Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 2002 11
Hvað er jarðhiti?
SVAR: Jarðhiti er eftir bókstaflegri merkingu
orðsins sá hiti í jörðinni sem er umfram þann
hita er ríkir við yfirborð jarðar. Menn hafa lengi
vitað að hiti fer vaxandi eftir því sem dýpra
kemur undir yfirborðið. Fyrirbæri eins og eld-
gos og heitar lindir hafa alla tíð verið óræk
sönnun fyrir þessu. Með aukinni nýtingu jarð-
hitans á tuttugustu öldinni hefur merking orðs-
ins þrengst nokkuð og er það nú fyrst og fremst
notað um það fyrirbæri er heitt vatn og gufa
kemur upp úr jörðinni á svokölluðum jarð-
hitasvæðum. Í ritmálsskrá Orðabókar Háskól-
ans eru fjölmörg dæmi um notkun orðsins á síð-
astliðnum tvö hundruð árum og er elsta dæmið
frá lokum 18. aldar. Forsendur þess að jarðhiti í
þessum þrengri skilningi verði til eru að jarð-
skorpan sé nægilega heit og í henni séu nægar
sprungur og vatnsgeng jarðlög til að vatn geti
runnið þar um og flutt með sér hitaorku eða
varma neðan úr dýpri og heitari jarðlögum til
yfirborðs. Þessar aðstæður eru fyrir hendi í eld-
fjallalöndum eins og á Íslandi þar sem jarð-
skorpuflekar snertast og myndast, en síður
annars staðar. Jarðskjálftar eru og óræk merki
þess að jarðskorpan sé að brotna og hreyfast. Í
jarðskjálftunum í júní 2000 ýmist víkkuðu eða
þrengdust vatnsæðar í jarðskorpunni á Suður-
landi og komu þau áhrif skýrt fram í fjölmörg-
um borholum á því svæði. Það er því ekki til-
viljun að jarðhiti er mikill á helstu
jarðskjálftasvæðum landsins. Jarðskorpan á Ís-
landi er tiltölulega heit vegna þess að neðri hluti
hennar er að talsverðu leyti myndaður úr
kvikuinnskotum sem ekki hafa náð til yfirborðs
heldur storknað á leiðinni upp. Heitust er hún
undir gos- og gliðnunarbeltunum en kólnar þeg-
ar fjær dregur og jarðskorpan verður eldri. Tal-
ið er að undir flestum háhitasvæðum landsins,
sem öll eru í gosbeltinu, séu kvikuinnskot í
tengslum við eldvirkni og þau séu aðalvarma-
gjafi þessara jarðhitasvæða. Lághitasvæðin
sem svo eru kölluð eru þar sem jarðskorpan er
kaldari, en þó nægilega heit til að hita vatn upp í
50 til 150°C. Í dag er stundum talað um köld
svæði þar sem jarðhiti hefur ekki fundist en
réttara væri að tala um þurr svæði því að alltaf
er nokkur hiti í jarðskorpunni þótt lítið sem
ekkert vatn sé til staðar til að flytja varmann til
yfirborðs. Þegar greina þarf á milli fyrirbær-
isins jarðhita og þeirrar orku sem berst með
vatni og gufu upp til yfirborðs er orðið jarð-
varmi notað um orkuna. Þannig er talað um
jarðvarmavirkjanir (eða jarðgufuvirkjanir)
fremur en um jarðhitavirkjanir. Jarðvarmi er
mældur í orkueiningum, til dæmis júlum eða
megavattstundum. Orðið hitaveita fremur en
varmaveita hefur þó unnið sér sess í málinu frá
því snemma á tuttugustu öldinni er það var
fyrst notað. Í dag er viss tilhneiging til að út-
rýma þessu orði með því að búa til orkuveitur
sem dreifa bæði varma og rafmagni (sbr. Orku-
veitu Reykjavíkur). Er að þessu nokkur eftirsjá
því að (jarð)hitaveitur voru lengi vel séríslenskt
fyrirbæri og orðið hitaveita á góðri leið með að
verða að alþjóðlegu orði um þess konar fyr-
irbæri, svipað og geysir hefur orðið í fjölmörg-
um tungumálum. Til könnunar á hita í jarð-
skorpunni eru mikið notaðar svokallaðar
hitastigulsmælingar. Hitastigull er hitaaukn-
ingin með dýpi og er hann mældur í °C á hvern
metra eða kílómetra í jarðskorpunni. Boraðar
eru grunnar holur, 50–100 m djúpar, og hiti
mældur á mismunandi dýpi í þeim. Algeng gildi
á hitastigli hér á landi þar sem jarðhita gætir
ekki eru á bilinu 50 til 100 °C/km. Sé hitastigull-
inn verulega hærri er það venjulega merki um
að heitar vatnsæðar sé að finna í berginu undir.
Þessi aðferð til könnunar á jarðhita hefur verið
notuð með góðum árangri víða um land þar sem
lítil merki hafa verið um jarðhita á yfirborði.
Fleiri aðferðir hafa einnig verið notaðar til
könnunar á jarðhitalíkum, til dæmis mælingar á
rafleiðni í jörðinni, en hitastigulsmælingarnar
gefa þó beinustu vísbendinguna um jarðhita
neðanjarðar. Jarðhitasvæði eru mjög mismun-
andi að útliti frá náttúrunnar hendi. Volgrur,
laugar, vatnshverir, gufuhverir, leirhverir, út-
fellingar af kalki, kísli og brennisteini og marg-
litt umhverfi, einkum háhitasvæða, er meðal
þess sem einkennir jarðhitann sem náttúrufyr-
irbæri. Þetta eru hin ytri ummerki orkuflutn-
inga sem eiga sér stað í jarðskorpunni. Mörg
jarðhitasvæði eru hreinustu gersemar frá nátt-
úrunnar hendi. Til að mynda má nefna Torfa-
jökulssvæðið, Kverkfjallasvæðið, Námafjall og
Þeistareyki sem dæmi um einkar litskrúðug há-
hitasvæði. Geysissvæðið í Haukadal er tvímæla-
laust það jarðhitasvæði sem þekktast er erlend-
is.
