Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. OKTÓBER 2002 3 M ÉR er hún minn- isstæð sagan af brúð- kaupinu í einu fiski- plássinu úti á landi fyrir fáeinum árum – eða var það ferming- arveizla? Nema einn prúðbúinn boðsgest- urinn sagði fermingarsystur sinni þau tíð- indi í óspurðum fréttum, að hann hefði gef- ið öllum barnabörnunum sínum jeppa bara svona til að gleðja litlu skinnin. Ferming- arsystirin var fljót að reikna: fimmtán barnabörn, fjórar milljónir stykkið, það gerir sextíu milljónir samtals á einu bretti – og það skipti engum togum, að veizlan leystist upp með brauki og bramli. Og hvað með það? Áhangendur kvóta- kerfisins munu trúlega segja sem svo, að upphlaupið í veizlunni hafi stafað af ein- skærri öfund. Við, sem höfum varað við af- leiðingum kvótakerfisins frá upphafi, lítum málið öðrum augum: sagan sýnir okkur, að ranglæti af hendi löggjafarvaldsins er ann- ars eðlis en ranglæti af hreinni tilviljun. Ranglæti af hálfu ríkisvaldsins ýtir undir sundrungu, ójöfnuð og úlfúð og ógnar efna- hagslífinu með því móti og splundrar fjöl- skyldum og byggðarlögum um leið. Það er eitt, ef fjölskylda finnur olíu á landareign sinni fyrir tilviljun og auðgast á því langt umfram flest annað fólk. Það er annað, ef ríkisvaldið færir fáeinum útvöldum auð og völd með því að afhenda þeim fémæta sam- eign þjóðar. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart, að Texas hefur vegnað vel í tímans rás, en Sádi-Arabíu illa. Olíuauður einstakra fjölskyldna í Texas féll þeim í skaut að miklu leyti fyrir tilviljun; þar ríkir friður – eða þannig. Olíuauður konungsfjöl- skyldunnar í Sádi-Arabíu er á hinn bóginn illa fenginn – og með illum afleiðingum: ein- ræðið, auðnuleysið, ofstækið, fáfræðin, spillingin og vitleysan í landinu því eru ein helzta undirrót ófriðarins í Austurlöndum nær og ógnun við heimsfriðinn. Hvernig ætli væri nú umhorfs í Texas, ef Kú Klúx Klan hefði komizt yfir olíulindirnar þar og notað tekjurnar til að hlaða undir vinveitt stjórnmálaöfl og stofna trúarskóla um allar trissur til að breiða út boðskapinn í guðs nafni? Aftur hingað heim: kvikmyndin Hafið eftir Baltasar Kormák og Ólaf Hauk Sím- onarson eftir samnefndu leikriti Ólafs Hauks segir sundrungarsögu af fjölskyldu vegna átaka um ráðstöfun kvótans, sem fjölskyldufaðirinn ræður yfir. Þótt flestir Íslendingar viti, um hvað málið snýst, er hætt við því, að útlendingar eigi erfitt með að átta sig á myndinni: þeir fá enga skýr- ingu á því, hvað kvóti er, hvernig hann er til kominn og hvaða þýðingu hann hefur. Mér þykir myndin prýðileg að öðru leyti en því, að hún gerir þessum þætti viðfangsefnisins ekki nógu rækileg skil. Kvikmynd er að sönnu knappur miðill, en þarna hefði samt þurft að fjalla nánar um samhengi hlutanna til að forðast misskilning. Spurningin, sem myndin vekur um fjölskylduharmleikinn, sem frá er sagt, er þessi: Er kvótanum ein- um um að kenna? Hvert er svarið? Öldum saman var á Íslandi líkt og í öðr- um löndum litið á sjávarútveg sem eina tegund landbúnaðar. Svo er enn víðast hvar, og það fer að ýmsu leyti vel á því, þar eð þessir tveir atvinnuvegir eru náskyldir og nauðalíkir. Þráfelldur vandi landbún- aðar og sjávarútvegs um allan heim er þessi: tækniframfarir valda því, að sífellt færri vinnandi hendur þarf til að framleiða landbúnaðarafurðir og veiða og vinna fisk. Stjórnvöld streitast á móti með því að styrkja landbúnað og útveg af almannafé: búverndarstefna OECD-ríkjanna kostar neytendur og skattgreiðendur þar á hverju ári fjárhæð, sem er jafnvirði gervallrar landsframleiðslu Afríku. Útvegurinn er eins og landbúnaður niðurgreiddur leynt og ljóst, bak og brjóst. Ríkisstuðningurinn hefur þó tekið ýmsum breytingum með tímanum. Fram til ársins 1959 var útveg- urinn hér heima á beinu ríkisframfæri. Ríkisútgjöld til útvegsins voru þá skorin niður úr 43% af ríkisútgjöldum í heild í 3% á aðeins tveim árum (þetta er ekki prent- villa). Féð, sem þannig var losað, var notað til að auka framlög til menntamála, heil- brigðismála, tryggingamála og – þú gizk- aðir rétt! – landbúnaðarmála. Á móti var gengi krónunnar fellt, svo að útvegurinn hélt að vonum velli. Eftir þetta var gengið fellt nánast eftir smekk og þörfum útgerð- arinnar, svo að hún þurfti ekki að hafa miklar fjárhagsáhyggjur upp frá því, enda átti hún einnig greiðan aðgang að nið- urgreiddu lánsfé í bankakerfinu. Þessi skipan kynti undir verðbólgu og skulda- söfnun þjóðarinnar í útlöndum. Þar kom þó, að menn hættu að fella gengi krónunnar eftir pöntun og byrjuðu að draga úr nær