Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.2002, Page 8
LJÓSMYNDARIN
Þ
egar horft er aftur til ársins 2001 og frétt-
næmra viðburða í heiminum koma hryðjuverk-
in í Bandaríkjunum 11. september strax upp í
huga manna. En fréttnæmir viðburðir eru sí-
fellt að eiga sér stað, í öllum löndum; frétta-
mat fólks er mismunandi eftir því hvað at-
burðir hreyfa sterkt við því. Frétta- og
blaðaljósmyndarar eru á vettvangi að skrá-
setja atburði í vísindum, listum, íþróttum, og lífið eins og
mennirnir lifa því á hverjum stað. Fréttir eru ekki bara
stríð og harmleikur.
Enn einu sinni eru verðlaunamyndir hinnar árlegu blaða-
ljósmyndasamkeppni World Press Photo komnar til Íslands,
og eru sýndar á göngum Kringlunnar. Dómnefnd valdi að
þessu sinni úr tæplega 50.000 ljósmyndum eftir 4.171 ljós-
myndara í 123 löndum. Meira en helmingur þessara mynda
var tekinn á stafrænar vélar, en vitaskuld er það bara for-
vitnileg staðreynd; þegar rætt er um gæði ljósmynda skipta
tæki engu máli, heldur eingöngu myndramminn sjálfur og
augað sem býr hann til. Góða ljósmynd má taka á hvaða
myndavél sem er.
Fréttaljósmyndarinn verður sífellt vitni að hinum ólík-
ustu atburðum; myndin verður ekki til nema hann sé á
staðnum. Og myndin verður ekki góð nema hann sé nálægt
myndefninu og viti hvað hann er að gera. Breski ljósmynd-
arinn Roger Hutchings, formaður dómnefndarinnar, segir
að þegar hann skoði eldri árbækur World Press Photo þá
fyllist hann skelfingu vegna þess hve mörg vandamál sem
þar sé fjallað um séu enn óleyst. „Það er eftirtektarvert
hve Mið-Austurlönd eru þar áberandi, en einnig Afganistan
sem í 24 ár hefur varla horfið úr fréttum: fáfrótt, skekið af
stríði og innrásum, leiksoppur erlendra krafta. Ein og hálf
milljón manna látin – land í rúst. Slíkar aðstæður leiða til
komu talibana og skapa heimili fyrir al-Qaeda. Í júní síð-
astliðnum voru 3,6 milljónir Afgana á flótta undan tveggja
ára þurrki og öfgafullri íslamskri stjórn,“ segir Hutchings.
„Einn dag þennan júnímánuð dó barn úr ofþornun – eins
dapurlegt og það er þá eru það algeng örlög í flótta-
mannabúðum. En í þetta sinn var ljósmyndari viðstaddur til
að skrásetja augnablikin þegar barnið var undirbúið fyrir
greftrun. Hann tók mynd sem náði til okkar. Hún er ein-
föld, táknræn; minnir á helgimynd. Hún kemur úr mynda-
röð sem sýnir skelfilegt ástandið meðal Afgana. Hún sýnir
veröld þeirra sem eiga ekkert og mynda andstæðu við þá
sem eiga, sem er svo aftur fyrirlitið af sumum og þráð af
öðrum. Þessi myndaröð bendir á hluti sem þarf að takast á
við og álasar okkur fyrir að hafa snúið baki við Afganistan
frá því kalda stríðinu lauk. Hún minnir okkur einnig á
hvað ljósmyndari er.
Ljósmyndarinn er njósnari. Hann er í framlínu þeirra
sem afla upplýsinga en er svo iðulega örvæntingarfullur
vegna skorts á áhuga á mikilvægum málefnum meðan miðl-
arnir verða sífellt heimskari. Almennt séð eru ljósmynd-
arar alls ekki metnir sem skyldi, ólíkt íþróttamönnum eða
annars flokks kvikmyndastjörnum. Við höfum ruglað for-
gangsröðinni. Ljósmyndarar ættu að vera metnir að verð-
leikum.“
Ljósmynd/Carlos Barria Moraga
Mótmæli á Plaza de Mayo í Buenos Aires nefnist þessi mynd eftir Carlos Barrio Moraga sem hlaut fyrstu verðlaun almennra fréttamynda. Tískan í Senegal er sýnd í myndum Shobha
Ljósmynd/Jodi Bieber, Network
Jodi Bieber, frá Suður-Afríku, hlaut fyrstu verðlaun í Portrettflokki fyrir þessa mynd af pakistanskri stúlku.
Ljósmynd/Jozsef L. Szentpetri
Froskur gæðir sér á vorflugum. Ungverski ljósmyndarinn Jozsef L. Szentpetri hlaut fyrstu verðlaun
fyrir myndröð í flokknum Náttúra og umhverfi.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JÚLÍ 2002