Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. OKTÓBER 2002 B ANDARÍSKI listamaðurinn Matthew Barney hefur verið kallaður fjöllistamaður í fjöl- miðlum, hvað sem það á nú að þýða á nútíma íslensku. Í huga flestra okkar er orðið fjöllista- maður haft yfir þá tegund sirk- usleikara sem gleypa eld, kasta keilum og grípa, draga kanínu upp úr háum hatti, spranga um á einhjóli, saga í sundur menn, eða láta þá hverfa eins og dögg fyrir sólu með því að smella fingri. Þótt Matthew Barney sé trúlega mikill aðdáandi slíkra kappa og eigi sitthvað sameiginlegt með sirk- usfólki, þá er hann enginn fjöllistamaður í þeim skilningi. Það er engin ástæða til að kalla hann annað en myndlistarmann því það er hann, að minnsta kosti enn sem komið er. Matthew Barney er þó enginn venjulegur myndlistarmaður. Eftir rúmlega áratugar- langan feril nálgast hann æ meir kvikmynda- listina, draumaverksmiðjuna í Hollywood, með öllum sínum lævíslegu Pótemkíntjöldum, brellusmellum, innantóma glæsileik, áferðar- hreinu stílfærslum, hnökralausu silkisloppum og samæfðu fótleggjum sem mynda stjörnur og kremtertur að baki hvítpúðruðu greppi- trýni uppáklæddu sem rauðhærður dándis- maður í hvítum kjól og blankskóm. Þrautaganga glæsileikans Barney er óvenjunæmur fyrir þeim óskrif- uðu reglum sem gilda í mannlegu samfélagi og ganga út á sýnd og sókndirfsku. Mennirnir eru sýknt og heilagt að toppa sig og aðra með einum eða öðrum hætti. Öll mannleg viðleitni hnígur að samkeppni enda er það helsta ástríða okkar eins og sannast á hetju- og goð- sögnum frá örófi alda. Enginn er maður með mönnum nema hann fari framúr sér og öðr- um, eða reyni það að minnsta kosti. Þessi óvenjulegi listamaður sló í gegn svo um mun- aði árið 1991 þegar hann hélt tvær einkasýn- ingar, þá fyrstu hjá Stuart Regen í Los Ang- eles og síðan hjá Barböru Gladstone í New York, undir heitunum „[facility of Incline]“ – [auðvelt að beygja sig] – og „00“. Í báðum sýningum mátti sjá mjög vandlega mótuð rýmisverk, ásamt myndböndum af listamanninum sjálfum innan um ýmis sér- kennilega mótuð tæki og tól, prílandi með erf- iðismunum í lofti sýningarsalarins og hang- andi öfugur í títaníumboltum sem skrúfaðir voru upp fyrir hann eins og fleygar í jökul- sprungum. Gjörningana kallaði Barney Blind Perineum – eftir svæðinu sem skilur kynfæri frá afturenda manna – og „Mile High thres- hold: Flight with the Anal Sadistic Warrior“ – Míluhár þröskuldur: Flug með sódómsadíska stríðsmanninum. Umhverfis kom hann fyrir ýmsum höggmyndum í tengslum við gjörn- ingana, svo sem „Bolus“ – Klumpur – frá 1989-91, „Delay of Game“ – Hægt á leik – frá 1991, „Transexualis (decline)“ – Kynskipt- ingur (hnignun) – frá 1991 og „Repressia“ – Kúgun – sömuleiðis frá 1991. Þessar högg- myndir voru eins konar sviðsmunir í líki íþróttatækja á borð við glímudýnur, mann- hæðarstóran kæli, lyftingabekk, steyptan úr olíuhlaupi og lyftingalóð úr olíuvaxi. Á príli sínu um loft og veggi var listamað- urinn kviknakinn nema hvað hann var gyrtur nýjasta klifurbúnaði og fjallgönguskóm. Þessi sérstæða þörf fyrir að leggja á sig ómælt erf- iði var einkennandi fyrir list Barneys frá fyrstu tíð. Sem fimleikamaður var hugur hans teygður milli tveggja ólíkra heima, íþróttanna og listarinnar, sem þó eiga sér fjölmarga snertifleti, einkum hvað varðar þjálfun, ástundun og ósérhlífni. Þegar frá 1990 var hann mjög upptekinn af ruðningsboltahetj- unni Jim Otto, sem lék með vesturstrand- arliðinu Oakland Raiders – sem leikmaðurinn 00 í liðinu – og hefur verið kallaður síðasti mikli jaxlinn í ameríska ruðningsboltanum. Nú er þessi hetja á sextugsaldri, að jafna sig eftir uppskurð við krabbameini í blöðruháls- kirtli, sem Matthew Barney hefur varla séð fyrir þegar hann nýtti sér nafn hans í marg- vísleg Otto-verk, þar sem hetjan verður að ganga í gegnum röð af erfiðum þrautum. Í einu þessara verka, „Ottoshaft“, frá 1992, takast á skoskir sekkjapípuleikarar, en skosk minni, svo sem mynstrið á pilsum þeirra og kápum birtast í verkum Barneys oftar en einu sinni. Draumaveröld úr smurðu plasti og tapíóka Matthew Barney fæddist í San Francisco, í Kaliforníu, árið 1967. Eftir að foreldrar hans skildu – hann var þá sex ára – ólst hann upp hjá föður sínum í Boise í Idaho. Þar lék hann ruðningsbolta