Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.2002, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.2002, Blaðsíða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JÚLÍ 2002 T OVE Jansson fæddist 9. ágúst 1914. Hún lést á spítala í Helsinki í júní á síðasta ári, 86 ára að aldri. Hún átti að baki glæstan feril sem rithöfundur og myndlistarmaður og átti aðdáendur um allan heim auk þess sem hún hlaut margvís- legar opinberar viðurkenningar fyrir störf sín. Foreldrar Tove voru bæði myndlistamenn og hún var aðeins fjórtán ára þegar teikningar hennar voru fyrst sýndar í sænsku blaði. Hún gekk í listaskóla í Stokkhólmi frá 1930-33 og síð- an í Helsinki. Þá fór hún til Þýskalands, Ítalíu, Frakklands og London í listnám. Tove skrifaði bækurnar um Múmínálfana á sænsku, þó hún væri finnsk. Hún tilheyrði minnihlutahópi sænskumælandi Finna og talaði, hugsaði og skrifaði á tungumáli sem umhverfið notaði ekki. Við þær aðstæður kynntist hún því að fólk er mismunandi, með mismunandi venjur og siði, sem hægt er að sjá frá mismunandi sjónarhorn- um. En mikilvægast er þó umburðarlyndi og mannúð. Foreldrar Tove lifðu bóhemlífi í Hels- inki og á finnskri smáeyju, og það er umhverfið sem við kynnumst í Múmínálfabókunum. Tove bjó með sambýliskonu sinni hluta ársins í Hels- inki og hluta ársins á afskekktri eyju í Finn- landsflóa. Að múmínálfum ... Frægust varð Tove Jansson fyrir sögurnar um Múmínálfana. Veröld múmínálfanna var æv- intýraheimur þar sem hættur koma og fara án þess að valda tjóni á lifandi verum. Múmínfjöl- skyldan býr í húsi sem múmínpabbi smíðaði og smám saman fjölgar á heimilinu, því auk þess að múmínmamma og múmínpabbi eignuðust sinn eigin múmínsnáða, flytja inn allskyns vinir þeirra, sumir þeirra gerólíkir þeim. Höfundurinn lýsir múmínálfunum og vinum þeirra eins og gömlum kunningjum, með kost- um og göllum. Hún lýsir jafn vel þeim sem búa við ástríki og þeim sem verða útundan. Í smá- sögunum sem hún skrifaði fyrir fullorðna vann hún mikið með einmanaleika og útskúfun. Að hluta til er Tove líka að lýsa sjálfri sér og heimssýn sinni. Fjölskyldu hennar má þekkja í dulargervum í bókunum. Einnig aðra listamenn og vini. Finnland er líka eins og Múmíndalurinn, indælisstaður en umkringdur allskyns hættum (sbr. Sovétríkin). Múmínálfarnir Alls skrifaði Tove Jansson þrettán bækur um Múmínálfana á árabilinu 1945-1977. Fyrsti Múmínálfurinn sem birtur var opinberlega var í teiknimyndaseríu sem beint var gegn Hitler á fjórða áratugnum. Tove skrifaði fyrstu stuttu söguna um múmínálfana 1945. Halastjarnan var fyrsta heilsteypta skáldsagan sem kom út, 1946, og sú síðasta var Múmíndalur í nóvember, 1971. Múmínálfarnir náðu alþjóðlegri frægð 1954, þegar Lundúnablaðið the Evening Standard hóf birtingu á teiknimyndaseríu sem teiknuð var af Tove Jansson og bróður hennar Lars. Þegar mest lét, voru Múmínálfarnir birtir á 60 tungu- málum í 40 löndum. Múmínálfaheimur hefur verið byggður á lítilli finnskri eyju og þangað koma 4000 börn á öllum aldri sumar hvert. Framan af eru ævintýri múmínálfanna fyndin og spennandi, en fremur barnaleg, en 1957, um það bil tíu árum eftir að fyrsta múmínálfabókin kom út, fór Tove að gera tilraunir með önnur þemu. Vetrarundur í múmíndal var mun fant- asíukenndari en fyrri bækur sem höfðuðu meira til eldri lesanda, og þar með þeirra sem voru að lesa upphátt fyrir börn. Hinn innbyggði lesandi múmínálfabókanna, þ.e.a.s. sú sem höfundurinn gerir ráð fyrir að lesi söguna, er ung að árum. Bækurnar eru heppilegar fyrir unga lesendur, hrollurinn ekki mikill en mikið af góðum og hollum boðskap sem settur er fram á spaugilegan hátt. Boð- skapur bókanna er ávallt þessi: sýndu öðrum