Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. OKTÓBER 2002 15
l i s t a s a f n r e y k j a v í k u r
hafnarhús , tryggvagötu 17 , reykjavík
19. október – 10 . nóvember 2002
opnunartími :
daglega 11–18, f immtudaga 11–19
leiðsögn:
f immtudaga, laugardaga
og sunnudaga kl . 16
aðgangur ókeypis
www.carnegieartaward.com
MYNDLIST
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Bjarni Sigurðsson baksal, Marisa Nav-
arro Ljósafold. Til 3. nóv.
Gallerí Hlemmur:
Þóra Þórs. Til 20. nóv.
Gallerí Skuggi: Kimmo Schroderus og
Charlotta Mickelsson. Til 20. okt.
Gallerí Sævars Karls:
Óli G. Jóhannsson. Til 23. okt.
Gerðarsafn: Gallerí Hlemmur og Unnar
og Egill/ný verk. Til 21. okt.
Hafnarborg: Tróndur Patursson og
Jüri Ojaver, Paul Rodgers, Jaan Toom-
ik og Jaan Paavle. Til 4. nóv.
Hús málaranna:
Kristinn G. Jóhannsson. Til 3. nóv.
Hönnunarsafn Íslands:
Óli Jóhann Ásmundsson. Til 1. des.
i8, Klapparstíg 33: Sigurður Guð-
mundsson. Undir stiganum: Þuríður
Sigurðardóttir. Til 23. nóv.
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Kristján
Logason, ljósmyndaverk. Til 20. okt.
Listasafn Akureyrar:
Hollensk myndlist frá 17. öld. Til 27. okt.
Listasafn ASÍ-Ásmundarsalur: Annu
Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir, Sól-
rún Trausta Auðunsdóttir. Til 20. okt.
Listasafn Borgarness:
Þorri Hringsson. Til 30. okt.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið alla daga kl. 14–18, nema mánu-
daga.
Listasafn Íslands:
Ljósmyndir úr safni Moderna Museet.
Til 3. nóv.
Listasafn Reykjanesbæjar:
Einar Garibaldi Eiríksson. Til 20. okt.
Listasafn Rvíkur - Ásmundarsafn: List-
in meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Rvíkur - Hafnarhús:
Carnegie-verðlaunin 2002. Til 10. nóv.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir:
Arne Jacobsen. Til 17. nóv. Arkitektarn-
ir Arno Lederer, Jórunn Ragnarsdóttir
og Mark Oei. Til 27. okt.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Andlitsmyndir og afstraksjónir. Til 30.3.
Listasetrið, Kirkjuhvoli, Akranesi:
Torfbæir sunnan Skarðsheiðar. Til 3.
nóv.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg:
Gunnsteinn Gíslason. Til 6. nóv.
Mokka: Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros
Misokilis. Til 16. nóv.
Norræna húsið: Clockwise. Til 20. okt.
Nýlistasafnið:
Magnús Pálsson, Eric Andersen &
Wolfgang Müller.
Til 24. nóv.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Tallervo Kalleinen, Niina Braun og Ulu
Braun. Til 20. okt.
Þjóðarbókhlaða:
Halldór Laxness. Til 31. des.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir. Skáld mánað-
arins: Egill Skallagrímsson.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Borgarleikhúsið: Caput - Nærmynd.
Kl. 15.15.
Sunnudagur
Hjallakirkja: Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir organisti. Kl. 17.
Bústaðakirkja: Camerarctica. Kl. 20.
Mánudagur
Kaffileikhúsið: Sænsk pólifónísk þjóð-
lagatónlist. Kl. 20.30.
Salurinn:
Bryndís Halla Gylfadóttir selló og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó.
Kl. 20.
Fimmtudagur
Háskólabíó: SÍ. Hljómsveitarstjóri:
Petri Sakari. Kl. 19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Lífið þrisvar sinnum, fös.
Með fulla vasa af grjóti, lau. Jón Oddur
og Jón Bjarni, sun. Viktoría og Georg,
fös. Karíus og Baktus, sun. Veislan,
sun., fim.
Borgarleikhúsið: Sölumaður deyr,
frums. fös. Ljóti andarunginn, sun.
Kryddlegin hjörtu, lau. Með vífið í lúk-
unum, fim. Jón og Hólmfríður, lau., fim.,
fös. And Björk … sun.
Íslenska óperan: Rakarinn í Sevilla, lau.
Loftkastalinn: Benedikt búálfur, sun.
Möguleikhúsið: Heiðarsnælda frums.
lau. Fös. Prumpuhóllinn, sun.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Grettissaga,
lau., mið., fös. Sellófon, sun., þrið., mið.
Nemendaleikhúsið: Skýfall. sun., mið.,
fim., fös.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
K
ATRÍN Sigurðardóttir mynd-
listarkona á verk án titils á
Carnegie Art Award 2002.
„Þetta er í rauninni sama
verk og ég gerði fyrir sýningu
á Kjarvalsstöðum árið 2000,
sýninguna Veg(g)ir,“ segir
Katrín. „Þegar það verk sem
ég sýndi á Kjarvalsstöðum var svo valið fyrir
sýningu Carnegie Art Award 2002 fannst mér,
af því að verkið er í eðli sínu innsetning sem er
staðarlega sértæk (site-specific), nauðsynlegt
að gera annað verk sérstaklega fyrir Hafn-
arhúsið.