með menntaskólaliðinu, en heimsótti reglulega móður sína, sem bjó í New York-borg, og lærði af henni að meta myndlist á hinum fjölmörgu söfnum borg- arinnar. Síðar stundaði hann framhaldsnám við hinn þekkta Yale-háskóla, í New Haven, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1989. Það er til marks um óvenjuskjótan frama hans að einungis ári eftir fyrstu einkasýningar hans var hann valinn á níundu Documenta-sýn- inguna í Kassel – þar sem hann kynnti „Otto- shaft“ – myndband sitt um ruðningshetjuna á 00-treyjunni – og árið eftir, 1993, sýndi hann verk sitt „Drawing Restraint 7“ – Haldið aft- ur af sér 7 – bæði á Whitney-tvíæringnum yf- ir unga, bandaríska list, og á 45. Tvíær- ingnum í Feneyjum. „Drawing Restraint 7“ er sprenghlægilegt verk sem fjallar um skógarpúka, eða satýra, sem aka um New York-borg í glæsivagni og gera þar allt vitlaust með kynferðislegri hvat- vísi sinni og hömlulausri framkomu. Í þessu verki, sem bæði er myndband, ljósmyndir og höggmyndir, sýndi sig hve óvenjusnjall Bar- ney var í hvers kyns búningagerð, förðun og umbreytingum. Þá staðfestist sá óvenju hreinlegi stíll hans að móta allt úr hvítum og mjólkurhvítum efniviði, latex, og olíubornu parafíni, að ógleymdu tapíóka-þykkninu, rétt eins og veröld sú sem hann brá upp væri upp- hafin innri verund, staðsett djúpt undir melt- ingarfærunum, inni í sálrænum afkimum draumheima. Reyndar á þessi sérkennilegi satín- og silíkonheimur margt sameiginlegt með fölleitum lýsingum Steins Steinarr í ljóðabálknum „Tímanum og vatninu“, nema hvað veröld Steins er sakleysisleg og upp- runaleg í samanburði við straumlínulagaðan og maníerískan gerviheim Barneys. Það er nefnilega stór munur á draumum og framtíðarmartröð þar sem hin ýmsu erfða- fræðislys geta gerst með þeim afleiðingum að menn og dýr renna saman í eitt, og sérkenni kynjanna gufa upp. Hvergi lýsir Barney framtíðarsýn sinni betur en í pentalógíu þeirri – fimmhluta epíska stórvirki – í formi kvikmynda sem hann kallar „Cremaster I–V“, eftir vöðva þeim sem bindur hreðjar manna við líkamann. Árið 1994 var fyrsta myndin af fimm frumsýnd, undir heitinu „Cremaster IV“, í Fondation Cartier, í París. Myndin var að mestu tekin upp á Isle of Man, miðja vegu milli Bretlands og Írlands. Hún fjallar um kappakstur sérkennilegra formúluhjóla út um eyna, og halda gulir vélfákar gegn bláum með ökumönnum í stíl við ökutækin. Hið sér- kennilega er að vélfákarnir stunda ekki kapp- akstur í orðsins fyllstu merkingu heldur aka hver í sína áttina eftir hringvegi Manar. Þeir eru merktir skjaldarmerki, eða vörumerki, mynduðu úr þrem hlaupandi fótleggjum. Ferhyrndir hrútar og fljúgandi loftskip Á því er enginn vafi að val Barneys á Isle of Man sem umgjörð um hugarsmíð sína stendur í beinu sambandi við nafn eynnar. Ólíkt því sem íslenska heitið Manarey gæti gefið til kynna – man er mær, eða stúlka, en getur þó jafnframt þýtt þræll, eða ambátt – er enska heiti eyjarinnar rækilega vígt karl- mennskunni. Þó má vera að Barney hafi ein- mitt skilið heitið tvöföldum skilningi, því ekki er allt sem sýnist í framvindu myndarinnar. Ætlun aðalsöguhetjunnar er nefnilega sú að umbreyta sér í hrút af Loughton-kyni, en sá hrútur er ferhyrndur. Annað hornapar hrúts- ins vísar til himins – háleitra hugsana – með- an hitt leitar niður á við – væntanlega til áþreifanlegrar tilveru. Þessi táknræna tilvísun hornanna á sér ein- mitt samsvörun í vélhjólunum gulu og bláu, sem áður var getið. Þá eru ónefnd álfagerpin ókyngreinanlegu sem bera Barney í gervi dándismannsins – hins verðandi hrúts, GERPI EÐA GA Matthew Barney í hlutverki Risa Keð „The Drone’s Exposition“, frá 1999 – Sýning suðandi flugunnar, en í „Cremaster 2“ finnur Gilm E F T I R H A L L D Ó R B J Ö R N R U N Ó L F S S O N „Matthew Barney er enginn venjulegur myndlistar- maður. Eftir rúmlega áratugarlangan feril nálgast hann æ meir kvikmyndalistina, draumaverksmiðjuna í Hollywood, með öllum sínum lævíslegu Pótemkíntjöld- um, brellusmellum, innantóma glæsileik, áferðarhreinu stílfærslum, hnökralausu silkisloppum og samæfðu fót- leggjum sem mynda stjörnur og kremtertur að baki hvítpúðruðu greppitrýni uppáklæddu sem rauð- hærður dándismaður í hvítum kjól og blankskóm.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.