakaffi: Aaron Mitchell. Til 9.7.
Norræna húsið: Siri Derkert. Til
11.8.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B: Mynd-
listar-, gjörninga- og tónlistarverk-
efninu Converter Project II. Til 7.7.
Skaftfell, Seyðisfirði: Peter Frie og
Georg Guðni. Til 10.8.
Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á
verkum Halldórs Laxness. Til 31. des.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfis-
götu: Landafundir og ragnarök.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Hallgrímskirkja: Litháíski organist-
inn Jurate Bundszaite. Kl. 12.
Norræna húsið: Kammerkór Ála-
borgarháskóla, sænski saxófónleikar-
inn Anders Paulsson og Einar Már
Guðmundsson rithöfundur. Kl. 15.
Reykjahlíðarkirkja, Mývatnssveit:
Danski kórinn Tritonus. Kl. 21.
Sunnudagur
Akureyrarkirkja: Tritonuskórinn frá
Danmörku. Kl. 17.
Grafarvogskirkja: Kammerkór Ála-
borgarháskóla og sænski saxófónleik-
arinn Anders Paulsson. Kl. 21.
Hallgrímskirkja: Litháíski orgelleik-
arinn Jurate Bundszaite. Kl. 20.
Upplýsingar berist: Morgunblaðið,
menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvík. Myndsendir: 569 1222. Netfang:
menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
RAY Brown hefur verið hluti af lífi mínuallt frá því ég, tólf ára gamall, eign-aðist HMV 78 snúninga plötu meðDizzy Gillespie þarsem hann var
bassaleikari. Lögin voru 52nd Street Theme
og A Night In Tunisa og í því fyrrnefnda lék
hann sóló með boga. Brown er einn helsti
áhrifavaldur nútíma bassaleiks og nú er
trommarinn Marx Roach sá eini sem lifir af fé-
lögunum úr mögnuðustu bíboppsveit sögunn-
ar. Ray Brown hefur safnast til feðra sinna
einsog Charlie Parker, Bud Powell og Dizzy
Gillespie.
Ég efast um að nokkur bassaleikari hafi
hljóðritað jafn margar hljómplötur um ævina
og Ray Brown; í það minnsta ekki með helstu
djasssnillingum veraldar. Hann var bassaleik-
ari í kvartetti Milt Jackson sem Módern djass
kvartettinn spratt uppaf og í nokkur ár var
hann giftur Ellu Fitzgerald og með henni eign-
aðist hann soninn Ray Brown jr. Það var dálít-
ið spælandi að í fyrra skiptið sem Ray Brown
kom til Íslands var það sem framkvæmda-
stjóri MJQ á Listahátíð 1984 og hann snerti
ekki bassann í ferðinni en barðist í staðinn við
að glæða tóninn í Laugardalshöll lífi. Aftur á
móti kom hann með tríó sitt á Jazzhátíð
Reykjavíkur 1998 og hélt þrusutónleika í Óp-
erunni. Ég sat með honum á Hótel Sögu kvöld-
ið áður og sagði honum frá bangsa yngri syst-
ur minnar sem hún eignaðist fyrir margt löngu
og hét Ray Brown. Eldri systir mín hafði eign-
ast dúkku sem við bræður fengum hana til að
skíra Ellu og því var sjálfgefið að bangsatetur
yngri systurinnar bæri nafn Ray Browns. Ég
hafði mikinn hug á að eignast mynd af þeim
nöfnum og þar sem Ray fannst sagan
skemmtileg var hann til í að stilla sér upp með
bangsann á hljóðprufu. Því miður fannst
bangsinn ekki þegar til kom þótt nú sé hann
kominn í leitirnar og það var kannski eins gott
því Ray Brown varð fyrir miklu áfalli á hljóð-
prufunni. Er hann opnaði bassakassa sinn kom
í ljós að bassinn hafði brotnað í flutningnum til
Íslands. Margur stórbassaleikarinn hefði af-
lýst tónleikunum, en ekki Ray Brown. Hann
fékk bassa Gunnars Hrafnssonar lánaðan og
lék á tónleikunum einsog ekkert hefði í skorist.
Þegar bassa Niels-Hennings var stolið aflýsti
hann tónleikaför sem hann var að fara í, ég
býst þó við að hann hefði bjargað sér á láns-
bassa hefði hann orðið
fyrir áfallinu á tónleika-
degi en leikmáti hans er
svo samofinn hljóðfærinu
að hann hefði trúlega
breytt efnisskránni. Það
er til mjög skemmtilegur
diskur með þeim Ray og
Niels með Oskari Peter-
syni: Oscar Peterson And
The Bassists, þarsem
þeir leika með honum á
Montreux djasshátíðinni
1977. Niels hafði pakkað
bassa sínum niður er Osc-
ar ákvað aukalag, Soft
Wind, og þeir félagar
skiptust á að leika á bassa
Rays. Það er gaman að
heyra hversu Niels nálg-
ast þá stíl Rays, en hann
var að sjálfsögðu ein aðal-
fyrirmynd hans í gamla
daga einsog allra annarra
bassaleikara.