Guðmundur Pálmason, fyrrverandi forstjóri
jarðhitadeildar Orkustofnunar.
Hvers vegna springa ljósaperur?
SVAR: Í ljósaperu er rafstraumur leiddur um
grannan vír með ákveðið rafviðnám sem er
hærra en í venjulegum rafmagnsleiðslum.
Vegna viðnámsins hitnar vírinn þegar raf-
straumur rennur gegnum hann og verður fljótt
hvítglóandi. Til að verja glóðarþráðinn gegn
tæringu er ljósaperan lofttæmd. Væri ljósaper-
an ekki lofttæmd yrði hún einnig mun heitari
viðkomu. Glóðarþráðurinn er oftast gerður úr
málminum wolfram, sem heitir öðru nafni þung-
steinn (e. tungsten), en hann hentar meðal ann-
ars vel vegna þess hve bræðslumark hans er
hátt (3.422°C).
Vegna hitans eyðist vírinn smátt og smátt –
örlitlar flögur geta brotnað úr málminum eða þá
að hann hreinlega gufar smám saman upp. Á
stöðum þar sem glóðarþráðurinn grennist verð-
ur viðnámið hærra og þeir staðir hitna þess
vegna meir en aðrir. Að lokum nær vírinn að
hitna upp að bræðslumarki málmsins og bráðn-
ar í sundur. Um leið og vírinn fer í tvennt getur
neisti hlaupið frá einum hlutanum yfir í hinn.
Þetta veldur lítilli „sprengingu“ inni í ljósaper-
unni, sem gefur frá sér smáhljóð og ljósblossa.
Það er rafstraumshöggið sem fylgir þessum
neista sem verður stundum til þess að næm ör-
yggi eða vartappar (fuse) springa um leið og
ljósaperan syngur sitt síðasta.
Kristján Leósson, doktor í eðlisfræði.
HVAÐ ER
JARÐHITI?
Er til hálf hola, hvaða krabbar eru algengir í
fjörum landsins og eru lík smurð á Íslandi? Þess-
um spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að und-
anförnu á Vísindavefnum.
VÍSINDI
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Geysir í öllu sínu veldi.
Hljóðin sem heyrast eru of hvell fyrir eyrað,
og líkamsfrumurnar svara með gelti;
brátt fyllast innri stræti af geltandi kór.
Við sjáum landgönguprammann leggja að,
svarta bílinn skrensa og nema staðar,
siðavandan morðingjann losa byssurnar.
Villihundar rífa burt nef og eyru
og sendast með þau niður strætið –
líkaminn rífur af sér handleggina og fleygir þeim frá sér.
Spæjarinn dregur inní marghleypuna fimmtíuogfimm
milljónir manna,
sem sofa órólega einsog í loftárás á London;
bökin svigna í skáhöllu myrkrinu.
Glóvírar sálarinnar greinast sundur hægt og hægt;
andinn rofnar, rykbólstri svífur á loft;
einsog hús í Nebraska sem alltíeinu splundrast.
ÞEIR SEM AMRÍKA ER AÐ ÉTA
Öskur þeirra sem Amríka er að éta,
aðrir fölir og linir settir í geymslu til seinna borðhalds
Og Jefferson
sem eygði von í nýjum höfrum
Taumlaus heimilin halda áfram
með sítt hár sem vex uppámilli tánna
fæturnir fara á stjá á næturþeli
og hlaupa einsamlir niður löng hvít strætin
Stíflurnar umhverfast og vilja standa einar í eyðimörkinni
Klerkar sem stingast á hausinn niðrí jörðina
og guggið holdið
dreifist sakbitið inní nýjar bókmenntir
Það er þessvegna sem þessi ljóð eru svo döpur
og löngu dautt fólk hleypur yfir akrana
Þorri manna er að sökkva
og birtan í svip barna dofnar við sex eða sjö ára aldur
Brátt leysist veröldin upp í fámenn sambú þeirra frelsuðu
ROBERT BLY
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON ÞÝDDI
Robert Bly (f. 1926) er eitt helsta núlifandi ljóðskáld Bandaríkjanna og hefur sent frá sér átta frumsamin
ljóðasöfn og sjö söfn ljóðaþýðinga af ýmsum tungum. Meðal ljóðskálda sem hann hefur þýtt á ensku
eru Kabír, Rúmí, Rainer Maria Rilke, Antonio Machado, Pablo Neruda, César Vallejo, Federico García
Lorca og Juan Jiménez. Bly kom til Íslands í júní síðastliðnum og tók þátt í ritlistarnámskeiðinu á Vest-
urfarasetrinu á Hofsósi. Að því loknu dvaldist hann nokkra daga í Reykjavík og kom fram í Norræna
húsinu. Við það tækifæri voru þýðingarnar kynntar.
HORFT Á SJÓNVARP
Ég get ekki
tjáð mig eðlilega
undir svona kringumstæðum.
Óreiðan sem ríkir
um allan heim
ríkir einnig hér.
Hugsanir mínar brotlenda
í fallandi turnum
öryggis og friðar.
KÁRI TULINIUS
11. SEPTEMBER 2001 XCVIII. LJÓÐ
Höfundur leggur stund á nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
HRUN TVEGGJA
TURNA