sjálfvirkum lánveitingum bankakerfisins til útvegsfyrirtækja, en þetta gerðist þó ekki fyrr en eftir að kvóta- kerfinu hafði verið komið á. Síðan hefur út- vegurinn verið styrktur með ókeypis af- hendingu aflaheimilda, sem hafa meðal annars gert ýmsum fyrirtækjum kleift að standa skil á skuldum sínum við bankana og fara sér hægt í hagræðingu. Um þetta segir í skýrslu Þjóðhagsstofnunar frá árinu 2000: ,, … er áætlað að verðmæti réttinda til að sækja sjó við Ísland hafi numið 23–24 milljörðum króna á fiskveiðiárinu 1996/97. Ef þessi verðmæti hefðu verið færð sem kostnaður, þá hefði ekki verið 3 milljarða króna hagnaður af sjávarútvegi á árinu 1996 heldur 20 milljarða tap, þ.e. tap sem nemur um þriðjungi af tekjum grein- arinnar!“ Kvótakerfið hefur flýtt fyrir hag- ræðingu í útvegi miðað við frjálsar veiðar, rétt er það, en það hefur tafið og torveldað hagræðinguna miðað við þann árangur, sem hefði getað náðst með vel útfærðu veiðigjaldi. Ástæðan er einföld: ríkisstyrkir draga þrótt úr atvinnurekstri. Þessi lýsing á vel við útgerðarfyrirtækið, sem lýst er í Hafinu: útgerðin er óhagkvæm og úrelt, segja börnin, en kvótinn heldur henni gangandi. Eftirsókn barnanna í myndinni eftir arfinum eftir móður þeirra er þess vegna ásókn í kvóta, en ekki ásókn í óvissan afrakstur af ævistarfi föðurins, útgerð- armannsins. Hvernig hefði sögunni vikið við, hefði sókninni á miðin verið stýrt með veiðigjaldi í stað kvóta síðan 1984? Þá hefðu að minni hyggju skapazt vænlegri skilyrði til að halda ávöxtum hagræðingarinnar heima í plássinu, einkum ef veiðigjaldstekjurnar hefðu verið nýttar að hluta til að efla menntun á landsbyggðinni og hvetja með því móti til aukinnar fjölbreytni í atvinnu- háttum, svo sem við veiðigjaldsmenn höf- um margir mælt með. Eigi að síður er fækkun fólks í útvegi óumflýjanleg eins og í landbúnaði, af því að tækniframfarir leysa vinnandi hendur af hólmi. Það þýðir þó ekki endilega, að fólkinu þurfi að fækka á landsbyggðinni: það er hægt að vinna við fleira þar en land og sjó. En hafi menn van- rækt að búa í haginn fyrir byggðirnar með því að leggja rækt við menntun fólksins, svo að fólki sé frjálst og gerlegt að velja sér atvinnu eftir eigin höfði frekar en eftir upp- skriftum þröngsýnna stjórnmálamanna, þá hlýtur fólkið að fara burt – suður. Þetta er byrjað að gerast og á eftir að ágerast, úr því sem komið er. Og það verður æ erfiðara að bæta skaðann, sem búið er að vinna. HAFIÐ HUG- ANN DREGUR RABB Þ O R V A L D U R G Y L F A S O N gylfason@hi.is Erla (Guðfinna Þorsteinsdóttir) VORGRÓÐUR Eitt vorkvöld um sólarlag sátu þau ein og sælunnar nutu í ró. Sú ást hafði vaknað sem vorblóm í hlíð og vermandi’ í hjörtunum bjó. Og kvöldsólin hló yfir hnjúkum. Dýrðleg var nóttin, draumblíð og hljóð, og dagurinn brosfagur rann, en unaðar-minning um elskendafund í afkimum hjartnanna brann, er dagsólin brosti við dalnum. Gullnasti vornæturdraumurinn dvín, er dagarnir koma með strit, og engjanna gróður og skóganna skraut – það skiptir með aldrinum lit. Og dagsólin lækkaði’ á lofti. Eitt haustkvöld um sólarlag sátu þau ein, en sundrung í hjörtunum bjó, því vorgróður hjartnanna visnaði brátt, með vorgróðri hlíðanna dó. – Og kvöldsólin hvarf bak við hnjúkinn. Erla var skáldanafn Guðfinnu Þorsteinsdóttur (1891–1972) en hún skrifaði ljóð og sagnaþætti. Ljóðið Vorgróður birtist í ljóðabókinni Hélublóm, 1937. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 4 1 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R EFNI Auglýsingar Flugleiða hafa verið talsvert til umræðu upp á síðkastið vegna vafasams táknmáls sem notað er til þess að lokka erlenda ferðamenn til Íslands. Úlfhildur Dags- dóttir hefur haft vakandi auga með þessum auglýsingum síðustu tvö ár og greinir kynferðislegar vísanir í þeim. Hermann Pálsson var einn af áhrifamestu miðaldafræðingum Íslendinga en Vésteinn Ólason kallar hann víking andans í grein þar sem hann greinir frá helstu kenningum hans og áhrifum. Matthew Barney er einn af áhugaverðustu myndlist- armönnum samtímans. Halldór Björn Runólfsson segir frá helstu verkum hans sem eru gagnrýnin á ástand samtímans. Hnattvæddir fjölmiðlar eru meðal annars til umfjöllunar á ráð- stefnu Háskóla Íslands um hnattvæðingu sem stendur nú yfir. Þröstur Helgason fjallar um kenningar kanadíska fjölmiðla- rýnisins Marshalls McLuhans um hnatt- vædda fjölmiðla og áhrif þeirra á manninn. FORSÍÐUMYNDIN er tekin í þorpinu Puerto Maldonado í Amasón-skóginum og sýnir gosdrykkjarauglýsingar á vegg. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.