Ray Brown gaf ekki út
margar hljómplötur und-
ir eigin nafni fyrr en á
síðari árum. Fyrst hjá
Concord og síðan Telarc,
en sextándi diskur hans
fyrir það fyrirtæki kom
út á dögunum. Some Of
My Best Friends
Are...Guitarists nefnist
hann og eru í þeim hópi
gítarleikarar á borð við
Kenny Burrell, Ulf
Wakenius og Herb Ellis
sem lengi lék með Ray í
tríói Oscars Petersons,
en þar var Ray innan-
borðs í fimmtán ár. 12
tónar flytja inn Telanc
skífurnar og þar má alltaf fá Ray Brown. Ein
besta hljóðritun Ray með Peterson er met-
söluskífan Night Train, en af öðrum snilld-
arhljóðritunum hans má nefna bassakonsert-
inn er Dizzy og John Lewis skrifuðu fyrir hann
og stórsveit Gillespie; One Bass Hit, dúóskífu
hans með Duke Ellington; This One’s For
Blanton og öllum Jazz At The Philharmonic
upptökunum. Svo má ekki gleyma því að Ray
sló bassann meðan Árni Egils lék með boga á
skífu Árna; Fascinating Voyage.
Hljómmesti bassaleikari allra tíma er fallinn
að foldu, en hann var meira en bassaleikari og
því ekki undarlegt að í fréttaskeytum er ber-
ast nú um veröldina er hann ekki titlaður
bassaleikari heldur djassrisi.
BASSALEIKARI
BASSALEIKARANNA
Bassaleikarinn Ray
Brown ætlaði að leggja
sig í smástund fyrir tón-
leika sl. miðvikudags-
kvöld. Hann vaknaði ekki
aftur. Ray hefði orðið
76 ára 13. október nk.
VERNHARÐUR
LINNET minnist
hér djassrisans.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bassaleikarinn Ray Brown.
STARFSEMI safnverslunar ListasafnsÍslands hefur tekið nokkrum breyt-ingum í vor, en hún fluttist í nýtt ogrýmra húsnæði í apríl síðastliðnum.
Nýskipaður safnbúðarstjóri er Margrét
Sveinbergsdóttir, sem hefur starfað sem
verslunarstjóri listasafnsins Mackenzie Gall-
ery í Regina-borg í Saskatchewan-fylki í
Kanada undanfarinn áratug.
Margrét segir aðaláhersluna í starfsemi
safnverslunarinnar vera lagða sem fyrr á út-
gáfur á vegum safnsins, bækur, kort og
veggspjöld. „Auk þess hefur verið ákveðið að
vera með íslenska listmuni til sölu þar, eins
og glervörur, keramik og silfurskartgripi,“
segir hún. „Svo erum við að kanna mögu-
leikana á því að selja þar gjafavörur sem
unnar eru útfrá verkum frægra listamanna
og eru hannaðar af stórum listasöfnum víðs-
vegar um heim. Ég hef góða reynslu af sölu
slíkra vara, og tel að hún myndi gefa búðinni
ákveðna sérstöðu heima. Ég veit ekki til
þess að slíkar vörur séu seldar á íslenskum
listasöfnum. Einnig hefur komið upp sú hug-
mynd að hanna vörur sem einkenna Lista-
safn Íslands og verk í eigu þess.“
Að sögn Margrétar eru safnverslanir tal-
inn mikilvægur þáttur í starfsemi safna í
Norður-Ameríku. „Ég held að ákvörðunin
um stækkunina hafi verið tekin hér heima
með það fyrir augum að verslunin gæti orðið
fjáröflunarleið fyrir safnið og eins kynnt út-
gáfustarfsemi þess enn frekar í fallegra og
bjartara rými,“ segir hún.
SAFNVERSLUN LISTASAFNS ÍSLANDS FLUTT Í NÝTT RÝMI INNAN SAFNSINS
Margrét Sveinbergsdóttir er verslunarstjóri
safnverslunar Listasafns Íslands.
MIKILVÆGUR ÞÁTTUR
Í STARFSEMI SAFNA
Safnverslun Listasafns Íslands hefur verið flutt í stærra rými innan safnsins.