til- litsemi og skilning. Þessi orð eru þó aldrei í text- anum, heldur eru þau sýnd í verki í tilveru og hættulegum ævintýrum fjölskyldunnar. Múmíndalurinn er líkur hverju öðru dreifbýli þar sem venjulegt fólk býr. En hann er líka æv- intýraheimur og þessvegna mun fjölbreytilegri og skemmtilegri en venjuleg holt og hæðir. Svipað má segja um múmínfjölskylduna og vini þeirra. Þau eru ósköp lík venjulegu fólki í hugs- un, tali og samskiptum. Þau læra hinsvegar margt um sig sjálf, hvernig þau bregðast við óvæntum aðstæðum og hættum. Þau átta sig á við hverju er að búast af vinum sínum. Þau læra umburðarlyndi og stóiska ró (nema Snabbi) og að hégómleiki er bara hégómi (nema Snabbi). Þau eru ávallt sátt við hlutskipti sitt og öfunda enga. Heimur múmínfjölskyldunnar er fyrirmynd- arheimur, þar sem eining ríkir. Þar er ekki tek- ist á við umheiminn eins og hann birtist okkur í hinu raunverulega lífi, heldur í ímynduðu æv- intýralandslagi. Þetta gerir bækurnar um múmínálfana sérstaklega heillandi og er ein ástæða vinsælda ævintýrabóka. Þó gerðist það skrítna og hálfsorglega með bækur Tove Jans- son; þær urðu myrkari, t.d. Eyjan hans múm- ínpabba, og hættu að vera fyndnar eins og t.d. Pípuhattur galdrakarlsins. Tilvistarkreppa múmínpabba í Eynni hans múmínpabba, er ekkert sniðug og þá enn síður hremmingarnar sem fjölskyldan lendir í á eynni sem þau flytja til. Það er helst í þeim bókum sem Mía litla á stórleik í, að einhver húmor ræður ríkjum. Þannig er Örlaganóttin alveg stór- kostleg þegar Mía hreinskilnast þar í allar áttir og sér engan mun á skáldskap og raunveruleika. Minnkandi húmor múmínálfabók- anna er líkleg orsök þess að hætt var að þýða þær yfir á íslensku. Það hefur ekki þótt við hæfi barna að liggja yfir tilvistarkreppum. Í Eyjunni hans múmínpabba verður tilvistarkreppa múmínpabb- ans til þess að hann flytur fjölskyld- una til eyðieyju útí hafi til að takast á við óblíð náttúruöflin. Hann þráir að vera verndari fjölskyldunnar og að þau séu háð honum og hans styrku stjórn. Múmínmamma lætur þetta góðlátlega eftir honum, enda lítt fyrir umvandanir gefin, hennar uppeldisað- ferð er að láta fólk reka sig á og læra af mistök- unum. En henni hundleiðist aðgerðarleysið á eynni og saknar blómagarðsins síns. Hún teikn- ar blóm á vegginn og smám saman þekja blóma- teikningarnar allan vegginn og hún stígur inn í þennan ímyndaða garð sinn. Múmínmamma er ekki í ævintýri, hún er að missa tökin á raun- veruleikanum og er farin að samsama sig veggnum. Hér er þekktu tema úr kvennabók- menntum snúið á haus. Dæmi um það er sagan Yellow Wallpaper eftir Charlotte Perkins Gilm- an. Kona sem meinað er að tjá sig í skriftum fer að éta veggfóðrið og samsama sig húsinu, verð- ur hin fullkomna húsmóðir að mati karlsins, en í rauninni geðveik. Múmínmömmu er meinað um að vera í hlutverki sínu sem húsmóðir og fer að tjá sig í teikningum. Dvölin á eynni reynist þeim öllum erfið. Múmínsnáðinn ráfar um eynna og kynnist morranum, þ.e.a.s. einmanaleikanum af eigin raun. Hann kemst að því að allir flýja morrann en morrinn eltir þá sem skerast úr leik. Múmínpabbi fær loksins tækifæri til að sanna sig, að eigin mati, og þau geta haldið heim í múmíndalinn. Hann er reynslunni ríkari en þau hin bara fegin að komast heim. Þó mórall- inn í þessu sé ágætur er einum of mikil geðveiki í þessari sögu og of sjaldan leikið á létta strengi Tove að störfum á fimmta áratugnum. MÚMÍNVERÖLD TOVE JANSSON E F T I R B Á R U M A G N Ú S D Ó T T U R Alls skrifaði Tove Jansson þrettán bækur um Múmínálfana á árabilinu 1945– 1977. Fyrsti Múmínálfurinn sem birtur var opinberlega var í teiknimyndaseríu sem beint var gegn Hitler á fjórða áratugnum. Í