Verk þetta gengur út á það að það er ákveð-
inn veggur holaður og gegnum þetta gat í
veggnum speglast baksvæði veggsins. Verkið
er því alltaf og einungis það sem er á bak við
þennan ákveðna vegg.“
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að eiga
verk á þessari sýningu?
„Það sem vegur þyngst fyrir mig er sú al-
menna athygli og dreifing sem verkin á sýn-
ingunni fá.“
En hvað ertu að gera um þessar mundir?
„Ég er að undirbúa verk fyrir sýningar bæði
hér í Bandaríkjunum og í Evrópu á næstu
mánuðum. Þar á meðal eru tvær sýningar fyr-
irhugaðar í New York.
Ég bý bæði í New York og í Reykjavík og
það er mjög gott fyrirkomulag, þá kosti sem
annan staðinn skortir hefur hinn og öfugt. Ég
býst ekki við að sjá þessa sýningu á Íslandi en
hugsanlega sé ég hana annars staðar.“
„Ómarkvert landslag“
Georgs Guðna
Georg Guðni á tvö málverk á Norðurlanda-
frumsýningu Carnegie Art Award 2002 sem
bæði eru án tiltils.
„Þessi verk mín eru án titils vegna þess að
þetta eru ekki málverk af ákveðnum stað,
þessir staðir gætu verið víða. Þetta er ef svo
má segja „ómarkvert landslag“,“ segir Georg
Guðni. „Þetta viðfangsefni hefur verið að koma
til mín smátt og smátt sl. 19 ár með hægfara
þróun. Íslensk náttúra er ákveðinn hvati í
verkum mínum. Grunnþættir í verkunum eru
jörðin, himinn og fjarlægðin, sem eru alls stað-
ar nokkurn veginn svipuð. Fleiri þættir eru í
verkunum sem tengjast svo myndlistarsög-
unni, þróun málverksins á 20. öld. Ég stend
uppi í dag og mála málverk sem byggjast á öllu
því sem gert hefur verið sl. 100 ár, þau eru ekki
ein og óstudd,“ sagði Georg Guðni einnig.
„Þetta er auðvitað stytt útgáfa af öllu því
sem mætti segja um þessi verk,“ bætir hann
við.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að verkin
þín voru valin á sýninguna?
„Það er alltaf gaman að sjá verkin sín í nýju
samhengi. Ef maður er með góða hluti þá tek-
ur einhver eftir þeim. Þýðingin veltur því tals-
vert á verkunum sjálfum og viðtökum þeirra.
Það er þess virði að taka þátt í þessu þó ekki
séu nema fáir á hverjum stað sem taka eftir
verkunum.“
Alltaf kærkomið að fá tækifæri
til að sýna erlendis
Hvaða viðfangsefni taka hug þinn allan um
þessar mundir?
„Það er alla daga verið að mála. Stærsta
verkefnið sem er á döfinni er sýning sem verð-
ur í Listasafni Íslands næsta vor. Þá verð ég
með nokkurs konar yfirlitssýningu. Ég hef
verið að mála landslag í 19 ár og viðfangsefnin
hafa þróast úr nafngreindum fjöllum í ná-
grenni Reykjavíkur í fyrrgreint „ómarkvert
landslag“.
„Þetta er verk sem heitir Kaldbakar og er
óður til fjallsins Kaldbaks við Eyjafjörð,“ segir
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona um
verk sitt á sýningunni Carnegie Art í Lista-
safni Reykjavíkur.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég blanda lands-
lagi í málverk, þetta er byrjun á þeirri þróun.
Ég hef verið þekkt sem fígúratívur málari en
nú er landslagið sem sagt komið inn og þá er
það landslag sem ég bý til sjálf. Ég fékk hug-
myndina að litunum í verkinu á vetrarmorgni á
Akureyri.
Um þýðingu þátttöku minna verka í þessari
sýningu vil ég segja:
Það er alltaf kærkomið þegar maður fær
tækifæri til að sýna verk sín erlendis, að maður
tali nú ekki um þegar svo vel er að sýningu
staðið eins og raunin er með Carnegie Art.“
Hvað er framundan?
„Ég ætlað að halda áfram að mála stór olíu-
litaverk – halda áfram að þróa þær hugmyndir
sem ég er með í kollinum.“
Almenn athygli og
dreifing vegur þyngst
Þrír Íslendingar eru meðal 25 norrænna listamanna
sem eiga verk á sýningunni Carnegie Art Award
2002 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. GUÐRÚN
GUÐLAUGSDÓTTIR ræddi stuttlega við þau Katrínu
Sigurðardóttur, Georg Guðna og Kristínu Gunnlaugs-
dóttur um verk þeirra á umræddri sýningu, þýðingu
hennar og hvað framundan væri.
Katrín Sigurðardóttir
Georg Guðni Hauksson
Kristín Gunnlaugsdóttir