þessari grein er rýnt í þessar vinsælu bókmenntir sem bæði börn og fullorðnir hafa gleymt sér yfir. við allt og kvartsár. Hann langar samt stundum til að vera hetja en það endist yf- irleitt ekki lengi. Oft kemur hann sjálfum sér og öðrum í vandræði en veit að honum verður alltaf fyrirgefið, enda er hann einn af fjöl- skyldunni. Snúður er spekingslegur flækingur, sem ávallt er klæddur gömlum frakka og hatti og er sá eini sem notar skó. Hann er öllum óháður og lifir ekki eftir sama takti og múmínfjölskyldan. Þegar þau leggjast í hýði fyrir veturinn heldur hann af stað út í heim í leit að nýjum æv- intýrum. Hann er úrræða- góður og ekki hræddur við neitt. Hann leikur bara lag á munnhörpuna sína eða reykir pípuna sína og er allur hinn ró- legasti. Aðdáendur hans eru flestir smáir og feimnir og múmínsnáðinn telur hann sinn besta vin. Snúður sér engan tilgang í að bindast eignum, stöðum eða fólki, múmínsnáðanum til mikillar armæðu. Mía litla, yngri systir Mímlu, er svo pínulítil að hún getur falið sig í garn- hnykli. Hún ber ekki virðingu fyrir nein- um og er ósvífnislega hreinskilin. Samt sem áður hefur hún mjög jákvæða af- stöðu til lífsins. Hún sýnir væntumþykju eingöngu eftir hentugleika og það mjög sjaldan.. Fillífjonka er algjör andstæða múm- ínálfanna. Hún hefur ekkert ímynd- unarafl eða lífsgleði heldur ein- göngu skyldur. Hún er mjög skipulögð, hefur ofurtrú á hefð- um og venjum og hefur mörg prinsipp. En þegar eitthvað á bjátar verður hún algjörlega stjórnlaus. Morrinn er mjög skelfilegur og allir eru hræddir við hann. Hann er stór, grár og svo kaldur að jörðin frýs undir honum ef hann staldrar við. Stundum heyr- ist hann góla.. Hann er mjög hrifinn af ljósi og mjög einmana, eins og múmínsnáðinn áttar sig á í Eyju múmínpabba. Á frummálinu er Morrinn kven- kyns en varð karlkyns í íslenskri útgáfu. Hemúlar eru einrænir, ganga í kjólum og eru haldnir söfnunaráráttu. Sumir safna frímerkjum, aðrir skordýrum. Og þeir eru ekki til viðtals um neitt annað en áhugamál sitt. Allir eru þeir fúllyndir og þar af leiðandi mjög fyndnir fyrir les- andann. Þeir heita ekkert annað en „hemúll” þó þeir séu fleiri en einn. Und- antekning frá öllu framangreindu eru hemúlarnir í sögunni ‘Hemúllinn sem elskaði þögnina’ í smásagnasafninu Ósýnilega barnið. Þar reka þeir skemmtigarð, segja gamansögur og hrekkja fólk. MÚMÍNÁLFARNIR eru litlir og feitir og ávallt sólarmegin í lífinu og sofa þess- vegna þegar veturinn kemur með myrk- ur og kulda. Múmínpabbi segir frá því í endurminn- ingum sínum að hann hafi strokið frá munaðarleysingjahæli til að leita Frelsis og Ævintýra. Hann elskar óveður og eitt sinn bjargaði hann tilvonandi-múm- ínmömmu úr sjónum á myrkri óveðurs- nótt. Vert er að hafa í huga að end- urminningar hans eru ekki sem áreiðanlegastar. Múmínmamma er vitur og góð, ávallt tilbúin með mat. Hún hefur tröllatrú á þeirri uppeldisaðferð að allir þurfi að reka sig á og óþarft sé að halda langar ræður um hlutina. Múmínsnáðinn er soldið hégómlegur og þráir mjög að vera vinsæll. Hann dá- ist mjög að Snúði vini sínum fyrir sjálf- stæðið, en á sjálfur erfitt með einmana- leika. Hann er dauðskotinn í snorkstelpunni og reynir að ganga í aug- un á henni. Snorkarnir líta nákvæmlega út eins og múmínálfar, nema þeir skipta um lit þeg- ar þeir komast í geðshræringu. Snork- urinn er hálfgerð aukapersóna í bók- unum, er rökviss og skipulagður, en systir hans, snorkstelpan, er sæt, með ennistopp og ökklahring og hégómleg og soldið vitlaus. Snabbi er renglulegur og minnir helst á kengúru í útliti. Hann er skíthræddur Múmínpabbi með sjóhatt. MARGBROTNAR SMÁVERUR

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.